Fréttablaðið - 18.12.2008, Page 38
18. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Fatahönnuðurinn Thelma
Björk Jónsdóttir hefur komið
sér upp vinnustofu í Garða-
stræti 2. Þar framleiðir hún
höfuðskrautið sitt undir merk-
inu Thelma Design.
„Í höfuðskrautinu fyrir jól og
áramót er ég með mikið af stíf-
uðu hekli og krosssaumi,“ segir
Thelma Björk þar sem hún situr
við saumaskap á jólalínunni. „Svo
verða rósetturnar mínar líka með
og nú í jólabúningi.“
Thelma setti fyrirtæki sitt
Thelma Design á fót árið 2005.
Hún kynnti nýja línu af höfuð-
skrauti í París í október síðastliðn-
um en hún reynir að fara til Par-
ísar með kynningar einu sinni til
tvisvar á ári. Þar gefst tækifæri til
að mynda viðskiptasambönd og er
Thelma farin að selja hönnun sína
víða um heim.
„Ég sel í Tókýó, Þýskalandi, á
Ítalíu og í Frakklandi og nú voru
Kórea og Hong Kong að detta inn.
Svo þarf maður bara að vera dug-
legur að auglýsa sig og koma sér á
framfæri en ég kynnti sumarlínuna
2009 núna í október. Þar er hekl og
krosssaumur í aðalhlutverki.“
Allt höfuðskraut frá Thelmu er
handunnið og leggur hún mikla
áherslu á gæði. Hjá henni starf-
ar saumakona á vinnustofunni auk
þess sem hún tekur sjálf í nálina.
„Amma er líka dugleg að koma
inn og hjálpa til, ég reyni að halda
þessu í fjölskyldunni.“
Á döfinni er svo frekari viðbót
við höfuðskrautið en eyrnaskjól úr
kanínuskinni og ull koma á mark-
aðinn fyrir jólin. Einnig stefnir
Thelma á að setja hatta á mark-
að eftir áramótin. Höfuðskraut
Thelmu fæst í Trilógíu á Laugavegi
og í Epal í Leifsstöð. Nánar á www.
thelma-design.com. - rat
Útsaumur og stífað hekl
Thelma Björk Jónsdóttir hönnuður situr nú við að sauma jóla- og áramótalínuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Nálarsporin geta verið ansi mörg í
hverri spöng en allar vörur Thelmu er
handunnar.
Rósetturnar hafa
verið eins og rauður
þráður í línum Thelmu
og verða engin undan-
tekning í nýju línunni.
Krosssaumur er
áberandi í vor- og
sumarlínunni fyrir
árið 2009 sem
kynnt var í París á
dögunum.
Dreifingaraðili:
Fæst í verslunum um land allt
NÝTT Á ÍSLANDI
Hin geysivinsæla Disney útgáfa er komin í verslanir:
Opnaðu töfraheim Disney og
spilaðu Trivial Pursuit með
allri Fjölskyldunni.