Fréttablaðið - 27.12.2008, Qupperneq 16
16 27. desember 2008 LAUGARDAGUR
Styrjaldir, óeirðir, kosningar,
hamfarir og efnahagshrun.
Að undanskildu þessu síðasta
hefur árið 2008 gengið fyrir sig
með svipuðum hætti og flest
önnur ár. Þeir stórviðburðir
sem plássfrekastir reynast í
heimsfréttunum hafa kannski
sjaldnast góð áhrif á örlög
þeirra einstaklinga sem fyrir
þeim verða, en myndir frá
þessum heimsviðburðum eru
einatt þeim mun áhrifaríkari
fyrir þá sem fjær standa, eins
og sjá má hér á opnunni.
JARÐSKJÁLFTI Í KÍNA Jarðskjálftinn sem reið yfir í Sichuan-héraði í Kína hinn 12. maí kostaði nærri 70
þúsund manns lífið, þar á meðal þúsundir skólabarna sem fórust þegar lélegar skólabyggingar hrundu hver
á fætur annarri. Á myndinni situr kínverskur bóndi framan við rústirnar af húsi sínu í Hanwang.
NORDICPHOTOS/AFP
EILÍFÐARÁTÖK Ísraelskur hermaður dregur tvo ísraelska landtökumenn á eftir sér þegar hús í borginni
Hebron á Vesturbakkanum var rýmt í byrjun desember. Landtökufólkið hefur komið sér fyrir víða á her-
teknu svæðunum og torveldar með því alla friðarsamninga við Palestínumenn, en sjaldan hefur Ísraels-
stjórn lagt í að rýma landtökubyggðirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÓEIRÐIR Í KENÍA Í byrjun ársins brutust út heiftarlegar óeirðir í Ke
seti lýsti yfir kosningasigri. Raila Odinga, leiðtogi stjórnarandstöðu
sætti sig ekki við opinberar kosningatölur. Á myndinni sjást nokkr
í Kisumu. Ofan á bifreiðinni brennur gúmmídekk. Undir vorið ger
með sér samkomulag um að Kibaki verði áfram forseti en Odinga
ÆVINTÝRI Sigurganga Baracks Obama hefur verið ævintýri líkust. Hann tekur við af George W. Bush Bandaríkjaforseta 20. janúar næstkomandi og verður fyrsti
hörundsdökki maðurinn til þess að gegna því embætti. Víða um heim bindur fólk miklar vonir við að hann geri verulegar breytingar á stefnu og starfsháttum
Bandaríkjastjórnar. Á myndinni fagnar hann sigri á sviði í Chicago að kvöldi 4. nóvember ásamt fjölskyldu sinni. NORDICPHOTOS/AFP
STÓLASKIPTI Í MOSKVU Dmitrí Medvedev, áður forsætisráðherra Rússlands,
tók við forsetaembættinu af Vladimír Pútin, sem sjálfur tók að sér forsætis-
ráðherraembættið. Margir telja fullvíst að Pútín stjórni landinu í raun áfram
og ætli sér að bjóða sig fram til forseta á ný þegar fjögurra ára kjörtímabili
Medvedevs lýkur. NORDICPHOTOS/AFP
STRÍÐ Í GEORGÍU Í ágúst braust út heiftarlegt stríð í Georgíu milli rússneska hersins
og Georgíumanna. Átökin hófust eftir að Georgíuher réðst inn í aðskilnaðarhér-
aðið Suður-Ossetíu, og sögðust þá vera að bregðast við ögrunum frá rússneskum
friðargæsluhermönnum þar. Eftir að átökum lauk virðast Georgíumenn endanlega
hafa misst frá sér héröðin Suður-Ossetíu og Abkasíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Erlendar fréttamyndir ársins 2008