Fréttablaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI 33,4% 70,7% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Fréttablaðið er með 112% meiri lestur en Morgunblaðið Allt sem þú þarft... ... alla daga Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008. Sími: 512 5000 SUNNUDAGUR 4. janúar 2009 — 3. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG FY LG IR Í D A G Opið 13–18 MENNING Íslenskir bókaútgefendur gerðu rúmlega 140 samninga við erlenda útgefendur á árinu sem var að líða. Stærsti útgefandinn, Forlagið, gerði ríflega 130 samninga árið 2008. Mestu munar þar um Arnald Indriðason. Ekki er um einsleitan hóp útgefanda frá nágrannaþjóðunum að ræða því kóreskir, indver- skir og kínverskir bókaormar geta brátt nálgast íslenskar bækur á eigin tungumáli. Smærri útgefendur stóðu líka stórræðum á árinu. Pétur Már Ólafsson í Veröld gerði sjö útgáfu- samninga vegna bóka Yrsu Sigurðardóttur. Kristj- án Kristjánsson hjá Uppheimum seldi síðan rétt- inn að tveimur bókum Ævars Arnar Jósepssonar til þýska risans btb. Konur þykja áhugaverður kostur í augum erlendra útgefanda en auk Yrsu gerðu bæði Auður Jónsdóttir og Guðrún Eva Mínervudóttir samninga við áðurnefnt btb. - fgg Íslenskir útgefendur gerðu rúmlega 140 samninga við erlend forlög: Setja nýtt met í útgáfusamningum Minnisstæð augnablik Hvaða myndlistar-, tónlistar- og menningarviðburði bar hæst árið 2008? 10 VIÐSKIPTI Einkahlutafélögum sem hafa það hlutverk að kaupa og selja hlutabréf, svokölluðum eignarhaldsfélögum, hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum árum. Eignarhaldsfélögin voru um 1.150 talsins í lok árs 2004 en eru nú 3.300. Um þriðjungur útlána við- skiptabankanna var til hlutafjár- kaupa eignarhaldsfélaga, að sögn Vilhjálms Bjarnasonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka fjárfesta. Oft verður til flókin keðja eignatengsla þegar eignarhalds- félög eiga í öðrum eignarhaldsfé- lögum, segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. - bj / sjá síðu 4 Fjöldi eignarhaldsfélaga: Þreföldun á fjórum árum STJÓRNMÁL „Þetta hlýtur að vera úthugsað hjá þeim en þessi afstaða formanns Samfylkingarinnar er samt einkennileg,“ segir Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir, varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, um þá tillögu Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur að kosið verði til Alþingis samfara hugsanlegri þjóðarat- kvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þorgerður bendir á að ef ákveð- ið verði að fara í aðildarviðræður þá gæti það ferli tekið tólf til sex- tán mánuði. Ef síðan næðist sam- komulag um aðild þá þyrfti að breyta stjórnarskrá til þess að af henni gæti orðið. „Til þess þarf að kjósa vegna þess að tvö mismunandi þing þurfa að samþykkja breytingu á stjórn- arskrá. Og ef það á að fara kjósa til þings samfara þjóðar-atkvæða- greiðslu þá mun þingið ekki fá neitt svigrúm til þess að fara yfir efnismiklar stjórnarskrárbreyt- ingar. Ég trúi því einfaldlega ekki að menn ætlist til þess að það verði kosið tvisvar á einu ári til Alþing- is. Það væri nú ekki til að einfalda málin og stuðla að þeiri auknu festu í samfélaginu sem við þurf- um,“ segir Þorgerður. Geir H. Haarde forsætisráð- herra hefur nefnt þann möguleika að þjóðin greiði atkvæði um hvort fara eigi í aðildarviðræður. Þor- gerður segir það fyrirkomulag vissulega koma til greina þótt hún sé ekki reiðbúin að taka af skarið um það núna hvort það sé rétta leiðin. „Þingið ætti að minnsta kosti að taka þá pólitísku ákvörðun,“ segir Þorgerður, sem sjálf kveðst sífellt sannfærðari um að rétt sé að ganga til viðræðna að ákveðnum forsend- um gefnum sem varða auðlindir Íslendinga. Sjálfstæðismenn muni fyrir sitt leyti taka skýra afstöðu til Evrópumála á komandi lands- fundi. „Eins og menn vita eru skiptar skoðanir innan flokksins en stjórnmálamenn eiga að taka skýra afstöðu á grundvelli upplýs- inga og það munum við gera.“ - gar /sjá síðu 6 Einkennileg hugmynd um alþingiskosningar Varaformaður Sjálfstæðisflokks hafnar hugmyndum formanns Samfylkingar um alþingiskosningar samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Einkennilegt væri að bjóða upp á tvennar þingkosningar á einu ári. HÆGUR VINDUR Í dag verður hæg suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s víðast hvar. Dálítil rigning eða súld sunnan- og suðvestanlands en yfirleitt úrkomulaust og bjart norðan til. Hiti á bilinu 0-7 stig. VEÐUR 4 6 1 1 1 5 SKÓR VIÐ DOWNINGSTRÆTI Margir mót- mælenda í Lundúnaborg skildu skótau sitt eftir við bústað forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LONDON, AP Tugþúsundir mót- mæltu vikulöngum árásum Ísraelshers gegn Hamas-liðum á Gazasvæðinu víða í stórborgum Evrópu í gær og þrýstu á ráðamenn að þeir beiti sér fyrir því að vopnahlé verði gert. Margir mótmælenda í Lundún- um í Bretlandi köstuðu skóm sínum að bústað Gordons Brown forsætisráðherra og veifuðu fána Palestínumanna. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, studdi um helgina sameiginlegt vopnahlé en varði á sama tíma árásir Ísraelshers sem hann sagði sjálfsvörn. - jab Skóm fleygt í Downingstræti: Þúsundir mót- mæla árásum ÁRIÐ HELGAÐ STJÖRNUFRÆÐI 400 ár frá uppgötvun Galíleó Galílei 12 ÞÚSUNDIR Á AUSTURVELLI Samtökin Raddir fólksins stóðu fyrir þrettánda mótmælafundinum undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu á Austurvelli í gær. Skipuleggjendur fundarins telja allt að 5.000 manns hafa verið viðstadda, en lögregla segir fjöldann nokkuð minni. Hin átta ára gamla Dagný Dimmblá Jóhannsdóttir hélt ræðu við góðar undirtektir. sjá síðu 2. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL fjölskyldan [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLA ÐSINS UM FJÖLSKYLD UNA ] janúar 2009 KKERT LÍF ÁN MARTRÖÐ Í MANCHESTER Mark Hughes og félagar í Manchester City voru slegnir út af B-deildarliði Notthingham Forest í ensku bikarkeppninni ÍÞRÓTTIR 18

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.