Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.01.2009, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 04.01.2009, Qupperneq 21
SUNNUDAGUR 4. janúar 2009 5 Icelandair er fyrirtæki í forystu á alþjóðamarkaði í ferðaþjónustu. Við erum í öflugri sókn og sækjumst eftir einstaklingum til að taka þátt í uppbyggingu okkar á komandi árum. Icelandair er kraftmikið ferðaþjónustu- fyrirtæki sem tekur þátt í harðri samkeppni á alþjóðamarkaði. Icelandair er framsækið fyrirtæki, leiðandi í ferðaþjónustu á Íslandi, leiðandi í markaðssetningu á internetinu og í fremstu röð í þróun upplýsingatækni. Starfsmenn Icelandair eru lykillinn að velgengni félagsins. Hjá Icelandair starfa um 1400 manns af mörgum þjóðernum í tíu löndum. Icelandair leggur áherslu á að starfsmenn félagsins séu þjónustusinnaðir og tilbúnir að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Icelandair leggur áherslu á þjálfun starfsmanna og símenntun, hvetur starfsmenn til heilsuræktar og styður við félagsstarf starfsmanna. Icelandair hlaut Starfsmennta- verðlaunin 2007. Icelandair er reyklaust fyrirtæki. Við erum ein áhöfn með sameiginlegt, skýrt markmið, berum virðingu fyrir viðskiptavinum og samstarfsmönnum og höfum gaman af því sem við gerum. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Icelandair: www.icelandair.is eigi síðar en 15. janúar nk. VILT ÞÚ MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR? ICELANDAIR óskar eftir að ráða til starfa gæðastjóra. Hlutverk gæðastjóra er að stýra og þróa gæðakerfi í samræmi við íslenska og erlenda öryggisstaðla. Starf gæðastjóra heyrir undir framkvæmdastjóra framleiðslusviðs og sinnir gæðastjóri verkefnum þvert á mismunandi fagsvið á sambærilegan hátt og yfirmenn flugöryggis- og flugverndarmála. STARFSSVIÐ • Gæðakerfi Icelandair nær til eftirfarandi þátta í rekstri fyrirtækisins. Tilvísun í viðkomandi reglugerð ásamt ensku heiti deildar fylgir í sviga: Flugdeild Icelandair (Flight Operation, JAR-OPS 1 / EU-OPS 1) Tegundaréttindaskóli Icelandair (Type Rating Training Organisation, JAR- FCL 1) Viðhaldsstöð Icelandair (Approved Maintenance Organisation, EASA Part-145) Viðhaldsstjórn Icelandair (Continuing Airworthiness Management Organisation, EASA Part-M Subpart G) Hönnunarstofa Icelandair (Design Organisation, EASA Part-21) • Áform eru um að gæðakerfið muni einnig ná til eftirfarandi reksturs sem nú er í undirbúningi: Lofthæfisendurskoðun (Continuing Airworthiness Review, EASA Part-M Subpart I) Flugvirkjaskóli Icelandair (Maintenance Training Organisation, EASA Part-147) HÆFNISKRÖFUR Leitað er eftir einstaklingi með tæknimenntun á háskólastigi eða víðtæka reynslu af gæðamálum. Lögð er áhersla á góða samskiptahæfileika, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Mjög góð enskukunnátta er nauðsynleg. Þekking á starfsemi flugfélaga og viðhaldi flugvéla er nauðsynleg. Hér er um spennandi og krefjandi starf að ræða í góðu starfsumhverfi þar sem öryggi, áreiðanleiki og hágæða vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á að ná góðum árangri í starfi og hafa áhuga á því að vinna sem hluti af liðsheild. Gert er ráð fyrir að gæðastjóri hefji störf nk. vor en undirbúningur vegna starfsins þarf að geta hafist mun fyrr skv. nánara samkomulagi. GÆÐASTJÓRI ÍS LE N SK A S IA .I S I C E 4 41 33 0 1 /0 9 Embætti forstjóra nýrrar þjónustu- og þekkingar- miðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga Laust er til umsóknar embætti forstjóra nýrrar stofnunar sem heyrir undir félags- og tryggin- gamálaráðuneytið skv. 2. gr. laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga nr. 160/2008. Forstjórinn starfar samkvæmt fyrirmælum laga, reglugerða og erindisbréfs sem ráðherra setur honum. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í star . • Þekking og reynsla sem nýtist á starfssviði stofnunarinnar og við stjórnun hennar. • Leiðtogahæ leikar. • Færni í mannlegum samskiptum. • Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti. • Góð tungumálakunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli. • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni. Nánari upplýsingar um star ð veitir Lára Björnsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs í síma 545 8100. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Óskað er eftir að viðkomandi geti ha ð störf sem fyrst. Um launakjör fer samkvæmt ákvörðun Kjararáðs. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast félags- og tryggin- gamálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggva- götu, 150 Reykjavík, eða á netfangið: postur@fel.stjr.is eigi síðar en 19. janúar 2009. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 2. janúar 2009.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.