Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.01.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 04.01.2009, Qupperneq 10
10 4. janúar 2009 SUNNUDAGUR Fjórði júlí minnistæðastur Sigtryggur Berg Sigmarsson myndlistarmaður „Það sem stóð upp úr hjá mér árið 2008 var dagurinn fjórði júlí en þar fóru bræðurnir Snorri Ásmundsson og Ásmundur Ásmundsson á kostum. Snorri hélt bæna- stund fyrir heimsfriði í Hljómskálagarðinum þennan dag og hljóm- sveitin Evil Madness spil- aði undir. Þetta var alveg svakalegur viðburður og það undarlega við hann var að á sama tíma hinum megin við götuna var Jón Ásgeir Jóhannes- son að halda afmælispartí og hafði fengið Ný dönsk til að spila. Böndin tvö voru að keppast um hvort gat spilað hærra og það endaði með því að mikill rígur upphófst og hljómsveitarmeðlimir urðu að ræða saman og sættast. Hið góða vann hið illa á endan- um. Ásmundur Ásmundsson tók svo þátt í samsýningunni Á barmi einhvers II í Gall- erí Kling og bang á Laugaveginum sem opn- aði einmitt þann fjórða júlí. Mér fannst hann vera með bestu innsetninguna á sýn- ingunni sem hann titlaði „I am merely a curator“. Ásmundur er mikill snillingur og yndislegur maður.“ Ógleymanlegur Ísafjörður Anna Clausen stílisti „Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður var alveg einstakur atburður fyrir mig á síðasta ári. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hafði komið til Ísafjarðar og eftir átta klukku- stunda akstur tóku örn og fálki á móti okkur á flugi við bæjarmynnið. Hápunktur hátíð- arinnar var sérstök ferð farin til Flateyrar sem Mugison og faðir hans skipulögðu. Við vorum illa haldin af þynnku þegar rúta náði í okkur og fór með okkur í páskamessu í kirkjunni í Holti. Heimamenn tóku afar vel á móti okkur og voru ánægðir með að fylla kirkjuna af hamingjusömum ferðamönnum. Eftir messu heimsóttum við svo stórkost- legt hljóðver sem heitir Tankurinn. Sund- sprettur í lauginni læknaði það sem eftir var af timburmönnunum og kvöldið endaði svo með frábærum málsverði í félagsheim- ilinu þar sem fólk tók undir í söng og ræðu- höldum. Allt þetta, ásamt framúrstefnu- legri tónlist og stórbrotinni náttúrunni allt í kring, gerði ferðina ógleymanlega. Annar menningarhápunktur í uppáhaldi hjá mér á síð- asta ári var sýning Ásdís- ar Sifjar Gunnarsdóttur í Gallerí Kling og bang. Hún er einstaklega fram- sækinn íslenskur lista- maður og hún sameinar sjónlist, gjörningalist og texta á einstakan hátt. Ég elska verkin hennar. Að lokum finnst mér Jón Jónsson eiga lof skilið fyrir að flytja inn allt frá Sebastian Tellier til Carls Craig til landsins. Ég vona að stuð- ið haldi áfram árið 2009!“ Stórkostlegir tónleikar Sigur Rósar Jón Trausti Sigurðarsson hjá Reykjavík Grap- evine „Hvað tónlist varðar árið 2008 finnst mér tíunda Iceland Airwaves-hátíðin minnis- stæðust. Að vísu þótti mér hún ívið slakari en fyrri ár en hún stóð engu að síður fyrir sínu. Ég vona innilega að þetta hafi ekki verið síðasta hátíðin sem haldin verð- ur. Eins fundust mér tón- leikar Sigur Rósar í Laug- ardalshöllinni alveg stórkostlegir og þeir bera hæst af öllum tónleikum ársins. Jóladagatal Norræna hússins var mjög skemmtilegt og það sem mér er minni- stæðast hvað listir varðar. Norræna húsið hélt dagskrá gangandi frá 1. desember til 23. desember en þar kom rjóminn af íslensk- um listamönnum fram, meðal annars Björk. Besta kvikmynd ársins finnst mér heimildar- myndin Kjötborg um þá Kjötborgarbræður. Ég er stoltur af því að hafa verið í reikningi hjá þessari góðu verslun. Svo var RIFF- kvikmyndahátíðin í september mikil frels- un frá oft annars litlausu bíóári.“ Hús í tjörninni og hafmeyjur í Hveragerði Kitty Von Sometime, listakona og plötusnúður „Ég dýrkaði litla rauða húsið eftir Halldór Úlfarsson og Tea Makipaa sem var hálf- sökkt ofan í tjörnina í Reykjavík á lista- hátíð. Ég er mjög hrifin af svona einfaldri list sem er samt svo áhrifamikil. Ég sá húsið fyrst þegar ég hjólaði heim til mín eftir kvöld úti á lífinu og snar- bremsaði til þess að skoða það betur í nætursólinni. Annar hápunktur menn- ingarlífsins á síðasta ári voru Náttúrutónleikarnir í Laugardal þar sem Björk, Sigur Rós, Gho- stigital og Ólöf Arnalds leiddu saman hesta sína. Eitt af því sem ég helst sakna frá því að ég bjó í London er magnið þar af ókeypis tónleikum sem haldnir eru utandyra. Það er hægt að sækja slíka tón- leika með vinum sínum og hitta aðra og gera sér glaðan dag. Náttúrutónleikarnir uppfylltu allar þessar óskir þar sem and- rúmsloftið var jákvætt og magnað og veðr- ið var frábært. Að lokum er það mitt eigið listaverkefni með hópnum Weird Girls sem er mér sterkast í minni. Ég held ekki að neinn í Hveragerði muni fljótt gleyma sex- tán skínandi bláum spandex-hafmeyjum sem yfirtóku sundlaugina í Laugaskarði. Við skemmtum okkur stórkostlega. Þarna tókum við upp þátt númer sex af Weird Girls sem einnig er sá vinsælasti.“ Náttúrutónleikarnir stóðu upp úr Elsa María Jakobsdóttir sjónvarpskona „Fyrir mér voru það tónleikarnir Náttúra sem stóðu upp úr hvað menningarviðburði varðar á síðasta ári. Þetta var frábært fram- tak og verðugt málefni og mér fannst áber- andi hvað samstaða var mikil hjá fólki til þess að láta þennan viðburð ganga upp. Tón- leikunum var slegið upp með frekar litlum fyri- vara og mér fannst þetta gott dæmi um hversu hratt og vel hlutirnir geta gerst hér heima á Íslandi. Þess utan var dagurinn yndislegur í alla staði og gekk fullkomlega upp – veðrið var yndislegt og stemningin góð. Það var eitthvað alveg ein- stakt í loftinu þennan dag. Hápunktur tón- leikanna var að mínu mati þegar blásara- stúlkurnar þrömmuðu á svið við lag Bjarkar Guðmundsdóttur Brennið þið vitar. Reynd- ar fannst mér líka tónleikar Bjarkar í Lang- holtskirkju alveg frábærir. Það var gaman að sjá hana í svona mikilli nánd.“ Töfrandi stund í Langholtskirkju Ása Briem útvarpskona „Eftirminnilegasti listviðburðurinn að mínu mati voru tónleikar í Langholtskirkju laugardaginn sjötta september þegar Anna Guðný Guðmundsdóttir lék á píanó verk Oliviers Messiaen; Vingt Regards sur l’Enfant-Jésus (Tut- tugu tillit til Jesúbarns- ins). Rás 1 átti frumkvæð- ið að því að minnast aldarafmælis Messiaens með því að láta hljóðrita þetta stórmerkilega tón- verk. Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur var boðið hið ærna einleikshlutverk, en hún er fyrst íslenskra píanóleikara til að flytja Minnisstæðustu augnablik ársins Hvaða myndlistar-, tónlistar- og menningarviðburði bar hæst árið 2008? Anna Margrét Björnsson heyrði í nokkrum listunnend- um af yngri kynslóðinni um hvaða viðburðir voru þeim ógleymanlegir á síðasta ári.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.