Fréttablaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 17
Vísindastjóri í viðskipta- þróun (Biomedical programs manager) Starfslýsing: Uppbygging á tengslaneti meðal vísinda- manna í læknisfræði innan rannsókna- stofnana og fyrirtækja á sviði frumulíffræði, vefjasmíði og tengdra læknisfræðirann- sókna, með hliðsjón af nýtingu vaxtarþátta. Ráðgjafi á sviði frumuræktana og notkunar vaxtarþátta. Þátttaka í alþjóðlegum ráðstefnum, greining á nýjum viðskiptatæki- færum og möguleikum á úthýsingu, öflun upplýsinga um nýjar afurðir, þróun þeirra og nýtingu er lýtur að læknisfræði og lyfja- þróun. Menntunar- og hæfniskröfur: • Doktorspróf í frumulíffræði eða skyldum greinum • Sterkur ferill í rannsóknum og birtingum, helst á sviði stofnfrumurannsókna • Almenn stjórnunarreynsla • Reynsla í stjórnun alþjóðlegra vísinda- verkefna • Hæfni í tengslamyndun og umsjón með rannsókna- og viðskiptatengslum Sameindaerfðafræðingur (Project leader) Starfslýsing: Staða sérfræðings til að leiða rannsóknir á genatjáningu og þróun afkastamikilla kerfa í sameindaræktun hjá fyrirtæki í fremstu röð. ORF leitar að afburða sameindalíf- fræðingi, sem hefur áhuga og kraft til að stýra vinnu við tækniþróun í próteinfram- leiðslu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Doktorspróf í sameindaerfðafræði eða skyldum greinum • Yfirgripsmikil þekking á genatjáningu og stýri- svæðum, helst í plöntum • Reynsla og þekking á sviði próteinhreinsunar • Þekking á plöntulífeðlisfræði æskileg • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri • Hæfni til að vinna sjálfstætt • Hæfni til að stýra verkefnum og/eða vinnuhópi • Reynsla af erlendu rannsóknarsamstarfi Viðskiptastjóri í viðskipta- þróun (Business development manager) Starfslýsing: Stjórnun á viðskiptaþróun gagnvart stórum fyrirtækjum á snyrtivörumarkaði sem og fyrirtækjum sem framleiða og/eða nota frumuræktunaræti fyrir læknisrannsóknir og lyfja- og lífefnaframleiðslu. Stefnumótun og áætlanagerð fyrir sviðið. Greina viðskipta- tækifæri, leit að álitlegum viðskiptavinum, úttekt á þeim, sölufundir og gerð samninga um kaup á afurðum félagsins og/eða um samstarfsverkefni. Umsjón með viðskiptum við viðskiptavini. Þátttaka í vöruþróun. Starfið krefst mikilla ferðalaga erlendis. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í markaðsfræðum og reynsla á sviði markaðsmála • Háskólamenntun í frumulíffræði eða skyldum raungreinum • Frumkvæðni og sjálfstæð vinnubrögð • Almenn stjórnunarreynsla • Hæfni í sölu og samningagerð Kynningarfulltrúi (Marketing coordinator) Starfslýsing: Umsjón með gerð kynningarefnis, frétta- bréfa og kynningargagna fyrir erlenda dreifi- aðila og viðskiptavini, viðhaldi á heimasíðu og markaðssetningu á netinu. Auk þess öflun nauðsynlegra upplýsinga, s.s. fyrir nýjar vörur og nýja viðskiptavini, samskipti við viðskiptavini og þátttaka í kynningar- átaki erlendis. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í markaðsfræðum • Háskólamenntun í líffræði eða skyldum greinum æskileg • Gott skynbragð á hönnun kynningarefnis • Hæfni til að vinna í hópstarfi og einnig sjálfstætt • Skilningur og geta til að skila verkefnum á réttum tíma Spennandi tækifæri hjá ORF Líftækni ORF Líftækni hf. er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu sérvirkra próteina fyrir læknisrannsóknir, snyrtivörur og lyfjaiðnað með sameindaræktun. Með þróun og nýtingu á bygg-framleiðslu- tækni sinni stefnir ORF markvisst að enn frekari uppbyggingu hátæknifyrirtækis í fremstu röð á alþjóðlegum markaði, með áherslu á að selja afurðir sínar, vaxtarþætti, til rannsókna- stofa á sviði frumurannsókna (t.d. stofnfrumurannsókna), frumuræktunar og þróunar vefjalækninga (regenerative medicine) undir vörumerkinu ISOkine™. ORF er ungt og vaxandi fyrirtæki, þar sem frumkvöðlaandi ríkir með mikla möguleika á framþróun í starfi fyrir dugmikla og áhugasama starfsmenn. ORF Líftækni hf. hlaut Nýsköpunarverðlaunin árið 2008. Umsækjendum er bent á nánari upplýsingar á vefsíðum félagsins: www.orf.is eða www.orfgenetics.com Einnig má hafa samband við starfsmannastjóra í síma 591 1570 varðandi frekari upplýsingar. Umsóknir skal senda til: starf@orf.is eigi síðar en 10. janúar 2009. PI PA R • S ÍA • 8 23 84 Endurhæfi ngarhúsið HVER auglýsir eftir forstöðumanni Fagaðili með menntun á sviði félags- og / eða heilbrigðismála óskast til að stýra og móta starf endurhæfi ngarúrræðis fyrir öryrkja á Vesturlandi staðsett á Akranesi Akraneskaupstaður, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Vesturlandi, Sjúkrahúsið og heilsu- gæslustöðin á Akranesi og Akranesdeild Rauða kross Íslands gerðu með sér samkomulag í mars árið 2008 um rekstur endurhæfi ngarúrræðis fyrir öryrkja á Vesturlandi. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára. Markmiðið með starfi nu er m.a. að skapa bata- hvetjandi stuðningsúrræði fyrir fólk sem vegna veikinda eða annarra aðstæðna getur ekki tekið virkan þátt í samfélaginu og býr við skert lífsgæði. Jafnframt að stuðla að því að rjúfa félagslega einangrun, ýta undir starfsvirkni og skapa vettvang fyrir einstaklinga til að auka færni sína við dagleg störf og tómstundaiðkun. Leitað er eftir fagaðila með menntun á sviði félags- og /eða heilbrigðismála og æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja stjórnunarreynslu. Forstöðumaðurinn mun m.a. sjá um daglega starf- semi, vinna að markmiðsáætlunum með notendum þjónustunnar og skipuleggja starfi ð. Einnig vinnur hann að því að móta starfsemi staðarins í samvinnu með fagteymi sem og notendum staðarins. Fagteymi staðarins er skipað sálfræðing, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa sem eru allir með fasta viðveru á staðnum. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að við- komandi geti hafi ð störf hið fyrsta. Ef frekari upp- lýsinga er óskað skal hafa samband við Sveinborgu Kristjánsdóttur, félagsmálastjóra Fjölskyldustofu hjá Akraneskaupstað í síma 433-1000. Umsóknarfrestur er til 15. janúar n.k. og skal skila umsóknum á Bæjarskrifstofuna á Akranesi, b/t Sveinborgar Kristjánsdóttur, Stillholti 16-18, 300 Akranesi. Hér er um að ræða mjög spennandi mótunarstarf á Vesturlandi Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.