Fréttablaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 31
SUNNUDAGUR 4. janúar 2009 15
folk@frettabladid.is
> GATA NEFND EFTIR BROWN
Sálarkóngurinn James Brown
verður heiðraður með því að
gata í New York verður nefnd
eftir honum. Gatan er fyrir aftan
Appollo-leikhúsið þar sem hann
sló í gegn. James Brown lést á
jóladag árið 2006, 73 ára að aldri.
Hann hélt tónleika á Íslandi
árið 2004.
Mel Gibson notaði tækifærið í ára-
mótahefti Entertainment Weekly
til að kveðja vin sinn, Heath Led-
ger. Leikarinn ungi lést af völdum
ofneyslu lyfja á árinu sem var að
líða. Kvikmyndaheimurinn stóð
seinna á öndinni yfir frammistöðu
hans í The Dark Knight en þar fór
Ástralinn á kostum sem Jókerinn.
Gibson uppgötvaði Ledger og fékk
hann í kvikmynd-
ina The Patriot.
Þar lék Ledger
son hans og
segir Gibson
að áheyrnar-
prufan hafi
verið rosaleg.
„Okkur lang-
aði bara
til
að vera þarna allan daginn og
horfa á hann leika,“ segir Gibson.
Hann bætir því við að honum
hafi þótt Ledger minna eilítið á
sjálfan sig á þessum aldri. Kraft-
urinn hafi verið mikill en að sama
skapi var ekki mikið til að beisla
hann. „Mig langaði til að segja
honum að slaka aðeins á og reyna
að fara vel með sjálfan sig,“
útskýrir Gibson.
Gibson sagðist sjá mikið eftir
Ledger; ekki síst vegna þess að
þar hafi miklum hæfileikum verið
kastað á glæ. Hann hafi verið við
það að stíga næsta skref á
ferli sínum. „Ég
beið spenntur
eftir að sjá
hvað Ledger
myndi gera
næst,“ segir
Mel Gibson í
áramótaræðu
sinni.
Gibson kveður læri-
svein sinn Ledger
Talsmaður Mickey Rourke hefur vísað
því á bug að leikarinn eigi í illdeilum
við Sean Penn. Orðrómur þess efnis
hefur verið á kreiki á vefsíðum þar
vestra. The Daily Beast greindi frá því
að Rourke hefði sent háttsettum fram-
leiðanda í Hollwyood sms-skeyti þess
efnis að Sean Penn væri haldinn
hommahatri. Og að það sýndi sig
hvað best í túlkun leikarans á
hinum samkynhneigða stjórn-
málamanni Harvey Milk en
kvikmynd um hann. Milk, var
frumsýnd nýverið í Bandaríkj-
unum.
Samkvæmt Daily Beast
munu textaskilaboðin hafa
innihaldið þennan texta: „Sean
er gamall vinur minn en mér
fannst frammistaðan hans
ótrúverðug. Mér fannst þetta í mesta
lagi algjör meðalmennska auk þess
sem Penn er einhver mesti
hommahatari sem ég
þekki.“
Rourke brást ókvæða
við þessum fréttum en
þeir hafa báðir verið
nefndir sem líklegir
kandítatar til Óskars-
verðlauna. „Ekkert
stríð er í gangi milli
Rourke og Penn, langt
því frá. Þeir eru gaml-
ir vinir og Rourke
mætti meðal annars á frum-
sýningu myndarinnar til að
sýna honum stuðning sinn. Þetta
er algjör vitleysa,“ sagði talsmað-
ur Rourke.
Rourke er vinur Seans Penn
EKKERT STRÍÐ Mickey
Rourke og Sean
Penn eru sagðir eiga
í illdeilum eftir að
sá fyrrnefndi sendi
framleiðanda í Holly-
wood sms-skeyti
þess efnis að Penn
væri hommahatari.
LÆRIMEISTARINN OG
LÆRISVEINN Mel Gibs-
on fékk Heath Ledger
til að leika son sinn í
kvikmyndinni The Patr-
iot árið 2000. Hann sér
mikið eftir leikaranum
sem lést 2008.
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
DANSSTUDIO
JSB
www.jsb.is
Dansstudio JSB
Innritun hafin!
Nýtt námskeið hefst 8.janúar 2009
Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is
Dans- og púlnámskeiðin okkar hafa slegið í gegn!
Í boði eru spennandi og krefjandi 12 vikna námskeið fyrir
þá sem elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í form.
Námskeiðin eru fyrir stelpur og stráka 16 ára og eldri.
• Tímabil 8. janúar – 1.apríl
• Kennt er í lokuðum hópum
• Tímar fyrir byrjendur og lengra komna.
• Ýmsir dansstílar kynntir s.s. Jazz – Street – Hip hop
– Musical – Lyrical - Modern.
Tímar eru 2 x 60 mín. í viku og að auki er frjáls aðgangur
að opnum tímum í líkamsrækt og tækjasal meðan á
námskeiði stendur.
Dansstudio 1: Byrjendur, þriðjudaga kl.19:40 og
fimmtudaga kl.21:00.
Dansstudio 2: Framhald, þriðjudaga kl. 20:40 og
fimmtudaga kl.20:00.
Verð: 29.900 kr.
Danslistarskóli JSB
er samstarfsaðili að
Frístundakorti
Reykjavíkurborgar.
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
Sextán ára gamall sonur leikarans
Johns Travolta lést á föstudags-
kvöld. Drengurinn, Jett, fékk
flogakast og höfuð hans lenti á
baðkari á heimili fjölskyldunnar á
Bahamaeyjum. Þegar slysið upp-
götvaðist var Jett fluttur í
skyndingu á sjúkrahús en hann
var úrskurðaður látinn við kom-
una þangað.
John Travolta og Kelly Preston,
eiginkona hans, voru, að því er
erlendir fréttamiðlar greina frá,
niðurbrotin af sorg og nutu stuðn-
ings vina sinna. Krufning verður
framkvæmd á syni þeirra til að
úrskurða um banameinið en
drengurinn hafði oft áður fengið
flogaköst.
Travolta hefur alla tíð verið
fámáll um veikindi sonar síns.
Hann hefur neitað því að drengur-
inn hafi verið einhverfur en sagt
þess í stað að hann hafi þjáðst af
Kawasaki-sjúkdómnum sem yfir-
leitt herjar á börn yngri en fimm
ára. Ef börn fá ekki meðferð við
Kawasaki-sjúkdómnum getur
hann leitt til bólgu í æðum sem
dregur úr blóðflæði ti hjartans.
Greint var frá því í fjölmiðlum í
gær að sjúkdómurinn greinist hjá
19 af hverjum 100 þúsund börnum
í Bandaríkjunum.
Sonur Travolta látinn
JOHN TRAVOLTA Niðurbrotinn af sorg eftir að sonur hans lést á föstudagskvöld.
NORDICPHOTOS/GETTY