Fréttablaðið - 04.01.2009, Qupperneq 35
SUNNUDAGUR 4. janúar 2009 19
HANDBOLTI Íslenska hand-
boltalandsliðið spilar sinn fyrsta
leik á árinu 2009 í dag þegar strák-
arnir okkar mæta Svíum á Minn-
ingarmótinu um Staffan
Holmqvist. Að baki er stórkost-
legt ár þar sem liðið náði ekki
aðeins að vinna silfurverðlaunin á
Ólympíuleikum heldur einnig að
bæta nokkur markamet í leiðinni.
Markhæstur fjögur ár í röð
Guðjón Valur Sigurðsson er
markahæsti leikmaður landsliðs-
ins fjórða árið í röð og náði því á
árinu að skora sitt þúsundasta
mark fyrir íslenska landsliðið.
Hann hefur líka skorað yfir hundr-
að mörk síðustu sex ár sem er
met.
Guðjón Valur var aðeins einu
marki frá því að skora 200 mörk
fyrir handboltalandsliðið á árinu
en það mark hefði eflaust komið í
hús hefði hann ekki meiðst í leikn-
um á móti Noregi í undankeppni
EM hinn fyrsta nóvember. Guðjón
bætti markamet Valdimars Gríms-
sonar í síðasta leiknum sem var
æfingaleikur á móti heims-
meisturum Þjóðverja í lok
nóvember. Guðjón Valur
skoraði 7
mörk í 30-
29 sigri
og bætti
því árangur
Valdimars frá
1992 um sex
mörk.
Gamla metið var 193 mörk
Valdimar skoraði mörkin sín
193 í 39 leikjum árið 1992 eða
4,9 mörk að meðaltali í leik.
Guðjón skoraði 5,7 mörk að
meðaltali í sínum 35 leikjum.
Báðir urðu þeir í 3. sæti yfir
markahæstu menn á Ólympíu-
leikum þessi ár, Valdimar á
Ólympíuleikunum í Bar-
celona 1992 en Guð-
jón Valur á leikunum í Peking í ár.
Guðjón Valur varð reyndar ekki
markahæsti Íslendingurinn á leik-
unum því Snorri Steinn Guðjóns-
son skoraði einu marki
meira og varð annar
markahæsti leik-
maður leikanna.
Munaði litlu hjá Alex
Snorri Steinn og Guð-
jón Valur voru ekki
þeir einu sem náðu
að brjóta hundrað
marka múrinn því
það gerðu einnig
Ólafur Stefánsson,
Logi Geirsson og
Róbert Gunnarsson.
Róbert náði að skora
sitt hundraðasta og
síðasta mark í lokal-
eiknum gegn Þýska-
landi en hann skor-
aði 5 mörk í þeim
leik.
Sjötti leikmaður liðsins sem var
á leiðinni yfir hundrað marka
múrinn var Alexander Petersson
sem skoraði 90 mörk í sínum 28
leikjum á árinu. Alexander missti
af fjórum síðustu leikjum ársins
og rétt missti því af 100 mörkum
þar sem hann skoraði 97 mörk árið
2007.
Íslenska landsliðið mætir í
þennan leik gegn Svíum í dag án
fjögurra af sex markahæstu
mönnum sínum frá síðasta ári.
Ólafur Stefánsson hefur tekið sér
ársfrí frá liðinu og þeir Snorri
Steinn, Guðjón Valur og Alexand-
er eru allir meiddir.
Í beinni á Stöð 2 Sport
Það verður spennandi að sjá
hvernig gengur hjá Guðmundi
Guðmundssyni landsliðsþjálfara
að fylla í þessi stóru skörð en leik-
urinn verður í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport og hefst útsendingin
klukkan 12.05. ooj@frettabladid.is
Enginn með fleiri mörk á einu ári
Guðjón Valur Sigurðsson bætti 16 ára markamet Valdimars Grímssonar með því að skora 199 mörk fyrir
handboltalandsliðið á árinu og í fyrsta sinn í sögunni skoruðu fimm leikmenn liðsins yfir hundrað mörk.
100 MÖRK Róbert Gunnarsson skoraði
2,9 mörk að meðaltali í 35 landsleikjum
á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
105 MÖRK Logi Geirsson skoraði 3,9
mörk að meðaltali í 27 landsleikjum á
árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
134 MÖRK Ólafur Stefánsson skoraði 4,6
mörk að meðaltali í 29 landsleikjum á
árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
169 MÖRK Snorri Steinn Guðjónsson
skoraði 5,5 mörk að meðaltali í 31
landsleik á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
199 MÖRK Guðjón Valur
Sigurðsson skoraði 5,7
mörk að meðaltali í 35
landsleikjum á árinu.
RÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FLEST MÖRK Á EINU ÁRI
FYRIR LANDSLIÐIÐ:
1. Guðjón V. Sigurðsson, 2008 199
2. Valdimar Grímsson, 1992 193
3. Kristján Arason, 1987 172
4. Snorri Steinn Guðjóns., 2008 169
5. Kristján Arason, 1984 163
6. Ólafur Stefánsson, 2002 158
7. Júlíus Jónasson, 1990 155
8. Ólafur Stefánsson, 2004 147
9. Guðjón V. Sigurðsson, 2004 142
10. Ólafur Stefánsson, 2003 139
MARKAHÆSTU LEIKMENN
LANDSLIÐSINS 2008:
1. Guðjón Valur Sigurðsson 199
2. Snorri Steinn Guðjónsson 169
3. Ólafur Stefánsson 134
4. Logi Geirsson 105
5. Róbert Gunnarsson 100
6. Alexander Petersson 90
7. Arnór Atlason 69
8. Einar Hólmgeirsson 43
9. Ásgeir Örn Hallgrímsson 40
10. Vignir Svavarsson 32
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar ætla
ekki að styrkja sig með Banda-
ríkjamanni þrátt fyrir að liðið
eigi í harðri baráttu við topplið
KR sem hefur haft Bandaríkja-
mann innan sinna raða í allan
vetur.
„Ég á bara von á því að við
klárum þetta eins og við erum,“
segir Friðrik Ragnarsson, þjálfari
liðsins. „Eins og staðan er núna
þá er ekkert í gangi hjá okkur en
ég ætla ekki að sverja fyrir það
að við gerum það ekki,“ segir
Friðrik sem býst ekki við að
erlendum leikmönnum fjölgi í
deildinni.
„Ég hef ekki heyrt af nokkru
liði sem ætlar að taka til sín
útlending og hef lúmskan grun
um að þetta klárist bara svona hjá
þessum liðum,“ sagði Friðrik sem
hefur stýrt Grindavíkurliðinu til
sigurs í 10 af 11 deildarleikjum
tímabilsins og eina tapið var
tveggja stiga tap á móti KR á
útivelli. - óój
Grindvíkingar í karlakörfunni:
Ætla ekki að fá
sér útlending
TREYSTIR Á SÍNA MENN Friðrik Ragnars-
son, þjálfari Grindavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Ítalskir fjölmiðlar eru nú
uppfullir af fréttum af áhuga
Juventus á argentínska snillingn-
um Lionel Messi hjá Barcelona.
Það nýjasta er að félagið ætli
að selja markvörðinn sinn
Gianluigi Buffon til að ná að
safna peningum til kaupanna á
Messi. Það er vitað af miklum
áhuga enska liðsins Manchester
City á ítalska landsliðsmarkverð-
inum og arabísku eigendurnir hjá
City eru jafnvel tilbúnir að eyða
100 milljónum punda í Buffon.
Stuðningsmenn Juve eru
reyndar ekki á sama máli því í
könnum hjá blaðinu Tuttosport þá
vildu 52 prósent frekar halda
Buffon en fórna honum fyrir
Messi. Hvort Barcelona sé síðan
tilbúið til að selja Messi er síðan
allt önnur saga. - óój
Fréttir frá Juventus-liðinu:
Buffon fórnað
fyrir Messi?
KÖRFUBOLTI Dwyane Wade,
leikmaður Miami Heat, var valinn
besti leikmaðurinn í austurdeild
NBA í desembermánuði og í
vesturdeildinni þótti Kobe Bryant
hjá Los Angeles Lakers standa sig
best í jólamánuðinum.
Wade var stigahæsti leikmaður
deildarinnar í desember með 29,2
stig að meðaltali en hann skoraði
30 stig eða meira í sex leikjum.
Hann var einnig með 6,3 stoð-
sendingar og 5,3 fráköst í leik og
Miami vann 9 af 13 leikjum sínum
í mánuðinum.
Kobe var með 28,2 stig að
meðaltali í 15 leikjum Lakers en
liðið vann 11 þeirra. Bryant braut
30 stiga múrinn fimm sinnum og
hjálpaði sínu liði til að vinna alla
sjö heimaleikina í desember. - óój
Leikmenn desember í NBA:
Wade og Kobe
valdir bestir
FRÁBÆR Dwyane Wade lék afar vel í
jólamánuðinum. NORDICPHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI KR-ingurinn Jakob
Örn Sigurðarson hefur stýrt KR-
liðinu af miklu öryggi í Iceland
Express-deild karla og er einn af
lykilmönnunum á bak við það að
liðið hefur unnið ellefu fyrstu
leiki sína. Fréttablaðið hefur
fundið það út úr tölfræði fyrri
hluta deildarkeppninnar að þessi
26 ára leikstjórnandi í KR hafi
öruggustu hendurnar í Iceland
Express deildinni.
Sá telst vera með öruggustu
hendurnar í deildinni sem tapar
fæstum boltum á hverjar 40 mín-
útur af þeim leikmönnum sem
eru mikið með boltann í sínum
leikjum. Á listann komast þeir
leikmenn sem eru mikið með
boltann í sínum leikjum. Lág-
markið er að hafa spilað 6 leiki
eða fleiri og spilað í þeim í 20
mínútur eða meira að meðaltali.
Leikmenn verða líka að hafa tekið
að meðaltali fimm skot eða fleiri
og gefið þrjár stoðsendingar eða
fleiri í sínum leikjum.
Jakob hefur aðeins tapað tíu
boltum í fyrstu ellefu leikjum
tímabilsins þrátt fyrir að vera
mjög mikið með boltann á þeim
308 mínútum sem hann hefur
spilað. Þetta gerir aðeins 1,30 tap-
aða bolta á hverjar 40 spilaðar
mínútur. Hann er efstur í deild-
inni í stoðsendingum á hvern tap-
aðan bolta en alls hefur hann
gefið 4,9 stoðsendingar fyrir
hvern tapaðan bolta.
Jakob er efstur í KR-liðinu í
framlagi með 20,2 framlagsstig í
leik en hann hefur skorað 17,1
stig og gefið 4,5 stoðsendingar í
fyrri hluta deildarinnar. Jakob
hefur 50,4 prósenta hittni í skot-
um sínum þar af eru 47 prósent
skota hans fyrir utan þriggja
stiga línuna.
Næsti maður á listanum er
Keflvíkingurinn Gunnar Einars-
son sem spilar þó vissulega annað
hlutverk og er mikið mun minna
með boltann þótt hann nái fyrir-
fram settum lágmörkum. Þórsar-
inn Cedric Isom er í þriðja sæt-
inu. Það má sjá efstu tíu menn á
listanum hér til hliðar. - óój
Jakob Örn Sigurðarson, leikstjórnandi KR, hefur aðeins tapað 10 boltum á 308 mínútum í vetur:
Með öruggustu hendurnar í deildinni
ÖRUGGUSTU HENDURNAR
Í DEILDINNI:
(Tapaðir boltar á hverjar 40 mín.)
Jakob Örn Sigurðarson, KR 1,30
Gunnar Einarsson, Keflavík 1,53
Cedric Isom, Þór Ak. 1,84
Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 1,85
Aðalsteinn Pálsson, Breiðabliki 2,43
Þorleifur Ólafsson, Grindavík 2,61
Hlynur Bæringsson, Snæfell 2,66
Atli Rafn Hreinsson, Snæfell 2,67
Tyler Dunaway, Fsu 2,67
Helgi Már Magnússon, KR 2,73
GÓÐUR KR-ingurinn Jakob
Örn Sigurðarson hefur
skoraði 17,1 stig og gefið
4,5 stoðsendingar í leik en
aðeins tapað 0,9 boltum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN