Fréttablaðið - 04.01.2009, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn 4. jan-
úar, 4. dagur ársins.
11.15 13.32 15.51
11.27 13.17 15.08 www.icelandexpress.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
með ánægju
Varsjá
Bologna
Barcelona
Alicante
Reykjavík
París
Berlín
Akureyri
Genf
Friedrichshafen
Kaupmannahöfn
Kraká
Billund
Evrópa
Ísland
Eindhoven
Frankfurt Hahn
Basel
Stokkhólmur
Gautaborg
Álaborg
London
Næsta sumar býður Iceland Express flug til fjölda spennandi
áfangastaða vítt og breitt um Evrópu. Bókaðu spennandi
sumarferð fyrir þig og þína á www.icelandexpress.is!
Sumarið lítur vel út!
Við erum byrjuð að plana næsta sumar
Bókaðu
sumarferðina
núna!
Áramótaboðskapur helstu þjóðarleiðtoganna var að hér
á landi þyrfti sátt um samstöðu.
Eða var það samstaða um sátt? Ég
man ekki hvor klisjan var höfð á
undan. En þessi boðskapur hljóm-
aði býsna vel alveg þangað til
maður fór að hugsa um hann.
Sennilega hefði verið mun auð-
veldara að byrla manni þetta inn
hefði maður ekki verið nýbúinn að
horfa á innlendan fréttaannál árs-
ins.
ÉG hafði nefnilega steingleymt
því hvað það voru framin mörg
minniháttar bankarán á síðasta
ári. Mánaðarlega hafði eitthvert
greyið þust inn í bankaútibú vopn-
að hamri, kúbeini eða dúkahníf til
að fjármagna fíkn sína eða gera
upp skuld við undirheimalýð.
Þegar best tókst til nam uppsker-
an af þessari aðferð við að ræna
banka einni milljón króna. Varla
hefur neinn trúað því í alvörunni
að hann kæmist upp með þetta. Af
tvennu illu hafa afleiðingar banka-
ránsins líklega aðeins verið fýsi-
legri kostur en hinn, að standa
ekki í skilum.
Í ENGU þessara tilfella var talað
um sátt eða samstöðu. Þvert á móti
var boðskapurinn að þetta yrði
ekki liðið, glæpamaðurinn skyldi
nást og þýfið endurheimt. Engum
datt í hug að þjóðin í heild sinni
hefði tekið þátt í ráninu og þaðan
af síður var talað um að ekki mætti
persónugera vandann sem pen-
ingahvarfið skapaði. Í einu tilfelli
var meira að segja kallað á þyrlu
til að leita að persónunni sem gerði
þetta úr lofti. Hún hafði falið sig í
gjótu úti í hrauni í Hafnarfirði.
Þegar ekki er hlaupið með hundr-
að þúsundkalla út úr bönkum eftir
að hafa ógnað afkomu blásaklauss
fólks heldur milljarða, ef ekki tugi
milljarða, er hins vegar gapað á
sátt um samstöðu. Annað hvort
það eða samstöðu um sátt. Ekki er
hægt að kalla út þyrlu til að hafa
uppi á þjófunum, enda leynast
þeir ekki í hraungjótum suður í
Hafnarfirði heldur á suðurhafs-
eyjunni sem hentar skattframtal-
inu þeirra best.
ÞEGAR ógæfumaður beitir klauf-
hamri eða kúbeini til að fjarlægja
peninga sem hann á ekkert í úr
banka ríkir aðeins sátt og sam-
staða um að draga hann til ábyrgð-
ar fyrir athæfið. Eðlilega. Það
verður að gilda um alla bankaræn-
ingja, óháð upphæð, óháð aðferð-
um, óháð fíkninni sem verið er að
fjármagna. Sáttur yrði ég við sam-
stöðu um það. Því miður held ég að
landsfeðurnir hafi verið að meina
eitthvað annað.
Sátt um
samstöðu