Tíminn - 30.07.1982, Síða 1
Bladauki um ísafjörð - bls. 11 til 18
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Föstudagur 30. júlí 1982
171. tbl. - 66. árgangur.
Átta milljón kr. framkvæmdum við Grundarfjarðarhöfn kastað á glae?:
KOSTNABARÁÆTLUN HÆKK-
AR IIM 144% A TÆPU ARI
,,Allt fer f hafið ef við getum ekki haldið áfram og höfnin lokast”,
segir oddvitinn á Grundarfirði, en nú vantar fjármuni til að halda
framkvæmdum áfram
■ „Allt sem við erum búnir að gera
fer í hafið, ef við getum ekki haldið
áfram, fyrir utan að höfnin mundi
lokast,“ er skoðun Guðna HaUgríms-
sonar oddvita á Grundarfirði, þar sem
nú er verið að byggja hafskipabryggju.
Að sögn Guðna hefur kostnaðaráætl-
un við verkið hækkað úr 4.9 miUjónum
króna í 12 miUjónir á tæpu ári og nú
á hreppurinn í vandræðum með að
útvega fé tU að Ijúka verkinu. Auk
þess að kostnaðaráætlanir hafi raskast
svona, hefur verkáætlunin verið í
molum, þannig þurfti að flytja 69
þúsund rúmmetra efnis í stað 34 þús.
rúmm. sem áætlað var.
„Þessar 4.9 milljónir eru í engu
samræmi við okkar áætlanir,“ segir
Bergsteinn Gizurarson hjá Hafnar-
málastofnun ríkisins, en sú stofnun
annast bæði áætlanagerð og fram-
kvæmd verksins. „Pessi tala er búin til
í fjárveitinganefnd," bætir hann við.
„Þessar 4.9 milljónir eru í engu
samræmi við okkar áætlanir," segir
Bergsteinn Gizurarson hjá Hafnar-
málastofnun ríkisins, en sú stofnun
annast bæði áætlanagerð og fram-
kvæmd verksins. „Þessi tala er búin til
í fjárveitinganefnd," bætir hann við.
Hann segir að frumáætlunin hafi
gert ráð fyrir að verkið kostaði 8.6
milljónir, en á síðara stigi hefðu komið
villur inn í útreikninga, sem lækkuðu
þá áætlun verulega. Síðar hefði svo
komið í Ijós að upphaflega áætlunin
var nokkuð nærri sanni, en ýmislegt
hafi orðið til þess að verki hækkaði
síðan í 12 milljónir t.d. verðbólga.
Sjá nánar um málið á bls. 4. SV
Erlent
yfirlit
Hægt
miðar í
Póllandi
— bls. 7
■ Þá er sú milda helgi, verslunarmannahelgin, í nánd. Það voru verslunarmenn sem upphaflega stofnuðu til hennar og kölluðu hana „Þjóðhátiðina“ í þá daga.
Þá var Verslunarmannafélag Reykjavikur karlaklúbbur, sem kom saman yfir púnsglösum og iðkaði skylmingar. En nú er öldin önnur. Nú er þessi helgi
orðin að ferðahelgi ársins meðal allra stétta og á myndinni eru tveir snemmbúnir garpar að tygja sig til ferðar. (Tímamynd EUa)
Mikið tjón vegna vega- og brúarskemmda í Öræfasveit:
FJÓRAR BRÝR ÓFÆRAR
— Ferðalöngum bent á að fara norður um land til Austfjarða
■ „Það hafa orðið miklar vega- og
brúarskemmdir hér í sveitinni í
rígningarveðrinu í nótt og í gær. Það
hefur lokast að minnsta kosti við ein
fjögur vötn og ég get ekki séð að fært
verði hér austur um fyrir verslunar-
mannahelgi," sagði Ragnar Stefáns-
son, bóndi í SkaftafeUi í Öæfum, í
samtaU við Tímann í gær.
Tjónið var mest á brúnni yfir
Skaftafellsá. Undan henni féll einn
brúarstöpull og búist er við að nokkra
daga taki að koma honum undir aftur.
Við Svínafellsá grófst frá brúarendan-
um þannig að áin streymir með öðrum
enda brúarinnar. Við Kotá grófst
einnig frá öðrum enda brúarinnar. Var
það minna og voru brúarsmiðir á
vegum Vegagerðarinnar langt komnir
með að gera við skemmdir þar síðdegis
í gær. Við Kría er einnig opin renna
milli brúarinnar og lands.
Að sögn Ragnars, bónda í Skafta-
felli, er hér um mikið tjón að ræða.
Bjóst hann við að tæki a.m.k. nokkra
daga að koma vegasambandi í Öræfa-
sveitinni í eðlilegt horf.
Ragnar vildi beina því til þeirra sem
leið eiga á Austfirði um verslunar-
mannahelgina að fara norður um land.
- Sjó.
Sela-
fár
— bls. 8-9
Tennis-
hneyksli
— bls. 2
Ný mynd
Kurosawa
— bls. 27