Tíminn - 30.07.1982, Side 10
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
10___________
heimilistímmn
umsjón: A.K.B
Mest selt af hvít-
um baðsettum
■ Falleg og skemmtilega innréttuð
baðherbergi hafa jákvæð áhrif á íbúa.
Nú gefst líka gott tækifæri til að hafa
smekkleg baðherbergi, þar sem margar
gerðir fást af baðsettum, baðmottur og
handklæði í geysilegu úrvali víða og á
veggina alls konar flísar og viðarldæðn-
ingar.
Mjög hefur aukist að notað sé fura og
greni í veggi á baðherbergjum, enda
mun það ódýrara en flísarnar og sérlega
falleg á að líta. Til að furan haldi sem
mest sínum upprunalega lit má bera á
hana Met furugrunn og þar ofan á lakk.
Til að kanna verð á baðsettum o.fl.
spurðist ég fyrir í tveimur verzlunum,
Byko í Kópavogi og Byggingavöruversl-
un SÍS í Reykjavík.
í Byko var mér sagt að mest seldist af
hvítum baðsettum og sama svarið fékk
ég hjá Byggingarvöruverslun SÍS, bað-
sett í hvítum og Ijósum litum seljast
mest. Byko selur Gustavsberg og IFÖ
baðsett, en SÍS selur Gustavsberg. Verð
á baðsettum er: í Byko kostar Gustavs-
berg baðsett í hvítu: Klósett kr.
2.972,00, handlaug í borði kr. 1.745,
handlaug á fæti kr. 998 og fóturinn kr.
1132, baðker 170 cm kostar kr. 2.441,00
(það er ódýrara en 160 cm baðker vegna
þess að það er framleitt hjá annarri
verksmiðju, sem framleiðir einungis
baðkör og sturtubotna), baðker 160 cm
kostar kr. 3.492,90.
Skolskálar (bitet) munu ekki vera
mikið keyptar en þó eitthvað, og er
verðið á þeim kr. 1.135.00.
IFÖ baðsett kosta í hvítu: klósett kr.
2.644.00, handlaugar kr. 951 og fótur kr.
748, baðker kr. 2.441 og skolskál kr.
1.339.
í Byko fást lituð Gustavsberg sett í
litunum beige, Ivory (fílabeinslitur) og
Sand, en þetta cru allt Ijósir litir. Verðið
á baðsetti í þeim er: klósett kr. 3.876.00,
handlaug f. borð kr. 2.280.00, handlaug
á fæti kr. 1478.00 og fóturinn kr.
1.305.00, baðker 1,60 cm kostar
4.372,00 og 1,70 cm baðker kostar
3.426,00, skolskál kostar 1.649,00.
IFÖ baðsettin kosta í Tópaslit: klósett
kostar kr. 3.108,00, vaskur í borð kr.
1.718,00, vaskur á fæti kr. 1.090,00 og
fótur kr. 961. Baðker 1,60 cm kostar
3.586 og baðker 170 cm kr. 3.426,00.
Verð á flísum í Byko er á bilinu frá
200 kr. - 800 r. pr m2. Algengt verð á
fermetra er 350-400 kr. Verð á furu og
grenipanel mun vera frá 120 kr. pr
fermetra.
Verð á baðsettum í byggingavöru-
verslun SÍS er: Hvít Gustavsberg
baðsett kosta: klósett kr. 2.972,00,
handlaug í borð kr. 1.624,00 handlaugar
á vegg kosta kr. 615,00,702,00og 739,00.
Baðker kr. 3,490 (ekki til eins og er, en
væntanleg), skolskál kostar kr. 1.464,00.
Lituð baðsett fást í SÍS í mörgum
litum, beige, sand, fílabeinslit, ljós-
brúnu, gulu, ólívugrænu, bláu og
kastaníubrúnu, og það síðastnefnda er
reyndar aðeins flutt inn eftir pöntun.
Verðið á lituðu baðsettunum er: klósett
kr. 3.726,00, handlaug í borð kr.
1.861,00, á vegg á gestaklósett kr.
819,00 og 981,00, skolskál kostar kr.
1.842,00, baðkar kr. 4.471,00.
Ýmsar ástæður munu fyrir því að fólk
kaupir mest hvít baðsett, bæði er verðið
hagstæðast og alltaf er hægt að kaupa
inn í hvítt sett, ef eitthvað skemmist.
Einnig er hvítt og Ijósir litir mikið í tísku
nú eins og er og mest spurn eftir öllu
ljósu, t.d. mun vinsælast nú að kaupa
hvítar körfur undir óhreint tau.
Mikið er um það nú að fólk hafi
sturtuklefa í baðherbergjum aukreitis
við baðker. Slíkir sturtuklefar fást alveg
tilbúnir í byggingavöruverslun SÍS og
kosta 5,5 til 6 þús. kr. Klefarnir eru með
segulstáli í framkanti þannig að þeir
lokast mjög vel og hægt er að panta þá
í litum í stíl við baðsettið.
■ í augum barnanna er baðkerið eins og leikvöllur. Það er kjörið að taka fyrstu
sundtökin, venjast vatni og læra meðferð björgunarvesta.
■ Ljós baðsett eru mjög vinsæl um þessar mundir.
Ný bók um pottaplöntur
■ Nería er mjög faUeg planta og vinsælt stofublóm.
■ Nýlega er komin út bókin ALLT
UM POTTAPLÖNTUR, en í henni eru
ítarlegar upplýsingar um vinsæl stofu-
blóm og fjölmörg afbrigði þeirra.
Höfundur bókarinnar er David Long-
man, sem er stjórnarmaður í Interflora
og þýðandi bókarinnar er Fríða Björns-
dóttir, blaðamaður, sem ritstýrði
Heimilistímanum í fjögur ár og skrifaði
þá nær vikulega blómaþætti.
í hverri opnu bókarinnar er tekin ein
planta og sagt nákvæmlega frá uppruna
hennar, kröfunum, sem hún gerir til
umhverfisins og umhirðu. Á teikningum
neðst á hverri síðu má sjá, hvernig og
hvenær á að umpotta, klippa eða fjölga
plöntunni. Loks er svo kaflinn „Hvað er
að?“ sem segir frá því helsta, sem getur
hrjáð hverja plöntu og hvernig hægt er
að bæta úr því. Einfaldar og auðskildar
skýringarmyndir fylgja með. Þetta er
mjög gagnlegt fyrir bíómaræktendur og
upplýsingar þær sem fylgja með um
hvert blóm eru auðskildar og koma
virkilega að gagni fyrir blómaunnendur,
sem rækta sín stofublóm.
Lárviðarrós (Nería) er
mjög eitruð
Hér er tekið dæmi úr bókinni um
nokkuð algengt stofublóm, Neríu eða
lárviðarrós. Um hana segir m.a.: Planta,
sem krefst sólar og vex villt á suðlægum
slóðum, t.d. við Miðjarðarhafið. Sem
pottaplanta þrífst hún best f sólríku
herbergi. Nería vex einnig villt á ýmsum
stöðum í Asíu, aðallega í Japan. Neríum
er grískt nafit, sem Diescorides notaði,
en hér heitir plantan lárviðarrós. Hún
tilheyrir Apocynaceae-ætt og var flutt til
Evfopu 1596.
Nería er falleg planta, með fögur hvít,
bleik, fjólublá og appelsfnurauð blóm.
Sumar tegundir bera einföld blðm, aðrar
ofkrýnd. Blöðin líkjast pílviðarblöðum,
og geta verið bæði algræn eða í mörgum
grænum litum. Blöðin eru löng og mjó
og sitja tvö eða þrjú saman á leggnum.
Plantan er mjög eitruð. Dýr, sem étur
blöðin, getur drepist og jafnhættulegt
getur verið fyrir fólk að borða blómið.
Hvað sem því líður er nería mjög vinsæl,
enda ekki margar plöntur, sem þola jafn
mikinn hita og sól og hún. Plantan er
seld blómstrandi frá júní og fram eftir
sumri. Hægt er að velja milli mis-
munandi blómlita.
Umpottun er mikilvæg
í inngangi bókarinnar Allt um
pottaplöntur segir m.a. um umhirðu
stofublómanna: Þar sem potturinn er
ekki hinn náttúrulegi vaxtarstaðurplönt-
unnar, verðum við af og til að gera
sérstakar ráðstafanir til þess að hún geti
þrifist og vaxið sæmilega.
í fyrsta lagi þarf að umpotta
plöntumar. Það er gert svo að rótin
haldist heilbrigð. Áður en hafist er
handa um að umpotta kannar maður,
hvort þröngt er orðið um rætumar í
pottinum, þ.e.a.s. hvort lítið sé orðið
annað í honum en rætur. Venjulega má
sjá það á plöntunni, ef svo er: yfirvigtin
er þá áberandi, og ekki bætast eins mörg
ný blöð við að vorinu og venja er, eða
rætumar em famar að vaxa niður um
götin á botni pottsins. Besta leiðin til að
kanna þetta er að hvolfa plöntunni og
slá pottbrúninni létt við eitthvað hart.
Þá losnar innihald pottsins auðveldlega,
og hægt er að draga það upp úr honum
og líta á rætumar. Alltaf á að vökva
plöntuna vandlega, áður en umpottað
er. Leyfið öllu umframvatni að renna í
burtu. Ekki á að vökva plöntuna í tvo
eða þrjá daga eftir að skipt hefur verið
um pott. Það örvar rætumar til þess að
Ieita inn í nýja jarðveginn í pottinum og
draga 1 sig raka. Aldrei másetjaplöntur,
sem nýbúið er að umpotta í sterkt
sólskin.
Stöku plöntur - sérstaklega þær sem
vaxa mjög hratt - fá aldrei nægilega
næringu úr moldinni í pottinum, meira
að segja, þótt skipt sé um mold. Fyrir
kemur að plöntur em orðnar svo stórar
að næstum ómögulegt er að skipta um
pott á þeim. í því tilfelli verður að gefa
þeim aukanæringu til þess að þær nái að
vaxa og blómstra'.' Einfaldasta leiðin er
að blanda fljótandi áburði í vatnið.
Margar gerðir áburðar em á markaðin-
um. Einnig er hægt að gefa plöntunum
blaðnæringu með því að úða þær. Setjið
aldrei meiri áburð í vatnið en notkunar-
reglumar segja til um - segja má, að
betra sé aðdraga úr magninu fremur en
auka það. í einstaka tilfelli er nægilegt
að fjarlægja visin blöð og blóm. Ef
frekari klippingar er þörf er það gert til
þess að halda plöntunni fallega vaxinni.
Oft vill brenna við innan dyra, og
reyndar utan líka, að planta verður
rengluleg og út úrhenni vaxa hliðarsprot-
ar. Allt slfkt ætti að klippa burtu til þess
að blómin okkar verði þéttvaxnari og
fallegri á að sjá. Með klippingu getur
líka verið hægt að örva blómgun.
Ef vaxtarsprotamir em klipptir getur
það orðið til þess að plantan leggur allt
(blómgun, ístað þess að fjölga blöðum.