Tíminn - 30.07.1982, Page 19
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
FÖSTUDAGUR 30. JULÍ 1982
kvikmyndahornið
■ Tatsuya Nakadai fer með hlutverk Kagemusha í samnefndri kvikmynd
eftir Kurosawa, og sést hér í fullum herkiæðum.
Kagemusha frum-
sýnd í Nýja bíó
■ Kvikmyndaúrvalið í borginni hefur yfirleitt ekki verið upp á marga físka
í þessum sjónvarpslausa mánuði; mikið um endursýningar og lélegar myndir.
Það vekur því mikla athygli þegar Nýja bíó frumsýnir í dag hina frægu
kvikmynd „Kagemusha“ eða „Tvífarinn" eftir japanska meistarann Akira
Kurosawa.
í tilefni af frumsýningunni er rétt
að rifja upp nokkur atriði varðandi
tilurð myndarinnar og þær viðtökur,
sem hún hefur fengið erlendis, en um
myndina sjálfa verður nánar fjallað
hér í þættinum eftir helgina.
Kurosawa, sem er 72 ára að aldri,
lauk við þessa mynd árið 1980. Hann
hafði þá, þótt ótrúlegt sé, átt í
vandræðum með að útvega fjármagn
til kvikmyndagerðar - og er þó
langþekktasti leikstjóri Japana og
viðurkenndur meistari á því sviði.
í>að var ekki fyrr en bandarískir
aðdáendur hans, leikstjórarnir Fran-
cis Ford Coppola og George Lucas,
gengu í málið og fengu Twentieth
Century Fox til þess að leggja fram
fjármagn, að Kurosawa gat gert
Kagemusha að veruleika.
Kurosawa hafði reyndar í upphafi
alls ekki ætlað sér að verða
kvikmyndaleikstjóri, heldur listmál-
ari. Hann gekk í listaskóla 17 ára að
aldri, en að skólanámi loknu tókst
honum ekki að hafa ofan af fyrir sér
á því sviði. Hann svaraði því
auglýsingu frá kvikmyndaframleið-
anda, sem óskaði eftir aðstoðarleik-
stjórum, og var ráðinn sem aðstoðar-
maður annars þekkts japansk leik-
stjóra, Kajiro Yamamoto. Auk
aðstoðarleikstjórnar fór hann fljót-
lega að skrifa kvikmyndahandrit
fyrir Yamamoto, og árið 1943 fékk
hann að leikstýra fýrstu kvikmynd-
inni sjálfur. Sú nefndist Judo Saga,
og þar þóttu ýmis sérkenni hans sem
leikstjóra koma þegar fram, svo sem
tæknileg fullkomnun, næmt auga
fyrir fegurð og knöpp frásagnar-
tækni.
Fyrsta kvikmyndin, sem vakti
athygli á Kurosawa á alþjóðavett-
vangi, var Rashomon, sem hlaut
fyrstu verðlaun á Feneyjarhátíðinni Elias Snæland
árið 1951. Frægasta kvikmynd hans, Jónsson
og sú sem mest hefur verið eftiröpuð skrifar
★ Atvinnumaður í ástum
★★ Sólin ein varvitni
★★ Amerískur varúlfur í London
★★★ Lola
★★ CatBallou
★★★ Framísviðsljósið
★★★ Bláa lónið
★★ Hvellurinn
af öðrum, svo sem bandarískum
leikstjórum, er þó „Samuraiarnir
sjö“. A þeirri kvikmynd var banda-
ríski vestrinn „The Magnifícent
Seven" byggður. Reyndar hafa
vestrænir leikstjórar gert fleiri kvik-
myndir eftir verkum Kurosawa. Sem
dæmi má nefna, að bandaríska
kvikmyndin „The Oufrage“ með
Paul Newman í aðalhlutverki var
byggð á Rashomon scm áður er
nefnd, en spaghettivestrinn „A
Fistful of Dollars“ á annarri kvik-
mynd, Yojiinbo. A hinn bóginn varð
Kurosawa einnig fyrir áhrifum frá
bandarískum leikstjórum, svo sem j
John Ford.
Þrátt fyrir almenna viðurkenningu |
víða um heim hefur Kurosawa |
gengið illa að fá nægiiegt fjármagn
heima fyrir til mynda sinna, og sýnir |
sig þar sem víðar að enginn er
spámaður í eigin föðurlandi. Gekk |
þetta svo nærri honum, að árið 1971
reyndi hann að fremja sjálfsmorð.
En á þeim rúma áratug, sem síðan I
er liðinn, hefur hann gert tvö af
meistaraverkum sínum; Dersu
Uzala, sem var fjármögnuð að
verulegu leyti af Sovctmönnum og
sýnd hefur verið hérlendis, en sú
kvikmynd hlaut mjög góðar móttök-
ur á vesturlöndum og fékk m.a.
Oskarsverðlaun sem besta erlenda
kvikmyndin árið 1975. Og svo
Kage.nusha, sem hlaut gullpálmann
í Cannes 1980.
ÍGNBOGir
tr ío ooo
Sólin var vitni
Spennandi og bráðskemmtileg ný
ensk litmynd, byggð á sögu eftir
Agatha Christie.
Aðalhlutverið Hercule Poirot leikur
hinn frábæri Peter Ustinov af
sinni alkunnu snilld, ásamt Jane
Birkin - Nicholas Clay - James
mason - Diana Rigg - Maggle
Smith o.m.fl.
Leikstjóri: Guy hamilton.
islenskur texti - HÆkkað verð.
Sýnd kl. 3 - 5.30 - 9 og 11.15.
Dauðinn í vatninu
Hörkuspennandi litmynd um
drápsfiska og fjársjóð sem þeir
geyma. Aðalhlutverk: Lee Majors
- Karen Black.
Bönnuð börnum.
Endursýnd kl. 3.05 - 5.05 - 7.05
- 9.05 -og 11.05.
Tossabekkurinn
Bráðskemmtileg gamanmynd i
litum með Glendu Jackson -
Oliver Reed.
Endursýnd kl. 3.10 - 5.10 - 7.10
- 9.10 og 11.00.
Svik að leiðarlokum
Geysispennandi litmynd gerð eftir
sögu Alistair Mac Lean, sem
komið hefurút í íslenskri þýðingu.
Aðalhlutverk: Peter Fonda - Britt
Ekland.
Sýndkl. 3.15-5.15-7.15-9.15
og 11.15.
28*1-89-36
Byssurnar frá
Navarone
(The Guns ol
Navarone)
Heimsfræg verðlaunakvik- |
mynd með úrvalsleikunjm. Aðal-
hlutverk: Greogory Peck, David
Niven, Anthony Quinn, Anthony
Quayle.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 9
Bönnuð bömum innan 12 ára.
Sfðustu sýnlngar.
Bláa lónið
Hin bráðskemmtilega úrvals- I
kvikmynd með Brooke Shields |
og Christoper Atklns.
Endursýnd kl. 5 og 7.
B-salur
Cat Ballou
Bráðskemmtileg kvikmynd með
Jane Fonda, Lee Marvin o.fl.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
"lonabíól
28*3-11-82
Njósnarinn sem
elskaði mig
(THe Spy Who
Loved Me)
James Bond svíkur engan.
þessari mynd á hann í höggi við |
risann með stáltennumar.
Aðalhlutverk: Roger Moore.
Islenskur texti.
Endursýnd kl. 5 - 7.20 og 9.30
21*1-15-44
Frankenstein
hinn ungi
Ein albesta gamanmynd Mel
Brooks með hinum óviðjafnan-
legu og sprenghlasgilegu grínuntm
Gene Wilder og Marty Feldman.
Endursýnd í dag og á morgun kl.
5, á sunnudag kl. 3 og 5.
Mánudag frídag verslunarmanna
kl.5
Kagemusha
(The Shadow Warrior)
Meistaraverk Akira Kurosawa
sem vakið hefur heimsathygli og
geysilegt lof pressunnar. Vest-
ræna útgáfa myndarinnar er gerð
undir stjórn George Lucas og
Francis Ford Coppola.
Frumsýnd kl. 7.30 og áfram á
sama fc-. '• verslunarmanna-
helgina.
Og að sjálfsögðu munum við halda
áfram að sýna hina frábæru og
sívinsælu mynd Rocky Horror
(hryllingsóperuna) kl. 11.
Flóttinn til Aþenu
Spennandi og skemmtileg Pana-
vision-litmynd, um ali sérstæðan
flótta í heimstyrjöldinni siðari,
með: Roger Moore - Telly
Savalas - Elliott Gould og
Claudia Cardinale.
fslenskur texti.
Endursýnd kl. 6 - 9 og 11.15.
2S* 1 -1 3-84
Ein frægasta grín-
mynd allra tíma:
Kappasturinn mikii
Fessi kvikmynd var sýnd í
Austurbæjarbiói fyrir 12 árum við
metaðsókn. Hún er talin ein allra
besta gamanmynd, sem gerð
hefur verið enda framleidd og
stjómað af Blake Edwards. -
Myndin er í litum og Cinema
Scope.
Aðalhlutverk: Jack Lemmon,
Natalle Wood, Tony Curtis,
Peter Falk.
Sýnd k. 5,7.30 og 10.
25* 3-20-75
Snarfari
Ný hörkuspennandi banda-
rísk mynd um samsæri innan fang-
elsismúra, myndin er gerð eftir
bókinni „The Rap" sem samin er
af fyrrverandi fangelsisverði i SAN
QUENTIN fangelsinu.
Aðalhlutverk: James Woods,
„Holocaust“ - Tom Maclntire
„Bruebaker" og Kay Lenz „The
Passage".
Sýnd kl. 7 og 11.05.
Bönnuð innan 16 ára.
fslenskur textl.
Darraðardans
Endursýnum þessa frábæru
gamanmynd með Walter Matt-
hau, Glendu Jackson og Her-
bertLom.Verkefni: Fletta ofan af
CIA - FBI - KGB og sjálfum sér.
Sýnd kl. 5 og 9.
2F 2-21-40
Atvinnumaður í
ástum
(American Gigolo)
Ný spennandi sakamálamynd.
Atvinnumaður í ástum eignast oft
góðar vinkonur, en öfundar-
og hatursmenn fylgja starfinu líka.
Handrit og leikstjórn: Paul
Schrader.Aðalhlutverk : Ric-
hard Gere, Lauren Hutton.
Bönnuð innan 16 ára.
Hækkað verð.
Sýndkl. 7-9.10 og 11.20.
Fjallaljónið ofsótta
(Run, Cougar, Run)
productions
Spennandi og skemmtileg
bandarisk kvikmynd frá Disney-
félaginu.
Aðalhlutverkin leika:
Stuart Whitman—Alfonso Arau.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 5 og 7.
Hinn ósýnilegi
Bandarisk hrollvekja.
Endursýnd kl. 9.
StjörvDugjöf Tfmans
★ * * * frábær ■ * + * mjög göð - * * góö • * sæmlleg • O léleg