Tíminn - 30.07.1982, Page 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Sínfi (íl! ) 7 - 75-51. (91 ) 7 - X« - 3«.
T-rTTTVTk TTT7' Skemmuvegi 20
ur . Kopavogi
Mikiö úrval
Opid virka daga
9 19- Laugar
daga 10-16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
V
abriel
HÖGGDEYFAR
GJvarahlutir
Armúla 24
Sími 36510
ARVEMHNII SKODAB IEYJUM
■ Þjóðhátíð Vestmannaeyja verður
haldin um aðra helgi í Herjólfsdal að
vanda, og af því tilefni var blaðamönn-
um boðið til Vestmannaeyja til að kynna
dagskrá hátíðarinnar.
Að þessu sinni heldur íþróttafélagið
Þór hátíðina, en íþróttafélögin í Eyjum,
Þór og Týr, skiptast á um að halda
hátíðina, en fyrsta þjóðhátíðin var
haldin árið 1874.
„Það jafnast ekkert á við Þjóðhátíð-
ina í Eyjum“ sagði Árni Johnsen, einn
þeirra sem staðið hafa að undirbúningi
hátíðarinnar, „nema ef vera skyldi
karnevalið í Ríó“. Ekki er víst að allir
séu sammála honum um það, en víst er
að þjóðhátíð þeirra Eyjamanna er um
margt sérstæð hátíð.
í Herjólfsdal var undirbúningur kom-
inn vel á veg, búið var að reisa brú yfir
tjörnina í dalnum, en brúin er einn af
föstum liðum í þjóðhátíðum þeim sem
Þór heldur. Einnig var hálfnað að reisa
gríðarmikinn bálköst á Fjósakletti fyrir
ofan hátíðarsvæðið, en hann átti að sögn
að vera að rúmmáli álíka stór og þriggja
hæða hús. Verið var að koma fyrir
flaggstöngum, en um sjötíu flaggstengur
munu skreyta svæðið, auk þess sem
hvorki meir né minna en 13-14 hundruð
ljósaperur munu lýsa dalinn upp þegar
skyggja tekur.
Þrjár hljómsveitir munu spila á
þjóðhátíðinni, hljómsveitin Radíus sem
er úr Eyjum, Stuðmenn og Hljómsveit
Stefáns P., en af skemmtiatriðum má
nefna manntafl, þar sem eldri borgarar
leika mennina, og þeir yngri peðin, en
skákina tefla þeir Kári Sólmundarson og
Guðmundur Búason kaupfélagsstjóri.
Einnig verður bjargsig, brúðuleikhús,
tískusýning og ýmsir tónlistarmenn
koma fram, að ógleymdum brekku-
söngnum, sem er eitt vinsælasta atriðið
á hátíðinni.
Á svæðinu verða tvö veitingatjöld,
annað með dekkuðum borðum upp á
gamla móðinn sem kirkjukórinn sér um,
og sögðu þeir þjóðhátíðarnefndarmenn
að meðlimir kórsins hefðu verið að baka
alla síðustu viku, og væru nú eflaust
komnir með nokkur tonn af randakök-
um, jólakökum og kleinum. f hinu
tjaldinu verða svo seldar franskar
kartöflur og hamborgarar, og annað
þjóðlegt fæði.
Eitt af því sem setur svip á
Þjóðhátíðina í Eyjum eru hústjöldin,
sem Eyjamenn slá upp í dalnum. Þau
eru í laginu eins og lítil hús og eru öll
hvít að lit, en algengt er að 2-3
■ Hluti þjóðhátíðamefndarinnar, en ■ ár sér íþróttafélagið Þór um hátíðina.
fjölskyldur séu saman í tjaldi, og eiga
margir sinn fasta blett á svæðinu. „Það
er mikið atriði fyrir þá að vera á sínum
stað við sína götu“ sagði Árni, en á
tjaldsvæðinu eru skipulagðar götur, og
bera þær hver sitt nafn, þannig að
Herjólfsdalur er eins og lítill bær um
þjóðhátíðardagana.
Eftir stuttan stans í Eyjum var aftur
haldið í loftið, og var sólin þá farin að
skína á Eyjarnar, og sögðu þeir
Eyjamenn að þetta væri bara sýnishorn
af þjóðhátíðarveðrinu, sem jafnan kæmi
til Vestmannaeyja á tilsettum tíma.
-SVJ
Fréttir
Rafmagnsverð
hækkar um 23%
■ Ákvörðun um gjald-
skrárbreytingar orku-
veitna 1. ágúst næstkom-
andi liggur nú fyrir eftir að
um þær hefur verið fjallað
af gjaldskrárnefnd ríkis-
stjórnarinnar að fengnum
tillögum iðnaðarráðuneyt-1
is. j
Gjaldskrár rafveitna
hækka að jafnaði um 23%
og er þá innifalin heild-
söluverðshækkun Lands-
virkjunar um 22%, en um
helmingur hennar kemur
fram sem afleidd hækkun í
smásöluverði. Gjaldskrár
hitaveitna hækka yfirleitt
á bilinu 12-20%, t.d. er
heimiluð 20% hækkun á
gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur og er það um
7% umfram hækkun bygg-
ingavísitölu, en 1. maí sl.
fékk hitaveitan 17.5%
hækkun. Nemur hitunar-
kostnaður meðalíbúðar í
• Reykjavík nú um 16% af
áætluðum olíuhitunar-
kostnaði. Hins vegar er
hitunarkostnaður ýmissa
nýlegra hitaveitna nú um
55-60% af olíuhitunar-
kostnaði og til eru hita-
veitur með talsvert óhag-
stæðara hlutfall.
Verð á raforku til húshit-
unar hækkar um 23% eins
og aðrir taxtar hjá Raf-
magnsveitum ríkisins og
Orkubúi Vestfjarða og
nemur rafhitunarkostnað-
ur þannig um 80% af
áætluðum olíukyndingar-
kostnaði.
í maí sl. gaf ríkisstjómin
út yfirlýsingu um jöfnun
upphitunarkostnaðar, þar
sem segir m.a.: „Er að því
stefnt að upphitunarkostn-
aður sambærilegs íbúðar-
húsnæðis verði yfirleitt
ekki meiri en gerist hjá
nýjum og hagkvæmum
hitaveitum, sbr. Hitaveitu
Akureyrar og Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarð-
ar. Verður á næstunni gerð
áætlun um hvernig ná megi
slíku markmiði í áföngum,
m.a. með endurskoðun á
gjaldskrá veitufyrirtækja á
næstu 12 mánuðum.“
- Sjó.
Rfkið
og
Húsafell
opið
■ Einhverra hluta vegna hef-
ur Ragnar Arnalds, fjármála-
ráðherra, ákveðið að ríkis-
verslanir með áfengi verði
opnar föstudaginn fyrir versl-
unarmannahelgi. Hvort það er
vegna slæmrar reynslu af
lokuninni föstudaginn fyrir sl.
hvítasunnuhelgi skal ósagt
látið.
Hins vegar muna lesendur
eftir því að þá helgi var mikið
fjör og mikil drykkja í Húsa-
felli, og gaf landeigandinn út
þá yfirlýsingu í útvarpi að um
2% dvalargesta hefðu verið
„edrú“, þrátt fyrir föstudags-
lokun vínbúðanna. í framhaldi
af þessu gaf sá hinn sami út
yfirlýsingu um að það sem eftir
lifði sumars yrðu tjaldstæði
bönnuð í landi Húsafclls.
Nú hefur ráðherra ákveðið
að gera ekkert í dag í
lokunarmálum, þannig að rík-
ið verður opið, og þá bregður
svo við að landeigandinn í
Húsafelli tilkynnir að hver sem
er megi tjalda hjá honum.
Hann ætlar greinilega að
kanna hvort hlutfallstala ó-
fullra fari hækkandi miðað við
þessar breyttu forsendur.
Annars hafa Dropar frétt að
Áfengisvamarráð sé í fríi um
þessar mundir, og þvi sé
landsmönnum óhætt að staupa
sig, enda stutt í það að
Landsamtökin gegn áfengis-
varnarbölinu verði stofnuð.
Bullandi
þágufalls-
sýki
■ Dropar sáu auglýsingu í
Morgunblaðinu í gær frá skóla-
meistara Menntaskólans í
Kópavogi þar sem segir:
„Menntaskólanum í Kópa-
vogi vantar húsnæði fyrír
starfsemi sína“ ...o.s.frv. Það
er greinilegt miðað við þá
þágufallssýki sem kemur fram
í auglýsingunni að íslensku-
kennslu virðist fara hnignandi
í menntaskólum landsins,
nema þágufallssýkin sé orðin
lenska og þyki nú góð og gegn
íslenska?
,...sá í stjömuspá DV í gær að
Ellert rítstjóra er ráðlagt að
framkvæma a.m.k. eina af
hugsjónum sínum og hann
muni aldrei iðrast þess. Nú er
tækifæríð Ellert!
dropar
Menntaskólanum
Kópavogi
vantar husnæöi fyrir starfsemi sma i na-
grenni skólans.
Uppl. á fræösluskrifstofu Kópavogs, sími
41863 og í Menntaskólanum milli kl. 11 og
12, í síma 43861.
Skólameistari.
Krummi