Tíminn - 12.08.1982, Síða 1
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Fimmtudagur 12. ágúst 1982
181. tbl. 66. árgangur
Síðumúla 15-Pósthólf 370 Reykjavík-Ritstjórn86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86392
BðNKUM LOKflÐ VEGNA VÆNT-
ANLEGRAR GENGISFELUNGAR
Gjaldeyrisdeildirnar afgreiða gjaldeyri med álagi þar til nýtt gengi verður skrád
■ Þegar gjaldevrisbankarnir opna nú í
morgunsárið verður engin skráning á
gengi íslensku krónunnar og jafnframt
lokað fyrir alla gjaideyrissölu nema í
sérstökum neyðartilvikum.
Bankaráð Seðlabankans gekká fundi
sínum í gær frá ákveðnum tillögum m.a.
um breytingu á gengi krónunnar. Þegar
slík tillaga er komin fram hefur
gjaldeyrisafgreiðsla alla jafna verið
stöðvuð í framhaldi af því. Menn geta
því ekki keypt erlendan gjaldeyri lengur
á „útsöluverði", eins og ýinsir hafa
orðað það varðandi skráningu krónunn-
ar að undanförnu. Gengisfellingin mun
verða á bilinu 10-13%. Hvaða tölu
ríkisstjórnin kemur sér saman um á því
bili mun ekki að fullu ákveðið, enda
mun það tengjast þcim efnahagsaðgerð-
um sem væntanlega líta dagsins ljós nú
á næstu dögum. En þörfin fyrir
gengisfellingu ræðst m.a. af því hve
mikil vísitöluhækkunin, og í framhaldi
af henni launahækkanir og fiskverðs-
hækkanir, verður hinn I. scptember n.k.
Síðast þcgar gcngisskráningu var hætt
- í um tvær vikur í janúarmánuði s.l. -
var þó ferðamannagjaldcyrir afgreiddur
WNi
með scrstöku álagi eða tryggingu. Má
búast viö að slíkt álag vcrði nú vart undir
15% á þann gjaldeyri sem afgreiddur
veröur þar til gcngi vcrður skráð á ný.
-IIEI
Kvikmynda-
hornið:
Flöttgnnfrá
New York
- bls. 19
Ullman
og fibsen
- bls. 2
í Svíþjóð
— bls. 8-9
„Aldrei að geyma til morguns það sem hægt er að gera í dag“, sannaðist hjá þessu fólki sem var meðal þeirra heppnu, þ.e. að ná að leysa út
sinn ferðamannagjaldeyri á „útsöluprís" í gær rétt fyrir lokun bankanna. Tímamynd Ella.
Knattspymuáhugamenn eiga von á giaðningi frá sjónvarpinu í vetun
BEINAR IÍTSENDINGAR
FRA ENSKA BOLTANUM?
— „Getur farið svo ad við komumst í samflot með
hinum Norðurlöndunum’% segir Bjarni Felixson
■ „Til að byrja með verða útsend-
ingar frá ensku knattspyrnunni með
svipuðu sniði og verið hefur undan-
farin ár. En þegar líða tekur á haustið
getur farið svo að við komumst í
samflot með hinum Norðurlanda-
þjóðunum í beinum útsendingum,"
sagði Bjami Felixson, íþrótta-
fréttaritari Sjónvarpsins, í samtali við
Tímann í gær.
Bjarni sagði, að búið væri að taka'
ákvörðun um að sýna alla úrslitaleiki
í ensku knattspyrnunni í beinum
útsendingum á komandi keppnistíma-
bili. Þá sagði Bjarni að Sjónvarpið
hefði komist inn í samning til fjögurra
ára um að fá úrslitaleiki í Evrópu-
keppnum félagsliða í beinum útsend-
ingum. „Um þessa leiki hefur alltaf
verið í gildi fjögurra ára samningur,
sem margar sjónvarpsstöðvar hafa
sameinast um. Hann rann út núna í
vor og það er Ijóst að við verðum með
í þeim næsta,“ sagði Bjarni.
Hér er um að ræða Evrópukeppni
bikarhafa og Evrópukeppni meistara-
liða.
-Sjó.