Tíminn - 12.08.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 12.08.1982, Qupperneq 1
TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Fimmtudagur 12. ágúst 1982 181. tbl. 66. árgangur Síðumúla 15-Pósthólf 370 Reykjavík-Ritstjórn86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86392 BðNKUM LOKflÐ VEGNA VÆNT- ANLEGRAR GENGISFELUNGAR Gjaldeyrisdeildirnar afgreiða gjaldeyri med álagi þar til nýtt gengi verður skrád ■ Þegar gjaldevrisbankarnir opna nú í morgunsárið verður engin skráning á gengi íslensku krónunnar og jafnframt lokað fyrir alla gjaideyrissölu nema í sérstökum neyðartilvikum. Bankaráð Seðlabankans gekká fundi sínum í gær frá ákveðnum tillögum m.a. um breytingu á gengi krónunnar. Þegar slík tillaga er komin fram hefur gjaldeyrisafgreiðsla alla jafna verið stöðvuð í framhaldi af því. Menn geta því ekki keypt erlendan gjaldeyri lengur á „útsöluverði", eins og ýinsir hafa orðað það varðandi skráningu krónunn- ar að undanförnu. Gengisfellingin mun verða á bilinu 10-13%. Hvaða tölu ríkisstjórnin kemur sér saman um á því bili mun ekki að fullu ákveðið, enda mun það tengjast þcim efnahagsaðgerð- um sem væntanlega líta dagsins ljós nú á næstu dögum. En þörfin fyrir gengisfellingu ræðst m.a. af því hve mikil vísitöluhækkunin, og í framhaldi af henni launahækkanir og fiskverðs- hækkanir, verður hinn I. scptember n.k. Síðast þcgar gcngisskráningu var hætt - í um tvær vikur í janúarmánuði s.l. - var þó ferðamannagjaldcyrir afgreiddur WNi með scrstöku álagi eða tryggingu. Má búast viö að slíkt álag vcrði nú vart undir 15% á þann gjaldeyri sem afgreiddur veröur þar til gcngi vcrður skráð á ný. -IIEI Kvikmynda- hornið: Flöttgnnfrá New York - bls. 19 Ullman og fibsen - bls. 2 í Svíþjóð — bls. 8-9 „Aldrei að geyma til morguns það sem hægt er að gera í dag“, sannaðist hjá þessu fólki sem var meðal þeirra heppnu, þ.e. að ná að leysa út sinn ferðamannagjaldeyri á „útsöluprís" í gær rétt fyrir lokun bankanna. Tímamynd Ella. Knattspymuáhugamenn eiga von á giaðningi frá sjónvarpinu í vetun BEINAR IÍTSENDINGAR FRA ENSKA BOLTANUM? — „Getur farið svo ad við komumst í samflot með hinum Norðurlöndunum’% segir Bjarni Felixson ■ „Til að byrja með verða útsend- ingar frá ensku knattspyrnunni með svipuðu sniði og verið hefur undan- farin ár. En þegar líða tekur á haustið getur farið svo að við komumst í samflot með hinum Norðurlanda- þjóðunum í beinum útsendingum," sagði Bjami Felixson, íþrótta- fréttaritari Sjónvarpsins, í samtali við Tímann í gær. Bjarni sagði, að búið væri að taka' ákvörðun um að sýna alla úrslitaleiki í ensku knattspyrnunni í beinum útsendingum á komandi keppnistíma- bili. Þá sagði Bjarni að Sjónvarpið hefði komist inn í samning til fjögurra ára um að fá úrslitaleiki í Evrópu- keppnum félagsliða í beinum útsend- ingum. „Um þessa leiki hefur alltaf verið í gildi fjögurra ára samningur, sem margar sjónvarpsstöðvar hafa sameinast um. Hann rann út núna í vor og það er Ijóst að við verðum með í þeim næsta,“ sagði Bjarni. Hér er um að ræða Evrópukeppni bikarhafa og Evrópukeppni meistara- liða. -Sjó.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.