Tíminn - 15.08.1982, Blaðsíða 15
14
mmvrn
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST1982
ts
M'in
mrgmi
16 siður og luUk
<» ,
*^H
síJÓBW A.S.I. beb EIN ÁBVBCÐ Hóla sloívun landhclgisgaiilu
' ft V EtlK rÖEEDNDM ( -
iiJjlU bitl i(Vlií(|4mtr;mnt lil
u’r'tijantlniii íciUljlilílíjanM 5)0
og myrkvun Reykjavíkui!
Stáiiitj tl3»»ell kominónliii
og Hwitiitli i DliMlnwt
rslts ’
•sitts
trnii!
slis-
Il*u6ty„
,a slrjsl.
J Jushir
Oiivium ;
2000 MANNS Á FUNDUM VERKLÝÐSFÉLAGANNA
v*rMýi*,ím stMn ; „a %imdo íamon W2 .gur er unnhn
aimtil." 'i rUiill i fiy.liliú.mii |„ f.| frá „„.jj |y .
..Sefnun feafio ‘
16 siðnr
cS
au
tmlvbibU*
,■.««<< »<i*iwh***
e; <ssT.il' r é~~^z
Slii j^A*t~^»h3rnaaist J &%S3Ss.
'AtMw/rxl . wjn. t*J -<-»«»».»»■»■>.> i ni uufori v
r£>, i liwi* trtjSnu
V»(k*Hhíil:sir. S t«m »4 v«tlt(Á|iÍM timi* *
‘i friulotM.
Tj^at 9t«fc*lÝíi!Éf«|j . R.rkj.viá, B*j»krí» TJ,
|.(»t»MÍ«B*M*, líj*, ftl,, v«l$»i»íat6Ut
,1 V«ikðk*»ítMtltf^),i Fcawkn Vtl8» ÍU Wut.
i ■'ift *«l|s Jtí on % Jr,t. jMsm.
*i*s»í •* kðrtlUrifíí (íVií S ilitti*
•«*» áiíttnutt «g *r fryfevísVot v«ii,lýí»t tUiiÁhtat,)
•*»*£ j> «*»* í *la*í *»*U Ivttífcgv »ni tl«( «i
;’•*£ «*»»í»rkiin<Iiiriuit
... i »*A«ítW*!»t*M* tffívttB
TskiAiislí f^»fweRÍ*,Bi.í V’ ** *,4v*Ha* *» wi<íj4u< i
18MB IISII ryfí1!,,M;*ttÆ **le w**»í*«imitiír*t ft* „
*l.»«*»l*s»r Mi« tVki ulítí fpi,
F-I«l»i»(í»» FriiinxóknHríuittlttr
ALi>JÓIIASAMIIANH KOMMÚNISTA
íiEO FÉ I VERKFALLIO HLKLEMOIS
„ ,1lMvtawsr* jiJfngirmenn fvrir a3 kattpa íslciwkan
, lisk, en vili Itoraa fyrir eyðiltgg-
raÉTTiKaivinnnlíM
, , jttjj,, r.;!;
Jjxwitg) isr<r«i«í iú vtJ L5.1 «j
U«BSS*tef*í SGUijfðiltitAW
iiÚÐVILIINN
J®™N lætur »sérfræðinga«
|INA SEMJA SMANARTILL8GU
t.M B-ncl.t <11 vlrt ItrJífnr v.-rU,a,r.-l«au„00
rilí <>Shu„<„ „l.l.tl . _
t. r-aw
^M$S£SS8P*tAJMVr; y-rU“" • «">»«*•"
tfine Ma4,-»ik*í «UuBfM *<f;r-|. * ** *• •
Eimihower hoifitr lil
„ ý *!«»«> «••■•’' .- ,,
—, --------K * «***.'*» •»»> *»•*-->*»*»>•*< ***«««**
»•>>-»• Or»>»fe»o* >*>•**** >« <•« > ««><» tmlolIUw. .
»2» »£►*■— —* -•*•• “’rtWe •>»* UHMOtrs *«<«*»
j*)*! t'*')*:■'■***> *!
m m> «Mrt. 0*
M«rrt M HA«ri«*.lWil
AðalinnliiU i n»«*I» Mirgolios vuru
viðtkiplavtmtnimjur við fvluiul o«
llciri *lík „lundvini ingur.ki •
fyiti þaí <ai kaM Inméti tH öaeía I Prag
.asjssigtj ►t»*"yjóS~‘ái4aa«*s
riíðifi'/mi IIIII KómimnJa^jg.gg^KgíyaSarSS.’i.'iattS
rsxJssiu. _ - c. - _, _»_ ™~*»
• Juiti Vifif*i»*ac«ftU4ÍM tujikft*. k*M-i
....fl. d*»v*kti IS5ií, *t»i»*«tíf ft«tlft(< k«iní:
<!ttf< <lrt nif»k«ad« «s IikfírtÍ»»o*r *i kusií*
í tym . ♦•««»«w:» íéiiititt huff *<j !*M*t*fM *«*»*•■
8hi»w irt»k-
' -— ír*Æí&3í»aif35:
.: Stt U;i far.ffajías ki*W ititxlimt Kwalns*
<»>: k.«Mi ýlir jifif* «íe.d(t4*í »flj* Jtl**«tt*e.»*
jjJ <-'a>áa w»*ti wb i»ofð k*ilA tatt k(«l»» »tti<-
>ök:« ***Mún *w »f*« ftthtt satutt *» »k«'*: J «fl«» **•
“«1*9 «i v*it* v«»kf*llísa «w vitkittU*
í wrtfíiiujéíinn Hajpr HvalirE iieilaí a3 rata
MlrtnnrtMknlr _ IUw, VJIir Mvl««.H*erti,!
amninganefndorfundir hófusf loks atfur i qœrkvóld
r**~á
:jtí tttaOiigínu i «)Ktrtut uá > tttidStíi
Taka ilanfleya fvrirmæittm s.
tlm santúðarvituiusliiðvanir.
Httg ftlóu ntit’ afi tietl, wHatll.
l'TofckMKÍoÓitMH
sEtit.ífi CíMK Oxjvi-r*.-
DHI 1 *•»«< l*lt»saií«r j kvöá
... .. " « *T«
VHI V \ >
í>i’"ii:ii» íits sfriA
»f»«an fi'kis.
stj<'ifiufin«ar
*(•»»»«<* . V
AócImh <*init Mtninin^*
„r..„.1» ttllur
. irHJtnt „..v,, .i*,
ai*H«uti VAMttititt ör iiintttu
n Fnnrl«f l«»l«
1 .nVMtrt^rf
>>rk.í^v».«»».M.
Dagvtm helur
•*««»,* acvíHí tt Áktpvi
Va,.f-»x<i. W *-ii>»acíW't«í< < ‘>
Asa«>»»(- <» ,*•*>*
«.«»»« i »ac*H«M <W< <•'»< ' .
uírt se»8o.V'* <«*<;»
rfcttJ** 1
s~ís®i
Andstað komm an gegn óstjórn únistastjórnar Póllands eykst
«**»*J>q>fc ■ >>X*<>>>»«.-*jqj:
r-.-iH fcr>éi~’^s'!aSir i — "TÍHSEc'nSKy:
ttiIMjíS-
af««iÍ8r
ilíkTjM*** fwf
,<>/»■(' W*8*
, irt+%- T,
‘áT ývl.»*fm**V* nut líi kkr.u ú
|fciJ«(nv!iniiii
1 ****■’«
*»mtó U1 itirfj í
verklelliuc
WrS*.»H>>4M. *-nl. i
«*«| uTk jíiw* ’
Wiw <r '<» t-c«K W :
Wrr.fcr., «<*},». »* <
I «*>'xrtv*>
M «: IVlmwi.
,. t*,IV ,6H5 <* »ian<ktK>P slnum i nótt mó
m.* b“* r19 ^1’*Cr‘°r0,kvœ3? «reiS5,u "fH vmóitar-
^ ilboð Í verklydsfelogunum I dog
5S2 'erfífeilsmenn munu þé tryggja sigur með þvi a5
““ lafiia smánar&oðinu af einhug og festu
f ratir »f vtrk-
•^íT; íallíiHf rrn á fi,
“ K',.víA«.
fnar
! j Klt
á stjáni
.........'•-■•''* f-(iAj-si*fr-),n»: » fasrf ...... •-■«- >■
f,:v< 15, S9»»r r.rUfíne. þ*?«( WnM fó* l »«**.*»**•**
;!■;> »tus Jxtfhtói njHtaiati. PHrX,,»f.«
- : ~W»inÍ >,~i TsrrkJ^í^wtóJogi^ rfTOU*fÝ
r.aooíwtúa l.tu IjfHt ttJkknL* rfMiara, M vS8 <»£££$£ ***?/?£:
,._;:.<it!<-gs* kMjti-Roa. «att tkkf as»0« •!» '■* »*>• a*>»<«. ■
!-<-:i -xt«l*»«rðiA hitf té aernti M 3!Ót» víí' ■',ufc* (frrt'fc*1
<4<UÍ*fc«i*^L.Tft4
Sie* *< t». «4 »ínt* *0 ilV«íl«9*r atst4t««! k*8 J ’ZZJ
;tlfetetj! «p» 1 *MJ 4 Jt«ita vreaiMffl m» t»ik*. «»V< !■«. ». «»* ,..
^É*t«!tía f*«4o fi«S mzk&taixs kiSÍBtt :!,-!*«.
AWíl vtitt* tí t..:« wkUfUfað
41% Reykvíkinga og fjöidi iágtekju-
manna úti á landi yrðu skattfrjálsfr
«« þpMtt þaH UumíÍ rikittMþía m attt fí-ft mtli}.
•£kr. ~ rt HmtHþfíhtitar VrrAn tithÍQur
HÚMÍatlKia MMrt Itrhlutn *t;*rtt* *i lágtrkjuut
• • .<■',. ■..- ’* T«^< 8«»fc;t>ífvj .«w»jw|
«««».•< *» (HttáV.ífc***.*, < fc»-*>fcy« « ■•
•' -, v'< *-«*tttwttrfk^rtitiWttifrjy
■ > , :•. •■■>'' > ■> ' 'K>p ■c-v&jttfcfc.Mtv m«>
Sfiiuo
..fc'tó
»513?
,-(4ft(6 m
* Url'i fcJt.tWJfcfctl* Iktt-
aam**
■ttjiJA A«'rA«»r J»/t
L1 ta-lvtvMA!
tittiMÍit ttJvltítttttt-*
, (iíkiMéXfcf eei-ú pó trkk? «•*<* 3V» *ílljí«j ’JJTÍ^Í*k>-
n irHl *ktM M iUttiitMil 8*y»*)kf<«« »J v% 51 £>?HJV2* «£ >2
.reiftjíetf t'ain «»::*Si «1 »'«tw<*I.W«: lök* «1«*; >.v,v>'»- y <.«„ »**
)fci<#£'rft»ááíifí ->_
* Tíf*l»k*»>‘? (■*«>» »4«« ») |<2S > k«f dd f*m • v»» frt
V-Tatéiwi-Jfcfc r»k)» «m «>it *t *«> ií *«lrf 6kj
tr.tli* ir*u j fc^* >» **
" H - -------;**<«. ibrtrt.1 ____________
z.’a&iZ
r«fc*í,’%r
:,V fc** S
« *«13S
r^sg
^ ........... ....
íoðviliinn
---' -!-.!L!-~>•»-.•>.-.■
LakaWraun ríknsliórnannnar lil ,5 <undro ZíhLs^m:
MANARBOÐ ENN LAGT FRAM’
ifi rikijstiórnm ekki lótiS af fjandskap sinum i nótt mó .
K«|lt«ljr ksr-
ittok»e<jar
too:. í ...n^uvs...
...... ífs.TÍvt:!!„r.v». .:
•;■... *T'' ^í.3>» !«**« et«4 Bfpiilttilí* kfáítuo slcsnfc ‘ÍÍ3Í*
.fc,fc <•<•->»! 'Wt íp? f d*9 fil »T<»J»«*.Wr,!
«** k»*Ait>*í AJ wsttfaó*' í*2»ö«sá‘g^
•*■#*?* if x» KiÍArF&ttSáttSS tidsU (wlftttí MSiart
:: >; vt a$ v'jáffcia tufiU áóláíS tot aiój 't":«• ■< <v> <•» ««
-,A rtetíífóírUtsaufc ö3S#M:
<t> Ixtau »>>*« st £■« fcr !»» f :
*t.lJÚfe»»<&5<
h^Jtk (kðWxÍJJS ■
jS»”
■J Ríií«4|ór»ÍHaí
fcfc4 T •*#•■» •* -tv»
——- „
Rikissljórnin IwfSI ó yaltfi sínu oð leysa
vlnnudeiluna iSia en iii verkfatts kom
•i'.T.IÍ r>.Z't.viM >.!■: .>■: ’■: ,:-.v>*!,
' -»<♦•*••■ ’< ••* •'• íyrt^ . •
Fs;ús* tú»k»»W« fttUfíð Kl**u4* «fcÚ*u4 ttj*«*«tw»
!♦'.«»I *««•“*• >*fc»ifc»->»***'*♦*»• !**"”**
' ■ > * >v,e JT^Í' >«*** <ttf '•<»>«, «4* »■*>•• <»**»"*
: j.. k„*< v.rt <*•*»•**
: _____».*** fc^rtj Darwkar
^ ,ap>»fc<vfc- fcfcn- . '
j „»
r tf
ícnivilionn :
Í!,CT2< ^hóntrTat'k* °Íd?°nl*T ^omáliagsamheldni^n
hun þarf aó skapa ser sferka og samhenla farasfu |
lERKFALLINU LAUK í GÆR
. |)a„>lh-iinaramnnmu „„ ftilllrúum i,',k-i „,*#
kirófvl„i uA kiivja fram vmilfuar kjuralui-tur frá jivi xiii ríki»lj.
jwiió. - Kn ti|i|>"jnf o„ »vik fiiistakra VlUttanna valfla |iví að ftill-
,|r nfíiir vannrt ekki, jiráll fyrir fiinar iiiiklu fórtiir vcrkalýíteiii,
'-1 »>»“» ^msvara II -«“> knigkíkkvB, tn uppkafitgn kri'l.nm.«» »>t
fal
- .* ■*?
■::':-.a
í w
il
' v. <*} *t»<«i!í* y*tiW!í Zktatou *»■
' ■ * n M* h*,3s>.t* UUl
8* "■ ftenr&núA *m i& nía 4f .hwfrfig y*.
*'s-S' ?*'%**>■*&$** uMbut rhíM<ált aar«B»trj*tt
. iw *** ;; ' T' *'*■■< tt'->3<A <{s«UM«fc rirfat *l
Tf "■ ' ~kr'f «■»»»«.■»»•'* íwfátt «ií íw»f,2
. . ,J| »«:.”<* :*tii »Á <fk<<**Tfc;*H’
jín<ep « v"M’S-V“; '«• „»<r
tsMM* f “ ' '....'
!ai K'í.rj t; ’.'.A l.íij.j i.-jixI
, . ***e - <4»SIS£XmÍ&m£
___..'*ríh.
„rw": 'i-'.
AB-menn vildu engo vísttölu-
uppbót iit ióglounofóiks
*»'«•>*•» >1, trt Hfc<, <.»*•> MM ÍH '
:vl« »!*>:* »H««»»«rt>oMt«*i-' ■■"■
'•. ' ‘<* *>»*<t (.»«*•». « «•
-
Alt-bittdlA auftl»Nti (évifcin i fyrfelttkíll mrO-
hii MimnÍMiiar vi.niu p*c«u liw«|
■ Verkfall. Þessu fyrirbæri úr atvinnu-
lífinu hafa flestir núlifandi íslendingar
kynnst oftar en einu sinni, - þegar
samningaviðræður hafa
strandað og hvor aðilinn um sig situr við
sinn keip. Þá er undantekningalítið
gangurinn sá að stjórnvöld leita eftir
fresti á frest ofan, sem loks er strengilega
hafnað og verkfall fastsett með
; auglýsingu. Hagfræðingar,
i stjórnmálamenn og verkalýðsleiðtogar
hafa áratug eftir áratug þjarkað um
verkfallsvopnið, hvort það sé úrelt eða
eina úrræði launafólksins og sýnist
hverjum sitt. Eitt er þó víst, - á íslandi
er þetta „vopn“ enn í fullu gildi og hefur
verið það frá því er sjómenn settu á
„skrúfu", eins og það hét þá, í upphafi
aldarinnar. Hins vegar hefur ytri
búningur verkfalla á íslandi breyst og
ólík eru verkföll nútímans þeim gömlu.
Munur er á þeim mönnum sem nú
skiptast prúðmannlega á skoðunum við
andstæðinginn á „panel“ uppi í h
sjónvarpi og þeim sem hvöttu fram
erfiðismenn og konur í „Nóvuslagnum"
og „Gatnaslagnum" áður. En sjötti
áratugurinn var líka
áratugur stórverkfalla og upp í hugann
koma árin 1952 og 1955. Til upprifjunar
höfum við tínt hér saman stiklur um
verkfallið 1952, sem var með öðru sniði
en fyrstu verkföllin og verkföll
nútímans. Þetta verkfall sem háð var í
hita kalda stríðsins, stríðsgróðinn var að
mestu úr sögunni og enginn vafi á að
tilveran var á þessum tíma erfið hjá
ýmsum, - þætti það a.m.k. nú.
Þrjátíu ár eru liðin frá þessu verkfalli
sem skall á í desemberbyrjun 1952. Þá
var Gerpla rétt að koma á markaðinn,
íslenskir sjómenn urðu fyrir árásum úti
í Hull vegna útfærslunnar í 4 mílur og
blöðin birta stórar fyrirsagnir um nýtt
furðuverk nútímans, - málningarrúl-
luna! Mikið var rætt um hvort útlendur
hundur í Vopnafirði væri valdur að
fjársköðum í héraðinu.
Það var sem sé fimmtudaginn 27.
nóvember að samninganefnd verkalýð-
sfélaganna sneri sér til ríkisstjórnarinnar
og tjáði henni að atvinnurekendur hefðu
sagt sér að þeir gætu ekki risið undir
kauphækkunum. Stjórnin stakk upp á
því að skipa nefnd, sem athugaði nokkur
atriði er verkalýðshreyfingin hafði bent
á sem hugsanlegan grundvöll samkomu-
lags og bað um frest meðan nefndin sæti.
Þessu höfnuðu verkalýðsfélögin í bréfi
þann 29. nóvember sem forsætisráðherra
fékk í hendur klukkan 22 það kvöld.
Forsætisráðherra var um þessar mundir
Steingrímur Steinþórsson, Ólafur
Thors var atvinnumálaráðherra, og
Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra.
Formaður ASÍ var Helgi Hannesson,
formaður Dagsbrúnar Sigurður Guðm-
undsson, formaður Iðju Björn Bjama-
son og formaður samninganefndar
verkalýðsfélaganna Hannibal Valdim-
arsson.
Verkfallið hófst svo klukkan 12 á
miðnætti, aðfaranótt 1. desember.
Það voru 22 félög í Reykjavík og
nágrenni sem byrjuðu slaginn, en
brátt bættust mörg í hópinn.
Strætisvagnar af Studebaker og
Volvo-gerð römbuðu síðustu ferð
sína niður á Lækjartorg, - Sólvellir,
Blesugróf, Vogar, Sundlaugar, Hlíð-
ar. Kolakraninn við Reykjavíkurhöfn
stóð kynlega þögull og hreyfingarlaus
og enginn sinnti Jökulfellinu sem
þennan dag kom frá Bandaríkjunum
og Reykjafossi sem einnig kom frá
útlöndum, en farmurinn var m.a. olía
til þess að hita upp híbýli stórs hluta
bæjarbúa og nokkuð af ávöxtum til
jólanna, sem skammt voru undan. 1.
desember kom togarinn Skúli
Magnússon til Reykjavíkur úr sölu-
ferð og var þegar kyrrsettur, en fyrir
í höfn lágu þeir Geir og Pétur
Halldórsson frá Reykjavík og Bjarni
Ólafsson frá Akranesi.
En ekki voru allir togarar ofurseldir
því dauðyflislega hlutskipti að festast
við Reykjavíkurbryggju. Togarinn
Jörundur var að selja í Þýskalandi,
eftir að honum hafði verið snúið frá
Aberdeen, þar sem Hull-togarar
höfðu komið siglandi norður þangað
til þess að bjóða niður afla hans á
markaðinum. íslendingar voru nefni-
lega ekki vinsælir þessa dagana meðal
Breta og skipverjar af Lagarfossi
sögðu sínar farir ekki sléttar, þegar
þeir komu heim: Höfðu tveir þeirra
orðið fyrir hatrammlegri árás, þegar
skipið kom að landi í Hull.
Stefáni Jóhanni velt úr
sessi
Það voru að vonum Þjóðviljinn og
Alþýðublaðið sem voru helstu mál-
gögn verkfallsmanna og á yfirborðinu
sóttu þessir samherjar, Sósíalista-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn fram
að sama markmiði. Grunnt var þó á
gömlum væringum og ekki laust við
að það hlakki í Þjóðviljamönnum,
þegar Stefáni Jóhanni Stefánssyni er
velt úr sessi formanns Alþýðuflokks-
ins þann 3ja desember og Hannibal
Valdimarsson verður formaður í hans
stað, enda voru talsverð undirmál
búin að eiga sér stað hjá krötum fyrir
þennan atburð. Gekk sá brandari um
Stefán Jóhann, sem var „akkeri"
flokksins, að hann væri fastur í botni
og skipið (þ.e. flokkurinn) kæmist
ekki afturábak né áfram.
Samúðarverkföll
Félögum sem þátt tóku í verk-
fallinu fór óðum fjölgandi og þann 5.
desember var svo komið að 31 félag
var komið í verkfall og 14 höfðu
boðað verkföll í vikunni á eftir. Var
hér um að ræða 21 félag í Reykjavík,
þrjú í Hafnarfirði, tvö á Akureyri og
eitt á Selfossi, í Borgamesi, Miðnes-
hreppi og Gerðahreppi. Nokkur félög
felldu þó tillögur um að efna til
samúðarverkfalla. Samningatilraunir
fóru fram alla daga.
Verkf all á jólaf östunni 1952
Þjóðlíf í skugga kjaraátaka fyrir 30 árum • 100 manna flokkur ætlaði að brjóta verkfallsvörsluna
niður með aðstoð tíu hjóla trukks • Mjólk hellt niður á Kalkofnsvegi og bensíntunnum velt út í
skurði I Hannibal hótar myrkvun Reykjavíkur
Þegar verkfallið hafði staðið í fjóra
daga var farið að bera á vöruskorti, -
kaffi alveg þrotið, smjörlíki og kjöt á
þrotum og sýnt að innan skamms yrði
erfitt að afla nauðsynlegustu mat-
fanga á reykvískum heimilum.
Óbærilegast varð þó ástandið vegna
mjólkurleysisins. Þegar fyrsta verkfalls-
daginn voru mjólkurbúðir lokaðar, en
brauðbúðir seldu mjólk, sem Samsalan
fékk ekið út daginn áður. Leyfði
verkfallsstjórnin sölu á 8 þúsund lítrum
á mjólk daglega, sem sérstakri
skömmtunarnefnd var falið að sjá um að
dreifa, einkum til barna og sjúkrahúsa.
Tormerki urðu þó á að útvega þetta
magn, þar sem leyfi til vinnu við
dreifinguna fékkst aðeins í Reykjavík en
ekki eystra á sölusvæði Mjólkurbús i
Flóamanna. Var mjólkurskammturinn
afgreiddur í búðunum frá kl. 14-18
daglega og var magnið 0.75 lítrar handa
börnum fæddum 1951 og 52 og hið sama
til gamalmenna yfir sjötugu. Var þessi
mjólk afgreidd út á sjúkrasamlags-
skírteini.
Ljós bókmenntanna í
myrkrinu
í þessu skammdegismyrkri sem verk-
fallið gerði enn svartara, brá þá fyrir
ljósi, þegar menn gátu hlakkað til að sjá
„bókina sem beðið hafði verið eftir" frá
hendi Halldórs Laxness. Hún kom á
markaðinn þann 5. desember og daginn
áður segir skáldið á blaðamannafundi:
„Þetta er bók sem ég hef unnið að
síðastliðin fjögur ár. Hún gerist á
tímabilinu frá því árið 1000 til 1030 og
gerist að kalla í öllum þeim löndum sem
norrænir menn gistu á þeim árum. Hún
hefst á söguþræði Fóstbræðrasögu, en
hverfur síðan frá honum."
Ekki þarf að fjölyrða um að Gerpla
er mikið rædd manna á meðal næstu
dagana og hér í Tímanum á ungur og
upprennandi rithöfundur innblásið við-
tal við skáldið, - Indriði G. Þorsteins-
son: „Máske verður Gerpla nokkurs
konar Skálda þjóðarinnar, berandi með
sér kaldan bláma vestfirskra fjalla,
blandaðan anda þeirra víkinga og garpa,
skálda og konunga, sem HKL hefir nú
flutt heiðursvöku sína,“ segir hann í
niðurlagi viðtalsins.
Útifundur og ósiðlæti
Laugardaginn 6. desember boðaði
samninganefnd verkalýðsfélaganna til
■ VerkfaDsverðir við virki sitt uppi hjá Geithálsi. Gerð garðsins, sem hlaðinn var
úr grjóti, vakti mikinn heiftaranda í hugum margra. Liðstjóri verkfallsvarða var
Þorvaldur heitinn Þórarinsson, lögfræðingur.
■ Umbónaður virkisins á brónni hjá Lambhaga. Járnvarinn skór stóð á brónni,
en flutningabQl lokaði leiðinni um hinn1 helming vegarins. Þegar bflar nálguðust
var beint að þeim sterkum Ijósakösturum og leitað vendilega að forboðnum
vamingi, - mjólk, kjöti, smjöri og bensíni.
útifundar á Lækjartorgi. Var fundurinn
allvel sóttur þótt ekki væri Þjóðviljinn á
sama máli og Morgunblaðið um fjölda
fundarmanna. Áleit Þjóðviljinn að
fundarmenn hefðu verið á þriðja
þúsund, en Morgunblaðið áætlaði þá um
1500, en láta mun nærri að 8000 manns
í Reykjavík hafi verið í verkfalli þessa
dagana.
Helstu ræðumenn voru þeir Eðvarð
Sigurðsson, ritari Dagsbrúnar og Hanni-
bal Valdimarsson, formaður samninga-
nefndarinnar. Lýsti Hannibal þeim
afleiðingum sem af kynnu að hljótast ef
ekki yrði gengið að kröfum verkalýðs-
félaganna og nefndi m.a. að landhelgis-
gæslan gæti stöðvast, svo og Sogs-
virkjun. Morgunblaðið greip þessi orð
þegar á lofti og ræddi um digurmæli
kommúnista, sem bæði hótuðu stöðvun
landhelgisgæslunnar og kolmyrkvun
Reykjavíkur. Landhelgisgæslumálin
voru auðvitað sérlega viðkvæm vegna
átakanna við Breta.
Enn kreppir að og þann 9. desember
er mjólkurskammturinn minnkaður í
hálfan lítra til bama. Vanfærar konur
skyldu fá sama skammt og sjúklingar og
gamalmenni utan sjúkrahúsa ekki neitt.
En fleirum reyndist örðugt að ná sér í
eitthvað á pelann og þann 9. desember
getur Tíminn skýrt svo frá að „fáliðað"
hafi verið í kjallara lögreglunnar eftir að
áfengisbúðum var lokað.
Enn var þó ekkert dregið úr
siðferðisþrótti þjóðarinnar að marki. 9.
desember hefjast sýningar að nýju á
kvikmynd eftir Óskar Gíslason, sem
fáum dögum áður hafði verið bönnuð,
vegna þess hvílíkur viðbjóður þótti í
myndinni sýndur. M.a. það atriði er
prestur stelur af deyjandi sóknarbami
sínu, felur þýfið innan í Biblíunni og er
drepinn á heimleiðinni(l) Sýningar em
leyfðar aftur á þeim forsendum að
myndin sé svo „ómerkileg" að ekki taki
því að banna hana. Þá segir Þjóðviljinn
frá „amerískum klámkúlupennum'' sem
til sölu em í ónefndri verslun, þar sem
„næstum naktar" konur hreyfa sig með
lostafullum hreyfingum undir gleri,
þegar ljós fellur á myndina. Pennarnir
kosta níu krónur og em mikið keyptir
af unglingum 10-14 ára.
Atök við Elliðaárnar
Inni við Elliðaár stóðu verkfalls-
verðirum 30 saman vörð dag og nótt
með rauð bindi um arminn og digran
viðarbút, sem reistur var upp á endann
og mátti fella yfir þveran veg, ætluðu
einhverjar bifreiðar að laumast framhjá
þeim.
Urðu nokkur átök þriðjudaginn 9.
desember við ámar, þegar menn urðu
uppvísir að því að hafa meðferðis brúsa
og tunnur með bensíni í bílum sínum.
Höfðu þeir keypt þetta uppi í Hvalfirði
og við Vallá í Kjalamesi og Eyri í Kjós.
Verkfall skall hins vegar á í Hvalfjarðar-
stöðinni þann 11. desember. Varnokkru
af bensíni varpað af bílum og tunnum
og brúsum kastað út í vegarskurðinn.
Lögregla var kvödd til, en fékk við engu
gert. Héldu verkfallsmenn því fram að
flutningabíll hlaðinn bensíni hefði
komist til bæjarins að kvöldi hins 8.
desember og selt farminn uppi í
Digraneshálsi í Kópavogi. Þá var
lítilsháttar hellt niður af mjólk hjá
einstaklingum en mönnum með bensín
og mjólk var einnig gefinn kostur á að
snúa við með varning sinn burt frá
bænum.
Enn syrtir í álinn hjá gleðimönnum í
bænum, því 12. desembersegjadagblöð-
in að leynivínsalar séu orðnir uppi-
skroppa. Enn er þó það litla sem til er
selt á vanalegu verði, 120 krónur, en
spíri hefur fengist hjá farmönnum á
bjórflöskum fyrir 100 krónur. Sögur em
komnar á kreik um 400 krónur fyrir
þriggja pela flösku á „svörtum."
Nú þykir sýnt að útlendi hundurinn í
Vopnafirði sé saklaus af kindadrápinu,
því enn finnast bitnar ær, en hundurinn
lokaður inni.
Hnútur fljúga um borð
Þjóðviljinn og Alþýðublaðið vanda
ríkisstjóminni og atvinnurekendum
ekki kveðjumar og sömuleiðis fá '
verkfallsverðir og foringjar verkfalls-
manna beiskar ákúmr frá stjómar-
blöðunum: Tíminn segir þann 12.
desember frá „foringja kommúnista í
Borgamesi sem á dálítið kúabú á jörð
uppi í Borgarhreppi. Maður þessi beitti
sér fyrir verkfalli og nær stöðvun á
mjólkurvinnslu í Borgarnesi, en gengur
nú daglega milli húsa í kauptúninu og
býður mjólkina frá kúabúi sínu til sölu. “
Þjóðviljinn brýnir menn að gefa í
verkfallssjóðinn og blaðamenn hans og
aðrir starfsmenn ganga á undan með
góðu fordæmi og gefa ein dagslaun sín,
- samtals 4002.04 krónur. Mánudaginn
15. desember hefur svo Dagsbrún
úthlutun úr verkfallsstjóði. Öll stærstu
verkalýðsfélögin í Reykjavík halda
fjölmenna fundi hinn 11. desember og
samþykkt er að hvika hvergi.
Stóra bomban
Verkfallið hefur vakið athygli utan
íslands og Þjóðviljinn segir svo frá:
„Barátta íslenskra verkamanna fyrir
lífsafkomu sinni er rómuð í blöðum
verkalýðsins um alla álfuna og kemur
þar í ljós greinileg aðdáun á hetjuskap
og þrautseigju þeirra. Verkfallið er af
öllum talið eitt algerasta, sem nokkm
sinni hefur verið háð í sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar um allan heim....“
Morgunblaðið kemst hins vegar með
hníf sinn í feitt þann 14. desember:
„Alþjóðasamband kommúnista ber fé í
verkfallið hérlendis, segir í fyrirsögn yfir
þvera forsíðu þess. Er efni fréttarinnar
það að Björn Bjarnason, formaður Iðju,
hafi tekið það upp hjá sjálfum sér að
leita fjárhagslegrar ásjár hjá verkalýðs-
sambandinu WFTU, en í því vom helstu
máttarstólpar verkalýðssambönd
Austur-Evrópuríkja. Svarar sambandið
skeytinu og er reiðubúið að styðja
íslenska verkfallið og Iýkur svarbréfi
sínu með orðunum „Lengi lifi verkfall
hins íslenska verkalýðs." Þessa setningu
er þó ekki að finna svona orðaða í
frásogn Þjóðviljans af svarinu, en
Morgunblaðið sver og sárt við leggur að
í útgáfu af svarinu sem blaðið hafi undir
höndum sé þetta svona. „Það er með
öðrum orðum einlæg ósk „aðalstöð-
vanna'* í Vín, að þetta verkfall megi
standa sem lengst og verða íslenskum
bjargræðisvegum og íslensku fólki til
sem mest tjóns og vandræða!!!" segir
Morgunblaðið.
Segja má að þetta hafi orðið því
skæðara innlegg í deilur dagsins sem um
þessar mundir standa yfir ógnvænleg
réttarhöld í Prag yfir leiðtogum
kommúnistaflokksins þar, sem skotnir
em þessa jólaföstudaga í tíu manna
kippum, en synir þeirra og eiginkonur
formæla nafni þeirra í réttarsölunum.
Jólin nálgast
Jólin nálgast og Mæðrastyrksnefnd og
Vetrarhjálpin kalla. Er það sammæli
beggja að miklu fleiri hafa nú beðið
hjálpar en áður og á fyrstu þremur
dögunum eftir að Vetrarhjálpin opnar
skrifstofu sína berast henni 140 hjálpar-
beiðnir. Mæðrastyrksnefndin tekur
fram að sérstaklega sé kærkomið að fá
föt, þar sem margir sem til nefndarinnar
leita séu illa fataðir.
Mjólkurskorturinn er nú orðinn afar
tilfinnanlegur og 11. desember fór nefnd
frá Læknafélagi Reykjavíkur á fund
verkfalismanna og bað um aukningu á
mjólkurskammti til sjúkra, barna og
gamalmenna. Fékk nefndin algera
synjun.
Sama dag em áfram skæmr út af
mjólkurflutningum og bílstjóri úr Fló-
anum sem hafði meðferðis talsvert af
mjólk til kunningja í Reykjavík varð að
horfa upp á það er verkfallsverðir helltu
mjólkinni niður á bílastæðinu við
Ferðaskrifstofuna við Kalkofnsveg. Bíl-
stjóri úr Þykkvabænum kemst hins vegar
óáreittur með mjólk sfna á ákvörðunar-
stað, eftir að fulltrúi lögreglunnar hefur
úrskurðað að óheimilt væri að leggja
hald á hana.
Tíminn beinir skeytum sínum austur
á Neskaupstað í sama blaði og skýrt er
frá þessum raunum bílstjóranna:
„í Neskaupstað, þar sem kommúnist-
ar ráða í bæjarstjórn, gerir verkfallið
mönnum lítil óþægindi og sjá
kommúnistar sjálfir um það. Báðir
togaramir sem kommúnistar stjórna eru
úti á ísfiskveiðum og verða að sjálfsögðu
að fá að leggju upp afla sinn til vinnslu,
því annars kemur það niður á foringjun-
um sjálfum...“
Dronning Alexandrine er komin til
landsins með margar Iestir af jólapósti,
en hvorki fæst leyfi til þess að taka
póstinn í land, né skipa íslenskum pósti
um borð. Þetta er síðasta póstferð til
Norðurlanda fyrir jólin.
Skærur
Skærur halda áfram. Stöðugt reyna
menn að smygla bensíni eða mjólk fram
hjá verkfallsvörðum og er svo langt
gengið að grunur leikur á að mjólkur-
brúsum við brúsapalla er stolið til þess
að nota þá undir bensínleka. Ókenni-
legir menn stöðva bíl við Grafarholt í
leit að mjólk, kjöti, smjöri eða öðrum
landbúnaðarafurðum, og segjast þeir
vera starfsmenn Heilbrigðiseftirlits.
Ekkert finnst og ekki er kannast við að
menn þessir séu verkfallsverðir. Lýst er
eftir bifreið þeirra, sem ber númerið
M-30 og er gul og brún að lit.
Sáttatillögur lagðar fram
Þann 17. desember leggur ríkis-
stjórnin sáttanefndinni, sem vinnur að
lausn deilunnar í hendur víðtækar
tillögur til sátta í deilunni. f þessum
tillögum felast lækkanir á mörgum
nauðsynjavörum og auknar fjölskyldu-
bætur. T.d. skal mjólk lækka úr kr. 3.25
í kr. 2.71, kartöflur úr kr. 2.45 í 1.75 og
kaffi úr kr. 45.20 f 40.80. Þá beitir
ríkisstjórnin sér fyrir lækkun á bensíni
um 4 aura, og flutningsgjöld til landsins
skulu lækka um 5%. Þá heita kaupmenn
og kaupfélög að lækka álagningu á 14
vöruflokkum af annarri nauðsynjavöru.
Nóttina áður en sáttatillögur voru
lagðar fram lá við að til stórátaka kæmi
milli fjölmennrar sveitar mjólkur-
flutningamanna og verkfallsvarða.
Hafði fylking bfla farið úr Reykjavík
austur fyrir fjall, alls um 100 menn á
vörubílum, rútubílum og fólksbílum.
Lagði fylking þessi svo af stað til
bæjarins og fór tíu hjóla trukkur
fremstur. Voru austanmenn ráðnir í að
Iáta bíl þann ryðja úr vegi öllum tálmum
sem á leiðinni yrðu.
Lögreglan fór á móti flokki þessum og
fylgdi honum niður að Hólmsá, þar sem
um 40 verkfallsverðir höfðu búist um.
Höfðu þeir bifreiðar á veginum og
stóran vörubíl um þveran veg. Eftir
mikið þref, þar sem nærri lá að til mikilla
átaka kæmi, var öll hersingin færð á
lögreglustöðina. Varð úr að þeir bílar
sem mjólk höfðu meðferðis fengu að
halda henni, en „bensínbíla" tók
lögreglan í sína vörslu.
Viðbrögðin
Föstudaginn 19. desember koma
sáttatillögumar fyrir almennings sjónir í
smærri atriðum, - felst í þeim auk
vöruverðlækkana aukið orlof, full vísi-
tala á 2100 kr. á mánuði, lægri
útsvarsstigi og lágtekjur útsvarsfríar.
Segir í greinargerð sáttanefndar að
boðið jafngildi 4400 kr. tekjuaukningu
hjá bammörgum fjölskylduföður.
Þjóðviljinn barðist hart gegn sam-
þykkt tillagnanna, en Alþýðublaðið var
á báðum áttum. Þjóðviljinn nefndi
tillöguna „smánartillögu," gerða að
undirlagi Eysteins. „Ekkigengið tilmóts
við kröfur verkalýðsfélaganna um eitt
einasta atriði," segir blaðið 16.
desember. „Sýndartillögur um niður-
greiðslur og pappírsverðlækkanir."
Áfram berst Þjóðviljinn gegn „smánar-
boðinu'' þann 19. desember og hvetur
verkfallsmenn til að hafna því af „einhug
og festu."
Tillögurnar vom lagðar fram í
félögunum að kvöldi hins 19. desember.
Gengu félögin öll að þeim og þar á
meðal Iðja og Dagsbrún. Kærði Þjóð-
viljinn Alþýðuflokksmenn fyrir svik á
örlagastundu og fullyrti að stómm
hagfelldari samningar hefðu náðst, j
hefðu menn þraukað enn um hríð.
]
En verkfallinu var lokið
En verkfallinu var lokið. 1 hádegis-
útvarpinu 19. desember tóku félögin að
boða fundi og um kvöldið dreif að
tilkynningar þeirra um að verkfallið væri
afstaðið. Þegar um kvöldið var unnið að
uppskipun við allar bryggjur og hinn 20.
var farið að skipa jólatrjánum upp úr
Gullfossi, svo og jólaávöxtum, sem
reynt hafði verið að halda óskemmdum
um borð í Jökulfellinu með því að dæla
á þá köldu lofti. Allt athafnasvæði við
höfnina var fullnýtt, nema Kanturinn
þar sem Hæringur hafði legið frá því í
ævintýrinu um Faxaflóasíldina.
Gífurlegur fjöldi manna flykktist
niður að höfn í atvinnuleit, en ekki
höfðu allir erindi sem erfiði. Mikið var
að gera hjá Flugfélagi Islands og til þess
tekið að þann 20. desember flugu vélar
félagsins með 100 manns út á land, -
sumar fóm tvær ferðir.
Verðlækkanimar komu þegar til
framkvæmda og hinn 21. desember var
síðasti mjólkurskömmtunardagurinn.
Jólakvikmyndirnar voru komnar í kvik-
myndahúsin og menn gátu nú skroppið
að sjá „Jóladraum'* í Tjamarbíói,
„Aladdín og lampann" f Trípólibíói,
„Dæturnar þrjár“ í Austurbæjarbíói eða
„Hetjur Hróa Hattar'' í Stjörnubíói.
Endasleppt var þó jólagleðin hjá
þremur fjölskyldum í Múlakampi við
Suðurlandsbraut, í svonefndum Múla-
búðum, en þar brann ofan af þeim
bragginn fyrir jólin. Stóðu allar þessar
fjölskyldur uppi með tvær hendur tómar.
Árið 1952 var að renna í aldanna ;
skaut og engan gat órað fyrir hvað
framtíðin bæri í skauti sér, - hvað þá
öllum þeim fjölda verkfalla, sem yfir
þjóðina átti eftir að dynja, svo sem
verkfaliinu 1955, sem stóð í einar sex
vikur. En verkföllin tóku smám saman
að breyta um svip eins og annað í
þjóðfélaginu og vígreifar fylkingar
verkfallsvarða og verkfallsbrjóta standa
ekki lengur hver framan í annarri, búnar
til handalögmála, ef í það fer. Nú sitja
menn í makindum yfir vídeói og
sjónvarpi, í verkfallinu, meðan barist er
með tölvuspám yfir vígvöll úr „panel.“
- AM
HHRR0BSHHHBBBB9H0
-t j,— —•:
HðUKWBB
mmm