Tíminn - 15.08.1982, Page 18

Tíminn - 15.08.1982, Page 18
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982 skák Maróczy Charousek Adorjan og ungverski skákskólinn ■ Eins og við höfum þegar skýrt frá er lokið fyrir nokkru millisvæðamótinu á Las Palmas, einu þriggja millisvæða- móta sem fara fram nú í ár, en þetta er í fyrsta sinn sem haldin eru þrjú slík mót. Það var síðast árið 1970 sem látið var nægja að halda eitt millisvæðamót, sem sé á Mallorcka, en þremur árum síðar var mótinu skipt í tvennt. Ástæðan fyrir skiptingunni var sú að keppendafjöldi þótti kominn yfir öll skynsamleg mörk en á Mallorcka voru 24 keppendur og mótið tók óratíma. Fljótlega sótti í sama farið og á millisvæðamótunum fyrir þremur árum voru keppendur orðnir 18, ef ekki 19. Því var gripið til þessa ráðs, að fjölga enn um eitt, og nú eru 14 keppendur á hverju móti. Þá er að vísu risin sú spurning hvort það sé ekki of lítið: að minnsta kosti er hætt við að Fischer hefði mótmælt hástöfum. En það voru ekki millisvæðamótin sjálf sem við ætluðum að fjalla um hér, heldur annan áskorandann sem komst áfram úr mótinu á Kanaríeyjum. Sjálfsagt hefur stórkostlegur og mjög svo óvæntur árangur „öldungsins“ Smys- lovs, en hann varð í öðru sæti og komst áfram, 61s árs að aldri, skyggt nokkuð á býsna öruggan sigur Zoltan Riblis frá Ungverjalandi, en sá sigur er kórónan á allglæsilegum ferli fram að þessu og um leið ein rósin enn í hnappagat hins ungverska skákskóla. Fyrsti Ungverjinn sem lét að ráði að sér kveða á alþjóðavettvangi var Joseph Szén (ca. 1800-1857), en á áttunda áratug 19. aldarinnar komu fram tveir ungverskir skákmeistarar sem fljótlega gátu sér mikið orð. Sá yngri þeirra, Rudolph Charousek (1873-1900), varð fyrri til að vekja á sér athygli en á árunum rétt fyrir aldamótin vann hann hvern sigurinn á fætur öðrum og þótti tefla afar snilldarlega. Farið var að taia um hann sem hugsanlegt heimsmeistara- efni en berklarnir komu í veg fyrir það, Charousek lést aðeins 26 ára gamall. Það var eins og við manninn mælt: Géza Maróczy (1870-1951) hélt uppi heiðri Ungverjalands, en þó hann væri aldrei atvinnumaður í skák fyrr en seint og um síðir var hann, er hann var upp á sitt besta, veruleg ógnun fyrir Lasker heimsmeistara. Á fyrsta áratug þessarar aldar var vart um að ræða sterkari mótaskákmann en Maróczy, sigrar hans á öflugum alþjóðamótum eru nær óteljandi. Eftir þessa sigurgöngu gerði hann langt hlé á skákferli sínum en þegar hann tók upp þráðinn að nýju upp úr 1921 var hann enn í hópi hinna sterkustu um árabil. í millitíðinni höfðu Ungverjar eignast, og misst, hinn stórefnilega Gyuala Breyer (1894-1921), en hann lést eftir hjartaáfall aðeins 27 ára gamall. Þá hafði Breyer unnið nokkra mjög góða sigra og haft mikil áhrif á þróun hins svokallaða hýper- módern skóla í skák, en sennilega átti hann bestu skákir sínar ótefldar. Eftir að Maróczy fór að láta undan síga voru bestu skákmenn Ungverja að líkindum þeir Steiner-bræður, Endre (1901-1944) og Lajos (1903-1975), að ógleymdum Andrei Lilienthal (f. 1911) en hann hafði sig mjög í frammi á fjórða áratugnum. Lilienthal var raunar Rússi að uppruna en fluttist tveggja ára gamall með foreldrum sínum til Ungverjalands, hann gerðist síðan aftur sovéskur borgari 1939 en mun nú á ný fluttur til Ungverjalands - löngu hættur að tefla. Svo var það á ólympíumótinu í Varsjá árið 1935 að 18 ára ungverskur strákur vakti mikla athygli og átti eftir að vera um áratuga skeið í hópi öflugustu skákmanna heims. Þetta var náttúrlega Laszlo Szabó (f. 1917). Þarna á ólympíumótinu náði hann ágætum árangri í vinningum talið en til meiri tíðinda taldist frísklegur og frumlegur sóknarstíll hans ásamt djúpu og næmu innsæi, en þetta allt hefur lengi verið einkenni ungverskra skákmanna. Þetta sama ár varð Szabó í fyrsta sinn ungverskur meistari en ungverska meist- aratitilinn hefur hann unnið oftar en nokkur annar eða níu sinnum. Það var þó ekki fyrr en á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina sem Szabó komst alveg í fremstu röð, en þá fór hann að vinna hvert alþjóðaskákmótið á fætur öðru. Hann var á þessum tfma einn fárra skákmeistara utan Sovétríkjanna sem gátu ógnað sovésku stórmeisturunum að ráði, eins og hann sýndi meðal annars á ólympíumótinu í Saltsjöbaden 1948 þar sem hann varð í öðru sæti á eftir Bronstein en á undan sex öðrum Sovétmönnum. Szabó tók þrisvar þátt í áskorendamótunum og stóð sig jafnan þokkalega þó ekki yrði hann í neitt skipti í einu af efstu sætunum. Um þetta leyti höfðu Ungverjar einnig eignast nokkra sterka stórmeistara aðra, eink- um þá Gideon Barcza (f. 1911) og síðan Istvan Bilek (f. 1932) og Laszlo Barczay (f. 1936) - en þeim síðastnefnda má ekki rugla saman við Barcza. Einnig má nefna Pal Benkö (f. 1928) en hann yfirgaf landið áður en hann vann sín mestu afrek. Þegar hillti undir lok sjötta áratugarins kom svo fram á sjónarsviðið sá maður sem enn í dag er sterkasti skákmeistari Ungverja og þó víðar væri leitað, Lajos Portisch. Portisch fæddist 1937 og var kominn til þroska sem stórmeistari á árunum upp úr 1960. Hann reyndist verðugur arftaki Szabó og gott betur: Portisch tók í fyrsta sinn þátt í áskorendaeinvígjun- um 1965 og að undanskildum „hring Fischers" 1971 hefur hann verið með alla tíð síðan. Hann hlýtur að teljast sigurstranglegastur á millisvæðamótinu í Mexíkó sem hefjst á nú í lok ágúst, enda gerast þeir vart sterkari mótaskák- mennirnir en hann. Portisch er annálað- ur fyrir vönduð vinnubrögð sín við skákrannsóknir og heimavinnu, almælt er að hann liggi yfir rannsóknum átta tíma á dag og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hann er sannur fulltrúi ungverska skákskólans: hugmyndaríkur og kraftmikill, stöðubaráttuskákmaður fremur en ólgandi taktíker. Upp á síðkastið hefur Portislch verið dálítið mistækur, teflt snilldarlegar skákir öðru hvoru en ekki unnið mikið af mótum; þó er engin ástæða til að óttast að hann sé neitt að guggna. Og þá er komið að kynslóð Zoltan Riblis. Þegar leið að lokum sjöunda áratugarins voru frammámenn í ung- versku skáklífi, sem nýtur mjög öflugs stuðnings yfirvalda, farnir að óttast að nokkurt hlé hefði orðið á framkomu nýrra skákmeistara. Þeir höfðu að vísu eignast nokkra stórmeistara en enginn þeirra virtist líklegur til að feta í fótspor Portisch. Þetta var ástæðulaus ótti, um 1970 komu fram þrír ungir piltar sem ásamt Portisch og Csom (f. 1940) hafa myndað kjarnann í hinni geysisterku ólympíusveit Ungverja undanfarin ár. Þetta voru Andras Adorjan (f. 1950), Zoltan Ribli og Gyuala Sax. Ribli fæddist 6. september 1951, sama ár og Sax. Þetta ár var reyndar mjög gjöfult í garð skákgyðjunnar, af þekkt- um stórmeisturum sem sáu heiminn í fyrsta sinn á árinu eru, auk Ungverjanna tveggja, Anatólí Karpov og Rafael Vaganjan frá Sovétríkjunum, Ulf And- ersson frá Svíþjóð, Eugenio Torre frá Filipseyjum og Jan Timman frá Hol- landi. Það fer fáum sögum af æsku Riblis eða uppvexti en um 1970 skýtur hann svo upp kollinum á alþjóðavettvangi. Hann varð Evrópumeistari unglinga árið 1971 og annar á heimsmeistaramót- inu sama ár (þar sem Werner Hug sigraði óvænt) en árið áður hafði hann í fyrsta sinn keppt fyrir hönd lands síns á ólympíumótinu í Siegen 1970. Hann var útnefndur stórmeistari af FIDE aðeins 22ja ára gamall, eða árið 1973, og var frá og með þeirri stundu talinn í hópi hinna efnilegustu af sínum jafnöldrum. Hann sannaði svo ekki varð um villst að hann myndi standa við þær vonir árið 1975 en þá náði hann frábærum árangri á tveimur mjög sterkum mótum. Fyrst varð hann í 3.-5. sæti á móti sem haldið var í júgóslavnesku borgunum Ljublana og Portoroz en þama bar Karpov sigur úr býtum á fyrsta móti sínu síðan hann var sæmdur heimsmeistaratitlinum. Gligorié var í öðm sæti en síðan kom Ribli ásamt Vlastimil Hort og Semjon Fúrman. Á móti í Búdapest nokkm síðar deildi Ribli svo efsta sætinu með Lev Pólúgaévskíj og fengu báðir hálfum öðmm vinningi meira en nauðsynlegt var til að ná áfanga að stórmeistaratitli. Enn gerðist það þetta ár að Zoltan Ribli kom fljúgandi til Reykjavíkur að taka þátt í svæðamóti og vann það næsta örugglega. Þannig fékk hann rétt til þátttöku á millisvæðamótinu í Manila árið eftir og þar stóð Ribli sig einnig vel, varð jafn Ljuboievic frá Júgóslavíu í 5-6. sæti og munaði því ekki miklu að hann kæmist áfram. Jafnframt þessu náði Ribli yfirleitt góðum árangri á alþjóðamótum. Þroski hans var ögn hægari en ákafir aðdáendur hans höfðu átt von á, en leiðin lá þó sífellt upp á við. Ribli var reyndar ólíkur landa sínum og jafnaldra, Sax, í því að hann vann skákmót ekki nema sjaldan en mistókst nálega aldrei illa. Sax rokkaði meira upp og niður og gerir enn. Ribli hefur undanfarið verið að bæta úr þessu, hann vann öflugt mót f Mexíkó fyrir tveimur eða þremur ámm síðan, á ■ Portisch undan Vaganjan og Rómanisjin, og í fyrra deildi hann efsta sætinu á móti í Þýskalandi með Miles en Korchnoi varð að láta sér lynda þriðja sætið. En Ribli hefur einnig mátt þola mótlæti. Árið 1978 varð hann til að mynda neðstur á öðru interpolis-skák- mótinu í Tilburg, Hollandi, og 1979 fór hann ægilega með möguleika sína í heimsmeistarakeppninni. Hann hafði unnið svæðamót Austur-Evrópu og tefldi á millisvæðamótinu í Sovétríkjun- um þar sem hann stóð sig mjög vel framan af. Er ein umferð var eftir var Ribli í þriðja sæti og þurfti aðeins jafntefli til að komast áfram í áskorenda- einvígin, en þá tapaði hann fyrir Óleg Rómanisjin og varð því jafn landa sínum Andras Adorjan í 3.-4. sæti. Árangur Adorjans kom öllum á óvart, enda hefur hann aldrei verið sérlega stigahár stórmeistari þó hann hafi náð ágætis árangri öðru hvoru. Þeir landarnir þurftu því að tefla sex skáka einvígi um hvor þeirra skyldi halda áfram og ekki vantaði að Ribli byrjaði vel. Hann mun hafa náð tveggja vinninga forskoti áður en hann fór alveg á taugum, Adorjan jafnaði metin og komst áfram á betri stigatölu úr millisvæðamótinu. Ekki vitum við hvort þetta varð til þess að missætti kom upp milli Riblis og Adorjans en altént munu deilur þeirra hafa orðið til þess að Adorjan var ekki í ólympíusveit Ungverjalands árið 1980 og hinn efnilegi alþjóðameistari Joszif Pinter tók sæti hans. Ribli hefur reyndar alltaf staðið sig vel á ólympíumótum, þar sem hann hefur upp á síðkastið teflt á öðru borði á eftir Portisch. Hann átti til að mynda ekki minnstan þátt í þeim glæsta sigri sem ungverska ólympíusveitin vann á mót- inu í Buenos Aires 1978, þegar sigurganga Sovétríkjanna var loks stöðv- uð. Einnig tefldi hann vel á Möltu 1980 er lá við að Ungverjar verðu titilinn frá því tveimur árum fyrr. Skákstíll Riblis verður seint til þess að gleðja unnendur fórna og hasars, hann er umfram allt rökréttur og traustur, eins og hjá flestum ungversku stórmeist- aranna án þess þó að þeir hafi dottið ofan í jafnteflisfarveg landa sinna í Júgóslavíu. Hann er ákaflega vel að sér um alla þætti skákarinnar og verður vart komið að tómum kofunum hjá honum, gildir einu hvort um er að ræða byrjanir eða endatöfl. Nákvæmar og markvissar heimarannsóknir eru einmitt einn helsti lykillinn að árangri Ungverja undanfarin ár og er samvinna í hávegum höfð þar í landi, rétt eins og í Sovétríkjunum. Skákin nýtur sem fyrr segir mikils velvilja yfirvalda og eru allir sterkustu skákmeistarar landsins á launum hjá ríkinu, þó svo eigi að heita að það sé fyrireitthvað allt annað en skákiðkanir. Um möguleika Riblis á áskorendamót- inu að ári er vont að spá, þar sem enn eru ekki nema fjórir af átta þátttakend-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.