Tíminn - 15.08.1982, Blaðsíða 24
24
Laus staða
Kennarastaöa í hagfræði við Menntaskólann við Hamrahlíð er laus
til umsóknar. Um er að ræða hlutastarf, '/2-% fullrar stöðu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík,
fyrir 30. ágúst n.k. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
11. ágúst 1982.
Atvinna
Óskum aö ráöa afgreiöslufólk og verkamenn í
timburafgreiðslu. Upplýsingar hjá verslunar-
stjóra, Skemmuvegi 2.
BYGGINGAVÚRUVERZLUN
KÓPAVOGS
Timbursalan
Skemmuvegi 2 ■ Sími 4-10-00
Útboð
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar
eftir tilboðum í lagningu hitaveitu á nokkrum
bæjum í Innri-Akraneshreppi ca. 3 þús. m.
Útboösgögn fást á Verkfræðistofunni Fjarhitun hf.
Borgartúni 17, Reykjavík, Verkfræöi og teiknistof-
unni sf., Kirkjubraut 40, Akranesi og Verkfræði-
stofu Siguröar Thoroddsen, Bárugötu 12,
Borgarnesi gegn 500 kr., skilatryggingu.
Tilboö verða opnuö þriðjudaginn 31. ágúst kl.
11.30 f.h. á skrifstofu Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar Kirkjubraut 40 Akranesi.
Til sölu einbýlishús á Akureyri
Tilboð óskast í húseignina Hrafnagilsstræti 4,
á Akureyri, sem er einbýlishús, kjallari, hæð
og ris.
Stærð hússins er 558,4 m3. Brunabótamat er kr.
1.093.00,-
Húsiö verður til sýnis 16. og 17. ágúst n.k. frá kl.
13-15.
Kauptilboð þurfa aö hafa borist skrifstofu vorri
fyrir kl. 11:00 þann 24. ágúst nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-82036. Distribution Transformers 100-
800 kVA.
Opnunardagur: Þriðjudagur 14. september
1982 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík fyrir
opnunartíma, og veröa þau opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík,
frá og með mánudeginum 16. ágúst 1982 og
kosta kr. 50.- hvert eintak.
Reykjavík 12. ágúst 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
SUNNUDAGUR 1S. ÁGÚST 1982
nútíminn
■ Nú þegar pönkið er dautt... Augna-
blik. Er pönkið þá dautt? Já, löngu
dautt. Það er kannski slatti af leðri eftir
en það er eins og hver önnur líkklæði.
Og líkið víst eitthvað á vappi: eins og
hver annar draugur. Pönkið er sem sagt
dautt, hvað sem Gunnþór segir. Opin-
ber jarðarför á að vísu enn eftir að fara
fram. Eða eins og maðurinn sem kom
með íslendingaþátt sagði: gróðursetn-
ingin. Vissulega er h'kið farið að spíra,
hitt og þetta jafnvel þegar vaxið upp af
því. Clash, XTC, Jam, Public lmage
Limited, svo nefndar séu nokkrar
talsmaður hópsins. 1977 stofnaði hann
hljómsveitina ásamt ungum pönkara frá
London, Steve Fávísa og fyrir utan
eitthvert samband við Small Wonder
Records og síðar Rough Trade hefur
hljómsveitin séð um sinn bissniss sjálf.
Engir umboðsmenn, agentar, blaðafull-
trúar né reddarar - Crass hefur hafnað
girnilegum tilboðum frá mörgum stórum
hljómplötufyrirtækjum. Þeir halda því
fram að þeim sé skítsama um vinsældir
og áhrif. Eiga heldur ekki marga
aðdáendur hjá músíkpressunni og leiðist
að láta taka við sig viðtöl. Gera að vísu
það eins og þau hafa. Þau spá í hlutina
sjálf, eru engar spjaldskrár!! Fordæma
pönkið sem þau uxu upp úr: annars
vegar fyrir að hafa breyst í tísku, hins
vegar fyrir vonlausu bölsýnishyggju.
Byggjum upp, borðum ost. Þola ekki
hljómsveitina Clash vegna þess að hún
hafi brugðist upphaflegum markmiðum
sínum (sic! - er ekki upp popp-hljóm-
sveit að ræða?), en virða Jam mikils fyrir
að hafa aldrei lofað neinu. Penny
Rimbaud lofar Joni Mitchell og The
Carpenters fyrir það sama! Eitthvað
með sjálfsvirðingu að gera. Hugguleg-
breskar hljómsveitir - Rolling Stones
nærast enn á líkinu og lifa. En Crass?
Er ekki Crass pönkhljómsveit? Síðasti
Móhíkaninn, eða eitthvað svoleiðis?
Kannski, en það vita allir hvernig fór
fyrir síðasta Móhíkananum. Hann dó.
, Eigum við að líta á anatómíu Indíánans?
Því ekki það.
Að líta á Crass? Það er bæði auðvelt
og erfitt. Erfitt vegna þess að hljómsveit-
in leikur sjaldan opinberlega og auglýsa
helst aldrei. í Crass eru nefninlega
hugsjónamenn! Þeir halda sig viljandi
fyrir utan bransann en hefur gengið
betur en flestum innan hans. Þurfa ekki
að koma sér á framfæri, því aðdáendurn-
ir sjá um þá hlið málsins. Nafnið hefur
verið málað á þúsundir leðurjakka og
spreiað á ótal veggi, strætóskýli og
almenningsbekki - plöturnar seijast svo
vel að flestir nema hinir allra stærstu
hafa ástæðu til að öfunda hljómsveitina.
Ekki aðeins á Bretlandi: orðspor þeirra
hefur borist til Bandaríkjanna, Japan og
Ástralíu. Japan? Litlir, gulir menn í
leðurjökkum með Crass-merki? Af
hverju ekki? Crass eru kúltúrhetjur.
Fyrir sumum eru þeir áframhaldandi
uppreisn, lifandi lík, fyrir öðrum eru
þeir heill lífsstíll. Markmið, hugsjón,
krossferð. Hm. Einhvers konar hippar
Iþá? Voða göfugir kannski, og vilja
ileggja sitt af mörkum til að gera jörðina
mennska? BG og Ingibjörg og spila
pönkmúsík og vitna í Proudhon,
Krópótkín og alla þá vitleysinga? En
höldum okkur við staðreyndir.
Sjálfir segja þeir sem standa að
hljómsveitinni Crass að tónlist sé aðeins
ein leið að markinu. Ekki spyrja hvaða
marki. En þeir kvikmynda, gefa út
tímarit og bæklinga, skrifa á veggi, og
já - tala við fólk. Villa þess vegar... Svo
lifa þeir sínu eigin lífi en því má ekki
gleyma að það er ætlað sem sönnun þess
að sú stjórnleysisstefna sem hljómsveit-
in boðar standist. í Crass teljast vera
eftirtaldir: Penny Rimbaud sem spilar á
trommur, Steve Ignorant sem syngur,
Eve Libertine sem syngur Itka. Phil
Free sem spilar á gítar (eru þessi
eftirnöfn raunveruleg?), Pete Wright
sem spilar á bassa, Andy N.A. Palmer
sem spilar á gítar (eða þetta?), og Joy
de Vivre sem syngur. Auk þess er svo
hópur af liði sem sér um bakraddir,
kvikmyndasýningar og annað sjó.
Flestir búa saman í stórum og
hrörlegum bóndabæ rétt fyrir utan
smáþorp í Essex - þar eru líka
„aðalstöðvarnar". Kommúnustimpil
reyna þau að þvo af sér - hipparnir jú
fallnir úr móð - en víst er þetta
samvinnubúskapur: eitthvað fyrir SÍS?
Þau éta aðallega grænmeti, rækta
mestallt sjálf og hirða vel um garðinn
sinn. Eiga nokkra hunda, fullt af fuglum
í búrum og glás af köttum: sextán þegar
síðast fréttist. Þetta virðist voða hollt og
heilbrigt og hljómsveitin drekkur mikið
te. Einu sinni á ári lítur Gunnar
lögregluþjónn þorpsins inn, þefar af
plöntunum og fær sér tíu dropa. Crass
eru vinir þorpsbúa og vel liðnir.
Það var Penny Rimbaud sem opnaði
þessa miðstöð fyrir næstum fimmtán
árum en hann er nokkurs konar
ekki í því að virðast dularfullir, en vilja
helst hafa hægt um sig og varðveita
friðhelgi einkalífsins... Tónlistin, og allt
hitt dótið, mun segja það sem hljóm-
sveitin hefur að segja. Það er margt:
speki um stjórnleysi og þjóðfélagið,
ívitnanir í Proudhon gamla og jafnvel
Malatesta (en Stirner?), textar hljóm-
sveitarinnar gefa líka sitt til kynna. Þó
tónlistin sé ruddaleg og árásargjörn eru
þau í hljómsveitinni pent fólk sem
hlustar á mótrök og svarar þeim. Brosir
góðlátlega þegar þeim er sagt að
tónlistin sé einhæf og leiðinleg.
En þessi anarkismi hljómsveitarinn-
ar? Hvernig er hann? Tja, útpældur
nokkuð - svona segir í einum texta:
Left-wing violence, right-wing viol-
ence, all seems much the same.
Bully boys out fighting, it’s just the
same old game.
Boring fucking politics that’ll get us
all shot.
Left-wing, right-wing, ýou can stuff
the lot.
Keep your pretty prejudice, I don’t
see the point.
Anarchy and freedom is what I want!
Ekkert annað! En þau eru fræðilegri
anarkistar en þetta og hafa skoðanir á
öllum sköpuðum hlutum: líta til dæmis
svo á að anarkisti sé ekki nauðbeygður
til að kasta sprengjum trylltur á svip eða
taka þátt í fjöldahreyfingum, hann geti
þvert á móti setið heima hjá sér og haft
asta fólk, það berst líka fyrir réttindum
kvenna og burthvarfi kjarnorkuvopna.
En tónlistin er sem fyrr segir ruddaleg
og árásargjörn. Mjögsvo, nema það hafi
breyst alveg upp á síðkastið. Einmitt
tónlistin fyrir unga, reiða, leiða, von-
svikna pönkara. Spila og syngja fyrst og
fremst um hluti sem vekja reiði þeirra,
tilfinningarnar hljöta að skína í gegn. Ef
hljómsveitin byggi til lag um komandi
kjamorkustríð væri það lag áreiðanlega
hræðilegt, leiðir af sjálfu sér. Ólíkt til
dæmis OMD, segir Mr. Rimbaud, sem
gaf út fallegt lag um Enolu Gáy -
flugvélina sem droppaði sprengju á
Hírósíma. Þannig kemst boðskapurinn
til fleiri en ella, en ekki eins kröftuglega.
Ekki okkar stæll, segir Crass. Við,
heldur Rimbaud áfram, náum til færri
en það fílar líka í botn. Botn. Það er
svo mikilvægt.
Líka annað: þeir ganga viljandi „of
langt“ til að vera ekki teknir í fangið á
frjálslyndum vinstri-mönnum sem þeir
sjá ekki að séu skárri en hinir sem valdið
hafa. Þeir eru hugsjónamenn eins og
áður sagði, og vilja ekki falla í kramið
því þá er allt búið. Eru nú samt sem áður
eitthvað að fágast og slípast, farnir að
æfa sig á hljóðfærin! Ætla að hafa sig
meira í frammi héðan í frá en hingað til.
Ekki láta ganga framhjá sér. Það mun,
segja blöðin, vera erfitt.
Fylgist með - ef þið hafið áhuga...
Orðsending
frá Markúsi B. Þorgeirssyni, björgunarnetahönn-
uöi, Hvaleyrarbraut 7, Hafnarfiröi.
Þeir aöilar, sem eiga myndirfrá Björgunarsýning-
unni í Krossá hinn 2. ágúst sl. vinsamlega hringið
í síma 51465.
/n
Kennarar
Stundakennara vantar í kjötiðnaðargreinum.
Nemendur
Getum bætt við nokkrum nemendum í
A. Grunndeild málmiðnaðar
B. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði
C. Rafsuðunemum
D. Framhaldsdeild í húsasmíði
E. Grunndeild bókiðna (undirbúningsgreinar
fyrir prentun, setningu, bókband, offsetljós-
myndun, offsetskeytingu og plötugerð.
Iðnskólinn
í Reykjavík