Tíminn - 05.09.1982, Page 17
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
Um kvöldið kepptu Englendingamir
við Holtarana. Varð jafntefli, 3-3.
MÁNUDAGURINN
22. JÚLÍ
Klukkan 7 fór ég að sendast.
Nesdagur. Stórar fallbyssur eru komnar
á Valhúsahæð á Seltjamamesi.
Klukkan 2 komum við Halldór á
Sjónarhól. Um kvöldið fór ég út á sjó
með hermönnunum á pabba bát.
FÖSTUDAGURINN
26. JÚLÍ
... Klukkan 3 komum við Halldór á
Sjónarhól. Skotæfing er í dag á
Sjónarhól. Er hún byrjaði fældist Moldi.
Hætti æfingin kl. 7 um kvöldið.
Ég tek sumarfríið mitt á mánudaginn.
Fæ ég 6 daga. Tobbi bróðir er kominn
heim. Bauð hann mér á bíó og fór ég að
kaupa bflætin. Um kvöldið fórum við
svo í bíó. Hét myndin „Tundra". 1.
flokks mynd.
SUNNUDAGUR
28. júlí
Mamma er byrjuð að þvo fyrir
hermennina sem eru hér. Tvær hún alltaf
daglega eftir hádegi.
Fómm við Tobbi inn í Skerjafjörð til
Magga og Siggu. Um kvöldið fór ég með
matinn til pabba inn í Shell. Fygldi ég
síðan Tobba á Steindórsstöðina. Hann'
þurfti að fara aftur til Þingvalla í
unglingavinnuna."
Dagbók Eyjólfs Jónssonar heldur
áfram, - fylgst er með tilfæringum
breska setuliðsins, sem eins og lesið
verður á milli línanna hér að framan
verður smám saman hluti af hinu
daglega lífi, sem landsmenn hægt og
hægt taka að sætta sig við og líta á sem
hversdagslega staðreynd. Hægt hefði
verið að rekja þessa sögu lengra m.a. í
gegn um þríbýlisárin er Bandaríkjamenn
koma til skjalanna, því allt er þetta til
staðar í dagbókunum. Hér verður þó
staðar numið. Hér voru þáttaskil orðin
í sögu þjóðarinnar og ekki aðeins
Grímsstaðaholtið heldur allt þjóðlífið
varð aldrei samt aftur.
AM tók saman.
þekktur sem Halldór reykingamaður og
Eðvarð Sigurðsson gerði honum mjög
skemmtileg skil, þegar Jökull Jakobsson
ræddi við hann um Holtið í útvarpi eitt
sinn. Mér fannst ég lifa upp gamla
tímann, þegar ég hlustaði á það spjall.
Þá er að nefna Eyvík, þar sem Jón
Kristmundsson bjó og Arnargötu 10, en
húsið, því það var rauðmálað. þar bjó
Helgi Sigurðsson.
í Stefnishúsi bjuggu þeir Símon og
Jósep Sigurðssynir og í Skaftafelli Sig-
ríður Finnbogadóttir og dætur hennar
tvær. Þessi hús við Arnargötuna standa
enn. Sigríður í Skaftafelli og Guðrún á
garðyrkjukonur á Holtinu í þá daga
ásamt Rósu í Hruna.
Við þökkum Eyjólfi spjallið, en satt
að segja höfum við verið fram á síðustu
stund að ræða við hann, þar sem hann
þarf innan tíðar að vera kominn á
vaktina í lögreglunni. Eyjólfur er nú
meðal elstu og reyndustu lögreglumanna
í Reykjavík, vingjamlegur og vel látinn,
innan síns starfs sem utan. Má segja að
þar sem hann fer beri hann með sér það
besta úr fari gömlu „Holtaranna."
- AM
MYNDLISTA
OG HANDÍUAzKOU
ÍSLANDS
NÁMSKEIÐ
frá 30. september 1982 til 20. janúar 1983
1. Teiknun og málun fyrir börn og unglinga.
2. Teiknun og málun fyrir fullorðna.
3. Bókband.
Innritun fer fram daglega á skrifstofu skólans,
Skipholti 1. Námskeiðsgjöld greiðist við innritun.
Skólastjóri.
Deildarstjóri
Óskum eftir að ráða deildarstjóra til að veita
forstöðu einni af stærstu undirdeildum Sam-
bandsins. Starfið krefst frumkvæðis og stjórnun-
arhæfileika svo og góðrar málakunnáttu.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist starfsmannastjóra
fyrir 15. þessa mánaðar, er veitir nánari
upplýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALO
Fæst a
öllum
blaðsölustöðum
Askriftarsíminn
21458
Fangahjálpin