Tíminn - 16.09.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 16.09.1982, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1S82 ■ Aðalsteinn Aðalsteinsson er í baráttu gegn einum leikmanna spxnska félagsins ; Real Sociedad á myndinni sem Róbert tók á leik Víkings og Real Sociedad í gær. REflL SIGRAÐI VÍKINGA Vfkingar stóðu sig með prýði — Töpuðu 0:1 ■ Mark spxnska landsliðsmannsins Satrustegui í liði Real Sociedad á 15. mínútu leiks Víkings og spánska liðsins reyndist vera sigurmark Spánverja í leiknum. Það verður að segjast, að jafntefli eða jafnvel Víkingssigur hefði gefið réttari mynd af gangi leiksins og Vðdngar áttu síst lakari leik en spænska liðið. Það var -ekki fyrr en á 15. mínútu leiksins í gær sem ástæða var til að rita hjá sér minnispunkta. Þá fékk Satrus- tegui knöttinn inn fyrir Víkingsvömina og náði að senda hann f netið framhjá Ögmundi Kristinssyni markverði. Þremur mínútum síðar sendi Ufarte sendingu fyrir Víkingsmarkið og vömin náði ekki til boltans, sem endaði hjá Satmstegui sem skaut, en Ögmundur varði vel. Þá fóm Víkingar að koma meira inn í leikinn og á 20. mínútu átti Jóhann Þorvarðarson gott skot að marki Spánverjanna, en Arconada landsliðs- markvörður Spánverja varði. Og ekki vom liðnar nema 20 sekúndur þegar Ómar Torfason átti hörkuskot að marki Spánverjanna og mátti Arconada hafa sig allan við til að stýra knettinum f hom. Og áfram sóttu Víkingar. Gunnar Gunnarsson átti gott skot að marki, en framhjá og skömmu síðar sendi hann knöttinn á Ómar, sem sendi hann svo aftur framhjá markinu. Næst var Jóhann Þorvarðarson á ferð með skot frá vítateig, en hann var einhvem veginn úr jafnvægi og skotið fór framhjá spænska markinu. Á 37. mínútu átti svo Ufarte gott skot að marki Víkings, en yfir. Fyrir lok fyrri hálfleiksins áttu Víkingar mjög gott marktækifæri, en þá fékk Gunnar Gunnarsson góða send- ingu frá Heimi Karlssyni en mistókst að skora. Kraftur í Yíkingum í seinni hálfleiknum áleit megin hluti áhorfenda, að Spánverjarnir myndu taka leikinn í sínar hendur, þar sem þeir höfðu þá allsnarpan vind í bakið. En Víkingar vom ekki á þeim buxunum að gefa neitt eftir og höfðu í fullu tré við andstæðinga sína gegn vindinum. Ef eitthvað var, þá sóttu Víkingar meira. Á 3. mínútu síðari hálfleiksins átti Lopez Ufarte gott skot að marki Víkings, en Ögmundur varði, missti knöttinn frá sér og þar kom Satmstegui, en tókst ekki að ná valdi á knettinum og missti hann útaf. Og aftur vom Spánverjamir með gott skot tveimur mínútum síðar er marki var forðað. Nú tók við frekar aðgerðalítill kafli í leiknum. Liðin skiptust á um að sækja, en sköpuðu sér engin færi sem ástæða er til að minnast sérstaklega á. En á 26. mínútu síðari hálfleiks sundurspilaði Satrustegui vörn Víkings og átti Ög- mund markvörð einan eftir, en það var einum of mikið, því ögmundur varði skot hans mjög vel. Og knötturinn hrökk frá Ögmundi aftur út og þar var Spánverji á ferð og skaut að markinu, en aftur varði Ögmundur. Á 34. mínútu átti Stefán Halldórsson góðan skalla að marki Real Sociedad eftir góða sendingu Aðalsteins, sem sýnt hafði mikið harðfylgi á hægri kantinum. En spænska vörnin var vel á verði og hættan leið hjá. Skömmu fyrir leikslok áttu svo Víkingar mjög laglega sóknarlotu eftir að Stefán Halldórsson hafði náð knett- inum af sóknarmanni og snúið vöm í sókn. En ekki tókst V íkingum að j afna. Sterkir Spánverjar Síðasta góða tækifærið í leiknum átti svo hinn snjalli Satrutegui, er hann skaut framhjá af markteig. En Satrutegui var besti leikmaður spánska liðsins. Hann er mjög fljóturfleikinn og berst eins og ljón. Einnig vakti Ufarte athygli og hann er greinilega í hlutverki „matarans“. Annars var þetta spænska lið frekar jafnt. Leikmennimir vom greinilega ekkert hrifnir af aðstæðum sem voru mjög erfiðar, en þetta er án efa mjög gott lið. Varnarmennimir em t.d. geysilega harðir og ákveðnir og fengu sóknarmenn Víkings á stundum að finna fyrir þeim. Víkingar léku vel Víkingar geta borið höfuðið hátt eftir þennan leik. Þeir vom ekki þrúgaðir af minnimáttarkennd, eins og svo oft virðist vera raunin með íslensk lið í baráttu gegn erlendum stórliðum. Þeir börðust allan tímann og vom fljótir að breyta vörn í sókn. ögmundur Kristins- son átti mjög góðan ieik í markinu og þá er einnig sérstök ástæða til að nefna Stefán Halldórsson og Jóhannes Bárðar- son í vöminni og Heimi og Sverri í sókninni. Annars stóðu allir í Víkings- liðinu vel fyrir sínu. Það þyrfti ekki að koma neinum á óvart þó þeir næðu góðum úrslitum í seinni leik liðanna á Spáni síðar í þessum mánuði. Áhorfendur vom líklega vel á annað þúsund, sem er helst til lítið. En þess ber að geta að veður var leiðinlegt, hvasst og rigning og aðstæður því mjög erfiðar til knattspyrnuiðkana. sh Molar Bók eftir Sedov ■ Komin er út hjá bókaforlaginu Bókhlöðunni bók eftir Youri Sedov hinn snjalla þjálfara Víkings undan- farin tvö ár. Bókin heitir Nútíð og framtíð (slenskrar knattspymu. í bókinni er greint frá ýmsum taðferð1- um við þjálfun knattspymumanna og er þar að finna skýringarmyndir sem ættu að auðvelda notkun bókarinnar. Þetta er fyrsta bókin sem út hefur komið á (slensku sem fjallar um þjálfun knattspymu- manna og er ekki vanþörf'Á ^líkum' ritum. Þýðingu bókarinnar önnuðust Ólafur P. Erlendsson og Gunnar Jóhannsson. Laudrup r atvirmu- mennsku ■ Michael Laudrup leikmaður með danska liðinu Bröndby sem lék hér á landi í sumar með danska landsliðinu undir 21 árs vakti þá athygli fyrir góðan leik. Hann hefúr leikið mjög vel með félagi sinu og fréttir af shkum leikmönum eru fljótar að berast til þeirra félaga sem eruáhöttum eftir nýjum leikmönn- um. AZ ’67 frá Hollandi hefur að undanfömu sýnt Landrap mikinn áhuga og það er aldrei að vita nema þessi ungi og efnilegi leikmaður gangi til liðs við þá. Þó má geta þess að Laudrup hefur neitað mjög góðu tilboði sem Barcelona gerði i hann, þannig að það er ekki alveg vist að hann gerist leikmaður með hollenska félaginu. Af Connors og Birni Borg ■ Jiramy Connors sigraði á banda- riska meistaramótinu í tennis um helgina. Hann sigraði Tékkann Ivan Lendl í úrslitum af öryggi og er þessi þrítugi Bandaríkjamaður nú aftur kominn á toppinn í tennis. Andstæðingi hans Ivan Lendl hefur gengið mjög vel á mótum á þessu árí og stcfndi áveðið að sigri á bandaríska mótinu. En það var Connors sem hafði betur og er nú aftur kominn i sviðsljósið fram fyrir þá John McEnroe og Björa Borg. Borg hefur ekki keppt að undan- fömu og hafa sögusagnir verið á kreiki þess efnis, að hann sé hættur keppni. Ekki hafa kunnugir samt mikla trú á þvi og þeirri skoðun hefur vaxið fylgi, eftir að hann lýsti þvi yfir að hann hefði i hyggju að fara í sýningarferð á næstunni. 110 skiptid ■ 3. deUdarlið KS á Siglufirði befur oftar en nokkuð annað lið lelkið til úrslita um sætið i 2. deild. Þau eru orðin a.m.k. 10 skiptin sem þeir bafa leikið í úrslitakeppni, en það var ekki fyrr en núna sem þeim tókst að ná hinum cftirsótta áfanga. Fjárhagsvandi KSf KSÍ skuldar 1 milljón segir Ellert B. Schram ■ Aðsóknin að landsleikjunum tveim- ur að undanfömu hefur verið mikið reiðarslag fyrir Knattspymusamband íslands,“ sagði Ellert B. Schram for- maður KSÍ í samtali við Tímann. „Fjárhagur sambandsins er mjög erfiður og núna vantar 1 milljón króna upp á að hægt sé að greiða skuldir. Á döfinni em tvær ferðir landsliðsins til írlands og Spánar og við vitum ekki hvemig hægt verður að fjármagná þær.“ „Þetta veldur samdrætti í öllu starfi KSÍ, menn verða að sníða sér stakk eftir vexti. Landsleikimir em einu föstu tekjustofnar KSÍ sem einhverju máli skipta og við höfum ekkert annað upp á að hlaupa.“ Þegar blaðamaður spurði Ellert um hvað ylli þessari aðsóknarminnkun svaraði hann því til, að ekki væri nein ein skýring á því. .„Það má nefna Heimsmeistarakeppnina, sem dregið hefur úr aðsókn t.d. á Norðurlöndum þar sem deildarkeppnin fer fram á sama tíma og HM. Þá hafa íþróttafréttaritarar verið mjög neikvæðir í skrifum sínum og viljað halda því fram að knattspyrnan sé mjög léleg hér á landi. Það gengur illa að fá íþróttafréttamenn til að kynna leikina vel fyrir fram og það var til dæmis ólíkt betur fjallað um gamnileik Manch- ester United og Vals heldur en landsleik íslands og Hollands fyrirfram. Þá má nefna, að fólk gengur að landsleikjunum yfirleitt vísum í sjónvarpinu og þá kýs það frekar að horfa á þá þar, ekki síst ef veður er slæmt. Þá koma minnkandi fjárráð fólks niður á aðsókn á völlinn." „En menn verða að gera sér grein fyrir að hér er áhugamennska í knattspym- unni og oft er leikið við erfiðar aðstæður. En samt tekst landsliði skipuðu leikmönnum sem leika hér heima að standa sig með prýði gegn stórliði Austur-Þjóðverja. Það sýnir m.a. að knattspyman er betri en íþróttafréttamenn vilja halda fram.“ sh Vonbrigdi danskra ■ Það eru fleiri en íslendingar sem eldki hafa náð sinum besta árangri á EM í frjálsum íþróttnm i Aþenu. Danir til að mynda bundu töluverðar vonir við þá Allan Zachariassen og Svend Erik Christicnsen i maraþon- hlaupinu. En ekki gekk þcim betur en svo, að annar hætti eftir 14 kilómetra, en hinn eftir 25 kfló- metra. Þegar annar þeirra var spurður af hverju hann hafi eltki getað hlaupið alla leið, sagðist hann líklegast hafa keyrt sig út á æfingum og ekki hafa þrek í hlaupið. Þá er nú betra að æfa aðeins miuna...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.