Fréttablaðið - 13.01.2009, Blaðsíða 8
8 13. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1 Hvar héldu forsvarsmenn
Frjálslynda flokksins fund um
helgina?
2 Hvaða fyrirtæki flutti 50
tonn af eldisþorski til Evrópu
yfir hátíðarnar?
3 Bók hvaða íslenska rithöf-
undar var valin glæpasaga
mánaðarins í breskri bókabúð?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
BAUGSMÁL Tveir af sakborningun-
um í þriðja hluta Baugsmálsins
hafa kært Helga Magnús Gunnars-
son, saksóknara efnahagsbrota, til
ríkissaksóknara fyrir meint brot í
opinberu starfi.
Þetta kom fram í máli Kristínar
Edwald, verjanda Kristínar Jóhann-
esdóttur, í héraðsdómi í gær. Þar
voru reifaðar kröfur Kristínar um
að rannsókn í skattahluta málsins
verði úrskurðuð ólögmæt, og til
vara að Helgi Magnús víki sæti.
Helgi Magnús sendi fjölmiðlum
afrit af ákæru í þessum hluta máls-
ins 18. desember síðastliðinn, sama
dag og ákæran var birt sakborning-
um. Í kæru Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar og Kristínar Jóhannesdóttur
til ríkissaksóknara kemur fram að
það gangi gegn fyrirmælum ríkis-
saksóknara til saksóknara frá árinu
1998.
Í fyrirmælunum kemur fram að
eðlilegt sé að afhenda fjölmiðlum
afrit af ákærum eftir að þær hafa
verið birtar ákærðu og lesnar á
opnu dómþingi. Þingfesting í þess-
um hluta Baugsmálsins er ráðgerð
20. janúar næstkomandi og því ekki
búið að uppfylla skilyrði ríkissak-
sóknara fyrir því að afhenda ákær-
urnar.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn-
ari staðfesti að kæra hefði borist.
Hann segir að ekki hafi verið tekin
afstaða til hennar, en það verði von-
andi gert á næstu dögum. - bj
Tveir sakborningar kæra saksóknara í Baugsmáli fyrir meint brot í opinberu starfi:
Kvarta yfir afhendingu ákæru
HELGI MAGNÚS GUNNARSSON Saksókn-
ari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra,
afhenti fjölmiðlum ákæru áður en hún
var þingfest. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
C
ohn &
W
olfe P
ublic R
elations Íslandi
Eingöngu bílar sem sérfræðingar Ford mæla með
Farðu á netið og skoðaðu Ford á notadir.brimborg.is
Skoðaðu notaða úrvalsbíla í sýningarsal Ford, Bíldshöfða 6, í dag.
Komdu í kaffi og kleinur í sýningarsal Ford, Bíldshöfða 6.
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
1,4 bensín beinskiptur 5 dyra
Fast númer TJ195
Skrd. 06/2007. Ek. 46.000 km.
Ásett verð 1.990.000 kr.
Afsláttur 200.000 kr.
Tilboðsverð 1.790.000 kr.
4,6 V8 bensín sjálfskiptur 4 dyra
Leður, tölvust. miðstöð, lok á palli ofl.
Fast númer ZV322
Skrd. 05/2007. Ek. 30.000 km.
Ásett verð 4.250.000 kr.
Afsláttur 360.000 kr.
Tilboðsverð 3.890.000 kr.
1,6 bensín beinskiptur 5 dyra
16” álfelgur ofl.
Fast númer VF471
Skrd. 07/2005. Ek. 57.000 km.
Ásett verð 1.990.000 kr.
Afsláttur 300.000 kr.
Tilboðsverð 1.690.000 kr.
2,3 bensín sjálfskiptur
15” álfelgur, þverbogar ofl.
Fast númer OX777
Skrd. 06/2005. Ek. 30.000 km.
Ásett verð 2.660.000 kr.
Afsláttur 310.000 kr.
Tilboðsverð 2.350.000 kr.
3,5 V6 bensín sjálfskiptur
Leður, 18” álf, dráttarbeisli ofl.
Fast númer JG183
Skrd. 04/2007. Ek. 25.000 km.
Ásett verð 5.490.000 kr.
Afsláttur 300.000 kr.
Tilboðsverð 5.190.000 kr.
2,0 bensín beinskiptur 7 manna
Leður, dökkl. rúður aftan ofl.
Fast númer AX982
Skrd. 02/2007. Ek. 26.000 km.
Ásett verð 4.360.000 kr.
Afsláttur 470.000 kr.
Tilboðsverð 3.890.000 kr.
Ford Edge SEL Plus Ford Focus Ghia Ford Escape XLS
Ford Fiesta TrendFord Explorer Sport Trac Ford S-MAX Titanium
Limited
Ford Genuine Design.
Ford leggur áherslu á fjölskyldugildin,
gegnheila og einlæga hönnun. Vertu í hópi
þeirra bestu. Veldu Ford. Spurðu um
Fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands
hefur óskað eftir ítarlegum upp-
lýsingum frá íslenskum lánastofn-
unum um skuldir íslenskra heim-
ila og fyrirtækja. Upplýsingarnar
verða dulkóðaðar með hugbúnaði
Íslenskrar erfðagreiningar.
Ætlunin er að gera ítarlega
úttekt á áhrifum banka- og gjald-
eyriskreppunnar á raunhagkerfið
og fjármálastöðugleika í landinu,
segir Arnór Sighvatsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans.
„Þetta verður nokkur nýbreytni
í greiningarvinnu okkar, því þetta
mun gefa okkur kost á að tengja
saman ýmsar fjárhagslegar upp-
lýsingar sem geta varpað skýru
ljósi á það hversu stór hópur er í
slæmri stöðu,“ segir Arnór.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa sumar þeirra fjár-
málastofnana sem afhenda eiga
upplýsingar lýst yfir efasemdum
með að Seðlabankinn hafi heimild-
ir til að safna persónugreinanleg-
um upplýsingum.
Arnór segist reikna með því að
sótt verði um leyfi hjá Persónu-
vernd til að vinna með dulkóðaðar
upplýsingar. Augljóslega verði að
fara mjög varlega með persónu-
greinanlegar upplýsingar frá
bönkunum.
Dulkóðunin verður framkvæmd
með hugbúnaði frá Íslenskri erfða-
greiningu, en líklega mun hún fara
fram í hverri fjármálastofnun
fyrir sig, frekar en að upplýsing-
arnar verði sendar til fyrirtækis-
ins til dulkóðunar, segir Arnór.
Íslensk erfðagreining muni ekki
koma að málinu öðruvísi en að
útvega hugbúnaðinn.
Aðstæður nú kalla á að aflað sé
víðtækari upplýsinga um skulda-
stöðu einstaklinga og fyrirtækja
en áður, segir Arnór. Verkið er
mjög umfangsmikið, og má búast
við að niðurstöður verði komnar í
byrjun árs 2010.
„Þetta er mjög mikilvægur þátt-
ur í því að skilja áhrif fjármála-
kreppunnar á raunhagkerfið
almennt, og ætti að nýtast við spá-
gerð og þess háttar. Niðurstöðurn-
ar munu einnig verða gagnlegar
fyrir önnur stjórnvöld við stefnu-
mótun,“ segir Arnór.
brjann@frettabladid.is
Skoða skuldir einstaklinga
Seðlabankinn hefur óskað eftir gögnum frá íslenskum bönkum um skuldir einstaklinga og fyrirtækja. Hug-
búnaður Íslenskrar erfðagreiningar verður notaður til dulkóðunar. Aðstæður kalla á víðtækar upplýsingar.
SEÐLABANKINN Rannsaka á áhrif
fjármálakreppunnar á hagkerfið.
STJÓRNSÝSLA Persónuvernd hafði
1.285 mál til meðferðar á árinu
2008 og afgreiddi 1.072 þeirra
áður en árið var á enda. Þetta
kemur fram á heimasíðu stofnun-
arinnar. „Hjá Persónuvernd starfa
nú auk forstjóra fjórir lögfræðing-
ar sem sinna afgreiðslu erinda en
starfsfólki hefur fækkað hjá stofn-
uninni þrátt fyrir vaxandi
málafjölda,“ segir á personuvernd.
is. Kemur fram að stöðug aukning
hafi orðið í fjölda innkominna
erinda. Ekkert lát sé á þeirri
þróun.
„Á sex ára tímabili frá 2002 til
2008 hefur fjöldi mála hjá Persónu-
vernd aukist um 63 prósent.“ - gar
Annir hjá Persónuvernd:
Fleiri mál en
færra starfsfólk
NÁTTÚRUFRÆÐI Ísbjörninn sem
felldur var á Skaga í fyrrasumar
er nú til sýnis í glerbúri á bæjar-
skrifstofunni á Blönduósi.
Á vef bæjarins segir að Hafís-
setrið á Blönduósi hafi fengið birn-
una til varðveislu en þar sem þar er
aðeins opið á sumrin og vegna þess
að margar óskir hafi borist frá fólki
sem langaði til að virða uppstoppað
dýrið fyrir sig hefur verið ákveðið
að hafa það til sýnis á bæjarskrif-
stofunni þar til Hafíssetrið opnar.
Hvítabjörninn er eign Náttúru-
fræðistofnunar Íslands. - gar
Orðið við fjölmörgum óskum:
Hvítabjörn á
bæjarskrifstofu
BJÖRNINN UNNINN Landganga tveggja
ísbjarna vakti mikla athygli í fyrra.
VEISTU SVARIÐ?