Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.01.2009, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 13.01.2009, Qupperneq 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Sigfríð Valdimarsdóttir hefur stundað sjóstangveiði frá árinu 1991 og hefur á þeim tíma ellefu sinnum orðið Íslandsmeistari kvenna í greininni. „Ég byrjaði fyrir algera heppni,“ segir hún og útskýrir að sjóstangveiði hafi verið lengi stunduð hér á landi en Sjóstangveiðifélag Akureyrar haldi alltaf sitt árlega sjóstang- veiðimót út frá Dalvík. Mörg skip- anna sem sigldu út með veiðimenn- ina komu hins vegar frá Hauganesi þar sem Sigfríð er fædd og uppal- in. „Í þá tíð var mikil bátaútgerð frá Hauganesi og við Haugnesing- ar lögðum til mikið af bátum í keppnina en hins vegar voru engir keppendur frá þessum litla stað,“ segir Sigfríð og heldur áfram: „Strákunum sem tóku þátt í mót- inu sem skipstjórar fannst ófært að engir keppendur væru frá Hauganesi og hvöttu mig og þrjár aðrar konur til að stofna sveit.“ Skipstjórarnir fóru með konurn- ar fjórar í tvær æfingaferðir út á sjó og síðan var látið vaða í næsta mót. Ekki fara miklar sögur af afrekum þeirra á mótinu en hins vegar heillaðist Sigfríð af sport- inu. Þó að Sigfríð hafi ekki verið reynslumikil á sínu fyrsta móti var hún þó alls ekki óvön. „Frá unga aldri lékum við krakkarnir okkur á bryggjunni og veiddum. Svo fengum við lánaða árabáta hjá körlunum til að fara fram fyrir bryggjusporðinn og veiða,“ rifjar Sigfríð upp. Hún er komin af sjó- mönnum fram í ættir. „Þetta er því í blóðinu,“ segir Sigfríð. En hvað þarf til að vera góður í sjóstangveiði? „Maður þarf að hafa tilfinningu fyrir veiðinni, vita hvenær á að renna færinu í botn- inn, hvað þarf að renna færinu langt upp til að finna fiskinn og vita hvar fiskurinn liggur í sjónum á hverju svæði og vera útsjónar- samur með það,“ útskýrir Sigfríð en segir heppni vissulega skipta líka miklu máli. Á mótum eru keppendur til að mynda dregnir á báta en Sigfríð telur sig hafa verið mjög heppna í gegnum tíðina og alltaf hafa lent hjá skipstjórum sem þekktu vel sín heimamið. Sigfríð segir vaxandi hóp fólks stunda sjóstangveiði þó að konur mættu vera fleiri að hennar mati. Yfirleitt eru um 40 til 60 keppend- ur á hverju móti og fjórir til fimm keppendur í hverjum báti sem keppast við að draga upp ýsu, þorsk og annan fisk. Að móti loknu fær mótshaldarinn allan aflann upp í kostnað við mótið. Haldin eru mót á átta stöðum á öllu landinu en þrjú bestu mótin telja til stiga í Íslandsmeistara- mótinu. Sigfríð er því mikið á far- aldsfæti og segir slíkar keppnis- ferðir ákaflega skemmtilegar. „Það hefur myndast mikil vinátta í þeim kjarna sem fer á flest mótin og er að keppa af alvöru,“ segir Sigfríð en undanfarin tíu ár segir hún mikla þróun hafa orðið í sjó- stangveiðinni sem í dag sé orðin mun meiri keppni en hún var áður. solveig@frettabladid.is Maður verður að hafa tilfinningu fyrir veiðinni Sigfríð Valdimarsdóttir varð Íslandsmeistari kvenna í sjóstangveiði í ellefta sinn á síðasta ári. Hún segir vaxandi hóp fólks stunda sjóstangveiði og mikinn vinskap hjá þeim sem sportið stunda. Sigfríð ásamt skipsfélögum sínum á móti sem fram fór í Neskaupstað. INFLÚENSUFARALDUR sem nú er í uppsigl- ingu á landinu er aðalefni nýjasta tölublaðs Farsótta- frétta Landlæknisembættisins. Farsóttafréttir má finna á heimasíðu embættisins, www.landlaeknir.is. Árskort í tækjasal aðeins 3.333 kr. á mánuði* Næstu fyrirlestrar og námskeið 13. jan. Góð heilsa er auðveldari en þú heldur Matti Ósvald heilsuráðgjafi 27. jan. Ég fitna sama hvað ég geri. Hvernig næ ég jafnvægi? Esther Helga Guðmundsdóttir ráðgjafi 03. feb. Hvað er heilun? Kristján Viðar Haraldsson 07. feb. Hláturfundur Hláturkætiklúbbsins Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari 10. feb. Mataræði fyrr og nú - Næring í víðari skilningi Haraldur Magnússon osteópati www.madurlifandi.is TA I CH I námskeið hefst 17. janúar Æfingastöð SLF Háaleitisbraut Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 80%afslætti valdar vörur á allt að

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.