Fréttablaðið - 13.01.2009, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.01.2009, Blaðsíða 28
16 13. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is ORLANDO BLOOM ER 32 ÁRA Í DAG „Ég er ferlega rómantísk- ur og nýt þess að dekra við kærusturnar mínum.“ Breska leikaranum Orlando Bloom skaut fyrst upp á stjörnuhimininn þegar hann lék Legolas í Hringadróttins- sögu. Síðan hefur hann leik- ið í fjölda kvikmynda og meðal annars farið með hlutverk Wills Turner í Pirates of the Caribbean. MERKISATBURÐIR 1610 Galíleó Galílei uppgötvar Kallistó, fjórða tungl Júpít- ers. 1949 Milli fjalls og fjöru, fyrsta íslenska talmyndin í lit og fullri lengd, eftir Loft Guð- mundsson, er frumsýnd. 1957 Wham-O-fyrirtækið fram- leiðir fyrsta frisbídiskinn. 1975 Guðmundur Sigurjónsson tryggir sér stórmeistara- titil í skák, 27 ára að aldri, en hann var annar Íslend- ingurinn til að ná þessum áfanga. 1976 Jarðskjálfti, 6,5 stig á Richter, verður í grennd við Kópasker. Hann veldur miklu tjóni. 2002 George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, fellur í yfirlið þegar saltkringla stendur í honum. Þennan dag árið 1930 kom út fyrsta myndasagan um teiknimynda- og myndasögu- persónuna Mikka Mús, en Mikki kom fyrst fram í teikni- mynd Walts Disney, Plane Crazy árið 1928. Haldið er upp á afmæli Mikka hinn 18. nóvember ár hvert og varð hann því áttatíu ára í fyrra. Hann er ein þekktasta teikni- myndapersóna allra tíma. Upphaflega var Mikki ávallt í rauðum stuttbux- um með alsvört augu. Útlit hans var svo endurskoðað eftir að Andrés Önd tók fram úr honum í vinsældum árið 1938. Þá fékk hann hvítu í augun og betri föt en stór svört eyru einkenna hann einna helst. Í teiknimyndum kemur Mikki gjarnan fram með Andrési, Guffa, besta vini sínum, og hundin- um Plútó en í mynda- sögunum er hann oft- ast aðeins með Guffa, Plútó, Mínu Mús kærust- unni sinni, Svarta-Pétri og kúnni Klörubellu. Skýring- in er sú að Disney hefur í áratugi lagt áherslu á að halda Andabæ, sögu- heimi Andrésar andar, að- skildum frá söguheimi Mikka og Guffa. ÞETTA GERÐIST: 13. JANÚAR 1930 Myndasaga um Mikka Mús Múlalundur, stærsta og elsta öryrkja- vinnustofa landsins, fagnar fimmtíu ára afmæli í ár en fyrirtækið, sem er í eigu SÍBS, hóf starfsemi sína árið 1959. Í Múlalundi hefur fólk með skerta starfsorku átt þess kost að vinna létt störf við hagnýtan iðnað, auk þess sem því gefst kostur á að vinna sveigjanlegan vinnutíma. „Óhætt er að segja að starfsem- in hafi fallið í góðan jarðveg, en áður en fyrirtækið var stofnað hafði fjöldi fólks með skerta starfsorku reynt mánuðum og jafnvel árum saman að komast í vinnu við hæfi en án árang- urs,“ segir Helgi Kristófersson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Strax árið 1960 þurfti að byggja við fyrstu húsakynnin í Ármúla og fjölgaði starfsmönnum þá úr tuttugu í fimm- tíu. Stjórn SÍBS var svo árið 1978 falið að reisa nýja verksmiðju og semja við Öryrkjabandalagið um lóðina. 1.200 fermetra húsnæði að Hátúni 10c var síðan tekið í notkun árið 1982 sem síðar hefur þurft að stækka. Fyrirtækið hefur framleitt fatnað, leikföng, sundhringi, innkaupatösk- ur og bréfabindi en framleiðir nú nær eingöngu plast- og pappavörur fyrir skrifstofur. Þar eru EGLA bréfabind- in hvað þekktust en auk þeirra eru framleiddar lausblaðabækur, dagatöl, glærar kápur, hulstur, ráðstefnu- og fundarmöppur, sérprentaðar möppur og barmmerki svo dæmi séu tekin. Þá selur fyrirtækið allt sem þarf til skrif- stofuhalds en úrvalið má sjá á heima- síðunni www. mulalundur.is. Hjá Múlalundi starfa bæði þeir sem glíma við andlega og líkamlega ör- orku. „Aðstaðan gerir okkur kleift að taka á móti öllum nema blindum,“ segir Helgi. Hann segir vinnustaðinn hafa sann- að sig og að mörg ánægjuleg dæmi séu um einstaklinga sem hafi lent í áföllum, komið til vinnu í Múlalundi og í framhaldinu farið í nám eða út á hinn almenna vinnumarkað. „Þessi vinnustaður hefur þá sér- stöðu að hér þykir gott að mannaskipt- in séu ör,“ segir Helgi en vel hefur gengið að koma starfsfólki Múlalund- ar út á hinn almenna vinnumarkað. „Hér fær fólk stuðning til að vinna upp líkamlegan jafnt sem andlegan styrk og er markmiðið að koma sem flestum út á hinn almenna markað en þó á þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Þörfin fyrir starfsemina er mikil og hefur hún skilað þjóðfélaginu gríðarlegum fjármunum en auk þess er það vinnuafl sem fer hér í gegn ómetanlegt,“ segir Helgi. Nú starfa 58 manns hjá fyrirtækinu en alla tíð hafa færri komist að en vilja. Helgi vonast til að landsmenn velji íslenskt nú á afmælisári fyrirtækis- ins sem og endranær. „Mér finnst að Íslendingar ættu að leggja sig fram um að velja íslenskt og þá sérstaklega ef vörurnar eru á samkeppnishæfu verði.“ vera@frettabladid.is MÚLALUNDUR: FIMMTÍU ÁRA FARSÆL STARFSEMI SEM HEFUR SANNAÐ GILDI SITT Ör mannaskipti af hinu góða Auglýsing frá Múlalundi sem birtist í Vikunni árið 1965. MIKIL ÞÖRF FYRIR STARFSEMINA Helgi segir að vel hafi gengið að koma starfsfólki Múlalundar út á hinn almenna vinnumarkað en að það sé þó gert á þeim hraða sem henti hverjum og einum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Starfsemin flutti frá Ármúla 34 í Hátún 10c árið 1982. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hjördís Karlsdóttir, Melalind 8, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 10. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Sigurður Gísli Bjarnason Guðrún Hjálmarsdóttir Símon Friðriksson Steinunn Þorsteinsdóttir Sigrún Sigurðardóttir Ásgrímur Þór Pálsson Steinar Sigurðsson Ragnhildur Sverrisdóttir Ragnhildur Sigurðardóttir Smári Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Oddný Guðrún Guðmundsdóttir Skógarbæ áður Lautasmára 12, lést á Landspítalanum sunnudaginn 11. janúar. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudag- inn 19. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Neistann, félag hjartveikra barna. Vilborg Pétursdóttir Sigurður Haraldsson Guðmundur Pétursson Elsa Jónsdóttir Sigríður Pétursdóttir Heiðar Vilhjálmsson Hendrik Pétursson Marianne Hansen Halldóra Pétursdóttir Jóhann Helgason barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, Þórunn Scheving Thorsteinsson lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 9. janúar sl. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. janúar og hefst kl. 11.00. Hólmfríður Jónsdóttir Þorlákur Gestur Jensen Jón Múli Franklínsson Stefán Scheving Thorsteinsson Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ólöf Erla Kristinsdóttir, lést föstudaginn 9. janúar sl. Útför auglýst síðar. Laufey Erla Jóhannesdóttir Hannes Sigurðsson Arndís Birna Jóhannesdóttir Guðmundur Þórir Guðmundsson Kristinn Örn Jóhannesson Svanbjörg H. Einarsdóttir Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir Pétur Davíðsson og barnabörnin.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.