Fréttablaðið - 13.01.2009, Page 33

Fréttablaðið - 13.01.2009, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 13. janúar 2009 21 Í upphafi heimildarmyndarinnar Sólskinsdrengurinn er áhorfend- um greint frá því að samkvæmt rannsóknum sé einn af hverjum 150 einstaklingum með fötlun á einhverfurófinu, sem þýðir að um 2.000 Íslendingar glíma við þetta samansafn einkenna sem tengjast truflun á taugaþroska. Þetta er sannarlega sláandi há tala í augum þeirra sem hingað til hafa ekki verið meðvitaðir um fötlunina, umfang hennar og helstu einkenni. Góðu heilli ætti vitneskja um ein- hverfu og áhugi þeirra sem berja Sólskinsdrenginn augum að stig- magnast eftir því sem líður á myndina, sem megnar að vera í senn fræðandi (á skiljanlegu mannamáli), persónuleg og falleg. Áhorfendur fylgja foreldrunum Margréti og Þorsteini í leit að úrræðum fyrir son sinn Kela, sem haldinn er hæsta stigi einhverfu. Leiðin liggur um þver og endilöng Bandaríkin auk Bretlands og Dan- merkur. Í gegnum samtöl við fær- ustu sérfræðinga, aðstandendur annarra einhverfra barna og ein- staklinga sem brotist hafa frá ein- kennunum kviknar sú von að frek- ar sé mögulegt að frelsa Kela undan fötlun hans (að finna glugg- ann, eins og höfundur hraðhvata- meðferðarinnar sem Keli bregst svo undravel við í myndinni kallar það) en foreldrunum hafði áður dottið til hugar. Um leið eru bæði söguhetjur og áhorfendur upplýst um stöðu meðferðarúrræða hér á landi, sem virðast gjalda kunn- áttu- og peningaleysis þótt ýmis- legt sé vel gert í þeim efnum. Í einu af mörgum eftirminnileg- um atriðum segir Margrét frá þeirri sorg og gremju sem hún finnur fyrir þegar hún hugleiðir hvað hefði getað orðið ef gagnleg meðferð fyrir Kela hefði uppgötv- ast fyrr. Með það í huga verður að teljast líklegt að áhorf á Sólskins- drenginn verði mörgum aðstand- endum eldri einhverfra erfitt, enda sannað að því fyrr á lífsleið- inni sem gripið er inn í með með- ferð, þeim mun meiri er vonin um árangur. Einnig verður ekki kom- ist hjá því að íhuga hvort efna- hagskreppan, með fyrirhuguðum niðurskurði á velferðarkerfinu, muni koma niður á þeim úrræðum sem þó eru til staðar hér. Í því augnamiði að sporna við slíkri þróun gæti myndin hreinlega reynst bráðnauðsynleg. Efnið er í eðli sínu viðkvæmt, en boðskapurinn kemst í gegn án þess að gripið sé til tilfinninga- kláms af nokkru tagi. Vel er í lagt og greinilegt að fjármagnið hefur verið skynsamlega nýtt, enda allur óþarfa íburður og prjál af skorn- um skammti. Tæknivinnsla er fag- leg og tónlistin, sem er að mestu í höndum Sigurrósar, hentar við- fangsefninu fullkomlega. Sól- skinsdrengurinn er frábær heim- ildarmynd sem skiptir máli. Kjartan Guðmundsson Gægst inn um gluggann Breskir gagnrýnendur eru ákaf- lega hrifnir af plötu íslensku hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Gagnrýn- andi Guardian, Michael Hann, biður hlustendur um að standast þá freistingu að líkja hljómsveit- inni við Sigur Rós, tónlist þeirra eigi fátt ef eitthvað sameiginlegt. Hann fer síðan fögrum orðum um plötuna og hrósar söngvaran- um, Högna Egilssyni. „Hann er ekki fullkominn söngvari en það er einmitt þessi ófullkomleiki sem kemur í veg fyrir að platan lendi í sætabrauðsflokknum,“ skrifar Hann. Gagnrýnandi Times, Dan Cairns, fer ekkert síður lofsamlegum orðum um plötuna. „Sleepdrunk Seasons virðist hafa verið gerð af aðeins einni ástæðu, að hafa gaman af því að gera tónlist,“ skrifar Cairns á afþreyingarvef Times. Hann líkir sveitinni við Sufjan Ste- vens og Arcade Fire. „Sveitin er þessi sjaldgæfi hlutur sem brýst fram á sjónarsviðið, algjörlega óþekkt og hrífur þig strax með,“ bætir Cairns við. - fgg Bretar hrifnir af Hjaltalín HRÍFUR ÞIG STRAX Gagnrýnendur bæði Time og Guardian eru ákaflega hrifnir af plötu Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Sonur rokkarans The Big Bopp- er ætlar að selja líkkistu pabba síns á eBay og nota peninginn sem fæst af sölunni til að fjár- magna kvikmynd um ævi rokk- arans. The Big Bopper, öðru nafni Jiles Perry Richardson Jr., lést í sama flugslysi og Buddy Holly og Richie Valens árið 1959. Buddy var frægastur þremenn- inganna en Richie öðlaðist sein- búna frægð eftir kvikmyndina La Bamba. Nú vill sonur The Big Bopper, Jay Perry, reyna að koma pabba gamla í sama flokk með kvikmyndinni. Kistan var grafin upp árið 2007 því fjölskyldan vildi koma hinum látna fyrir á betri stað. Kistan var opnuð og þá sá Jay pabba sinn í fyrsta skipti því hann fæddist þremur mánuðum eftir flugslysið. Líkamsleifar rokkarans voru í góðu ástandi og meðal annars hafði rokkara- greiðslan haldið sér að mestu. Rokkarinn var grafinn aftur í nýrri kistu og fylgir því ekki með í kaupunum. Sonurinn kallar sig The Big Bopper Jr. Hann er nú að verða fimmtugur og hefur tileinkað líf sitt gamla rokkinu. Hann heldur úti netsíðu um pabba sinn og spilar með bandi sem spilar gam- aldags vagg og veltu. Selur líkkistu pabba síns á eBay THE BIG BOPPER Lést 28 ára en líkkista hans fer bráðlega á eBay. Hljómsveitin Lifun vakti athygli síðasta sumar með laginu „Hörku djöfuls fanta ást“ eftir Björgvin Ívar Baldursson við texta Bjart- mars Guðlaugssonar. Björgvin er sonarsonur Rúnars Júlíussonar. Lifun, sem skírð er eftir þekkt- ustu plötu Trúbrots, vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu sem á að koma út næsta sumar. Rúnar lagði til við sonarsoninn að hann útsetti lagið „Fögur fyrirheit“ og tæki það upp. Það lag er nú komið í spilun í útvarpi. Rúnar samdi lagið á sínum tíma fyrir safnplötuna Innrás: korn- flex og kanaúlpur. Hann hafði nýlega heyrt hljómsveitina spila lagið á æfingu og lagt blessun sína yfir það þegar hann kvaddi jarð- vistina svo óvænt. Nýtt lag frá Lifun LIFUN Nýtt lag á leiðinni. Leikfélag Menntaskól- ans við Sund frumsýnir á næstunni rokksöngleik um galdrastrákinn Harry Potter. Albert Hauksson fer með aðalhlutverkið en hann þykir ekkert sérstaklega líkur Harry Potter úr kvik- myndunum. „Ég skrifaði leikgerð upp úr fjórðu, fimmtu og sjöttu bókinni. Fjórða og fimmta bókin hafa verið kvikmyndaðar svo fólk þekkir þær, en sú sjötta kemur ekki fyrr en næsta sumar svo við erum svo- lítið að fara að frumsýna það efni,“ segir Kolbrún Björt Sigfúsdóttir um hinn íslenska Harry Potter rokksöngleik sem leikfélag Menntaskólans við Sund er að setja upp um þessar mundir. Kol- brún skrifaði leikgerðina upp úr sögunum um galdrastrákinn, íslenskaði texta við nokkur vel valin erlend lög og leikstýrir söng- leiknum ásamt eiginmanni sínum Erlingi Grétari Einarssyni. Albert Hauksson fer með hlut- verk Harry Potter í uppfærslunni og aðspurð segir Kolbrún hann hafa selt þeim Erlingi hugmynd- ina í prufunum. „Albert er með gleraugu en ekki dökkhærður. Það hjálpar okkur svolítið að gera þetta ólíkt kvikmyndunum því við viljum ekki apa eftir þeim. Við leggjum til dæmis meiri áherslu á hluta Voldemorts og ástarsöguna í þessu með sambandi Hermione og Rons,“ segir Kolbrún. Söngleikurinn verður frum- sýndur 17. febrúar í Loftkastalan- um, sem mun á sama tíma opna eftir eigendaskipti undir rekstrar- stjórn Bjarna Hauks Þórssonar. „Við ætlum að vera svolítið grand á því á frumsýningunni. Það var mikill heiður að fá inni í Loftkast- alanum því fleiri sóttust eftir að sýna á þessum tíma, svo við erum mjög ánægð,“ segir Kolbrún. alma@frettabladid.is Hinn íslenski Harry Potter AÐALLEIKARINN Albert Hauksson fer með hlutverk Harry Potter í uppfærslu Mennta- skólans við Sund, en hann útsetur einnig alla tónlistina í sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KVIKMYNDIR Sólskinsdrengurinn Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson ★★★★★ Persónuleg og upplýsandi heimildar- Kennsla hefst 19. janúar Frístundakor t Skemmtilegt tónlistarnám sem hentar fólki á öllum aldri, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Frábært tækifæri. Guðmundur Jónsson og Friðrik Sturluson úr Sálinni hafa bæst í hóp einvalaliðs kennara hjá Tónheimaum Bassagítar Friðrik Sturluson Lagasmíðar / Gítar Guðmundur Jónsson Harmónikka Raf- og Kassagítar Píanó Nánari upplýsingar og skráning á www.tonheimar.is og í síma 846 8888 NÝTT NÝTT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.