Fréttablaðið - 13.01.2009, Side 34
22 13. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Keflvíkingurinn Guðmundur Steinarsson heldur út til Liechtenstein
á morgun þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun og skrifa
undir sex mánaða samning við FC Vaduz á fimmtudag, með mögu-
leika á framlengingu um eitt ár. Félagið er frá Liechtenstein en leikur
í svissnesku úrvalsdeildinni.
„Þetta er bara mjög spennandi. Stefnan hjá mér var að
komast í Evrópubolta í þokkalega sterkri deild og ég varð strax
mjög hrifinn af því hvernig málum var háttað hjá FC Vaduz
þegar ég fór þangað út til æfinga. Ég er náttúrulega líka með
fjölskyldu og það þurfti að huga að því og þetta lítur líka allt
saman vel út í því samhengi. Ég mun skrifa undir sex mán-
aða samning til að byrja með en þar er jafnframt ákvæði
um framlengingu um eitt ár til viðbótar ef báðir aðilar eru
samþykkir því,“ segir Guðmundur.
Guðmundur átti sem kunnugt er frábært tímabil með
Keflavík í Landsbankadeildinni síðasta sumar og varð
markakóngur deildarinnar með sextán mörk og var svo
valinn besti leikmaður mótsins á lokahófi KSÍ. Hann
fékk margar fyrirspurnir frá erlendum félögum eftir
tímabilið en FC Vaduz varð fyrir valinu á endanum.
„Það var búið að vera mikið um að vera hjá mér síðan
tímabilinu lauk hér heima og margir möguleikar í stöðunni
fyrir mig og ég var svona búinn að vera að sigta út hvað
mér fannst vera mest spennandi. Ég var því búinn að halda
mér í formi eftir tímabilið þar sem ég vissi að ég væri á
leiðinni eitthvert út til reynslu og það væri því eins gott
að vera tilbúinn þegar kallið kæmi til að geta boðið upp á
eitthvað,“ segir Guðmundur.
Svissneska úrvalsdeildin hefst að nýju eftir vetrarfrí í
byrjun febrúar og Guðmundur getur vart beðið eftir því
að komast af stað að nýju.
„Það verður stórkostlegt að komast aftur í bolta. Liðið
er sem stendur í níunda sæti af tíu liðum, en hópurinn
er ungur og þarna eru fínir spilarar innanborðs. Ég er fenginn
til þess að bæta sóknarleikinn hjá félaginu og það verður
bara skemmtilegt að fá að prófa sig í þessari deild þannig
að tilhlökkunin er mikil.“
GUÐMUNDUR STEINARSSON: GENGUR Í RAÐIR FC VADUZ FRÁ LIECHTENSTEIN Á SEX MÁNAÐA SAMNINGI
Það voru margir möguleikar í stöðunni
Subway-bikar karla
Grindavík-ÍR 105-78 (63-48)
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 29 (7
fráköst), Brenton Birmingham 21, Páll Kristinsson
19 (8 fráköst), Guðlaugur Eyjólfsson 12,
Þorleifur Ólafsson 9, Arnar Freyr Jónsson 7 (11
stoðsendingar), Nökkvi Jónsson 5, Björn
Brynjólfsson 3.
Stig ÍR: Steinar Arason 20, Ómar Sævarsson 16
(10 fráköst), Eiríkur Önundarson 16, Ólafur
Ingvarsson 9, Hreggviður Magnússon 9 (7
frák.), Daði Grétarsson 6, Sveinbjörn Claessen 2.
Subway-bikar kvenna
Keflavík-Hamar 102-57 (56-36)
Stig Keflavíkur: Pálína Gunnlaugsdóttir 27, Birna
Valgarðsdóttir 19 (13 fráköst), Lóa Másdóttir 8,
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 8 (7 fráköst),
Halldóra Andrésdóttir 7, Hrönn Þorgrímsdóttir 6,
Rannveig Randversdóttir 6, Bára Bragadóttir 6
(7 fráköst), Marín Karlsdóttir 4.
Stig Hamars: Fanney Guðmundsdóttir 16 (14
fráköst), Lakiste Barkus 13, Hafrún Hálfdánar-
dóttir 8 (8 fráköst), Jóhanna Sveinsdóttir 7, Íris
Ásgeirsdóttir 5, Rannveig Reynisdóttir 3, Dúfa
Ásbjörnsdóttir 3, Salbjörg Sævarsdóttir 2.
Fjölnir-Valur 26-82 (10-41)
Stig Fjölnis: Birna Eiríksdóttir 17, Efemia
Sigurbjörnsdóttir 7, Margrét Loftsdóttir 2.
Stig Vals: Þórunn Bjarnadóttir 26 (9 fráköst),
Lovísa Guðmundsdóttir 14, Kristjana
Magnúsdóttir 11, Signý Hermannsdóttir 8 (9
fráköst), Kristín Óladóttir 7, Tinna Sigmundsdóttir
5, Hafdís Helgadóttir 4, Berglind Ingvarsdóttir 3,
Elín Karlsdóttir 2, Guðrún Baldursdóttir 2.
Skallagrímur-Hekla 88-39 (42-24)
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI „Ég er mjög ánægður.
Við spiluðum vel í þessum leik,
vorum áræðnir í sókninni og spil-
uðum fína vörn,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur,
eftir öruggan 27 stiga sigur á ÍR,
105-78, í 8-liða úrslitum Subway-
bikars karla í Grindavík í gær-
kvöldi.
ÍR-ingar hafa tvisvar sinnum
fagnað bikarmeistaratitlinum og í
bæði skiptin slegið Grindavík út í
Röstinni á leiðinni í Höllina en það
var aldrei á dagskránni hjá heima-
mönnum sem komu mjög grimmir
til leiks eftir tap á móti Stjörnunni
í síðasta leik.
„Við mættum illa undirbúnir
andlega í síðasta leik og mættum í
þann leik eins og þetta kæmi allt
af sjálfu sér. Við fengum rass-
skellingu sem við áttum skilið. Við
ákváðum að snúa bökum saman,
taka þetta sem lexíu og læra af
þessu,“ sagði Friðrik. Grindavík
komst í 10-0 og réði ferðinni allan
leikinn.
ÍR-ingar réðu ekkert við Pál
Axel Vilbergsson sem skoraði 25
stig og sex þriggja stiga körfur í
fyrri hálfleik og þá slökkti Brent-
on Birmingham nánast á Hregg-
viði Magnússyni með frábærri
vörn.
„Páll Axel var svakalega heitur
í fyrri hálfleik. Brenton getur spil-
að rosalega vörn sem að hann
gerði í þessum leik. Þetta er örugg-
lega besta vörnin sem Hreggviður
hefur fengið á sig í vetur,“ sagði
Friðrik en Hreggviður skoraði
aðeins 9 stig á 26 mínútum, klikk-
aði á 12 af 15 skotum sínum og tap-
aði fjórum boltum að auki.
Páll Axel skoraði 29 stig og
Brenton var með 21 stig og léku
þeir báðir mjög vel í gærkvöldi
eins og Páll Kristinsson sem skor-
aði 19 stig á 23 mínútum.
Það var einnig frábært að fylgj-
ast með leikstjórn þeirra Arnars
Freys Jónssonar og Helga Jónas
Guðfinnssonar sem voru með 19
stoðsendingar saman.
Hjá ÍR voru Steinar Arason og
Ómar Sævarsson bestir auk þess
að Eiríkur Önundarson lék mjög
vel þar til hann þurfti að fá sér
sæti á bekknum vegna villuvand-
ræða. ooj@frettabladid.is
Grindvíkingar komnir aftur í gang
Grindvíkingar voru í stuði í öruggum 27 stiga bikarsigri á ÍR-ingum. Skyttur liðsins röðuðu niður þristum
og Brenton Birmingham slökkti á einum besta sóknarmanni landsins og hélt honum í 9 stigum í gærkvöld.
ÁNÆGÐUR Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, gat ekki verið annað en mjög
ánægður með frábæra alhliða spilamennsku Grindvíkinga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
N
NI
R
AP
A
KS
AF
O
TS
A
G
NIS
L
G
U
A
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu,
sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu.
Starfsmenntaráð hvetur umsækjendur til að sækja um verkefni sem falla undir eftirfarandi áherslur:
Gæðaverkefni sem nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í
sérstakri áhættu með að missa vinnuna.
Verkefni þar sem áhersla er á nýsköpun og þróun í starfsmenntun og tengjast erfiðri
stöðu fyrirtækja til að sinna þessum þáttum á samdráttartímum í atvinnulífi.
Áhersla er lögð á að öll verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi á heimsíðu Starfsmenntaráðs
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Starfsmenntaráðs www.starfsmenntarad.is
N
NI
R
AP
A
KS
AF
O
TS
A
G
NIS
L
G
U
A
Styrkir
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
hefur ekki farið leynt með
óánægju sína að fá ekki að spila
reglulega hjá Portsmouth og vill
því leita á önnur mið.
Ólafur Garðarsson, umboðs-
maður Hermanns, segir Port-
smouth og Coca-Cola Champions-
hip-félagið Reading vera að ræða
saman um hugsanleg félagaskipti.
„Þetta mál er bara í vinnslu og í
fullri vinsemd á milli Portsmouth
og Reading. Vonandi skýrast
hlutirnir í næstu viku, á hvorn
veginn sem verður. Ef Hermann
fer þá vill Portsmouth alla vega
síður missa hann í félag sem er á
svipuðum slóðum og Portsmouth í
úrvalsdeildinni,“ segir Ólafur. - óþ
Mál Hermanns Hreiðarssonar:
Skýrast líklega í
næstu viku
HERMANN Óhress með að fá ekki að
spila hjá Portsmouth. NORDIC PHOTOS/GETTY
> Spilaði með þjálfurunum í Hollandi
Nýi bandaríski leikmaðurinn hjá Snæfelli, Lucious
Wagner, spilaði með þjálfurunum Hlyni Bæringssyni og
Sigurði Þorvaldssyni, þegar þeir léku með Woon!Aris í
hollensku deildinni 2005-2006 og var þá
með 15,6 stig og 6,9 stoðsendingar að
meðaltali í leik. Wagner sem er 193
cm bakvörður lék síðast í Líban-
on og Tékklandi. Í fyrra skoraði
hann 15,3 stig að meðaltali í
tékknesku deildinni og veturinn
2006-2007 var hann með 13,6 stig
að meðaltali í finnsku deildinni.
KÖRFUBOLTI Keflavík vann Hamar
102-57 í átta liða úrslitum Sub-
way-bikars kvenna í Keflavík í
gærkvöld.
„Þetta var bara einn af þeim
leikjum þar sem allt gekk upp
hjá okkur. Ég var gríðarlega
sáttur hvað lið mitt mætti
brjálað til leiks. Þetta sýnir
það bara að við erum á réttri
leið,“ segir Jón Halldór
Eðvaldsson, þjálfari
Keflavíkur, í leikslok.
„Það er ekkert laun-
ungarmál að ég hef ekki
orðið bikarmeistari og
mig langar það mjög mikið
og það er mikill hugur í lið-
inu og við munum gera allt
sem í okkar valdi stendur til
þess að fara alla leið en það
verður ekki auðvelt,“ segir
Jón Halldór.
Keflavík byrjaði leikinn
af krafti og leiddi 29-17
eftir fyrsta leikhluta og
hélt svo uppteknum hætti
í öðrum leikhluta og staðan í
hálfleik var 56-36.
Hamarsstúlkur máttu sín lítils
gegn öflugri vörn Keflavíkur í
þriðja leikhluta þar sem gestirn-
ir skoruðu aðeins sjö stig gegn
tuttugu stigum Keflavíkur.
Tuttugu og þriggja stiga
forskot Keflavíkur var vitan-
lega of stór biti fyrir
Hamar í lokaleikhlutan-
um og Íslandsmeistar-
arnir sigldu sigrinum
örugglega í höfn en
lokatölur urðu 102-57.
Ásamt Keflavík náðu
Valur og Skallagrímur að
tryggja sér farseðilinn í
undanúrslit í gær en KR
var þegar komið þangað.
Valur vann stórsigur, 26-82,
gegn Fjölni og Skallagrím-
ur vann Heklu 88-39. - óþ
Átta liða úrslit Subway-bikars kvenna í gærkvöld:
Auðvelt hjá Keflavík
FRÁBÆR Pálína Gunnlaugsdóttir
átti góðan leik fyrir Keflavík í
gær og skoraði 29 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN