Tíminn - 06.10.1982, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
5
■ „...mýs hafa lifað hér á landi mun lengur en kettir og þreyð þorrann og góuna
ásamt tvífættum íbúum þessa lands í hungri, kulda, verðbólgu og öðrum þrengingum
svo lengi sem sögur herma...“ segir m.a. í ályktun Músavinafélagsins.
yySögulegur
réttur músa
er ótvíræður”
— segir í ályktun fulltrúaráðs
Músavinafélagsins, vegna óska
Kattavinafélagsins um að hætta
sýningum á Tomma og Jenna
■ Kattavinafélagið hefur farið þess á
leit við Sjónvarpið, að það hætti
sýningum á hinum geysinvinsælu teikni-
myndum um Tomma og Jenna. Telur
félagið, að teiknimyndirnar gefi ranga
mynd af eðli kattarins og geti haft þau
áhrif, að krakkar meðhöndli ketti á
líkan hátt og farið er með Tomma í
myndunum.
Af þessu tilefni sendi Músavinafélagið
frá sér eftirfarandi ályktun:
„Skyndifundur í fulltrúaráði Músa-
vinafélagsins fordæmir harðlega furðu-
Íega kröfu svokallaðs „Kattavinafélags"
um að hætt verði sýningum á sjónvarps-
þáttunum um Tomma og Jenna. Eink-
um lýsir fundurinn vanþóknun sinni og
furðu á því, að „káttavinir" skuli beita
fyrir sig uppgerðarumhyggju fyrir börn-
um í þessu sambandi, ekki síst með tilliti
til þess míkla hlutverks sem músin hefur
gegnt í uppeldi barna hér á landi frá
ómunatíð. Nægir þar að benda á hin
hugljúfa og uppbyggilega þátt Lilla
klifurmúsar, hjálparhellu og eftirlætis
allra dýra í Hálsaskógi, en það verk
Torbjörns Egners hefur átt stóran þátt í
því hve vel hefur tekist til um uppeldi
barna á Islandi síðustu áratugina.
Þó bendir fuíltrúaráð Músavina-
félagsins á, að mýs hafa lifað hér á landi
mun lengur en kettir og þreyð þorrann
og góuna ásamt tvífættum íbúum þessa
lands í hungri, kulda, verðbólgu og
öðrum þrengingum, svo lengi sem sögur
herma, á meðan kettir eru innflutt
gæludýr, uppaldir í stofuhita á sérstöku
innfluttu fæði, sem eytt er í dýrmætum
gjaldeyri, og eru þvf mjög verðbólgu-
hvetjandi.
Þótt ekki væri nema vegna þessarar
sögulegu hefðar er því réttur músarinnar
ótvíræður. Fulltrúaráð Músavina-
félagsins hvetur því til aukinna sýninga
á þáttunum um Tomma og Jenna, svo
börnum þessa lands megi verða enn
ljósari þeir hugljúfu eðlisþættir sem
músina prýða.
Ekki fara sögur af afrekum katta í
þróun vísinda og tækni. Þar hefur músin
aftur á móti gegnt forystuhlutverki.
Ótöldum lítrum af lyfjum og hvers kyns
vímugjöfum hefur verið dælt í líkama
þessara dýra, sem æðrulaus hafa fórnað
sér fyrir framfarir, heill og hamingju
mannkynsins. Einnig má benda á
brautryðjendastarf músa í könnun
himingeimsins, - í geimferðir hafa farið
mýs, mannfólk og hundar, en engar
sögur fara þar af köttum. Segir það sína
sögu. „Undir ályktunina rita f.h.
Músavinafélagsins: Haukur Már
Haraldsson, formaður, Guðlaug Hall-
dórsdóttir, formaður Hagamúsadeildar
og Lárus Sólberg Guðjónsson, for-
maður Húsamúsadeildar. -Sjó
■ Dr. Þorsteinn Hannesson
og þögul kvikmynd sem hljómsveitin
spilar undir svo eitthvað sé nefnt.
Það sagði góður maður um daginn,
að í heiminum væri til fullt af
hljómsveitum, töluvert af góðum hljóm-
sveitum, þó nokkuð af mjög góðum
hljómsveitum, en engin sem hefur
efnisskrá eins og íslenska hljómsveitin.“
„Ég held að þetta sé satt,“ sagði
Þorsteinn.
-Af 16 einleikurum sem koma fram
hjá ykkur í vetur verður aðeins einn
útlendur. Er það stefna hjá ykkur að gefa
íslenskum hljómlistarmönnum kost á að
koma fram sem einleikarar?
„Það má segja það. Alla vega tökum
við íslendinga fram yfir ef það er
mögulegt. T.d. er eini útlendingurinn
sem leikur einleik með hljómsveitinni í
vetur Japani, sem leikur á hljóðfæri sem
enginn íslendingur kann að fara með.
Við viljum gefa ísiendingum tækifæri
á að spreyta sig. Ekki bara hljóðfæra-
leikurum, heldur tónskáldum einnig. í
því sambandi höfum viö ákveðið að efna
til samkeppni meðal íslendinga sem
leggja stund á nám í tónsmíðum. Með
því viljum við kynna yngstu tónskáldin
sem mörg eru mjög frambærileg," sagði
Þorsteinn.
Fyrstu tónleikar íslensku hljóm-
sveitarinnar verða í Gamla Bíói laugar-
daginn 31. oktober. Síðan reka hverjir
tónleikamir aðra, en þeir verða alls átta
í vetur. Áskrift og styrktaraðild fæst í
síma 24972 virka daga frá klukkan 9.00
til 12.30. Sætaval er háð því hvenær
pantað er. -Sjó.
Framsóknarffokkurinn
18. FLOKKSÞING
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
verður haldið að Hótel Sögu 13.-15. nóvember n.k.
DAGSKRÁ
Laugardagur 13. nóv.
10.00-12.00 Þingsetning
Kosning starfsmanna
Yfirlitsræða formanns, Steingríms Hermannssonar
Skýrsla ritara, Tómasar Árnasonar
13.30- 18.00 Almennarumræður
Nefndarstörf
Sunnudagur 14. nóvember
10.00-12.00 Nefndarstörf
13.30- 19.00 Kosning25 manna ímiðstjórnFramsóknarflokksins
Almennar umræður
Afgreiðsla mála
20.30- 23.30 Afgreiðsla mála
Mánudagur 15. nóvember
9.00-10.00 Nefndarstörf
10.00-12.00 Kosning 25 varamanna í miðstjórn Framsóknarflokksins
13.30 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri
Því er beint til flokksfélaga að kjósa fulltrúa á flokksþingið sem fyrst
og tilkynna það til skrifstofu Framsóknarflokksins s. 24480.
Alþingismenn, miðstjórnarmenn, formenn kjördæmissambanda og
formaður SUF eru sjálfkjörnir á flokksþingið.
Framkvæmdastjórn
Framsóknarflokksins
Bilaleigan\ §
CAR RENTAL
Q 29090
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsími: 82063
BREYTING Á LAUSASKULDUM
ÚTGERÐARFYRIRTÆKJA
Vegna fyrirhugaörar breytingar á hluta af vanskilum og lausaskuldum útgeröar í lán til lengri
tíma skulu fyrirtæki og einstaklingar, sem útgerö stunda og óska aðstoöar með ofangreindum
hætti senda hagdeild viðskiptabanka síns eða sparisjóði sínum umsókn um skuldbreytingu
studda eftirtöldum gögnum:
1. Lista yfir alla skuldunauta og lánadrottna pr. 30. sept. 1982.
2. Efnahags- og rekstrarreikningi fyrir árið 1981 ásamt sundurliðuðum lista yfir alla skuldu-
nauta og lánadrottna í árslok 1981.
3. Staðfestingu á vátryggingarverði fiskiskipa.
4. Nýju veðbókarvottorði fyrir eignir í rekstri, og yfirliti um eftirstöðvar áhvílandi veðskulda.
Umsóknir berist viðkomandi stofnun hið fyrsta og eigi síðar en 31. október n.k. Umsóknir
sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til meðferðar.
Reykjavík, 1. október 1982
A,\ 'ii i.
> v,
• A.íí'- ,
i'ifci ■
r
\SV>
SEÐLABANKI ÍSLANDS