Tíminn - 07.10.1982, Blaðsíða 6
Ifiiiíili
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982
stuttar fréttir
fréttir
— meinleg bilun í midbæjarstöð Pósts og síma
Sendiráð Bandaríkjanna og Ingólfs-
apótek, en starfsfólk þar hafði lítið
annað að gera í gær en að ansa í símann
fyrir fyrrgreind fyrirtæki og stofnanir.
Hjá bilanadeild Pósts og síma fengust
þær upplýsingar að erfiðlega hefði
gengið að finna bilunina, en sú leit stóð
mestan part dagsins í gær. Var þó búist
við því að símalínur yrðu komnar í samt
lag í dag.
-ESE
■ Meinleg bilun varð í miðbæjarstöð
Pósts og síma í gærdag. Olli bilunin því
að nær símasambandslaust var við öli
númer frá 29000 til 29999. Lentu mörg
stórfyrirtæki og stofnanir í miklum
erfiðleikum vegna þess arna, en bilunin
lýsti sér þannig að ef hringt var í ákveðið
númer, þá hringdi á allt öðrum stað.
Verst kom þetta ástand sér fyrir
Landspítalann sem hefur símanúmer
29000, en á skiptiborði Landssímans
fengust þær upplýsingar, loksins þegar
samband náðist, að þessi bilun hefði
komið sér ákaflega illa. Fólk hefði beðið
langtímum saman eftir sambandi og
loksins þegar það hefði fengist hefði það
verið frekar skapstirt og margir hefðu
hellt úr skálum reiði sinnar yfir fólkið á
skiptiborðinu.
Meðal annarra fyrirtækja sem lentu í
þessu „símaævintýri" voru Radíóbúðin,
Landssamband íslenskra útvegsmanna,
Nýr yffir-
læknir lyff
lækninga-
deildar
Borgar-
spítalans
■ Gunnar Sigurðsson, læknir hefur
verið ráðinn yfirlæknir lyflækningadeild-
ar Borgarspítalans frá og með 1. október
sl.
Gunnar Sigurðsson er fæddur í
Hafnarfirði 1942. Hann tók stúdents-
próf frá Menntaskólanum í Reykjavík
1962 og lauk kandidatsprófi við lækna-
deild Háskóla íslands 1968. Að aflokn-
um aðstoðarlæknisstörfum á sjúkrahús-
um í Reykjavík og Sauðárkróki stund-
aði hann framhaldsnám í London
1970-1975, að mestu leyti við Hammer-
smith sjúkrahúsið í London. Hann lauk
doktorsprófi við Lundúnaháskóla 1975.
Næstu tvö ár stundaði hann rannsóknar-
störf við Californiaháskóla í San
Francisco. Viðurkenndur sérfræðingur í
innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum
1976. Síðan 1977 hefur Gunnar starfað
í Reykjavík, fyrst við Rannsóknastöð
Hjartaverndar og síðan 1978 hefur hann
starfað við Lyflækningadeild Borgar-
spítalans og Landspítalans. Gunnar er
jafnframt dósent við læknadeild Há-
skóla íslands og hefur skrifað fjölmargar
greinar í innlend og erlend tímarit.
Hann er kvæntur Sigríði Einarsdóttur
píanókennara og eiga þau þrjú börn.
Sjö umsækjendur voru um stöðu
þessa. Gunnar tekur við af Þórði
Harðarsyni, sem skipaður hefur verið
prófessor við Háskóla íslands.
■ Gunnar Sigurðsson
Hringt í Landspítalann...
„INGÓLFSAPÓTEK
GÓÐAN DAGINN”
■ Einn, tveir og þrír... Fyrsti, annar og þriðji gír. Hitað upp fyrir „spymu“ á
brautinni í Kapelluhrauni.
Úrslitaspyrnan í
kvartmílukeppninni
síðasta kvartmilukeppni sumars-
ins sem gefur stig til Islands-
meistaratitils fer fram á
laugardag
Hagkvæmni
sykurverk-
smiðju eykst
með hækkuðu
sykurverði
HVERAGERÐI: „Þar sem sykur-
verð til neytenda hefur stórhækkað
að undanförnu hafa jákvæðar for-
sendur fyrir byggingu sykurverk-
smiðju í Hveragerði enn aukist",
segir í nýrri samþykkt Atvinnu-
málanefndar Hveragerðis. En á
fundi nefndarinnar var samþykkt að;
skora á alþingismenn að samþykkja'
framkomið frumvarp um sykurverk-
smiðju í Hveragerði.
Nefndin telur Ijóst að starfræksla
verksmiðjunnar verði þjóðhagslega
hagkvæm bæði vegna gjaldeyris-
sparnaðar og nýtingar þeirrar orku,
sem í áratugi hefur farið út í loftið í
Ölfusdal. Auk þess mundi verk-
smiðjan skapa stóraukin atvinnu-
tækifæri á Suðurlandi, sem talin er
full þörf á.
-HEI
Áhersla lögð á
sundlaugar-
byggingu á
Vonarlandi
AUSTURLAND: „í skýrslu for-
manns kom fram að málefni þroska-
heftra á Austurlandi hafa notið
sérstakrar fórnfýsi og velvilja al-
mennings. Gjafir sem borist hafa
bera þess gleggst vitni“, segir í frétt
af aðalfundi Styrktarfélags van-
gefinna á Austurlandi, sem haldinn
var. í Egilsbúð á Neskaupsstað s.l.
sunnudag.
Gjafir þær er minnst var á eru
25.000 kr. frá Samtökum austfirskra
kvenna í Reykjavík, sem renna eiga
til sundlaugarbyggingar við Vonar-
land og 5 þús. kr. frá Fáskrúðs-
firðingafélaginu í Reykjavík.
Á fundinum var samþykkt að
leggja áherslu á áframhald sund-
laugarbyggingarinnar við Vonar-
land. Kvað Bryndís Símonardóttir
forstöðumaður sundlaugina verða
heimilisfólki Vonarlands - sem nú
eru 10 manns - mjög kærkomna. En
að undanförnu hafi heimilisfólk
notið þess velvilja sveitarstjórnar
Egilsstaða að fá sundlaug staðarins
til afnota eftir því sem aðstæður hafi
leyft. Þá kom fram að fjárhagur
S.V.A. sé góður.
Aðalbjörg Magnúsdóttir, sem
gegnt hefur formannsstarfi í 6 ár og
Guðmundur Magnússon, fræðslu-
stjóri gengu nú úr stjórn S.V.A. í
þeirra stað voru kjörin: Sr. Davíð
Baldursson á Eskifirði og Sigríður
Halldórsdóttir kennari á Egilsstöð-
um. Aðrir í stjórn eru: Hulda
Bjarnadóttir á Neskaupstað, Krist-
ján Gissurarson á Eiðum og Björg
Blöndal á Eyðisfirði.
-HEI
Mótmæla
lækkun
verslunar-
álagningar
VESTFIRÐIR: Kaupmannafélag
Vestfjarða hefur samþykkt ein-
dregin mótmæli við þeirri skerðingu
verslunarálagningar sem ákveðin var
í nýgerðum efnahagsráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar. Benda þeir á að
smásöluverslun á landsbyggðinni
hafi verið rekin með umtalsverðum
halla á undanförnum árum, sem
viðurkennt hafi verið af stjórn-
skipuðum nefndum. Framangreind
lækkun álagningar komi því fyrst og
fremst niður á þjónustu við íbúa
landsbyggðarinnar.
Jafnframt er bent á að verðlags-
ákvæði torveldi beinan innflutning á
vörum og önnur stórinnkaup, sem
ávallt leiði til lægra vöruverðs til
neytenda.
Kaupmannafélagið beinir m.a.
þeim tilmælum til stjórnvalda að
ákvæði skattalaga um reiknaðar
tekjur vegna verðbreytinga verði
felld niður. Ákvæði þessi komi
þyngra niður á landsbyggðaverslun
en öðrum vegna mikils birgðahalds.
Jafnframt er minnat á fyrri sam-
þykktir félagsins: Um afnám sérstaks
fasteignaskatts á verslunarhúsnæði
og um að kostnaður vegna innheimtu
söluskatts verði greiddur. -HEI
■ Fimmta og síðasta kvartmílukeppni
sumarsins sem gefur stig til íslands-
meistaratitils, verður haldin á Kvart-
mílubrautinni í Kapelluhrauni við
Straumsvík laugardaginn 9. október og
hefst keppnin klukkan tvö eftir hádegið.
í síðustu kvartmílukeppninni sem
haldin var 25. september var óvenju góð
þátttaka og var keppnin hin fjörugasta.
Búist er við að keppnin nú verði ekki
síðri enda er von á mörgum keppendum
■ Þessa dagana er verið að senda út
og innheimta spurningalista vegna
rannsóknar á afkastahvetjandi launak-
erfum og tengslum þeirra við stöðu
kvenna á vinnumarkaðinum. Er
rannsóknin gerð fyrir tilhlutan Jafnrétt-
isnefndar
Norrænu ráðherranefndarinnar, en
rannsóknin er jafnframt styrkt af
félagsmálaráðuneytinu. Sambærileg
rannsókn er einnig gerð í Danmörku á
sama tíma.
Rannsóknin tekur til verkafólks í
fiskiðnaði, fataiðnaði og vefjaiðnaði og
er spurningalistinn sem sendur hefur
verið út gerður af Vinnuverndarhópn-
um. Verða listamir sendir til viðtakenda
og eru þar í hópi sumir þeirra sem síðast
urðu að hætta keppni vegna bilana og
ýmissa annarra óhappa. Ef svo fer sem
horfir má búast við þrælspennandi og
hörkufjörugri keppni þar sem barist
verður af hörku um hvert sekúndubrot
og um sigursætin í öllum flokkum.
Verðlaunaafliending fyrir tvær síð-
ustu keppnimar í íslandsmótinu verður
haldin um kvöldið, laugardaginn þann
9. október og hefst hún klukkan 21.00
í Hollywood.
í pósti og innheimtir á sama hátt, en það
skal tekið fram að listarnir eru ekki
auðkenndir á nokkum hátt og er það
m.a. gert til að tryggja nafnleynd.
Innviðir spurningalistans beinast
einkum að því að fá fram mismun á
vinnutíma og launum kynjanna, tengsl
launakerfis og heilsufars, ólík tengsl
kynjanna við vinnumarkaðinn og
heimilið, auk þess sem reynt er að varpa
ljósi á aðra þætti er kunna að hafa áhrif
á heilsufar og vinnutíma.
Vinnsla niðurstaðna fer fram í vetur,
en niðurstöður munu að einhverju leyti
liggja fyrir næsta vor, en niðurstöðumar
verða svo kynntar á almennum
vinnustaðafundum. -ESE
-ESE
Rannsókn á afkastahvetj-
andi launakerfum:
SPURNINGALISTAR
SENDIR TIL 20%
KVENNA r ÞREM
GREINUM IÐNAÐAR
■ Sumarfrí stóðu yfir og því engin böm í leikskólanum þeirra St.
Fransiskussystra í Stykkishólmi er Tímamaður leit þar við í sumar.
Systurnar hef ja
rekstur dagheimilis
í Stykkishólmi
STYKKISHÓLMUR: St. Frans-
iskussystur í Stykkishólmi hófu hinn
15. september s.l. rekstur dagheimil-
is, auk leikskólans sem systurnar
hafa rekið um árabil. „Með starf-
rækslu dagheimilis og leikskóla er
stefnt að því að eftirspurnin eftir
dagvistun barna í Stykkishólmi verði
að jafnaði fullnægt," segir Sturla'
Böðvarsson, sveitarstjóri í Stykkis-1
hólmi.
St. Fransiskussystur hafa nú rekið
barnaheimili í Stykkishólmi í 25 ár.
í fyrstu var starfsemin aðeins hluta
úr degi yfir veturinn, en hefur síðan
aukist með árunum. Árið 1960 hófu
systurnar rekstur sumardvalarheim-
ilis fyrir böm víðs vegar að af landinu
og hefur svo verið á hverju sumri til
þessa. En sá þáttur verður nú lagður
niður.
Nýtt hús fyrir barnaheimilis-
reksturinn var byggt í Stykkishólmi
árið 1970. Með tilkomu þess húss
hófu systurnar rekstur leikskóla yfir
allan vetur. Með breytingunni nú í
september hafa systurnar og hrepp-
urinn sameinast um rekstur dag-
heimilis og leikskóla sem verður
opinn allt árið að undanskyldum
einum sumarleyfismánuði. Hefur
húsnæði barnaheimilisins nú verið
endurskipulagt með hliðsjón af þeim
breytingum. -HEI