Fréttablaðið - 20.01.2009, Qupperneq 38
26 20. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. ullarband, 6. mannþyrping, 8. tæki,
9. andlit, 11. 950, 12. snjáldur, 14.
aldin, 16. átt, 17. flott, 18. trygging,
20. mun, 21. heiðursmerki.
LÓÐRÉTT
1. fjötra, 3. pot, 4. stjórnmál, 5.
angan, 7. hver og einn, 10. sjón, 13.
gogg, 15. sæla, 16. síðan, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lopi, 6. ös, 8. tól, 9. fés,
11. lm, 12. trýni, 14. hnetu, 16. sv, 17.
fín, 18. veð, 20. ku, 21. orða.
LÓÐRÉTT: 1. höft, 3. ot, 4. pólitík, 5.
ilm, 7. sérhver, 10. sýn, 13. nef, 15.
unun, 16. svo, 19. ðð.
„Ég hugsa allt öðruvísi. Þetta
afeitrar þig algjörlega, hugur-
inn opnast og á nýju ári er maður
alveg opinn fyrir öllu og mjög
jákvæður,“ segir Ásgeir Þór
Davíðsson sem flestir þekkja sem
Geira á Goldfinger.
Geiri er nýkominn úr fjórtán
daga ferð til Póllands, hress og
kátur og tíu kílóum léttari eftir
detoxmeðferð sem Jónína Bene-
diktsdóttir skipuleggur hjá pólsk-
um sérfræðingum. Óhætt er að
segja að þessi tuttugu manna
hópur sem Geiri var í hafi verið
litríkur. Þarna voru meðal ann-
arra Árni Johnsen þingmaður,
Gunnar Þorsteinsson, kennd-
ur við Krossinn, Friðrik Ómar
Eurovision-stjarna, Hera Björk
söngkona og Birgir Enni, ferða-
málafrömuður frá Færeyjum, svo
fáeinir séu nefndir. Geiri segir
stemninguna hafa verið eftir því.
„Það eru forréttindi að vera með
þessu fólki. Ég get sagt þér það
að það er bara eitt eintak af Árna
Johnsen í heiminum. Hann var
með gítarinn og náði upp þvílíkri
stemningu að þarna voru bara
allir farnir að syngja og dansa
bláedrú uppi á borðum. Ótrúlegur
stuðbolti.“
Einn eftirminnilegasti þáttur
ferðarinnar var messa sem Gunn-
ar í Krossinum hélt. Árni bauð upp
á gítarleik, Friðrik Ómar spilaði á
píanó og Hera Björk söng. Björn
Ingi í Kríunesi var meðhjálpari
en sjálfur var Geiri í hlutverki
altarisdrengs við messuhaldið.
„Já, eða kórdrengs. Ég las upp
úr Biblíunni. Fór með ritningar-
grein. Og fórst það vel úr hendi.
Enda má sjá á mynd að Gunnar
horfir stoltur á mig,“ segir Geiri
hlæjandi. „Og Friðriki Ómari
fannst þetta svo stórkostlegt að
hann stökk til og tók myndir. Svo
fóru flestir úr hópnum til Gunn-
ars og fengu blessun. Þar á meðal
ég og ég fann straumana renna
um mig. Beint frá Guði.“
Gunnar segir í DV í gær að hóp-
urinn hafi skilið eftir sig heila
persónu í klóakinu í Póllandi og
Geir telur það stemma hjá guðs-
manninum en þá stóra manneskju
því að meðaltali léttist hópurinn
um sjö kíló, eða samtals 140 kíló.
Friðrik Ómar var spurður hvort
Gunnar hafi reynt að afhomma sig
en Friðrik telur hann hafa gleymt
því, svo upptekinn hafi hann verið
af meðferðinni. „Hins vegar held
ég að Friðrik sé genginn í Kross-
inn. Allavega kominn með annan
fótinn þar inn. En, það ættu allir
að fara í svona ferð – yndisleg og
ekki var félagsskapurinn til að
skemma fyrir,“ segir Geiri.
jakob@frettabladid.is
GEIRI Á GOLDFINGER: ÉG FANN STRAUMA FRÁ GUÐI LEIKA UM MIG
Súlukóngur altarisdrengur
hjá Gunnari í Krossinum
ALTARISDRENGURINN KVEIKIR Á KERTUM Geiri kveikti á kertum sem kórdrengur og las ritningargrein. Gunnar í Krossinum fylgist
stoltur með og Friðrik Ómar festir þennan sögulega viðburð á mynd.
„Þetta er stór hátíð og ég hlakka
mikið til,“ segir kvikmynda-
gerðarmaðurinn Ólafur Jóhann-
esson en kvikmynd hans, Stóra
planið, verður meðal mynda á
kvikmynda hátíðinni í Rotterdam.
Sem þykir mikill heiður. Myndin
verður sýnd í svokölluðum spect-
rum-hluta en Ólafi til halds og
trausts verða meðal annars leik-
arar úr myndinni og framleiðend-
urnir Stefan Schaefer og Michael
Imperioli en sá síðarnefndi lék ein-
mitt glæpaforingjann Alexander í
Stóra planinu.
Imperioli þessi er þekktastur
fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt-
unum um Sopranos-fjölskylduna
sem sýndir voru á RÚV. Ólafi og
honum hefur orðið vel til vina og
íslenski leikstjórinn klippti meðal
annars stikluna fyrir kvikmynd
Imperioli, The Hungry Ghost, sem
einnig verður sýnd á Rotterdam-
hátíðinni. „Hann fékk ekki mikið
greitt fyrir framlag sitt til Stóra
plansins og mér fannst alveg sjálf-
sagt að launa honum greiðann með
þessum hætti.“
Leikstjórinn er ekki búinn að
taka ákvörðun um hvað hann
tekur sér næst fyrir hendur. Sögu-
sagnir hafa verið á kreiki um að
hann ætli að klippa Stóra plan-
ið í sjónvarpsþáttaröð en Ólafur
vísar því á bug, ekkert slíkt hafi
komið til tals. „Ég er bara að dúlla
mér hérna heima, er með handrit í
vinnslu og annað slíkt. En ekkert
hefur verið ákveðið.“ - fgg
Stóra planið til Rotterdam
Á STÓRRI KVIKMYNDAHÁTÍÐ Kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Stóra planið, verður
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam en hún er svokölluð A-hátíð.
„Þetta er bara eitt af áramótaheit-
unum mínum, að láta gott af mér
leiða á árinu 2009,“ segir hand-
knattleikskappinn Logi Geirs-
son en hann hyggst bjóða öllum
langveikum börnum í bíó á næst-
unni. Logi var ekki kominn með
nákvæma tímasetningu, vonaðist
til að þetta yrði einhvern tímann í
febrúar. Ásamt því að bjóða krökk-
unum í kvikmyndahús hyggst Logi
setja treyjuna sem hann notaði
í úrslitaleiknum á Ólympíuleik-
unum í Peking á uppboð og mun
allur ágóðinn renna til Umhyggju,
félags langveikra barna. „Mig
langar bara til að gefa af mér og
Umhyggja eru samtök sem ég vil
tengja mig við,“ útskýrir Logi.
Það vakti mikla athygli fyrir
fjórum árum þegar
Logi bauð hinum
tólf ára gamla Birgi
Valdimarssyni og
fjölskyldu hans út til
Lemgo og bauð þeim
á leik með sér. Birgir
hafði þá greinst með
hvítblæði og Logi vildi
með þessu leggja sitt af
mörkum. „Mig hefur alltaf lang-
að til að hjálpa þeim sem þurfa
kannski að liggja inni á sjúkra-
húsi í langan tíma og heimsókn
Birgis hvatti mig enn frekar til
þess,“ útskýrir Logi sem heldur
utan til Þýskalands í dag eftir
landsleikjatörn í bæði Svíþjóð og
Danmörku með stuttri við-
komu á Íslandi. - fgg
Logi býður langveikum börnum í bíó
SELUR TREYJUNA
Landsliðsbúningur-
inn sem Logi notaði
í úrslitaleiknum í
Peking verður seldur
á uppboði til styrktar
langveikum börnum.
„Ef ég hlusta á útvarpið hlusta
ég aðallega á Rás 1. Síðan er ég
líka með slökunartónlist fyrir
viðskiptavinina.“
Inga Louise Stefánsdóttir snyrtifræðingur.
Auddi Blö og
Sveppi undirbúa
nú nýjan sjón-
varpsþátt sinn
af kappi en hann
verður vikulega
á Stöð 2. Þeir
félagar ætla
að láta sig
þjóðfélagsmál
talsvert varða
umfram það
sem þeir eru þekktir fyrir. Grínar-
arnir ætla ásamt tökumanni að
taka púlsinn og blanda sér í hópinn
sem mótmælir við Alþingishúsið
við þingsetningu sem hefst upp úr
hádegi í dag – það er ef þingmenn
komast inn í húsið.
Þegar þau fréttu það,
útvarpsparið Heimir
Karlsson og Kol-
brún Björnsdóttir
í morgunþætti Bylgj-
unnar, að gamalmenni
á Bretlandseyjum
væru unnvörp-
um að geipsa
golunni úr kulda
einum saman brugðust þau skjótt
við og efndu til lopapeysusöfnunar
meðal landsmanna. Ekki er að sjá
að Íslendingar erfi hryðjuverkalög
sem Gordon Brown setti á Ísland
heldur sýna hlýhug sinn í verki
– heldur betur – því í Skaftahlíð-
ina hefur streymt fólk með heilu
pokana af lopapeysum. Mikið lopa-
peysufjall hefur myndast hjá þeim
Heimi og Kollu – fjall sem bíður
þess að sent verði til Englands.
Arnar Halldórsson var í viðtölum
á báðum sjónvarpsstöðvum eftir
að hann vann hetjudáð í brunan-
um á Klapparstíg. Það kom ekki
fram í viðtölunum að þetta er sami
Arnar og var í hljómsveitinni The
Boys með Rúnari bróður sínum á
síðustu öld. Arnar er nú 26 ára og
þegar hann er ekki vaðandi inn í
brennandi hús starfar
hann sem grafískur
hönnuður hjá Saga
Film. Fréttablaðið
greindi frá því að
einn íbúa hússins er
Sophia Hansen
sem mun hafa
misst allt sitt
í brunanum.
- jbg, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Auður Jónsdóttir.
2. 33 ára.
3. Með lest.