Tíminn - 26.10.1982, Side 1
Vinnuvaka kvenna um helgina - bls. 6
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Þriðjudagur 26. okt. 1982
243. tbl. - 66. árgangur.
Erlent
yfirllt:
Vidskiptahallinn á þessu ári mun nema um 10% af þjóðarframleidslu:
ðlllT FYRIR 13% SAM-
DRÁTT (OTFLUTNINGI
— á meðan innflutningur eykst um 8-10%, segir Dr. Gunnar
ðh<
Thoroddsen, forsætisráðherra
■ Horfur eru á að útflutningur
tslendinga muni minnka um 13% á
þessu ári, en í efnahagsspám sem
gerðarvoru í fyrrahaustvar talið að ná
mætti hallalausum utanrikisvið-
skiptum á þessu ári, þrátt fyrir að spáð
væri nokkurri rýrnun viðskiptakjara.
Þetta kom fram i stefnuræðu Gunnars
Thoroddsen forsætisráðherra, er hann
flutti í gærkvöldi.
Um leið og tekjur þjóðarinnar
minnkuðu, jókst innflutningur hröð-
um skrefum framan af þessu ári og
varð 8-10% meiri að magni til á fyrri
helmingi ársins en verið hafði árið á
undan.
Forsætisráðherra sagði, að það sé
nú eitt allra brýnasta verkefnið í
íslenskum efnahagsmálum að draga
svo skjótt sem auðið er úr hinum mikla
halla á utanríkisviðskiptum þjóðar-
búsins og eyða honum alveg á næstu
tveimur árum.
Sá viðskiptahalli sem við er að glíma
mun nema um 10% af þjóðarfram-
leiðslu þessa árs. Með þeim aðgerðum
sem ríkisstjórnin hefur ákveðið, er
mjög dregið úr viðskiptahallanum, og
er því stefnt með áframhaldandi gát á
þessu mikilvæga atriði að helminga
hallann þegar á næsta ári og eyða
honum alveg 1984. QÓ
aráSpárii
— bls. 7
Lélegar
kartöflur
— bls. 14
Menning-
armál
— bls. 11
Citizen
Kane enn
efstur
- bls. 23
■ Fyrsti blaðamannafundur sem fangar standa að á íslandi var haldinn á Litla Hrauni í gær. Var fundurinn haldinn í tilefni af útkomu plötunnar Rimlarokk
en það er fangahljómsveitin Fjötrar á Litla Hrauni sem gefur plötuna út. Meðfylgjandi mynd var tekin á blaðamannafundinum í gær og fremst á myndinni eru þrír
meðlimir hljómsveitarinnar, Halldór Fannar Ellertsson, Sævar Marinó Ciecielski og Rúnar Þór Pétursson. Sjá nánar bls. 4 - ESE/Tímamynd Róbert
STÖRSLYS SVIDSETT A
KEFLAVlKURFLUGVELU
— yfir eitt þúsund manns taka þátt í ímynduðu flugslysi
Ein stærsta björgunaræfíng sem
fram hefur farið hér á landi var haldin
á Keflavíkurflugvelli eldsnemma í
morgun. Sett var á svið flugsiys þar
sem 100 manns komu við sögu.
„Þetta verður með stærri björgunar-
æfingum sem almennt eru haldnar á
flugvöllum í heiminum,“ sagði Guð-
jón Petersen, framkvæmdastjóri Al-
mannavarna ríkisins í samtali við
Tímann í gær. „Það verður gert ráð
fyrir 100 fórnarlömbum, þar af þurfa
50 sjúkrahúsvistar við vegna mikilla
meiðsla en aðrir deilast nokkurn
veginn jafnt milli óslasaðra og lát-
inna,“ sagði Guðjón.
Guðjón sagði ennfremur, að starfs-
fólk sjúkrahúsanna í Reykavík fengi
ekki að vita um æfinguna fyrr en
fjörtíu mínútum áður en það þyrfti að
taka á móti „fórnarlömbunum“ 50,
þannig að það hefði í raun ekki meiri
tíma til undirbúnings en ef um
raunverulegt slys væri að ræða.
Heildarstjórn á björgunaræfingunni
var í höndum sameiginlegrar almanna-
varnamefndar Keflavíkurflugvallar,
með slökkviliðsstjóranná Keflavíkur-
flugvelli sem vettvangsstjóra. Aj-
mannavarnarnefnd Suðurnesja stýrði
aðstoð liðs og búnaðar af Suður-
nesjum. Starfsemin var að öðru leyti
samræmd af Almannavörnum ríkisins.
voru 16 deildir frá
á Keflavíkurflugvelli,
Þátttakendur
varnarliðinu
flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli,
flugvallarstjóri og starfslið hans,
lögreglan og starfslið Flugleiða og
^Fríhafnar. Auk þess tóku þátt í
æfingunni sveitir SVFÍ, hjálparsveitir
skáta, fiugbjörgunarsveitir og Rauða
kross sveitir, eða alls um eitt þúsund
manns.
- Sjó.