Tíminn - 26.10.1982, Side 10
10
NUÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
Til leigu JCB
traktorsgrafa með framdrifi.
Er til leigu alla daga vikunnar sími 14113.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 32., 37. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á
húseigninni Langdalshús, neðri hæð, Svalbarðseyri, þingl. eign
dánarbús Geirs Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Sveins H.
Valdimarssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. okt. 1982 kl. 14.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
PÓST- OG SlMA-
MÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
LOFTSKEYTAMANN/SÍMRITARA til starfa á
ÍSAFIRÐI.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmanna-
deild, Reykjavík og umdæmisstjóra ísafirði.
Startarar og Alternatorar
Fyrir:
Datsun
Toyota
Mazda
Galant
Honda
Land Rover
Cortína
Vauxhall
Mini
Allegro o.fl. enskar bifreiðar
Kveikjuhlutir fyrir japanskar bifreiðar. (Útvegum meö stuttum
fyrirvara diselvélar í Bedord c 330 cup) Ford D 4 cyl og BMC 4
cyl. með og án gírkassa.
Einnig ýmsa aðra varahluti í enskar vinnuvélar.
ÞYRILL SF.
Hverfisgötu 84
105 Reykjavik
Simi 29080
Bændur í
Rangárvallahreppi
og nágrenni
Veturgamalt mertryppi tapaðist úr girðingu á
Stóra Hofi í sumar. Litur: Brúnn eða verðandi
steingrár. Mark: Biti aftan hægra og biti fr. vinstra.
Vinsamlegast hringið í s. 24753 eða 66326.
LANDSSMIDJAN
Áuglýsiðí Timanum
Byggingarsamvinnu-
félagið Skjól
heldur aðalfund sinn í Vinnuskála félagsins að
Neðstaleiti í Nýja Miðbænum sunnudaginn 7.
nóv. n.k. kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Félagið hefur til endurúthlutunar eina þriggja
herbergja íbúð. Þeir félagsmenn er hafa áhuga
á að eignast hana sendi skriflega umsókn þar um
til skrifstofunnar, sími 85562 eða til B.S.F. Skjól
Álfheimum 44 Reykjavík, sem gefur allar frekari
upplýsingar.
Stjórn B.S.F. Skjói.
Framleióum
Fóðurblandarar:
1000 lítra blandari kr.
63.800 með 4 kw mótor
59.000,- án mótors.
1500 lítra blandari kr.
81.100.- með 7,5 kw mótor
71.600. - án mótors.
2000 lítra blandari kr. 92.400.
með 11 kw mótor 82.900.- án
mótors.
Hakkavélar:
Grófhakkavél (afköst 5-6
tonn per klst.) kr. 102.400.-
með 11 kw mótor.
Grófhakkavél (afköst 5-6
tonn per klst.) kr. 92.625,- án
mótors. Fínhakkari kr.
67.600. - með 7,5 kw mótor.
Fínhakkari kr. 58.755.- án
mótors.
Verðið semer ónsölu-
skatts er háð breyt-
ingum á verðlagi efnis
og vinnu.
LANDSSMKUAN
'Ci 20680
Sígildar gjafir
BIBLIAN
OG
Sálmabókin
Fást í bókaverslunum og
hjá kristilegu félögunum.
HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG
<f>iibbraiiböötofu
Hallgrímskirkja Reykjavlk
^ simi 17805 opið 3-5e.h. ^
mmnmg
Magnea Osk
Halldórsdóttir
Kjartansgötu 7, Reykjavík
F. 11. maí 1897
D. 16. okt. 1982
Þann 16. okt. s.l. lést að heimili sínu
í Reykjavík, Magnea Ó. Halldórsdóttir
ekkja Dagfinns Sveinbjörnssonar, sem
lengi starfaði við tæknideild Ríkis-
, útvarpsins.
Það eru meir en 50 ár síðan fundum
okkar bar fyrst saman austur á
Eyrarbakka, en þar bjó um það leyti
Anton bróðir hennar, sem var mikill
tryggðarvinur foreldra minna og síðar
mín og fjölskyldu minnar. Magnea var
ekki aðeins fríð sýnum, svo eftir var
tekið, heldur mótaðist öll framkoma
hennar af glaðlegu hispursleysi, svo
öllum leið vel í návist hennar.
Magnea Ó. Halldórsdóttir var fædd
11. maí 1897 að Helli í Ölfusi. Foreldrar
hennar voru hjónin Halldór Jónsson frá
Þorlákshöfn og Þuríður Magnúsdóttir
bónda Árnasonar í Vatnsdal í
Fljótshlíð. Foreldrar Halldórs voru
hjónin Jón Árnason frá Stóra-Ármóti í
Flóa og Jórunn Sigurðardóttir bónda
Magnússonar að Skúmsstöðum í
Vestur-Landeyjum. Sigurður á Skúms-
stöðum og Jón Árnason í Þorlákshöfn -
tengdasonur hans - voru kunnir
stórbændur og miklir athafnamenn á
síðari helmingi 19. aldar og fram yfir
síðustu aldamót. Börnin í Þorlákshöfn
voru mörg og er mikill ættbogi frá þeim
kominn.
Þegar Magnea var 6 ára gömul lést
Þuríður móðir hennar - sem var glæsileg
og góð kona. Við andlát hennar urðu 4
börn móðurlaus. Eftir það var heimilið,
sem þá var í Reykjavík, leyst upp.
Börnin dreifðust í fóstur til skyldmenna
sinna. Það er mikið áfall fyrir börn á
þessum aldri að missa móðurum-
hyggjuna. Sum bíða þess aldrei bætur.
Hjá öðrum myndast sár, sem seint gróa.
Magnea var fljótlega tekin í fóstur af
móðursystur sinni - Helgu Magnúsdótt-
ur og manni hennar Oddi Oddssyni
gullsmið og símstjóra á Eyrarbakka. Þar
fór vel um hana í myndarlegum
systkinahóp. Taldi Magnea það mikið
lán að lenda hjá því góða fólki eftir lát
móður sinnar.
Á Eyrarbakka hlaut hún barnafræð-
slu, eius og best var á þeim tíma.
Veturinn 1916-T7 var hún við nám í
mjólkurskólanum að Hvítárvöllum í
Borgarfirði, sem var raunar vísir að
kvennaskóla með bóklegu og verklegu
námsefni. Kennarar voru þau hjónin,
Grönfeldt mjólkurfræðingur og Þóra
Þorleifsdóttir kona hans. Nemendur
þennan vetur voru 10 og taldi Magnea
sig hafa haft mikil not af kennslunni þar.
Næstu sumur er hún rjómabústýra á
ýmsum stöðum t.d. að Beigalda í
Borgarfirði, Dalvík, en lengst f
Þykkvabænum 1921-1924. Að vetrinum
var hún við ýms störf í Reykjavík.
í Þykkvabænum kynntist hún eigin-
manni sínum - Dagfinni Sveinbjörnssyni
frá Díukoti. Þau voru gefin saman í
hjónaband 6. mars 1925 og áttu ætíð
heimili sitt í Reykjavík. Dagfinnur var
þjóðkunnur hæfileikamaður. Hann var
rafvirki og loftskeytamaður að menntun.
Varð yfirmaður tæknideildar útvarpsins
við stofnun þess 1930. Samdi all mörg
leikrit og óperettuna í álögum í félagi
við Sigurð Þórðarson tónskáld. Dag-
finnur andaðist 1974. Þeim hjónum varð
þriggja barna auðið. Elsta barnið -
Jórunni - misstu þau í frumbernsku, hin
eru Sveinbjörn ráðuneytisstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu og Anna, sem
verið hefur sjúklingur frá barnæsku.
Sveinbjörn er kvæntur Pálínu - dóttur
Staða bæjarstjóra
í Grindavík er laus íil umsóknar frá 1. apríl 1983
að telja.
Umsóknir um stöðuna óskast sendar forseta
bæjarstjórnar, Ólínu Ragnarsdóttur Ásabraut 7,
sími 92-8207, fyrir 1. des. n.k. og gefur hún
jafnframt frekari uppiýsingar.
Bæjarstjóri
hinna þjóðkunnu merkishjóna -
Vigdísar Steingrímsdóttur og Hermanns
Jónassonar fyrrv. forsætisráðherra. Eru
börn þeirra fjögur. Magnea hafði miklar
mætur á tengdadóttur sinni, enda
reyndist hún henni sérlega vel.
Ég gat þess í upphafi að ég hefði fyrst
séð Magneu á unglingsárum mínum
austur á Eyrarbakka. Mörgum árum
síðar átti ég eftir að kynnast henni betur,
þar sem hún bjó í áratugi í næsta'
nágrenni við tengdaforeldra mína í
Reykjavík og milli þeirra og Magneu
ríkti gagnkvæm vinátta.
Magnea naut hvarvetna mikillar
mannhylli. Hún eignaðist á langri ævi
marga góða vini, sem hún hélt tryggð
við ævina út. Jafnvel „stúlkurnar" úr
Hvítárvallaskólanum veturinn 1916-T7
héldu enn vináttusambandi við hana og
jafnvel börn þeirra. Einstaklingum sem
leigðu herbergi í íbúð hennar var hún
sem umhyggjusöm móðir, enda dvaldist
mörgum í húsi hennar. Þannig var hún
með afbrigðum vinföst og trygglynd og
sýndi oft í verki, að þessar fomu dyggðir
vildi hún rækta með öðram. Matth.
Joch. lýsti eitt sinn merkri konu á þessa
ieið:
„Áslrík og elskuð
atgerfiskona,
fögur sýnum
fróð og minnug,
sterk í stríði
fyrir sterka trú“
Mér finnst umsögn þessi vel geta átt
við, þegar Magneu Halldórsdóttur er
minnst. Atgerfi hennar og dugnaður var
mikili. Fríð sýnum og vel að sér um
menn og málefni. Glaðværð og hlýja
fylgdi henni jafnan. Hún vildi einatt láta
gott af sér leiða og sýndi oft að hún var
rausnarkona - mikillar ættar. Gestrisni
var henni í blóð borin, enda mikilhæf
húsmóðir, sem átti fallegt heimili og
veitti vinum sínum af þeirri rausn og
hjartahlýju, sem ekki gleymist.
Magnea var mikil móðir barna sinna
og lét sér annt um hag þeirra og veiferð.
Alveg sérstaklega mun öllum minnis-
stætt, hversu vel hún annaðist Önnu
dóttur sína. Snar þáttur í lífi Magneu
var umhyggjan fyrir henni. í áratugi
dvaldi hún á sumrin hjá vinafólki sínu
að Mel í Þykkvabæ, svo Anna gæti notið
ánægjulegri daga og betra umhverfis, en
kostur var á í Reykjavík. Er þetta mikil
saga um frábært móðurhlutverk, og ást
og umhyggju fyrir þeim, sem minna
mega sín. 1 Þykkvabænum á hún marga
vini og var þar jafna aufúsugestur.
Barnabörnin og börn þeirra voru
henni miklir sólargeisiar, sem hún
fylgdist vel með og unni heitt. Það var
henni því mikil gleði - rétt fyrir andlátið
- að ákveðið var, að - Hermann - elsta
sonarbarnið hennar, kæmi heim til
starfa á næstunni eftir langt og farsælt
nám í Bandaríkjunum.
Að leiðarlokum þökkum við hjónin -
Magneu Halldórsdóttur - fyrir vináttu ,
og tryggð í áratugi við okkur og
fjölskyldu okkar, og sendum vandam-
önnum hennar innilegar samúðarkveðj-
ur. Við erum þess fullviss, að:
„Við ævinnar lok ber ást og dyggð
sinn ávöxtinn þúsundfalda,
og Ijós þeirra skín í hjartans hryggð
svo liátt yfir myrkrið kalda. “
Minningin lifir um mæta konu.
Dan. Agústínusson