Tíminn - 11.11.1982, Side 2
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1982.
i^Umsjón: B.St. og K.L.
í spegli tímans
GULL-GYÐJURNAR
sem kvikmyndaframleidendur gátu alltaf treyst á
GULLGYÐJURNAR -
hverjar eru þær? jú, kvik-
myndaframleiðendur hafa sín
á milli gefið þeim kvikmynda-
stjömum það nafn, sem aUtaf
halda þeim myndum uppi sem
þær leika í.
í gegnum árin hafa þær
margar hverjar verið eins og
segull, sem dregur fólk að tU
að sjá þær á hvíta tjaldinu, og
hver mynd sem þær komu
nálægt möluðu gull.
Nýlega átti kvennablað í
Englandi hálfrar aldar afmæli,
og var þá rifjað upp í máU og
myndum margt sem gerst hafði
á þessum árum. Þar á meðal
var drepið á sögu kvikmynd-
anna, og leikkonur, sem ekki
gleymast, þar voru fyrst nefnd-
ar Gréta Garbo og Gloria
Swanson. Þær em báðar enn á
lífi, hátt á áttræðisaldri, Garbo
felur sig sífellt fyrir umheimin-
um, en Gloria heldur áfram að
vera stórstjama í Hollywood,
og liggur við að hún sé orðin
þjóðsagnapersóna þar.
Marilyn Monroe er ein
þjóðsagnapersónan, þótt hún
hafi ekki náð háum aldri. Hún
var sögð hafa svo milúl áhrif á
karlmenn, að jafnvel þeir, sem
sáu hana aðeins í svip, svo sem
þjónar eða leigubilstjórar,
urðu ástfangnir af henni. Ein
sagan segir frá því, að þegar
hún ferðaðist eitt sinn með
flugvél, hafi flugþjónn, ungur
og huggulegur, komið tU henn-
ar og vUjað fá að færa henni
einhvem góðan mat. - Hvað
má ég færa þér, stcik eða
hamborgara? - Ekkert, þákka
þér fyrir, svaraði stjaman; ég
verð að gæta að línunum. -AUt
í lagi, Ijúfan, þú skalt borða,
en ég skal aðgæta línumar
þínar, sagði þjónninn og horfði
á hana aðdáunarorðum.
Héma sjáum við gamlar og
nýjar myndir af nokkmm af
þessum GULLGYÐJUM
svona tU upprifjunar.
■ Elizabeth Taylor - Sumir
segja að fegurð og leikhæfUeik-
ar fari sjaldan saman, en hún
hefur verið kölluð ein fegursta
kona í heimi og hefur ótviræða
leikhæfileika, um það ber
öUnm sainan.
■ Brooke Shields er stundum
nefnd sem arftaki Elizabethar
Taylor að fegurð, en hvort hún
er eins mikU leikkona mun
tíminn leiða í Ijós.
■ Fimm af hinum góðu, gömlu „gullgyðjum“, sem aldrei
bmgðust: Greta Garbo hin dularfulla, Marlene Dietrich með sína
æsandi dimmu söngrödd og fögra fætur, Joan Crawford, hin
herðabreiða með „spæleggaugun“, sem krafðist alltaf að komið
væri fram við sig eins og hún væri drottning, Vivien Leigh sem
frægust varð sem Scarlett O’Hara í myndinni „Gone With the
Wind“, en var reyndar þekktust sem sviðsleikkona í heimalandi
sínu, Englandi og Grace KeUy, sem framtíðin blasti við, þegar
hún gaf leikkonufrægð sína upp á bátinn og giftist prinsinum
eins og í ævintýrinu.
Þessar stjömur vom í hópi þeirra, sem héldu fjármálunum uppi
hjá kvikmyndafyrirtækjunum, - og bankarnir lánuðu óspart tU
framkvæmda, þegar þeirra nöfn komu við sögu.
■ Marilyn Monroe - það fyigdu henni óviðjafnanlegir töfrar,
segja þeir sem henni kynntust, en hvort þeir urðu henni tU gæfu
er önnur saga.
■ Betty Grable var mjög
vinsæl á stríðsárunum og árun-
um þar á eftir. Hún sagði:
„Það em tvær góðar ástæður
fyrir vinsældum mínum, - og
ég stend á þeim“. Hún tryggði
fætur sína fyrir of fjár.
■ Raquel Welch ma segja að sé
dæmigerð guUgyðja. Hér er vinsæl
mynd af henni, sem notuð var í
auglýsingu. Á henni er hún í
gylltum kjól, sem feUur að líkam-
anum og sýnir vel línumar.
■ Bo Derek - nýjasta guUgyðj-
an. Maður hennar, John Derek
framleiðir hverja myndina á fætur
annarri og mokar inn peningum.