Tíminn - 11.11.1982, Page 5
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1982.
fréttir
Blandid andrúmsloft fyrir kosningu forseta FIDE:
„EKKI ALLIR SAGT SATT
IIM HVERN ÞEIR STYÐJA
— segir Gudmundur G. Þórarinsson
■ „Það má segja að baráttan hjá okkur
standi hvað hæst í dag,“ sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson, í viðtali við
Tímann í gær, en Guðmundur, ásamt
þeim Gunnari Gunnarssyni, forseta
skáksambandsins, Þorsteini Þorsteins-
syni og Friðþjófi Karlssyni unnu í gær
og reyndar þessa síðustu daga með
Friðrik Ólafssyni, forseta FIDE að
endurkjöri hans, en kosning til for-
setaembættisins fer fram í Luzern í dag.
„Staðan er nú heldur óljós eins og er,
það verður að segjast eins og er,“ sagði
Guðmundur, „en málið er það að allir
frambjóðendurnir eru mjög bjartsýnir,
þannig að ef lagt er saman það sem þeir
halda allir að þeir fái, þá eru svona 150
atkvæði útkoman, en það eru ekki nema
119 til 120 þjóðir sem mega greiða
atkvæði, og við höldum að þar af muni
ekki nema 110 til 115 þjóðir greiða
atkvæði! Það er því alveg ljóst að ekki
hafa allir sagt til um hvem þeir hyggjast
styðja, þannig að það má eiginlega segja
að þetta sé einskonar „holiday for liars"!
Palestína tekin inn í FIDE
Aðalfundur FIDE hófst í gærmorgun,
en þar stýrir Friðrik Ólafsson, forseti
FIDE að sjálfsögðu fundi, og er því
óneitanlega mikið í sviðsljósinu. Guð-
mundur var að því spurður hvað hefði
helst gerst á fundinum í gærmorgun:
„Skáksamband Palestínu var í morgun
tekið inn í FIDE og hefur þess vegna
kosningarétt. Eins og vitað er, þá eru
Palestínumenn landlausir, en mér tókst
að afla mér vitneskju um að sá sem fer
með atkvæðisrétt þeirra, hann hefur
búsetu í Líbýu, en Líbýa vinnur hér fyrir
Campomanes. Annað athyglisvert atvik
sem kom hér upp í dag, er að Bólivía,
Suður-Ameríku, hefur skuldað FIDE
svo mikið, að skáksambandið hefur ekki
haft kosningarétt. Sambandið skuldar
FIDE 3300 svissneska franka. Á fundin-
■ Guðmundur G. Þórarinsson, „Friðrik er öruggur uppúr fyrri umferðinni en við
vitum ekki hvað gerist í þeirri seinni.“
um í morgun Iýsti Campomanes því yfir
að þessi skuld Bólivíu yrði greidd, og að
staðfest umboð myndi berast um að
Bólivía mætti kjósa. Það lítur því út fyrir
að Campomanes ætli að borga þessa
skuld til þess að fá þetta atkvæði. Það
er altalað hér að Campomanes hafi eytt
4 til 5 hundruð þúsund dollurum í þessa
kosningabaráttu sína, enda eru litprent-
aðir bæklingar af honum og heimalandi
hans bókstaflega út um allt héma. Ég
veit ekki hvort það er tilviljun, en við
flugum hingað með Swiss Air og frá
flugfélaginu fengum við ákaflega fallegt
kynningarrit, en það er allt um Filipps-
eyjar. Okkur þótti þetta óneitanlega
hálfundarlegt. Þá hefur Campomanes
verið iðinn við að láta dreifa stórum
barmmerkjum sem eru sérstaklega
merkt honum og úti um öll hótel hanga
stór pláköt með myndum af honum. Það
er því greinilegt að hann leggur geysilega
mikið undir.“
írar, Skotar og
Englendingar með
íslendingunum
- Nú sagðir þú í gær Guðmundur að
þú mætir stöðuna sem svo að Friðrik ætti
vís um 50 atkvæði í fyrstu umferð, hvað
segja aðrir stuðningsmenn Friðriks, og
þá á ég við íra eða Skota t.d.?
„íramir, Skotamir og Englendingarn-
ir hafa unnið hvað mest með okkur að
framboði Friðriks, þó það séu margar
aðrar þjóðir einnig sem aðstoða okkur.
Ég bað írann að meta stöðuna og hann
telur að Friðrik fái 50 atkvæði í fyrstu
umferð, Campomanes 40 og Kazic 12,
en 14 atkvæði séu enn óljós, þannig að
alls em þetta 116 atkvæði. Þetta er því
mjög svipað og við höfum metið
stöðuna. Júgóslavarnir segjast hins vegar
hafa 38 atkvæði örugg í fyrri umferðinni,
sem myndi þýða það, að hann færi upp
í aðra umferð.“
Guðmundur sagði jafnframt að kosn-
ingin hæfist kl. 8.30 í dag, að íslenskum
tíma og sagði hann að kosningin hæfist á
því að allir frambjóðendurnir myndu
halda stutta framboðsræðu, sem tæki
aðeins þrjár mínútur.
Uganda styður ísland
Guðmundur sagði að allt væri í
rauninni logandi í koktailboðum fyrir
kosningarnar í dag, og þar slægi Cam-
pomanes öll met, því hann hefði haldið
mörg boð og margar veislur. Friðrik
hefur ekki að sama skapi verið iðinn við
veisluhöldin, heldur stundað störf sín
sem forseti FIDE af miklum móð. í
gærkveldi var þó haldið koktailboð til
stuðnings Friðrik Ólafssyni. Það var
Uganda sem stóð fyrir því boði, en
Uganda styður framboð Friðriks.
Uganda reyndi í gærkveldi að aðstoða
Friðrik með því að bjóða löndum eins
og Angóla, Botswana, Kenya, Zambíu,
Zimbawe, Zaire, Senegal, Marokkó og
Kuwait í boðið til þess að reka áróður
fyrir Friðrik. í þessu sama boði voru
íslendingarnir, frarnir, Skotarnir og
Englendingarnir, og ráku þeir þar með
smiðshöggið á kosningabaráttuna fyrir
Friðrik.
„Vitum ekki hvað gerist
í seinni umferðinni“
Guðmundur var spurður hvort hann
og aðrir stuðningsmenn Friðriks væru
svartsýnni nú þegar að kosningu væri
komið, en þeir hefðu verið í fyrradag:
„Við teljum að Friðrik sé öruggur uppúr
fyrstu umferðinni, en við vitum náttúrlega
ekki hvað gerist í seinni umferðinni. Við
erum þó hóflega bjartsýnir á að Friðrik
vinni þetta - maður þorir náttúrlega ekki
að segja of mikið, því ekki eru allir
viðhlæjendur vinir. Það er svolítið erfitt
að átta sig á því þegar verið er að ræða
við marga þessara Afríku- Asíu- og
Suður-Ameríkubúa, hvort þeir meina
það sem þeir eru að segja manni.“-AB
Bók um Nínu Tryggvadóttur:
I krafti og birtu
Nína Tryggvadóttir telst í hópi
fremstu myndlistarmanna landsins fyrr
og síðar og er nú komin út bók um líf
hennar og list. Þar er að finna listprent-
anir af málverkum frá öllum skeiðum
listferlis Nínu.
lceland Review gefur bókina út, og er
frumútgáfan á ensku og nefnist N.
Tryggvadóttir - Serenity and Power.
Samtímis kemur bókin út á íslensku með
titilinn: Nína - í krafti og birtu. Er
íslenska útgáfan í dreifingu hjá Bóka-
klúbbi Almenna bókafélagsins. Samstarf
Iceland Review og Almenna bókafélags-
ins um þessa útgáfu er hliðstætt því sem
var um Kjarvalsbókina í fyrra. Bókin
um Nínu er í sama broti - og eru þessar
tvær bækur vísir að stærri flokki um
íslenska listamenn.
I bókinni um Nínu er inngangur eftir
Halldór Laxness, en Hrafnhildur
Schram, listfræðingur, skrifar megin-
texta bókarinnar og hún hafði og umsjón
með myndvali. Hefur bókin að geyma
58 litmyndir af málverkum, glermyndum
og mósaikverkum listakonunnar. Auk
þess er þar að finna svart-hvítar myndir:
teikningar, grafik og myndir af listakon-
unni sjálfri.
■ Haraldur J. Hamar, útgefandi, Hrafnhildur Schram, sem samdi megintexta
bókarinnar, og Guðjón Eggertsson, hönnuður.
Sparisjóður
Keflavíkur
75 ára:
Afmælis-
bók
komin út
■ Sparisjóðurinn í Keflavík var
stofnaður 7. nóvember 1907, og varð
því 75 ára sl. snnudag.
Aðalhvatamenn að stofnun Spari-
sjóðsins í Keflavík voru þeir Þorgrím-
ur Þórðarson læknir í Keflavík og sr.
Kristinn Daníelsson prestur að Út-
skálum.
Þeir voru á meðal helstu forvígis-
manna á Suðurnesjum á sínum tíma
og sátu m.a. báðir á Aiþingi um
árabil. Auk þeirra voru 10 aðrir
framáinenn á Suðurnesjum sem
stóðu að stofnun sparisjóðsins, en í
dag eru ábyrgðarmenn Sparisjóðsins
í Keflavík 30 talsins.
Vegna sívaxandi starfsemi sjóðsins
eru húsakynni hans í Kcflavík orðin N
mjög þröng og óhentug t.d. fer
starfsemin fram á þrem stöðum, því
var fyrir nokkru tekin ákvörðun um
að reisa nýtt hús fyrir starfsemina og
var hafist handa um það á s.l. ári.
Vegna óvissuástands í fjármálum
í þjóðfélaginu hefur framkvæmdum
verið frestað um sinn.
í tilefni aímælisins, hefur saga
Sparisj^óðsins verið skráð frá upphafí
og kom sú bók út á afmælisdaginn.
45 starfsmcnn starfa við Sparisjóð-
inn í Keflavfk í dag. Sparisjóðsstjórar
eru: Páll Jónsson og Tómas Tómas-
son. Stjórn Sparisjóðsins skipa: Mar-
teinn Árnason, Finnbogi Björnsson
og Jón H. Jónsson.
Þrjú tilboð í
Grjótagötu 9
Þrjú tilboð í húseignina Grjótagötu
9 voru lögð fram á fundi borgarráðs í
gær. Langhæsta tilboðið sem hljóðaði
upp á 600 þús. kr. var frá Snorra
Snorrasyni, en hið næsta var sem næst
450 þús. kr. Þriðja tilboðið var
töluvert lægra. Ekki var tekin afstaða
til þess í gær hvaða tilboði yrði tekið,
en mjög líklegt er að hæsta tilboð verði
ofaná, enda langhæst.
Skólagarðar
f Skerjaf irði
Að tillógu Hafliða Jónssonar, garö-
yrkjustjóra Reykjífvikurborgar, sam-
þykkti borgarráð Reykjavíkur á fundi
sínum í gær að komiö yrði upp
skólagörðum við suðurenda Súðurgötu
við Skerjafjörð næsta sumar.
Ævintýraheimurinn
★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★
Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta
VIDEO SPORT
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 33460.
Opiðalla daga
kl. 13.00-23.00