Tíminn - 17.11.1982, Side 1
Frá 18. flokksþingi Framsóknarflokksins — bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Síðumúla15 -Pósthólf 370Reykjavík-
fspegii
tímans:
Nasstassja
Kinski
— bls. 2
Hallæris-
leg heim-
koma
— bls. 19
Vetrar-
tískan
— bls. 12
S-ji ,< é~
Getrauna-
leikurinn
— bls. 13
TUGMILUÓNATJÓN í
ÓVEÐRINU í GÆRDAG
— Metersdjúpt vatn á bílastæðum,
og menn fóru ferda sinna á árabátum í Hrísey
■ Tugmilljónatjón varð í ofsaveðrinu
sem gekk yfir landið sl. sólarhring. Á
Sauðárkróki og í Hrísey varð gífurlegt
tjón vegna flóða og á Siglufirði urðu
verulegar skemmdir af sömu sökum.
Mjög vont veður var um mest allt
landið í gær, en verst var það þó
norðanlands. Þar skall sánnkallað
ofsaveður á snemma morguns og við
sjávarströndina gekk sjór á mörgum
stöðum á land.
Á Sauðárkróki urðu hafnarmann-
virki illa úti. Miklar skemmdir urðu á
húsakynnum Fiskiðjunnar þar sem
sjór komst í frystigeymslur og undir
gólf. Hjallar fóru í rúst þegar sjór gekk
yfir þá og þrjár trillur sukku í höfninni,
auk þess sem dekkbátur eyðilagðist.
Talsvert tjón varð af völdum óverð-
ursins á Siglufirði. Mannvirki hreins-
uðust af öldubrjótnum, skemmdir
urðu á fiskvinnslustöðvum og sjór
flæddi um flestar götur á Eyrinni.
í Hrísey varð milljónatjón vegna
■ Sótsvartur snjóbylur var um mest allt land í gxr og færð því mjög slæm.
Tímamymd Ella
flóða, en þar skemmdust bæði hús og
vélar, auk sjávarafurða. 25 sentimetra
djúpur sjór var á götum þorpsins og á
einstaka bílastæðum var allt að meters-
djúpur sjór.
— Við urðum að fara á árabátum
milli húsa við björgunarstarfið sagði
Sigurður Arngrímsson, sóknarprestur
í Hrísey í samtali við Tímann.
Mestar skemmdir urðu hjá bygging-
arfyrirtækinu Björk hf.,saltfiskverkun-
arstöð og dijá Kaupfélaginu. Sjór
korn.st í saltfiskbirgðir og skreiðar-
birgðir og er Ijóst að þar hafa orðið
gífurlegar skemmdir.
— Það er okkar eina von að
Viðlagasjóður bæti okkur þetta tjón,
sagði Björgvin Pálsson hjá Björk hf. í
samtali við Tímann. Björgvin sagði að
þetta hefðu verið hreinar náttúru-
hamfarir og fæstir hefðu þá sértrygg-
ingu sem þyrfti í tilfellum sem þessum.
Mikil ófærð var víða um land vegna
óveðursins og var ástandið verst
norðanlands þar sem flest allir vegir
voru ófærir.
Lægðin sem veldur óveðrinu sem nú
er víða á landinu mun í dag fjarlægjast
landið og vindur mun víðast hvar
ganga niður samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar. Sjá nánar bls. 3.
—ESE/SJÓ
.
Ríki og Reykjavíkurborg krafin bóta í prófmáli
45 húseigenda í Árbæjarhverfi:
KREFJAST 7 MILUÓNA
VEGNA FLÖTU ÞAKANNA
■ „Ég byggi aðalkröfu mína á því,
að byggingaryflrvöld Reykjavíkur og
teiknistofa Húsnæðisstofnunar ríkisins
séu samsek að því leyti hvernig frá
þökum á húsum þessum er gengið,“
sagði dr. Gunnlaugur Þóðarson, hæst-
aréttarlögmaður í viðtali við Tímann í
gærkveldi, í tilefni að því að hann í gær
og í fyrradag birti fyrir hönd eins
íbúans við Hraunbæ, borgarstjóra,
fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra
og formanni Húsnxðisstofnunar ríkis-
ins stefnu í prófmáli þar sem krafist er
bóta vegna viðgerðarkostnaðar og
miska sem íbúar í allt að 45 húsum við
Hraunbæ hafa orðið fyrir, vegna flatra
þaka. Upphæð sú sem húseigendurnir
krefja um er samtals tæpar 7 milljónr
króna.
„Samkvæmt siðareglum lögmanna
þá eiga þeir ekki að fjalla um mál þau
sem þeir sækja eða verja á þessu stigi,“
sagði dr. Gunnlaugur, „en í þessu
tilviki tel ég þó rétt að greina að
einhverju leyti frá málavöxtum."
í máli dr. Gunnlaugs kom fram að
fólk sem býr í svokölluðum garðhúsum
við Hraunbæ, kom að máli við hann
og fór þess á leit að hann höfðaði mál
fyrir hönd þeirra 45 húseigenda sem
hér um ræðir, en húsbyggjendum
hafði verið gert, þegar þeir byggðu
hús sín 1965 að hafa flöt þök. Sagði
hann að flest húsin hefðu verið teiknuð
á teikinstofu Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins. Hér væri því um sameiginleg
mistök borgarinnar og Húsnæðisstofn-
unar að ræða - borgin hefði sett
kvöðina á, og Húsnæðisstofnun hefði
teiknað húsin með flötu þökunum.
Síðar hefði borgin svo aflétt þessari
kvöð, og leyft að væri risþök á húsin.
Sagði dr. Gunnlaugur að dómskvaddir
matsmenn hefðu verið fengnir til þess
að meta kostnað við að setja risþak á
húsin 45, sem hefðu lekið nánast frá
upphafi, og hefðu þeir metið að
kostnaðurinn væri 115 þúsund krónur.
Sagðis dr. Gunnlaugur auk þess gera
kröfu um að hverjum húseigenda yrðu
greiddar 40 þúsund í miskabætur,
þannig að samtals ætti hver húseigandi
að fá 155 þúsund krónur. Eins og fram
kemur hér að lraman var stefnan birt
í gær og fyrradag en málið verður
þingfest þann 23. þessa mánaðar.-AB