Tíminn - 23.11.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.11.1982, Blaðsíða 1
Allt um íþróttavidburói helgarinrtar - bls. 11-14 TRAUSTOG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Þriðjudagur 23. nóvember 1982 267. tölublað - 66. árgangur Forstjóri Alusuisse fundar um ágreiningsmál vid íslensk stjórnvöld: „OPNARIFYRIR VWRÆÐUM UM HÆKKUN RAFORKUVERÐS” - segir dr. Gunnar Thoroddsen,forsætisráðherra -Annar viðrædufundur aðila ákveðinn ■ „ÞaðerljóstaðAlussuisseernúmikluopnara fyrir efnislegum, alvarlegum viðræðum um lausn á þessum ágreiningsmálum m.a. varðandi hækkun á raforkuverðinu, heldur en fyrirtækið hefur verið áður,“ sagði Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra þegar Tíminn spurði hann hvað honum og dr. Paul Miiller, forstjóra Alusuissc hefði farið á milli, á fundi þeirra í gærmorgun. „Við ræddum almennt um sam- skipti Alusuisse og Islands, og stöðu álverk- smiðja og markaðshorfur fyrir ál í heiminum,“ sagði forsætisráðherra jafnframt. Mng- manna- spjall - bls. 8 Vind- myllu- akur - bls. 2 ■ Þrátt fyrir vinsamlegar viðræður íslenskra og svissneskra aðila, þá gengu viðræðuaðilar af fundi úr Ráðherrabústaðnum í gær í tveimur aðskildum fvlkingum. Fyrst fóru Alusuissemenn, fyrir framan eru þeir Halldór Jónsson og dr. Paul Muller, og fyrir aftan koma aðstoðarmaður dr. Múiler og Ragnar Halldórsson. Þá gengu fulltrúar iðnaðarráðuneytisins á braut - fyrir framan eru þeir Vilhjálmur Lúðvíksson og Hjörleifur Guttormsson, og fyrir aftan eru þeir Ingi R. Helgason og HaUdór Kristjánsson. Tímamyndir - Róbert „Af okkar hálfu var að sjálfsögðu ýtt mjög fast á hækkun raforkuverðs- ins, sem meginmál í sambandi við endurskoðun samninga, og við því fengust ekki nein ákveðin viðbrögð á þessu stigi, en á það mun reyna á næsta fundi,“ sagði Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra að loknum fundi hans og Paul Múller, forstjóra Alusuisse, sem stóð með hléum frá kl. 10.30 í gærmorgun og framundir kvöldmat. „Nei, endurskoðun á raforkuverði var ekki uppistaðan í viðræðum okkar í dag,“ sagði dr. Paul Muller, forstjóri Alusuisse aðspurður í samtali við Tímann. „Raforkuþátturinn í heild var til umræðu og einnig fleiri atriði," sagði dr. Muller. Báðir aðilar voru á því að ekki væri hægt að segja að þokast hefði í samkomulagsátt á fundinum í gær. Taldi iðnaðarráðherra að á það myndi reyna á næsta fundi, þann 6. og 7. desember nk. hvort hægt yrði að gera sér vonir um lausn deilumála og alvörusamninga varðandi framtíðina. Aðspurður um hvort iðnaðarráð- herra liti á fund forsætisráðherra með dr. Múller sem afskipti af samninga- málum hans við Alusuisse, svaraði hann: „Ég hef ítrekað borið saman bækurnar við forsætisráðherra um málið, og mér var fyllilega kunnugt um að hann og Múller myndu ræðast við. Það er því fjarri því að verið sé að fara á bak við mig.“ -AB íbúar í nágrenni verkstædisins sem brann í fyrrinótt: VORUÐU m ELDHÆTTU, EN EKKI HLUSTAÐ A ÞA ■ „Við teljum enga sérstaka hættu fyrir nágrennið stafa af húsinu og starfsemi sem í því er,“ segir m.a. í bréfi sem borgarráði barst frá eidvarn- areftirUtinu og bygginganefnd, þegar fjallað var um óskir íbúanna í nágrenni bílaverkstæðisins við Þjórsárgötu 9 í Skerjafirði, um að verkstæðið yrði Ijarlægt og húsið rifið. Sem kunnugt er brann verkstæðið um miðnættið í fyrrinótt, eldtungur stóðu út um glugga þess og svo mikill var bjarminn að hann sást víða í Reykjavík. „Það segir sig sjálft að það er ótækt að láta svona hjalla standa inni í miðju íbúðahverfi," sagði Páll Bragi Krist- jónsson, einn íbúanna í nágrenni bílaverkstæðisins í samtali við Tímann. „Ef vindur hefði verið vestan- stæður þegar eldurinn braust út þarf ekki að spyrja að leikslokum," bætti Bragi við. „Málið er að hér í hverfinu hafa allir verið skelfingu lostnir vegna þessarar starfsemi," sagði Ingibjörg Hjálmars- dóttir, íbúi í húsinu við Þjórsárgötu 7, sem er næsta hús við bílaverkstæðið. -Sjó Sjá bls. 5 ■ Allt tiltækt siökkviliö var kallað út þegar kviknaði í bireiðaverkstæöinu Þjórsárgötu 9 í fyrrinótt. Tímamynd: G.E.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.