Tíminn - 17.12.1982, Side 1
„Með allt á hreinu” frumsýnd á morgun - bls. 14-15
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 17. desember 1982
288. tölublað - 66. árgangur
■ „Yið höfum ákveðið að stefna
a.m.k. Sjónvarpinu vegna þessa máls
og það má vel vera að við stefnum
einnig Félagi íslenskra hljóðfæra-
lcikara,“ sagði Valgarður Guðjóns-
son, söngvari rokkhljómsveitarinnar
Fræbbblarnir í samtali við Tímann.
Forsaga þessa stefnumáls er sú að
FÍH innheimti greiðslur hjá Sjónvarp-
inu fyrir þátt Fræbbblanna í þættinum
sem gerður var um Melarokk- hátíðina
í sumar. Voru þetta 8590 krónur sem
skiptast áttu á milli fimm liðsmanna
hljómsveitarinnar. Það næsta sem
gerist svo er að FÍH greiðir hljómsveit-
inni 709 krónur og segir að mismunur-
inn hafi verið tekinn upp í vangoldin
félagsgjöld.
-Þetta er alveg fráleitt af FÍH, sagði
Valgarður Guðjónsson. - Við létum
skrá okkur í FÍH þegar hljómsveitin
byrjaði fyrir mörgum árum og
þá tóku þeir af okkur smá félagsgjald.
Síðan þá höfum við ekki litið á okkur
sem félagsmenn, og engar kröfur hafa
komið um félagsgjöld fyrr en nú er þeir
hafa þessa peninga af okkur. Við lítum
svo á að Sjónvarpið hafi enga heimild
haft til að greiða FÍH okkar hlut í
þættinum og við munum því í fyrstu
umferð fara í mál við Sjónvarpið.
Síðan má vel vera að við förum einnig
í mál við FÍH, sagði Valgarður
Guðjónsson.
Þess má geta að Dr. Gunnlaugur
Þórðarson er lögfræðingur Fræbbblanna
í þessu máli og er búist við að það verði
tekið fyrir um miðjan janúar.
I Þá er þessari orrustu í lífsstríðinu lokirt og kominn tími til að setja upp sigurtáknii
stúdentshúfuna. Myndin er tekin í gær í Safnaðarheimili Grensássoknar við útskriftarathöl
nýstúdenta úr Ármúlaskólanum.
Tímamvnd Kóhe
Erlent
yfirlit
Skæru-
verkföll
— bls. 7
ARNIR
ÆTLA f
MAL vid
SJÓNVARPIÐ
Kvenna-
gullið
- bls. 2
Dagur
íliffi
— bls. 10
Grín-
kóngur
— bls. 27
Vandi útgerdarinnar:
SKUIDBREYTlNaN FEKKST
SAMÞYKKT MB SKIYRÐUM
Vextir á afurdalánum hækka ur 29% í 33%
■ Seðlabankinn hefur samþykkt að
sú skuldbreyting sem nú verður fram-
kvæmd á skuldum útgerðarinnar verði
miðuð við 10% af tryggingarverði
skipa í stað þeirra 7% sem ákveðin
höfðu verið. Olíuskuldum útgerðar-
innar verður jafnframt skuldbreytt.
Þetta fékkst í gegn eftir að ríkisstjórnin
hafði samþykkt á ríkisstjómarfundi
að hækka vexti á afurðalánum úr 29%
í 33%.
- Seðlabankinn hélt því fram í
þessu máli að það væri það mikið
útstreymi á lánum vegna þessara lágu
afurðavaxta, að það væri ómögulegt
að miða skuldbreytinguna við hærri
prósentutölu en 7%. Við féllumst á
þessa rökfærslu og eftir að ríkisstjórnin
hafði ákveðið að hækka vextina á
afurðalánunum, þá gekk þetta mál í
gegn, sagði Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra í samtali við
Tímann.
Steingrímur sagði að Seðlabankinn
hefði jafnframt lofað að endurskoða
lán sín út á skreið, þannig að þau
hækkuðu eitthvað, en varðandi olíu-
skuldirnar sagði Steingrímur að athug-
un þar að lútandi væri ekki lokið.
- Vandinner, sagði Steingrímur,
- að olíuskuldum var skuldbreytt sl.
vor með annarri vísitölu en nú er
fyrirhugað og þetta kann að valda
vissum vandræðum. Ég mun a.m.k.
ræða við útgerðarmenn nánar um
þessa framkvæmd, sagði Steingrímur
Hermannsson.
- Við fögnum því náttúrlega að það
sé búið að afgreiða þetta skuldbreyting-
armál og að olíuskuldirnar skuli hafa
verið teknar inn í, sagði Kristján
Ragnarsson formaður LlÚ er Tíminn
ræddi við hann. Kristján sagði að þetta
mál væri búið að dragast lengi, en fyrst
það væri loksins leyst þá væri ekki
nema gott eitt um það að segja.
—ESE