Tíminn - 17.12.1982, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1982
5
fréttir
Alþingi: » .
FRUMVARP AD STJÖRNARSKRA
LAGT FYRIR ALÞINGI (JANÚAR
■ Stjórnarskrárnefnd stefnir að því að
Ijúka greinargerðum fyrir áramót og
senda þingmönnum og fjölmiðlum oe
gert er ráð fyrir að frumvarp að nýrri
stjórnarskrá verði lagt fyrir Alþingi
þegar þing kemur saman á ný eftir
jólafrí í janúarmánuði. Þetta kom fram
hjá Gunnari Thoroddsen, forsætisráö-
herra og formanni stjórnarskrámefndar,
á Alþingi í gær.
-Ég hef gert ráð fyrir,“ sagði forsæti-
ráðherra „að meðferð þessa frumvarps
hljóti eðlilega þinglega meðferð, að
kostnar verði sérstakar stjórnarskrár-
nefndir beggja deilda og að þær vinni
saman þegar eðlilegt þykir. Ef vel er
unnið og vilji er fyrir hendi ætti að vera
hægt að afgreiða málið á fjórum til sex
vikum. Brýn nauðsyn er að kynna málið
rækilega og tel að fjölmiðlar muni gegna
þeirri skyldu sinni að kynna það alþjóð.
-Mín stefna er sú að það Alþingi sem
nú situr afgreiði frumvarp að nýrri
stjórnarskrá, þar með taldar breytingar
á kjördæmaskipan. Ég held að það sé
hægt og vænti þess að nægilegur meiri-
hluti þingmanna sé á sama máli, svo að
þetta geti orðið að veruleika.
Forsætisráðherra tók fram að stjórnar-
skrárnefndin hafi ekki gert tillögur um
endanlega lausn á kjördæmamálinu, en
skýrsla sú sem nefndin hefur sent
þingmönnum um valkosti ætti að vera
nægilega traustur grundvöllur til að
þingmenn gætu myndað sér skoðanir á
málinu. Hann sagði að öllum væri
kunnugt um að formenn stjórnmála-
flokkanna hafi haldið fundi um kjör-
dæmamálið, en sér væri ekki kunnugt
um að þeir hefðu náð samkomulagi um
neina ákveðna lausn málsins.
Vilmundur Gylfason vakti máls á
kjördæmamálinu utan dagskrár og lagði
nokkrar spurningar fyrir forsætisráð-
herra um stjórnarskrármálið, en hann
efaðist um að unnt væri að afgreiða það
á þessu þingi, þar sem það liggur í
loftinu, eins og þingmaðurinn orðaði
það, að jólafrí hæfist á laugardag.
Þing kemur saman aftur 17. jan. og
verður hugsanlega rofið um miðjan
febrúar og kosningar fara fram í apríl.
Vilmundur vildi fá að vita hvað hæft væri
í að samkomulag hafi verið í uppsiglingu
um lausn kjördæmamálsins á milli
þriggja flokka, en Framsóknarflokkur
og ónefndur þingmaður hafi ekki tekið
þátt í þeim viðræðum, sem hann taldi
að raunar væru sprungnar í loft upp
núna. Sagðist hann óttast að til hafi
staðið að þríflokkarnir sem að samnings-
makki stóðu hafi ætlað að böðla málinu
gegnum þingið í tímahraki og næði það
engri átt þegar um svo mikilvægt mál
væri að ræða.
Enn er hægt að
hoppa með Vakfli-
mar og Magnúsi
Þeir félagar hafa gefið út snældu
með morgunleikf imiprógrömmum
■ Útgáfustarfsemi hvers konar
er siður en svo ný af nálinni hér
á landi, nú fyrir jólin, sem
endranær á þeim árstíma, þykir
mörgum keyra um þverbak í
þeim efnum. Það hefur þó ekki
gerst áður hér á landi að Ieikfimi
þættir væru hljóðritaðir og gefn-
ir út, en það hefur einmitt gerst
nú, að þeir félagarnir Valdimar
Örnólfsson og Magnús Péturs-
son, sem um 25 ára skeið sáu um
morgunleikfimi útvarpsins, hafa
gefið út snældu með völdum
leikfímiþáttum, þar sem Valdi-
mar leiðbeinir í leikfimi, og
Magnús Ieikur undir af sinni
alkunnu snilld.
-En hvað fær mennina til þess að
ráðast í svona útgáfu - Valdimar verður
fyrir svörum: „Við Magnús ákváðunt
þegar við loksins fengum að hætta í
útvarpinu, að gefa út snældu með
morgunleikfimiprógrömmum okkar, til
þess að þeir sem verið höfðu með okkur
a morgnana, gætu haldið áfram undir
okkar leiðsögn og ættu um leið upptökur
með þeirri morgunleikfimistemmingu
sem var í okkar þáttum. Snældan er
þannig upp byggð, að á annarri hliðinni
eru þrír 10 mínútna langir þættir,
misjafnlega erfiðir, þannig að þar er
eitthvað við allra hæfi. Eru þetta valdir
þættir frá liðinni tíð í Morgunleikfim-
inni, og á hinni hliðinni er 30 mínútna
prógramm með öllum nauðsynlegustu
æfingum, fyrir alla vöðva líkamans."
-Hvernig viltu svo að fólk noti þessa
snældu? „Það er ósköp einfalt mál.
Hingað til hefur fólk aðeins haft útvarp-
ið, en nú getur það tekið snælduna fram
þegar best hentar og farið í leikfimi, -
annað hvort í 10, 20 eða 30 mínútur.
Nú bíðum við Magnús bara og sjáum
hvort að fólkið sem skoraði á okkur að
ráðast í þetta framtak, stendur við orð
sín og kaupir snælduna, en við gefum
hana út í 1000 eintökum. Ef ekki, þá
vitum við hvað við þurfum að gefa í
jólagjafir næstu 20 árin!
Snældunni hefur verið dreift í hljóm-
plötu - íþrótta, og bókaverslanir og
kostar hún 260 krónur.
-AB
■ „Brauð handa hungruðum heimi“
■ Svokallaður fórnardagur kirkjunnar
er n.k. sunnudag og þá munu prestar
minnast nauðstaddra hér á jörð og
hvetja fólk til að láta af hendi rakna
andvirði einnar máltíðar á „degi föstunn-
ar“ til styrktar starfsemi Hjálparstofn-
unar kirkjunnar. Eins og undanfarin ár
gengst Hjálparstofnun á jólaföstunni
fyrir söfnun undir yfirskriftinni „Brauð
handa hungruðum heimi“.
Söfnunarfé verður varið á tvennan
hátt. Annars vegar til hjálparstarfs í
Súdan, en þar er Hjálparstofnunin í
samstarfi við hjálparstofnun norsku
kirkjunnar í stóru uppbyggingarverkefni
sem staðið hefur í allmörg ár og skilað
góðum árangri. Er þar um að ræða
margvísleg verkefni í samgöngumálum,
mennta- og heilbrigðismálum. Tveir
íslendingar eru nú starfandi þar syðra
við hjúkrunar- og ráðgjafastörf.
Einnig mun Hjálparstofnun halda
eftir hluta fjárins og nota til neyðarhjálp-
ar, en daglega berast henni hjálpar-
beiðnir fyrir milligöngu Alkirkjuráðsins
og Lútherska heimssambandsins vegna
hungursneyða, náttúruhamfara, sjúk-
dóma o.s.frv. Hjálparstofnunin hefur
áhuga á að leggja sitt af mörkum til
þessara þarfa og helst auka sinn hlut en
það er auðvitað undir skilningi almenn-
ings og stjórnvalda komið hvort svo má
verða.
- JGK
Maraþontónleikar SATT
Ekki átta
sinnum
dýrara
að framkvæma
viögerd á bát
stærri en ÍOO
rúmlestir, en á
bát undir
ÍOO rúmlestum
■ I blaðinu á miðvikudag var frétt í
Tímanum þar sem fjallað var um það
hvort grundvöllur væri fyrir að fella
niður skyldutryggingu á fiskiskipum
undir 100 rúmlestum. M.a. var vitnað trl
skýrslu Páls Sigurðssonar forstjóra Sam-
ábyrgðarinnar og sagt á einum stað:
„Bendir Páll á að meðalverð bátanna
yfir 100 rúmlestir sé átta sinnum hærra
en þeirra skyldutryggðu en fáum detti í
hug að það sé átta sinnum dýrara að
framkvæma t.a.m. bolviðgerð á trébát
en stálbát.“ Vegna þessa hafði Páll
Sigurðsson samband við blaðið og vildi
koma því á framfæri að það sem hann
hefði átt við væri að fáum dytti í hug að
það væri átta sinnum dýrara að fram-
kvæma þessa viðgcrð á bát yfir 100
rúmlestum, en undir 100 rúmlestum. Er
þessu hér með komið á framfæri.
HEIMSMET SETT I
TÓNABÆ í KVÖLD!
■ Klukkan 23 í kvöld verður sett
heimsmet í Tónabæ á vegum SATT,
Samtaka alþýðutónskálda og - tónlistar-
manna. Heimsmet þetta sem fært verður
í heimsmetabók Guiennes er í lengsta
samfellda hljómleikahaldi sem um getur,
en gamla metið sem hljóðaði upp á
þrettán sólarhringa og níu klukkustundir
var sett í V-Þýskalandi árið 1968.
Þegar heimsmetið verður sett í kvöld
verður hljómsveitin Pungo og Daisy
nýbúin að Ijúka leik sínum og þunga-
rokkshljómsveitin Centour tekin við.
Centour mun síðan leika til fimm í
fyrramálið, en þá tekur hljómsveitin
Carpini við og leikur til klukkan 13. Það
verður svo hljómsveitin Sonus Futurae
sem rjúfa mun hálfs mánaðar múrinn kl.
14, en þá hafa hljómsveitir á vegum
SATT leikið samfleytt í fjórtán sólar-
hringa. Aðrar hljómsveitir sem leika
munu um helgina eru, Baulandi bakter-
ía, Englabossar, Lego, Vonbrigði, Upp-
lyfting, Tridon, Dron, sem bar sigur úr
býtum í Músiktilraunum ogTrúðurinn,
en síðast talda hljómsveitin sem hefja
mun leik klukkan tvö á aðfararnótt
mánudags ætlar að reyna við nýtt
íslandsmet og leika á meðan nokkur er
uppistandandi í hljómsveitinni. Fyrra
metið var 24 klukkutímar sett fyrr í
þessari viku.
Til að fagna nýju glæsilegu heimsmeti
verður haldinn heimsmctsfagnaður
SATT í veitingahúsinu Broadway nk.
sunnudag og hefst hann klukkan 19. Þar
munu koma fram hljómsveitirnar Egó,
Stuðmenn, Sonus Futurae og Þeyr, en
allur ágóði af þessum fagnaði og öðru
því sem SATT hefur tekið sér fyrir
hendur að undanförnu rennur óskipt til
byggingar happdrættis samtakanna. ESE
ÞAÐER SEGIN SAGA,BÆKURNAR FRÁ BRAGA
Lækjargata, Hlemmur, Breiðholt
Sendum í póstkröfu burðargjaldsfrítt, sími 29311
HLEMMUR LÆKJARGATA 2 ARNARBAKKA 2
s. 29311 s. 15597 s. 71360