Tíminn - 21.12.1982, Qupperneq 5

Tíminn - 21.12.1982, Qupperneq 5
5 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 fréttir Einar Ólafsson, forstjóri Cargoiux, lætur af störfum: NYIR FJARMOGNIIN ARAÐILAR KOMA Nl) INN í FYRIRTÆKK) ■ Einar Ólafsson, sem verið hefur forstjóri flugfélagsins Cargolux í Lux- emborg undanfarin ár, lét í gær af því starfi. Við stöðu hans tekur sænskur stjórnarmaður flugfélagsins, Sten Grot- enfeldt. Samkvæmt heimildum Tímans hefur allt verið á suðupunkti innan Cargolux að undanfömu. Fyrirtækið þurfti að segja upp fjölda manns í ágúst í sumar sökum rekstrarvanda og það hefur legið í loftinu að segja þyrfti enn fleiri upp. Þá hefur Cargolux lengi verið með aðra af Boeing 747 flutningaþotum sínum á söluskrá. Hefur slæm rekstrarstaða fyrir- tækisins orðið til þess að nú hefur verið tekin ákvörðun um að auka hlutafé og taka jafnvel nýja aðila inn í fyrirtækið. Mun þessi ákvörðun vera runnin undan rifjum þeirra sænsku, luxemborgsku og arabísku aðila sem standa að Cargolux og eru forstjóraskiptin liður í þeim breytingum ssem gerðar verða, en Flugleiðir sem eiga hlut í Cargolux munu ekki auka hlutafjáreign sína né leggja fram aukið fjármagn til reksturs fyrirtækisins. ■ Þótt jólasveinar séu vanir hinum verstu veðrum á hálendinu Iáku sultar- droparnir í stríðum straumum úr nefinu á þeim í óveðrínu á laugardag. Hér bregða þeir sér inn í biðskýlið við Hlemm um stund og eru hlýjunni fegnir. Timamynd ELLA. Jóni Baldvins- syni reistur minnisvardi ■ í gær voru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns Baldvinssonar, sem á þriðja áratug var formaður Alþýðuflokksins og forseti Alþýðusambands íslands. Alþýðuflokkurinn og A.S.I. hafa í því tilefni ákveðið að reisa Jóni Balvins- syni minnisvarða í þakklætisskyni fyrir brautryðjendastörf hans í þágu ís- lenskrar alþýðu. Ágúst Guð- mundsson hlýtur viður- kenningu ■ Ágústi Guðmundssyni leikstjóra var sl. föstudag veitt viðurkenning Menning- arsjóðs félags leikstjóra á íslandi fyrir störf að kvikmyndaleikstjórn. Þessi viðurkenning er nú veitt í þriðja sinn, og nemur hún að þessu sinni 13.500 krónum. Er þetta í fyrsta sinn sem kvikmyndaleikstjóra er veitt þessi viður- kenning. Gamanmál og fleira gaman í ísafold og Nýja kökuhúsinu ■ Þeir Valur Gíslason og Bessi Bjarna- son, leikarar munu í dag kl. 17.30 koma fram í Bókaverslun ísafoldar og Nýja kökuhúsinu í tilefni af útkomu bókarinn- ar Valur og leikhúsið eftir Jóhannes Helga. Valur mun árita bók sína, en Bessi fer með gamanmál úr bókinni, 211 gamanmál eftir Jóhannes Helga. Auk þess verður vísnasöngur á milli gaman- mála hjá Bessa. Fööurland vort hálft er hafiö Út er komið annað bindi hins mikla ritverks Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska sjávarhætti, en fyrsta bindi þess kom út 1980 og hlaut mikla athygli og viðurkenn- ingu. Meginkaflar þessa bindis eru: Verstöðvatal, íslenski árabáturinn, Vertíðir, Verleiðir og verferðir, Verbúðir og Mata og § mötulag. í bátakaflanum eru 363 myndir, smíða- teikningar og yfirlitsteikningar báta, skýringamyndir og Ijósmyndir. Ókunnugt er, að fyrr eða annars staðar hafi því efni verið gerð viðlíka skil. Alls eru í bókinni 482 myndir, þar af milli 50 og 60 litmyndir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.