Tíminn - 30.12.1982, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
3
fréttir
■ Þetta hús þarfnast 2ja milljóna króna kápu eigi það ekki að grotna niður og verða ónýtt á nxstu árum. í þessu tilviki borga Reykvíkingar skaðann sameiginlega. En
margir þeirra munu standa frammi fyrir áþekkum vandamálum vegna eigin húsa nú og á næstu árum. Tímamyndir G.E.
Lögregl-
an gerir
„kínvetja”
upptæka!
■ Meira hefur borið á alls-
kyns hvellsprengjum - kínverj-
um öðru nafni - nú fyrir
áramótin en oftast áður. Lög-
reglan í Reykjavík fór á stúfana
í gær og gerði upptækt talsvert
af sprengjum af flugelda-
útsölum í borginni.
„Þessum hvellsprengjum
hefur verið komið fyrir í póst-
kössum víða í bænum og þær
hafa eyðilagt talsvert af pósti.
Einnig höfum við orðið óvenju
mikið varir við þær í miðbæn-
um,“ sagði Bjarki Eiíasson,
yfirlögregluþjónn við Tímann.
„Híngað til hefur hvellsprengjum
verið smyglað til landsins, aðallegu
með skipum frá Þýskalandi, en nú
bregður svo við, að einhverjir innflytj-
cndur hafa komið þeim á markað án
þess að leggja fram rétt sýnishorn
við hiutaðeigandi yfirvóld,“ sagði
Bjarki cnnfremur.
Þegar Bjarki var spurður hvaða
innflytjendur hann ætti við sagði hann
að Hjálparsveitir skáta, sem eru stærsti
innflytjandinn, kæmu þar ekki við
sögu. Að öðru lcyti kvaðst hann ekki
sjá ástæðu til að greina frá þvi.
-Sjó.
Ráðast þarf í tveggja milljón króna viðgerð áVist-
heimili barna við Dalbraut vegna alkalískemmda:
„ÞETTA HÚS LÍT-
UR HRODALEGA ÚT
— segir Stefán Hermannsson, forstöðumaður
byggingadeildar borgarinnar
■ „Þetta hús lítur hroðalcga út og
mikil viðgerð sem þarf að fara fram á
því“, sagði Stefán Hermannsson for-
stöðumaður byggingadeildar Reykjavík-
urborgar. En Tíminn hafði samband við
hann vegna svohljóðandi ummæla borg-
arstjóra í ræðu á síðasta borgarstjórnar-
fundi. „Sýnt er að ráðast þarf í miklar
endurbxtur á Visthcimili bama við
Dalbraut, þvi húsið liggur undir
skemmdum".
„Þetta er hluti af hinu fræga alkalímáli
- eitt versta tilfelli sem við höfum. Allir
útveggir á húsinu eru mjög illa farnir.
Kostnaðaráætlun okkar við viðgerðir
hljóðar upp á um tvær milljónir króna
(miðað við verðlag á næsta ári -
byggingarvísitölu 1800) og er þá miðað
við allsherjarklæðningu á húsið utan-
vert“, sagði Stefán.
Ekki kvað hann húsið þó farið að leka
enn sem komið er. En þar sem vatn
komist inn í steypuna sé bendistál farið
að ryðga og ryðið sé farið að leka út um
sprungumar. „Haldi slfkt áfram endar
það ekki með öðru en að svona hús
hreinlega molni niður“, sagði Stefán. kvað hann flest búið að klæða að utan
Þau önnur hús í borginni sem orðið hafa nú þegar.
fyrir álíka miklum alkalískemmdum -HEI
*
■ Niður undan gluggunum renna ryðtaumarnir og á veggnum hér má sjá gott
sýnishom þess sprungunets sem þekur alla útveggi hússins er hýsir Vistheimili bama
við Dalbraut í Reykjavík. Virðist því síður en svo ofsagt að húsið - sem aðeins cr
15-16 ára - liggi undir skemmdum.
Brotist inn í
flugeldasölu
skáta í
Kópavogi
■ Brotist var inn í flugeldasölu skáta í
Kópavogi í fyrrinótt. Lögreglan varð vör
við þjófana og elti þá upp í Breiðholt
þar sem þeim tókst að komast undan.
Hinsvegar urðu þeir að skilja við þýfið
sem lögreglan náði, eina sjö poka af
flugeldum.
-FRI
Flugelda-
sýning
pylsu-
vagnsins
— Hrafn
Gunnlaugs*
son stjórnar
■ í dag mun Pylsuvagninn gangast
fyrir flugeldasýningu á Arnarhóli og mun
Hrafn Gunnlaugsson stjórna henni.
íþróttafélagið KR leggur til flugeldana.
Eftir borgarstjórnarkosningarnar í
vor voru þeir heiðursmenn Hrafn og
Ásgeir eigandi pysluvagnsins handteknir
fyrir flugeldahúllumhæ á svipuðum slóð-
um sem m.a. nærri kveikti í Stjórnarráð-
inu en samkvæmt heimildum Tímans
mun þessi flugeldasýning ekki beinast að
því mæta húsi.
-FRI
Ávfsanafals upp
á 52 þúsund kr.
írannsókn
á Akureyri
■ Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur nú til rannsóknar ávísanafals upp
á 52 þúsund kr. að sögn Ófeigs Baldurs-
sonar fulltrúa rannsóknarlögreglunnar
komu tveir menn í tvær verslanir þar
skömmu fyrir jól. Keyptu þeir sjónvarp
í annarri og myndsegulband í hinni og í
báðum tilvikum borguðu þeir með
falsaðri ávísun samtals áð upphæð 52
þúsund kr.
Enn hefur ekki tekist að hafa upp á
mönnunum og eru allar upplýsingar sem
leitt geta til lausnar málsins velþegnar.
-FRI
Sigldi á trillur
og sökkti einni
■ Vélbáturinn Klængur ÁR 2 frá
Þorlákshöfn sigldi á nokkrar trillur við
Verbúðabryggj umar undan Kaffivagnin-
um í Reykjavíkurhöfn, stórskemmdi
nokkrar og sökkti einni þeirra.
Þessi atburður átti sér stað síðdegis í
fyrradag og var Klængur þá að koma úr
slipp í Bátanausti í Elliðavogi. Er hann
kom að bryggjunum mun bakgír báts-
ins hafa bilað með fyrrgreindum afleið-
ingum.
-FRI
„Hef ekki skilað
tilkynningu
í prófkjörið”
— segir Guðmundur G.
Þórarinsson, alþingismaður
Sakadómur f ávana* og
fíkniefnamálum:
Málafjöldinn minnk
að f rá því í fyrra
— en mun minna af gömlum
málum tekin fyrir f ár
■ „Ég hef ekki skilað þátttökutilkynn-
ingu í prófkjörið og ég sé enga ástæðu
til að ræða það nánar að svo stöddu,"
sagði Guðmundur G. Þórarinsson, al-
þingismaður þegarTíminn spurði hann
hvort hann ætlaði ekki að taka þátt í
prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík
vegna komandi alþingiskosninga.
U m ástæðumar fyrir þessari ákvörðun
sinni vildi Guðmundur ekkert segja og
þegar hann var spurður hvort hún þýddi
að afskiptum hans af stjórnmálum væri
lokið svaraði hann: „Það eina sem má
hafa eftir mér er að ég sé ekki ástæðu
til að ræða þessi mál nánar. Það er fréttin
sem þið fáið,“ sagði Guðmundur. -Sjó.
■ Guðmundur G. Þórarinsson.
■ Málafjöldinn hjá sakadómi í ávana-
og fíkniefnamálum varð 255-60 í ár
miðað við 294 mál sem komu til
meðferðar hjá dómnum í fyrra en þetta
er minnkun um nær 40 mál á milli
áranna.
Ásgeir Friðjónsson sakadómari í
ávana- og fíkniefnamálum sagði í
sarritali við Tímann að helstu ástæður
þessarar minnkunar væru þær að ekki
hefði verið um nærri eins mörg gömul
mál sem tekin hefðu verið upp í ár og á
sama tíma í fyrra og taldi hann að
málafjöldi nýrra mála hjá dómnum í ár
hefði verið svipaður og í fyrra.
„Vegna þessara gömlu mála sem við
unnum í fyrra varð tala mála hjá okkur
þá nokkuð óraunhæf,, sagði Ásgeir.
„Við höfum unnið þessi gömlu mál að
mestu upp og því safnaðist lítið fyrir af
þeim í ár og löguðum við þannig stöðuna
hjá okkur“. _FRI