Fréttablaðið - 03.02.2009, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2009 11
Gott að vita
Námskeið og fyrirlestrar á vegum SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgarvorönn 2009
Ná
ms
kei
ð ••• Ljósmyndun – minni og stærri vélar Minni vélar: Þri. 3., 10. og 17. feb. kl. 16:30-19:30.Stærri vélar: Þri. 3., 10. og 17. mars kl. 16.30-19.30.Lengd: 9 klst. Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð.Leiðbeinandi: Pálmi Guðmundsson, áhugaljósmyndari.
Skapandi skrif
– um frásagnarlistina sem tæki til að
skapa, skilja og skemmta
Skapandi skrif, framhald
– um frásagnarlistina sem tæki til að
skapa, skilja og skemmta
Tími: Þri. 24. feb, 3. og 10. mars kl. 19-22:30.
Lengd: 10,5 klst.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur.
Fjármál
Tími: 17., 18., 24., 25. og 31. mars
Kl. 16.30- 19.00
Lengd: 5 skipti, 12,5 klst.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð.
Leiðbeinandi: Garðar Björgvinsson fjármálaráðgjafi.
Tími: Þri. 24., 31. mars, & 7. apríl kl. 19-22:30.
Lengd: 10,5 klst.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur.
Skattaframtal
Tími: Þri. 18. mars kl. 16.30-19.
Lengd: 2,5 klst.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Júlíus Hafsteinsson,
deildarstjóri hjá skattstjóranum í Reykjavík.
Stafganga
Tími: 22., 27., 29. apríl og 4. og 6. maí kl. 18-19
Lengd: 5 klst.
Staður: Fyrsti tími er á Grettisgötu 89, 1. hæð og hinir
í Laugardalnum.
Leiðbeinandi: Halldór Hreinsson,
stafgöngukennari og göngufararstjóri m.m.
Enska – þátttaka í umræðuhópum
Tími: 27. og, 29., april, 4., 6., 11., 13. maí,
kl. 16.30 - 18.30
Lengd: 6 skipti, 12 klst
Staður: Grettisgata 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Mica Allen.
Hagfræði á mannamáli
Tími: 25. febrúar kl. 16:30-18:30
Lengd: 2 klst.
Staður: Grettisgata 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Þórunn Klemenzdóttir þjóðhagfræðingur.
Mínir styrkleikar skapa minn árangur
– Dale Carnegie
Tími: 12. mars, kl. 19:30 – 21:30
Lengd: 2 klst.
Staður: Grettisgata 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Lára Óskarsdóttir Dale Carnegie
þjálfari og ráðgjafi.
Að takast á við breytingar
Tími: 2. apríl, kl. 16:30-19:30
Lengd: 2 klst.
Staður: Grettisgata 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Gísli Blöndal.
Viðbrögð við reiði og sorg
í samfélaginu!!
Tími: Fim. 26. feb. kl. 16:30- 20:30
Lengd: 4 klst.
Staður: Grettisgata 89, 1. hæð
Leiðbeinandi: Eyþór Eðvalds, Þekkingarmiðlun
Hádegis- og síðdegisfróðleikur
Hláturjóga
Tími: Fös. 13. feb. kl. 12:00-12:50.
Miðvd. 18. feb kl. 16:30 -17:30
Lengd: 50 mín.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð.
Fyrirlesari: Ásta Valdimarsdóttir.
Jafnrétti
Tími: Fös. 13. mars kl. 12:00-12:50.
Lengd: 50 mín.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð.
Fyrirlesari: Gyða Margrét Pétursdóttir.
Ferðalög innanlands
Tími: Fös. 17. apríl kl. 12-12:50
Þri. 21. apríl kl. 16:30-17:20
Lengd: 50 mín.
Staður: Grettisgötu 89, 1. hæð.
Fyrirlesari: Páll Ásgeir Ásgeirsson.
SFR Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
www.sfr.is www.strv.is
Sími 525 8340 Sími 525 8330
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Skráning og
nánari upplýsingar:
St.Rv. og SFR bjóða sameiginlega upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn nú á vorönn.
Fræðslunefndir félaganna hafa sett niður dagskrána. Stefnan er að bjóða upp á fjölbreytta
fræðslu, bæði stutta og lengri, á mismunandi tíma svo flestir finni eitthvað við sitt hæfi.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið er 12 en hámarksfjöldi mismunandi eftir
námskeiðum. Því er öruggast fyrir áhugasama að skrá sig sem fyrst.
Engin þátttökugjöld eru á námskeið og fyrirlestra.
FERÐAÞJÓNUSTA Iceland Express
hefur keypt meirihluta í Ferða-
skrifstofu Íslands, sem rekur
meðal annars Úrval-Útsýn.
Kaupverðið er trúnaðar-
mál, segir Þorsteinn Guðjóns-
son forstjóri ferðaskrifstofunn-
ar. Gömlu eigendurnir muni eiga
hlut í fyrirtækinu áfram og við-
skiptabanki ferðaskrifstofunn-
ar, Landsbankinn, hafi samþykkt
kaupin fyrir sitt leyti.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins segir að
samruninn hafi ekki komið til
meðferðar hjá stofnun sinni, enda
hafi hann ekki verið tilkynntur
þangað. - kóþ
Samruni á ferðamarkaði:
Express keypti
Ferðaskrifstofu
PAKISTAN, AP Vopnaðir menn
rændu í gær John Solecki, banda-
rískum starfsmanni Sameinuðu
þjóðanna í Pak-
istan, og drápu
bifreiðarstjóra
hans.
Solecki
er yfirmað-
ur skrifstofu
flóttamanna-
stofnunar Sam-
einuðu þjóð-
anna í borginni
Quetta, sem
er skammt frá landamærum
Afganistans. Talið er hugsanlegt
að Mullah Omar og fleiri leið-
togar afganskra talibana séu þar
í felum.
Utanríkisráðuneyti Pakistans
sagði mannránið hryðjuverk, en
ekki var ljóst hverjir stóðu að
ráninu. - gb
Mannrán í Pakistan:
Starfsmanni SÞ
rænt í Quetta
SAMGÖNGUR Ferðum á flestum leið-
um strætisvagna Strætós bs. verð-
ur fækkað utan háannatíma frá 1.
febrúar.
Allar helstu leiðir, nema leiðir
eitt og sex, munu aka á hálftíma
fresti utan annatíma. Nokkrar leið-
ir munu aka á klukkutíma fresti
utan annatíma. Þá munu langflest-
ar leiðir ganga á klukkutímafresti
á kvöldin og um helgar. Allar leiðir
byrja akstur tveimur tímum seinna
á sunnu- og helgidögum.
Stjórn Samtaka um bíllausan lífs-
stíl gagnrýna breytingarnar harð-
lega. Þær séu eins og blaut tuska
í andlit þeirra sem höfðu í hyggju
að draga verulega úr útgjöldum
heimilisins með því að velja sér
hagkvæmari ferðamáta. „Á erfið-
um tímum hafa frændþjóðir okkar
kosið að efla almenningssamgöng-
ur með jákvæðum afleiðingum á
umhverfi, borgarlíf og efnahag
landsmanna. Okkur svíður að sjá
íslensk yfirvöld stefna í þveröfuga
átt,“ segir í tilkynningu frá sam-
tökunum.
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætós bs., segir að leit-
ast hafi verið við að skerða þjón-
ustu við farþega sem allra minnst.
„Við höfum verið að keyra á mik-
illi tíðni, líka á leiðum þar sem far-
þegar eru fáir eða jafnvel engir.
Við höfum haft dæmi um leiðir þar
sem tíu ferðir af hverjum fimmtán
á kvöldi eru án farþega. Kostnaður-
inn við þessar fimmtán ferðir hefur
verið allt að 6.500 krónur á hvern
einasta farþega.“ - hhs/ovd
Samtök um bíllausan lífsstíl gagnrýna skerta þjónustu Strætós frá 1. febrúar:
Strætóferðum fækkar til muna
SELTJARNARNES Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi, segir að rekstraraðili
veitingastaðarins Rauða ljónsins
á Eiðistorgi eigi ekki að gjalda
fyrir ítrekuð mistök og brot for-
veranna. Því eigi að gefa út nýtt
rekstrarleyfi fyrir Rauða ljónið
en með ströngum skilyrðum þó.
Þannig eigi dyraverðir Rauða
ljónsins að gæta alls torgsins í
verslunarmiðstöðinni eftir að
annarri starfsemi er lokað á
kvöldin.
Engin ummerki um veitinga-
reksturinn megi vera á torginu.
Þá sé eftirlit með kráargestum
þannig að aðrir á torginu verði
ekki fyrir ónæði eða óþægindum,
segir í tillögu bæjarstjórans að
umsögn af hálfu bæjarins. - gar
Veitingarekstur á Eiðistorgi:
Rauða ljónið fái
skilyrt vínleyfi
Í STRÆTÓ Frá 1. febrúar mun draga
verulega úr ferðum strætisvagna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
EIÐISTORG Bæjarstjórinn vill jákvæða
umsögn um rekstrarleyfi fyrir Rauða
ljónið.
JOHN SOLECKI
Gaddafí leiðtogi Afríkuríkja
Moamar Gaddafí Líbíuleiðtogi hefur
verið kosinn formaður Afríkubanda-
lagsins. Leiðtogar aðildarríkja banda-
lagsins skipta með sér formennsk-
unni, og fer hver þeirra með hana í
eitt ár í senn.
AFRÍKA
Atvinnulausir synda frítt
Atvinnulaust fólk í Fjarðabyggð fær
eftirleiðis frítt í sundlaugar sveitarfé-
lagsins. Hugmyndin mun komin frá
aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ.
FJARÐABYGGÐ
DÓMSTÓLAR Tæplega þrítugur
karlmaður hefur verið dæmd-
ur í átján mánaða fangelsi fyrir
43 brot sem hann framdi á árinu
2008. Brotin eru margvíslegs
eðlis, en meðal þeirra eru fjöldi
innbrota og þjófnaða, fjársvika
og umferðarlagabrota.
Maðurinn á langan afbrotafer-
il sem hófst árið 1997. Hann var
síðast dæmdur í fimmtán mánaða
fangelsi í maí 2007.
Auk fangelsisrefsingarinn-
ar er maðurinn sviptur ökurétt-
indum í þrjú ár og gert að greiða
fimm aðilum samtals vel á annað
hundrað þúsund krónur í skaða-
bætur. - sh
Átján mánaða fangelsi:
Dæmdur í fang-
elsi fyrir 43 brot