Fréttablaðið - 03.02.2009, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2009 13
Umsjón: nánar á visir.is
Starfshlutfall sem lækkað var í 90
prósent um áramót hjá starfsfólki á
verkstæðum Toyta í Kópavogi hefur
verið fært aftur í 100 prósent.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu Toyota var búist við töluvert
minnkandi umsvifum, en vegna
aukinnar verkstæðisvinnu hefur
starfshlutfall þar verið fært til
fyrra horfs. Lækkunin náði hins
vegar til fyrirtækisins alls.
Aukin aðsókn á verkstæði skýr-
ir félagið með því að endurnýjun
á bílum sé hægari nú en á undan-
förnum misserum og eigendur vilji
því fremur koma með bíla í reglu-
bundnar skoðanir og gera strax við
það sem bilar til þess að tryggja að
þeir endist sem lengst. - óká
Starfshlutfall
aukið aftur
Nýi Glitnir hefur birt á vef sínum samræmd-
ar viðmiðunarreglur vegna fyrirtækja í
rekstrarerfiðleikum. Reglurnar koma í fram-
haldi af vinnuramma sem bankinn kynnti
um miðjan desember þar sem fjallað var
um úrlausnir fyrir fyrirtæki í tímabundn-
um greiðsluerfiðleikum.
Í viðmiðunarreglunum kemur fram hvern-
ig lagt er mat á sjóðsstreymi fyrirtækja og
hvaða úrræði standi til boða. Þar sem umbót-
um verður komið á er alla jafna lögð til svo-
nefnd „Lundúnaleið“, en það eru alþjóð-
leg viðmið um úrlausn flókinna lánamála
á grundvelli frjálsra samninga kröfuhafa.
Þannig geti kröfuhafar sameiginlega unnið
að því að aðstoða lífvænleg fyrirtæki í fjár-
hagsörðugleikum.
Þá getur bankinn sem kröfuhafi gripið til
sértækra ráðstafana, breytt skuldum í hluta-
fé eða ígildi eiginfjár, en þó ekki nema að
fyrir liggi rökstudd tillaga áhættunefndar.
Á vef Glitnis kemur fram að vinnuramm-
inn sé hluti af því að koma til móts við til-
mæli ríkisstjórnarinnar frá í desember-
byrjun um aðgerðir til að bregðast við
tímabundnum vanda fyrirtækja í kjölfar
fjármálakreppunnar. - óká
Viðmiðunarverklag vegna fyrirtækja sem standa höllum fæti:
Lundúnaleið farin þar sem við á
HÖFÐUSTÖÐVAR GLITNIS Nýi Glitnir er með höfuð-
stöðvar sínar við Kirkjusand í Reykjavík, rétt eins og
sá gamli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 38 Velta: 29 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
313 +0,25% 895 -1,01%
MESTA HÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ +1,00%
MESTA LÆKKUN
STRAUMUR -3,57%
BAKKAVÖR -1,08%
ÖSSUR -0,63%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,95 +0,00% ... Atlantic
Airways 165,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 565,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,84 -1,08% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,01 +1,00% ... Føroya Banki 116,00 -0,43% ... Icelandair Group 13,41
+0,00% ... Marel Food Systems 64,20 -0,31% ... SPRON 1,90 +0,00%
... Straumur-Burðarás 1,62 -3,57% ... Össur 94,60 -0,63%
„Svo virðist sem verðbólguvænt-
ingar hafi breyst verulega á skulda-
bréfamarkaði í kjölfar birtingar
Seðlabankans á Peningamálum
síðastliðinn fimmtudag,“ segir í
umfjöllun Greiningar Glitnis.
Vísað er til þess að ávöxtunar-
krafa á stysta flokki íbúðabréfa
hafi hækkað snarpt í lok síðustu
viku, en flokkurinn er sagður hvað
viðkvæmastur fyrir verðbólgu-
væntingum. Þá hafi ávöxtunarkrafa
flestra óverðtryggðra ríkisbréfa
lækkað talsvert frá vaxtaákvörð-
un Seðlabankans.
Verðbólguspá Seðlabankans var
mun bjartsýnni hvað verðbólgu-
horfur varðar en fyrri spá í nóvem-
ber. Gert er ráð fyrir að verðbólga
sé nú í hámarki og verði komin
niður undir 2,5 prósenta markmið
Seðlabankans að ári liðnu. - óká
Væntingar sjást
í skuldabréfum
Einkaneysla dróst saman um eitt
prósent í Bandaríkjunum í desem-
ber, samkvæmt upplýsingum
bandaríska viðskiptaráðuneytisins,
sem birtar voru í gær. Að teknu
tilliti til lækkunar vöruverðs nam
samdrátturinn hálfu prósenti.
Þetta er í takti við væntingar,
samkvæmt netmiðilinum Market-
Watch.
Einkaneysla vestra hefur dregist
saman jafnt og þétt síðastliðna sjö
mánuði. Nóvember er þar undan-
tekning en þá jókst neysla um 0,3
prósent frá október.
Niðurstaðan virðist benda til að
neytendur hafi hugsað sig vel um
áður en þeir tóku upp veskið í jóla-
mánuðinum. Þá eru vísbendingar
um að sparnaður hafi aukist tals-
vert. Það getur svo komið harka-
lega niður á hagvísum þar eð hag-
vöxtur í Bandaríkjunum er mjög
neysluknúinn. - jab
Enn dregur úr
einkaneyslu
Kynntu þér úrræðin
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum
aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig.
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000
eða komdu við í næsta útibúi Kaupþings.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
45
39
0
1/
09
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
• Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing
• Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækk-
aði um rétt rúm tvö prósent þegar
mest var á olíumarkaði vestanhafs
í gær og fór það um tíma í 40,79
dali á tunnu. Ástæðan er verkfalls-
boðun starfsmanna hjá olíuhreinsi-
stöðvum í Bandaríkjunum.
Kjarasamningar þeirra runnu út
á laugardag og hafði þá enn enginn
sest við samningaborðið. Reikn-
að er með að verkfall gæti haft
áhrif á sextíu olíuhreinsistöðvar í
Bandaríkjunum. Verkfall var hins
vegar dregið til baka eftir að for-
svarsmenn olíufyrirtækja sögðust
opnir fyrir samningaumleitunum
um helgina. - jab
Olíuverð lækkar
BEÐIÐ EFTIR VIÐSKIPTAVINUM Einka-
neysla hefur dregist saman í sex mánuði
af sjö í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP