Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 16
Lífshlaupið er verkefni sem
höfðar til allra landsmanna. Þar
er fólk hvatt til þess að huga að
sinni daglegu hreyfingu og auka
hana eins og kostur er.
Lífshlaupið verður formlega ræst í
annað sinn miðvikudaginn 4. febrú-
ar í íþróttahúsinu að Varmá Mos-
fellsbæ klukkan 12. Þennan sama
dag eru vinnustaðir hvattir til að
hefja Lífshlaupið hjá sér með því að
vera með skipulagða göngu/hreyf-
ingu í hádeginu.
Lífshlaupið er hvatningar- og
átaksverkefni Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands og var mjög vin-
sælt þegar það var haldið í fyrsta
sinn í fyrra. Þá voru þátttakendur
7.700. Þrjú mismunandi hlaup eru í
boði. Í fyrsta lagi vinnustaðakeppni
sem stendur frá 4. til 24. febrúar,
fyrir 16 ára og eldri. Í öðru lagi
hvatningarleikur fyrir grunnskóla
frá 4. til 24. febrúar, fyrir 15 ára
og yngri og í þriðja lagi einstakl-
ingskeppni þar sem hver og einn
getur skráð niður sína hreyfingu
allt árið.
Hægt er að skrá þátttöku á vef-
síðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.
is. Einnig má skrá alla hreyfingu
inn á vefinn svo framarlega sem
hún nær ráðleggingum Lýðheilsu-
stöðvar um hreyfingu þar sem
börnum og unglingum er ráðlagt
að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á
dag og fullorðnum í minnst 30 mín-
útur á dag. - sg
Lífshlaup hefst á ný
Fimmti bekkur ÓHG úr Hofsstaðaskóla fékk ávaxtakörfu frá Ávaxtabílnum í verðlaun í
hvatningaleik Lífshlaupsins í fyrra.
SVEFNHEBERGIÐ ætti að vera kyrrlátur íverustað-
ur þar sem aðalmarkmiðið er að sofa og hvílast vel.
Sjónvarpið á ekkert erindi í svefnherbergið þar sem
það er ekki ávísun á góðan nætursvefn.
Tækið sem enginn verður var við.
be by ReSound™ er nýjasta tæknibyltingin í
heyrnartækjum, hönnun þeirra byggir á algerlega
nýrri hugsun. Þau eru hulin í eyrunum og eru svo létt
og þægileg að notandinn gleymir því að hann er með þau
og aðrir taka heldur ekki eftir þeim.
be by ReSound™ er algerlega nýtt úrræði
fyrir þá sem þurfa að nota heyrnartæki
Algerlega
ný hönnun
heyrnar-
tækja.
be by ReSound
eru vart greinanleg
í eyrunum
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan
Tímapantanir 534 9600