Fréttablaðið - 03.02.2009, Page 20
16 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Karatefélag Reykjavíkur var stofn-
að árið 1973 og varð því 35 ára á síð-
asta ári. Valgerður Shamsudin situr í
stjórn félagsins og segir það byggt á
fjölskylduvænum gildum.
„Þetta er rótgróið félag og mjög
heimilislegt andrúmsloft hjá okkur í
kjallaranum undir sundlaugunum,“
segir Valgerður en félagið er með æf-
ingaaðstöðu undir Laugardalslaug.
„Félagsmenn eru af öllum stærðum og
gerðum, allt frá nemum og upp í lækna
og sálfræðinga. Við hittumst þrisvar
í viku til að æfa saman og hlæja og
spjalla saman og eftir æfingarnar er
oftast farið í heita pottinn.“
Valgerður segir öflugt barna og ungl-
ingastarf fara fram innan félagsins.
Hún segir áhugann að aukast á íþrótt-
inni hjá unga fólkinu og vill meina að
karate sé hentug íþrótt fyrir krakka.
Karate er bardagaíþrótt en Valgerð-
ur segir af og frá að verið sé að kenna
krökkum að slást.
„Alls ekki. Þarna er agi og skipu-
lag á krökkunum en ekkert ofbeldi eða
of erfiðar æfingar. Við förum í góðar
styrktaræfingar fyrir krakkana, sem
þau þurfa á að halda og góðar teygjur.
Þau byrja rólega og æfingarnar enda
oft á leikjum. Þegar þau eru orðin eldri
er þetta líka svo góður félagsskapur
og þau læra mikið af því að taka þátt í
mótum og sjá hvað þau geta.“
Félagsstarfið innan Karatefélags
Reykjavíkur er líflegt og segir Val-
gerður fjölskylduvænt andrúmsloft
ríkja. Börnin komi gjarnan með for-
eldrum sínum á æfingar og horfa þá á
myndbönd frammi meðan foreldrarnir
æfa. Reglulega sé farið með börnin og
unglingana í keilu eða pantaðar pitsur
eftir æfingar.
„Þetta er mjög þægilegur félags-
skapur. Hér hafa sömu kennararnir
kennt við félagið lengi, sumir hátt í tut-
tugu og fimm ár. Annað slagið fáum við
kennara að utan og kemur okkar sen-
sei oftast frá Bretlandi með nokkurra
daga æfingabúðir. Það er alltaf gaman
og þeir hafa komið í svo mörg ár að þeir
þekkja okkur flest í félaginu.“
Valgerður hefur sjálf æft karate í
nokkur ár og státar af svarta beltinu.
Hún segist velja karate fram yfir aðra
leikfimi enda íþróttin krefjandi og holl
bæði andlega og líkamlega.
„Þetta er góður félagsskapur og
þarna öðlast fólk sjálfstraust, aga og
ákveðni, ekki síst krakkarnir. Það er
alltaf gaman að sjá hvað maður getur
því maður getur alltaf meira en maður
heldur.“ heida@frettabladid.is
KARATEFÉLAG REYKJAVÍKUR: RÓTGRÓIÐ ÍÞRÓTTAFÉLAG Í YFIR ÞRJÁTÍU ÁR
Getur meira en maður heldur
ÖFLUGT STARF er innan Karatefélags Reykjavíkur og áhuginn að aukast meðal unglinga.
MYND/KARATEFÉLAG REYKJAVÍKUR
HEIMILISLEGT ANDRÚMSLOFT Valgerður Shamsudin segir Karatefélag Reykjavíkur þægilegt félag sem leggi áherslu á barna- og unglingastarf.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MERKISATBURÐIR:
1930 Íslandsbanka lokað. Út-
vegsbanki Íslands tekur
við.
1944 Hótel Ísland brennur,
einn maður ferst. Húsið
er stærsta timburhús í
Reykjavík.
1975 Gunnar Þórðarson tón-
listarmaður hlýtur lista-
mannalaun fyrstur
popptónlistarmanna.
1981 Bærinn Litla-Brekka við
Suðurgötu rifinn. Síðasti
torfbærinn í Reykjavík.
1984 Hermann Valsson kemst
á tind Aconcagua, hæsta
fjalls Ameríku.
1991 Vindhviða í Vestmanna-
eyjum mælist 237 km
á klukkustund í fárviðri
sem gengur yfir land-
ið. Tjón af veðrinu varð á
annan milljarð króna.
ALVAR AALTO FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1898
„Við lifum á svo sérhæfðum
tímum að nú veit fólk ann-
aðhvort meira og meira eða
minna og minna.“
Alvar Aalto var finnskur arkitekt
og hönnuður og hannaði meðal
annars Norræna húsið í Reykja-
vík. Hann var frumkvöðull í
formbeygingu viðar í húsgagna-
hönnun og þykir formbeygður
viður enn þann dag í dag ein-
kennandi fyrir finnska hönnun.
Gertrude Stein var bandarískur
rithöfundur sem safnaði nútíma
myndlist og rak virt gallerí í París.
Innan hennar vinahóps mátti
finna myndlistarmennina Matisse
og Picasso og rithöfundinn Ernest
Hemingway.
Gertrude Stein var yngst fimm
systkina og fæddist í Pennsylv-
aníuríki í Ameríku. Fjölskyldan
fluttist til Vínar og Parísar á æsku-
árum hennar en aftur til Ameríku
árið 1878. Foreldrar hennar dóu
báðir þegar hún var ung að aldri
og ólst hún upp hjá móðurfjölskyldu sinni í Balt-
imore þar sem hún gekk í skóla.
Hún fluttist til Parísar og kom sér upp til-
komumiklu safni af nútímamyndlist ásamt bróð-
ur sínum, Leo Stein, á árunum 1904 til 1913. Á
þeim stutta tíma söfnuðu þau
verkum eftir myndlistarmenn
eins og Picasso, Paul Cézanne,
Pierre-Auguste Renoir, Honoré
Daumier, Henri Matisse, og Henri
de Toulouse-Lautrec og átti sinn
þátt í að myndlist þeirra varð
þekkt.
Gertrude Stein og listagallerí
hennar á Rue de Fleurus mátti
kalla miðpunkt listalífs Parísar-
borgar á þessum árum en hún
stóð fyrir samkomum helstu upp-
rennandi myndlistarmanna þess-
ara ára á frægum laugardagssamkomum þar
sem allir sem eitthvað vildu vera létu sjá sig.
Eftir að samstarfi hennar og bróður hennar
Leos lauk rak hún gallerí með Alice B. Toklas allt
til dauðadags árið 1946.
ÞETTA GERÐIST: 3. FEBRÚAR ÁRIÐ 1874
Gertrude Stein kemur í heiminn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir og afi,
Baldur Bergsteinsson
Beykihlíð 29, Reykjavík,
andaðist föstudaginn 30. janúar. Útför hans fer fram
frá Dómkirkjunni mánudaginn 9. febrúar kl. 15. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem
vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð Göngum
saman til stuðnings rannsóknum á brjóstakrabba-
meini, í síma 540 1990 eða á heimsíðu: www.gongum-
saman.is.
Guðrún Guðmundsdóttir
Sigríður Baldursdóttir Gunnar Hjartarson
Kristín Baldursdóttir Kristján Frímann Kristjánsson
Margrét Baldursdóttir Þórólfur Árnason
Bergþóra Baldursdóttir Hjörleifur Þórarinsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Steindóra Sigurðardóttir,
Fagrahjalla 4, Vopnafirði,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 30.
janúar, verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju laug-
ardaginn 7. febrúar kl. 14.00.
Steinunn Gunnarsdóttir Helgi Jörgensson
Guðný Sveinsdóttir Hjálmar Björgólfsson
Sigurður Sveinsson Karin Bach
Steindór Sveinsson Emma Tryggvadóttir
Ingólfur Sveinsson Kristbjörg Hilmarsdóttir
Erla Sveinsdóttir Gunnlaugur Einarsson
Sveinn Sveinsson Rattana Chinnabut
Harpa Sveinsdóttir Sigmundur K. Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskaði eiginmaður, faðir, tengda-
faðir og afi,
Óttar Bjarkan Bjarnason
bakarameistari,
lést laugardaginn 31. janúar á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram frá
Hjallakirkju föstudaginn 6. febrúar kl. 15.00.
Guðrún Ásgerður Sölvadóttir
Róbert Óttarsson Selma Barðdal Reynisdóttir
Rebekka Óttarsdóttir Ögmundur Arnarson
Þuríður Óttarsdóttir
Eygló Þóra Óttarsdóttir Heimir Sverrisson
Pálmi Bjarni Óttarsson
og afabörn.