Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 30
26 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. hland, 6. líka, 8. farfa, 9. yfir-
breiðsla, 11. tónlistarmaður, 12.
þjóðsagnaskepna, 14. slór, 16. golf
áhald, 17. stúlka, 18. umhyggja, 20.
þys, 21. maður.
LÓÐRÉTT
1. líkami, 3. á fæti, 4. eyja í Miðjarðar-
hafi, 5. stykki, 7. gluggatjald, 10. ílát,
13. bar að garði, 15. löngun, 16. höld,
19. númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. piss, 6. og, 8. lit, 9. lak,
11. kk, 12. dreki, 14. droll, 16. tí, 17.
mey, 18. önn, 20. ys, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. hold, 3. il, 4. sikiley, 5.
stk, 7. gardína, 10. ker, 13. kom, 15.
lyst, 16. tök, 19. nr.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Við fáum alltaf æði fyrir
einhverju og núna hlustum við
rosalega mikið á Kings of Leon
og Motion Boys.“
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran mat-
reiðslumaður.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Taktu upp þráðinn.
2 Ragna Árnadóttir.
3 Hveragerði.
„Ég hélt að þetta væri bara eitt-
hvert svona innanhússpjall. Bara
eitthvað óformlegt. Svo birtist
bara ljósmyndari og tók mynd af
mér sem Janis Joplin í Íslensku
óperunni,“ segir leikkonan Ilmur
Kristjánsdóttir. Hún fær draum
margra leikara og leikkvenna upp-
fylltan þegar það kemur mynd af
henni í stórblaðinu Vanity Fair og
stutt spjall. „Kannski verð ég bara
heimsfræg eftir þetta?“ spyr Ilmur
og skellihlær, þykir þetta óneitan-
lega nokkuð skondið.
Stutta viðtalið er enda ekki um
ferilinn né leiksýninguna Janis 27
heldur um ástandið á Íslandi sem
virðist soga til sín erlenda blaða-
menn hvaðanæva að úr heiminum.
Ilmur tekur skýrt fram að spjallið
við blaðamanninn Michael Lewis
sé stutt og að hún sé ekki í neinu
aðalhlutverki í greininni. Þetta sé
meira aukahlutverk. Eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst þá verð-
ur nefnilega einnig viðtal við Geir
H. Haarde í umræddu tímariti sem
og Ingibjörgu Sólrúnu auk annarra
áhrifamanna í íslensku þjóðlífi.
Þetta er í annað sinn á tiltölulega
skömmum tíma sem Ísland kemst
í Vanity Fair. Þá var það reyndar
á ögn jákvæðari nótum, Leonardo
Di Caprio sat fyrir hjá ljósmyndar-
anum Anne Liebowits fyrir forsíðu
blaðsins ásamt ísbjarnarhúninum
Knúti á Jökulsárlóni. Tímaritið var
þá helgað náttúruvernd og Ísland
þótti heppilegur tökustaður fyrir
slíkan málstað. Í dag þykir Ísland
hins vegar ákjósanlegur áning-
arstaður ef menn ætla að skrifa
um fjöldagjaldþrot og alþjóðlegu
lausafjárkreppuna. Og afleiðing-
ar hennar.
Ilmur er annars á fullu í guð-
fræðinámi sínu við Háskóla
Íslands. Og unir hag sínum vel.
Ilmur segist hafa orðið fyrir hálf-
gerðri uppljómun þegar hún sat
fyrirlestur hjá Magnúsi Bernharð
Þorkelssyni um íslam. „Mér fannst
undarlegt að manneskja með BA-
próf úr listaháskóla skuli ekki hafa
vitað neitt um íslam, trúarbrögðin
sem allar deilur í heiminum virð-
ast snúast um,“ segir Ilmur. - fgg
ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR: KANN VEL VIÐ SIG Í GUÐFRÆÐI
ILMUR Í VANITY FAIR
KANNSKI HEIMSFRÆG Ilmur sat fyrir hjá ljósmyndara Vanity Fair en ítarleg umfjöllun
um íslenska bankahrunið er væntanleg í marshefti blaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
SÍÐAST Á FORSÍÐU Svona var ímynd
Íslands í Vanity Fair, Leonardo Di Caprio
á Jökulsárlóni með ísbjarnarhúninum
Knúti.
„Það voru augljóslega gerð mis-
tök, sem mér þykir miður og við
biðjumst velvirðingar á. Það átti
auðvitað ekki að rjúfa miðja ræðu,
þótt handboltinn sé góður,“ segir
Óðinn Jónsson, fréttastjóri hjá
Ríkissjónvarpinu.
Stjórnarskiptin voru sýnd í
beinni útsendingu í Sjónvarp-
inu á sunnudaginn. Í miðri
ræðu hins nýbakaða
ráðherra Stein-
gríms J. Sig-
fússonar
var skyndi-
lega klippt
á útsending-
una til að koma
úrslitaleik
Frakka og Króata á HM í hand-
bolta að. Eins og gefur að skilja
voru upplýsingaþyrstir Íslending-
ar ekki á eitt sáttir við það, enda
um stórtíðindi að ræða í íslenskri
stjórnmálasögu.
Óðinn segist bæði hafa fengið
kvartanir frá fólki sem ætlaði að
fylgjast með framvindu mála í
pólitíkinni sem og óþreyjufull-
um handboltaáhugamönnum
sem höfðu þegar misst af byrj-
un leiksins. Má því segja að
Óðinn og starfsfólk hans
hafi verið á milli tveggja
elda. Hann tekur
þó fram að
stjórnmála-
mennirn-
ir hafi verið
seinir á vett-
vang og fyrir vikið hafi
útsendingunni seinkað
á kostnað handboltans.
Í hálfleik úrslita-
leiksins var ræða Stein-
gríms síðan endursýnd til að bæta
fyrir mistökin. „Það var farin
dálítið úr því stemningin,“ viður-
kennir Óðinn. - fb
Mistök að klippa á Steingrím
LUC ABALO
Abalo og félagar
í franska lands-
liðinu voru fyrir
mistök teknir
fram yfir Steingrím
J. Sigfússon.
ÓÐINN JÓNSSON Óðinn viðurkennir að mistök hafi
verið gerð þegar stjórnarskiptin voru látin víkja fyrir
handboltanum og Steingrímur fékk ekki að klára ræðu
sína í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Nýju ráðherrarnir eru að koma sér í gírinn.
Auðvitað fylgja ýmis fríðindi djobbinu, þar á
meðal er drossía og einkabílstjóri. „Þessi mál
hafa ekki háan forgang hjá mér, það eru næg
önnur mál brýnni,“ segir Gylfi Magnússon,
glænýr viðskiptaráðherra, spurður um
bílamálin. „Ég geri ekki ráð fyrir
öðru en að nýta mér sama bíl og
forveri minn enda er það ein-
faldast. Það er nýlegur Vol-
vojeppi með sparneytinni dís-
ilvél að því er mér skilst. Ég
keyri hann sjálfsagt ýmist
sjálfur eða þigg aðstoð bíl-
stjóra.“
Þótt hann feginn vildi
segir Gylfi vandkvæð-
um bundið að nota sína
eigin bifreið. „Bíllinn
minn er nefnilega búinn
að vera bilaður síðan fyrir bankahrun. Það er
miðaldra Volvobifreið, árgerð 1994. Kannski
fer hann að hressast. Bifvélavirkinn minn
er að minnsta kosti vongóður og er búinn að
vera það mánuðum saman. Ég hef mikla trú á
þeim báðum, bílnum og bifvélavirkj-
anum.“
Hinn glænýi ráðherrann er
Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra. Líkt og Gylfi á hún
gamlan Volvo. „Ég á Volvo
850 árgerð 1995, sem er stab-
íl bifreið og glæsileg!“ segir
Ragna og bætir við: „Ég
nýtti mér ráðherrabíl og
bílstjóra í gær og á sunnu-
daginn, en hef ekki tekið
afstöðu til þess hvort ég
geri svo áfram.“ Fleiri
ráðherrar eru á Volvo, að
minnsta kosti mætti Steingrímur J. á ævagöml-
um Volvo á Bessastaði á sunnudaginn. - drg
Nýir ráðherrar á gömlum Volvo
GYLFI OG RAGNA FREMST Í FLOKKI NÝRRAR RÍKIS-
STJÓRNAR Eiga bæði miðaldra Volvoa en hafa notast
við einkabílstjóra fyrstu daga ráðherradómsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Kolbrún Halldórsdóttir, nýr
umhverfisráðherra, segir frá því á
vefsíðu sinni á sunnudag að þetta
sé dagurinn sem hún hafi beðið
eftir. Ekki af því að ráðherradómur
biði hennar heldur ættu sonur
hennar og tengdadóttir von á
barni og hún þá að verða
amma. Hefur það ýtt
undir þá skoðun hennar
að frumábyrgð hverrar
manneskju er gagnvart
börnunum og vísaði
hún í orð Villhjálms
Árnasonar, prófess-
ors og siðfræðings,
þar um.
Enn segir af afrekum íslenskra rit-
höfunda á erlendum vettvangi. Jón
Kalman Stefánsson er nú kominn
til Svíþjóðar, að fylgja bók sinni
Sumarljós, og svo kemur nóttin, úr
hlaði en John Swedenmark þýddi.
Jón fær glimrandi dóma hjá Anninu
Rabe í SvD; Sveriges kvalitetssajt
för nyheter sem á í hinum mestu
vandræðum. „Einhverra hluta vegna
er næstum því alltaf auðveldara að
orða last heldur en lof, ég held að
flestir gagnrýnendur taki undir það,“
skrifar Anninu og líklega þykir lista-
mönnum sannleikskorn í því. „Hvað
á maður þá til bragðs að
taka þegar maður hefur
lesið bók sem maður er
svo innilega hrifinn af,
svo hrifinn, að manni
finnst maður ekkert
geta sagt sem geri
henni rétt til?“
spyr sænski
gagnrýnand-
inn.
Það að fara í bíó er ekki bara fyrir
ungviðið og var Sigurður A. Magn-
ússon, rúmlega áttræður,
mættur á Kringlubíó á
sunnudagskvöldið og
varð myndin Doubt
fyrir valinu hjá þess-
um mikla menningar-
innar manni. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI