Tíminn - 04.01.1983, Blaðsíða 2
28 ára gamall maður stunginn til bana:
JÍSTÆÐA VERKNAÐ-
ARINS HUGSANLEGA
GAMALT DBLUMAL”
— segir Þórir Oddsson, vararannsóknar
lögreglustjóri rfkisins
■ Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands óskar Nínu Björk til hamingju meö
styrkveitinguna. Tímamynd GE
„Með grind að 2
nýjum leikritum’”
— rætt við Nínu Björk Árnadóttur
■ „Ég er mjög glöö og stolt yfir þessari
viöurk' nningu, mcr þykir nijög vænt um
þennan heiöur sem mér er sýndur.
Aöallcga vegna þess aö þetta gefur
manni aukinn kjark og maður þarf
stundum á því aö halda“, sagði Nína
Björk Árnadóttir rithöfundur, þegar
Tíminn ræddi viö hana í gær, en Nína
hlaut styrk úr Kithöfundasjóöi Ríkisút-
varpsins, sem úthlutað var aö venju á
gamlársdag. Styrknum var ekki skipt að
þessu sinni vegna tilmæla frá Rithöf-
undasambandi Islands og nam fjárhæöin
60 þúsund krónum.
- Má spyrja hvort þú sért komin af
stað með ný verk?
„Já,-égerkomin með grind að tveim
nýjum lcikritum, mikið til óunnum að
vísu, cn þessi styrkur segir sitt. Maður
getur byrjað að einbeita sér að því strax
að skrifa og ég hef efni á að innrétta mér
betra vinnuherbergi. Eiginlega finnst
ntér að ég hafi efni á öllunt sköpuðum
hlutum. Nú og svo eins og ég sagði að
með því að þessi styrkur er ekki
hugsaður sem starfslaun, heldur sem
viðurkenning fyrir unnin verk þá eflir
það manni kjark og það er kannske það
besta við þetta allt sarnan."
JGK
■ „Hugsanleg ástæða
þessa verknaðar er gamalt
deilumál þeirra tveggja en
hvað það er get ég ekki
sagt um á þessu stigi enda
yfírheyrslur skammt á veg
komnar“ sagði Þórir
Oddsson vararannsóknar-
lögreglusjóri ríkisins í sam-
tali við Tímann en hann
stjórnar rannsókninni á
láti mannsins sem stunginn
var til bana að morgni
nýársdagsins að Klepps-
vegi 42.
Hinn látni, Óskar Árni Blomsterberg
28 ára til heimilis að Hátúni við
Rauðavatn vargestkomandi ásamt fleira
fólki í íbúðinni á 4. hæð til vinstri í
húsinu. Húsráðendur eru tvær ungar
konur og var önnur þeirra stödd í
heimsókn hjá ættingjum út á landi.
Deilur blossuðu upp milli Árna og eins
af gestunum með þeim afleiðingum að
Árni var stunginn til bana.
Ungur maður, Þórður J. Eyþórsson,
hefur játað að vera valdur að verknaðin-
um. Hann er 25 ára gamall bifreiðastjóri
til heimilis að Njálsgötu 79. Var hann
handtekinn í íbúðinni ásamt öðrum
gestum þá um morguninn. Hann hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9.
mars og gert að sæta rannsókn á
geðheilbrigði og sakhæfi.
Málsatvik eru að öðru leyti ekki ljós
en áfengi mun hafa verið haft um hönd
áður en þessi atburður átti sér stað.
- FRI
■ Unnið við slökkvistarf á Vitastíg. Tímamynd GE
Húsbruni á Vitastíg á nýársdag:
Grunur um
íkveikju
— engin slys á fólki
■ Eldur kom upp í húsinu að Vitastíg Að sögn rannsóknarlögreglunnar
II síðdegis á nýársdag. Eldsins varð leikurgrunuráaðum íkveikjuhafi verið
fyrst vart í kjallara hússinsen barst síðan að ræða. Rúða á útihurð hússins var
upp á hæðirnar. Kona á fyrstu hæð brotin og líkur eru taldar á að einhverju
hússins varð fyrst vör eldsins. Slökkvi- hafi verið hent þar inn, eða að eitthvað
starf gekk greiðlega og engin slys urðu hafi skotist þar inn fyrir slysni, eins og
á fólki. t.d. flugeldur. - FRI
Kristján Ragnarsson, form.
LÍÚ um fiskverðsákvörðunina:
f f Bætir rekstrar-
stöðu útgerðarinnar”
■ „Þessar ráöstafanir bæta náttúrlega rekstrarstööu útgerðarinnar verulega
frá þvi sein var, þótt ekki geti ég sagt aö hún sé góö cflir þetta, því þaö er
um nukkurt tap aö ræða sem svo vex aftur meö gengisbreytingu ug svo kemur
aftur fiskvcrðshækkun fyrsta mars, og þannig eltum viö skottiö á okkur í
þcssum máluni," sagöi Kristján Ragnarsson, forinaöur L.Í.Ú. i samtali við
Tímann, er hann var spurður um álit á fiskverösákvörðuninni, scm hann
reyndar samþykkti.
„Fyrir hönd minna umbjóðenda. hef cg samþykkt þcssa lausn," sagði
Kristján, „en hinu er ekki að leyna, að við töldum að önnur leið væri betri,
sem fólst í því að auka það sem greitt er beint til okkar framhjá skiptum úr
7% upp í 17%, og síðan borgaði hvcr sína olíu eins og hann eyddi. Þetta
myndi í heild þýða sömu niðurstöðu varðandi afkomu en kæmi togurunum
að heldur meira gagni og-bátunum niinna, andstætt við þá lcið scm nú hefur
verið valin."
Kristján sagði jafnframt að launahækkun sú sem sjómenn fcngju núna,
jafnaði launaskerðingar þeirra á undanförnumárum aðfullu. Sagðist Kristján
ánægður með að hlutur sjómanna hefði vcrið bættur, „cn það var hinsvegar
ekki eðlilegt að bæta hlut þeirra meö þeim hætti, að þcir nytu alls þess sem
gera þurfti fyrir útgerðina í tekjuauka," sagði Kristján jafnframt.
Kristján sagði að yfirnefndin hefði jafnframt ákvcðið breytingar, sem allir
i nefndinni hefðu vcrið sammála um, og þar væru m.a. brcytingar á
vcrðhlutföllum, þar sem bilið á milli gæðaftokka vcéri aukið, munur á slægðum
og óslægðum fiski væri aukið og smáfiskur hækkaði minna í verði cn stór_
fiskur.
- AB
■ Kristján Ragnarsson
„Á að miða við giid-
andi kjarasamning”
segir Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambands íslands
■ „Viö teljum eölilegt að miöa við þann kjarasamning sem er í gildi á milli
útvegsmanna og sjómanna, en það er hlutaskiptakjarasamningur, en hann
felur það einfaldlega ■ sér að um bcin skipti sé aö ræöa á milli sjómanna og
útvegsmanna," sagði Óskar Vigfússon, formaöur Sjómannasambands
íslands, þegar blaðamaður Tímans spuröi hann liversu inikla kauphækkun
hann hcföi talið eðlilegt aö sjómenn fengju nú um áramótin, en með
fiskverösákvörðuninni fá sjómenn 14% kauphækkun. Óskar greiddi í
yfirnefnd atkvæði gegn þessari ákvörðun á þeirri forscndu aö útflutningsgjald-
ið ætti að koma til skipta á milli útvcgsmanna og sjómanna, en ekki að fara
beint til útgerðarinnar.
Óskar var að því spurður hvort sjómenn teldu það eðlilegt að þeir fengju
uppundir 20% kauphækkun í sinn hlut nú um áramótin, þegar annar
verkalýður í landinu fær um 2%: „Þarna kemur þú að kjarna málsins. Var
það talið eðlilcgt að verkalýðshreyfingin fcngi verðbætur á undanförnum
árum cn verðbætur sjómanna á sama tíma skertar? Svarið er einfaldiega
þetta."
Óskar sagði jafnframt að á undanförnum árum heföu sjómenn verið skertir
í verðbótum miðað við aðra launþega í landinu, sem svaraði rúmlega 14%.
Hann sagði: „Ef maður tekur aðeins beina kauptaxta hjá almennum
launþegum í landi, og ftskverð sjómanna. Við erum því aðeins að fá til baka
það sem af okkur hefur verið tekið. þannig aö nú er það aðeins um það bil
að vcra Status Quo á fiskverð í sjómanna og launatöxtúm í landi. Auk þessa
má ekki gleyma því að sjómenn standa frammi fyrir gífurlegum
kjaraskcrðingum, sem er niðurskurður afla, og þá má ekki gleyma skerðingu
þeirri scm er fólgin í aukningu fiskiskipaflota Íslendinga."
- AB
■ Óskar Vigfússon