Tíminn - 04.01.1983, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
ELTEX lambamerkin eru gerð úr þunnri álplötu, með
bognum járnpinna, sem stungið er í eyrað og lokað.
ELTEX merkin fást áletruð (2X4 stafir) með tölustöfum
og/eða bókstöfum.
Við höfum selt þessi merki við góðan orðstýr í mörg
undanfarin ár, og verðum með á lager merkjaraðir
1—1000. FÁST ÍLIT
Ef óskað er eftir sérstimpluðum merkjum, vinsamlega
leggið inn pantanir á varahlutalager okkar sem fyrst, og
ekki seinna en 15. janúar n.k.
^VÉIADEILD
SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
Skrifstofustarf
Óskum eftir starfsfólki til starfa á Aðalskrifstofu
félagsins í Ármúla 3, nú þegar.
Um er að ræða almenn skrifstofustörf og starf
sendimanns.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá
starfsmannahaldi.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
Flensborgarskóli
- Öldungadeild
Endanleg innritun í Öldungadeild fer fram í skólanum
5. -7. janúar kl. 16-18 alla daga. Gert er ráö fyrir því
að eftirtaldir námsáfangar veröi kenndir:
Bókfærsla 203, danska 203, efnafræði 103, enska 203,
franska 103, hagfræöi 103, heilbrigðisfræði 102,
íslenska 103 og 203, jarðfræði 103, líffræði 103, saga
112 og 122, stærðfræði 103 og 203, tölvufræði 103,
vélritun 202, þýska 203.
Athygli skal vakin á því að nemendum er heimilt að
leggja stund á einstakar greinar, jafnvel aðeins eina
grein.
Skólameistari
Um 150
Selfyssingar
sungu fyrir
raflögn í Safn-
adarheimilid
Selfoss: Selfosskirkja var þéttsetin á
tvennum jólatónleikum sem fimm
kórar á staðnum - samtals um 150
söngvarar - gengust fyrir skömmu fyrir
jól ásamt Lúðrasveit Selfoss. Allur
ágóði af tónleikum þessum - nam
tugum þúsunda - fer upp í kostnað við
raflögn í nýtt safnaðarheimili sem
verið er að reisa við kirkjuna, og er nú
rúmlega fokhelt. Rafverktakarnir á
Árvirkja hafa og sýnt þá rausn að gefa
alla vinnu við Iögnina.
Tónleikarnir hófust með leik lúöra-
sveitarinnar en síðan sungu kórarnir
hver af öðrum: Kór Barnaskóla Selfoss
undir stjórn Sigfúsar Ólafssonar, Kór
Gagnfræðaskólans undir stjórn Jóns
Inga Sigurmundssonar, Samkór Sel-
foss undir stjórn Björgvins B. Valdim-
arssonar, Karlakór Selfoss undir stjórn
Ásgeirs Sigurðssonar og Kirkjukór
Selfoss undir stjórn Glúms Gylfasonar,
kirkjuorganista. Að lokum sungu allir
kórarnir - 150 manns sem fyrr segir -
saman þjóðsönginn okkar.
- STJAS/HEI
að sækja til æfinga, sem fara fram í
Hafralækjarskóla. Einsöngvarar með
kórnum hafa frá upphafi verið bræð-
urnir Baldur og Baldvin Kr. Baldvins-
synir og Sigmar Ólafsson. Söngstjóri
kórsins frá 1978 hefur verið Guðmund-
ur Norðdal.
Plata Hreims verður seld í Fálkanum
og Hljóðfærahúsinu í Reykjavík, hjá
KEA og Tónabúðinni á Akureyri auk
nokkurra annarra staða úti á landi svo
og hjá kórmönnum sjálfum. Dreifingu
í Reykjavík annast Hörður Björgvins-
son, pósthólf 10210, eða síma 91-
86768.
- HEI
Tónlistarskóli
Rangæinga
25 ára 1983
■ Tónlistarskóli Rangæinga fagnar
25 ára starfsemi á árinu 1983. Afmælis-
ins er minnst með margvíslegum hætti;
þegar er komin út hljómplata barna-
kórs skólans „Ég bíð eftir vori“ í tilefni
þess. Á næstunni kemur út bæklingur
sem fjallar um starsemi skólans fyrr og
nú.
Dagana 2. til 15. janúar verða svo
sex afmælistónleikar þar sem fram
koma ýmsir listamenn: Jónas Ingi-
mundarson, Guðni Þ. Guðmundsson,
Sigfús Halldórsson, Trómet blásara-
flokkurinn, Félag áhugamanna um
harmonikkuleik og eldri nemendur,
sem nú eru í framhaldsnámi.
Tónlistarskóli Rangæinga telur 235
nemendur og við hann starfa 15
kennarar. Kennt er á sjö stöðum í
sýslunni. Skólastjóri er Sigríður Sig-
urðardóttir. -Sjó.
„Okkur vantar
ekki einu sinni
óþarfann”
Árneshreppur: „Já, við áttum ágæta
jólahátíð - nóg að bíta og brenna.
Okkur vantar ekki einu sinni óþarfan
eins og konuna sem hann Ómar talaði
við í Knarrarnesi. Og það sem mest
var um vert, að rafmagnið hélst hjá
okkur öll jólin. Við höfðum verið
rafmagnslaus nokkra daga fyrir jólin
en það komst á aftur á Þorláksmessu.
Pað var mikill munur". Þetta sagði
Guðmundur Valgeirsson bóndi á Bæ í
Árneshreppi er við spurðum hann
almennra frétta af mönnum þar og
hvcrnig menn geri sér dagamun í
strjálbýlinu.
„Fólk fer á milli bæja eftir því sem
það getur því við komið. Það hefur þó
verið heldur erfitt að undaförnu þar
sem hér hefur verið snjókoma og
því þungfært. Haustverðráttan var þó
heldur góð og vegir oftast færir innan
sveitar fram undir hátíðar", sagði
Guðmundur. HEI
Karlakórinn
Hreimur
gefur út plötu
Grindvíkingar
sameinast um
stofnun
ísfélags
á staðnum
Grindavík: Isfélag Grindavíkur h.f.
hefur nýlega verið stofnað. Hlutverk
félagsins er að tryggja nægt framboð á
ís svo og að bjóða upp á kæligeymslur
fyrir fisk og saltfisk í framtíðinni.
Áætlað er að settar verði upp þrjár
ísvélar er geti framleitt samtals 90 tonn
af ís á dag. Til þessa hafa Grindvíking-
ar orðið að sækja mest af sínum ís til
Keflavíkur eða jafnvel Reykjavíkur.
Hluthafar í hinu nýju fyrirtækin eru
útgerðarmenn, fiskverkcndur, Grinda-
víkurbær og Sjómannafélagið. For-
maður félagsins er EiríkurTómasson og
með honum í stjórn þeir Hafsteinn
Sæmundsson og Þórarinn Ólafsson,
Norðurland: Karlakórinn Hreimur í
Suður-Þingeyjarsýslu hefur nú sent
frá sér sína fyrstu hljómplötu. Allt frá
því kórinn vai stofnaður árið 1975
hefur hann lagt áherslu á að flytja lög
eftir þingeyska höfunda og lagt tals-
verða vinnu í slíka söfnun. Árangur-
inn kemur í Ijós á þessari plötu þar
sem öll lög á annarri hlið hennar eru
eftir núlifandi þingeysk alþýðutón-
skáld.
Karlakórinn Hreimur er eini starf-
andi karlakórinn í Þingeyjarsýslum.
Söngmenn eru úr: Aðaldal, Reykja-
hverfi, Kinn og frá Húsavík , á fjóða
tug að tölu. Söngmenn eiga því langt
Reikna þeir með að byrja á húsbygg-
ingu í janúar og áætla að ísframleiðsla
geti hafist í sumar. Þetta fari þó
talsvert eftir því hvernig félaginu verði
tekið í fjármálakerfinu.
-G.V./HEI
■ Þegar yfir þrjátíu Þingeyingar hefja upp raust sína og syngja af hjartans lyst,
hlýtur þá ekki útkoman að ylja hjarta þeirra er unna kórsöng á annað borð?
Þessi mynd af kórfélögum í karlakórnum Hreimi í Suður-Þingeyjarsýslu prýðir
umslag nýju plötunnar þeirra.
Mynd Liebermann
Góð jólagjöf
Grundfirðinga
■ Segja má að Eyrarsveit á
Snæfellsnesi hafi fengið nýja sjúkra-
bifreiða í jólagjöf að þessu sinni. Það
var Grundarfjarðardeild Rauðakross-
ins sem afhenti sveitarstjórn bifreiðina
til rekstrar hinn 22. desember s.l.
Nokkur dráttur hafði orðið á afgreiðslu
bílsins en verð samskonar bíls er nú
550-600 þús. kr.
„Jú víst var það mikið átak. En það
var tekið ákaflega vel undir þetta bæði
af einstaklingum og fyrirtækjum.
Margir voru stórtækir og eiginlcga
allir með í þessu svo við söfnuðum
ökkar hluta af verðinu eiginlega á
tveim dögum. Helmingurinn af bíl-
verðinu kom svo úr Sérverkefnasjóði
Rauðakrossins - en í hann rennur
helmingurinn af tekjunum úr sjúkra-
kössunum", sagði Guðmundur Smári
Guðmundsson formaður Grundar-
fjarðardeildar R.K.Í. spurður hvort
ekki væri mikið átak að safna fyrir
svona farkosti í sveit sem aðeins hefur
tæpa átta hundruð íbúa.
Að sögn Guðmundar er þetta fyrsti
sjúkrabíllinn sem kemur til Grundar-
fjarðar, en mikil þörf fyrir hann.
Sjúkraflutningar eru fyrst og fremst til
Stykkishólms. - HEI
■ Guðmundur Smári Guðmundsson formaður Grundarfjarðardeildar Rauða-
krossins afhendir hér Sigurði Eggertssyni sveitarstjóra í Grundarfirði hinn nýja
sjúkrabíl til rekstrar um óákveðinn tíma. Lengst til vinstri er Guðni E.
Hallgrímsson oddviti og Kristján Guðmundsson stjórnarmaður Grundarfjarðar-
deildar.