Tíminn - 18.02.1983, Page 5

Tíminn - 18.02.1983, Page 5
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983 5 fréttir ■ Á dögunum leit blaða- maður Tímans við í stöðv- um Landhelgisgæslunnar og ræddi við Gunnar Berg- steinsson, forstjóra, um að- stöðu „Gæslunnar“ og möguleika til að gegna hlutverki sínu við núver- andi aðstæður og þá með tilliti til fjármagns og tækjakosts. Einnig var rætt við Guðmund Kjærnested, skipherra, um störfín hjá stofnuninni, en hann er meðal reyndustu manna sem hún hefur á að skipa. ■ Nú hefur Landhelgisgæslan fengið fjárveitingu til að halda úti þrem skipum yfir vetrartímann, en í fyrra var aðeins hægt að halda úti einu. Tímamyndir G.E. Guðmundur Kjærnested um afleiðingar samdráttarins: „ SKIPSTJÓRARNIR ALUR AD VERÐA KARLSKRÖGGAR” — og þar af leiðandi óvígir ef til baráttu kemur ■ „Þarf að nýta þann tækjakost sem fyrir hendi er,“ segir Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. „Ernokkuð ánægður með fjárveitinguna” — segir Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar ■ „Þegar svona ósköp, eins og áttu sér stað vestur á Patreksfirði um daginn, verða kemur í Ijós hversu nauðsynlegt er að hafa tiltæk skip ipeð sérþjálfuðum áhöfnum - helst í hverjum landsfjórð- ungi,“ sagði Guðmundur Kjærnested, skipherra, þegar Tímamenn hittu hann í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, en þar fer hann með stjórnina um þessar mundir. „Þótt það hafi kannski verið tilviljun, liðu ekki nema sjö klukkustundir frá þvt að fréttist af snjóflóðunum, þar til varð- skip var komið til Patreksfjarðar með sér þjálfaða björgunarmenn - og eins og viðraði var ekki önnur leið almennilega fær, en sjóleiðin," sagði Guðmundur. „Það kom einnig vel í Ijós nauðsynin á að hafa í landinu stofnun, sem hefur yfir að ráða hvoru tveggja; skipum og flugflota, sem hafa þjálfun í að starfa saman. Það er heldur ekki svo lítils virði að um borð í varðskipunum eru tuttugu menn, sem allir hafa fengið undirstöðu- þjálfun í því hvernig bregðast skal við þegar slys ber að, hvort sem það er á sjó eða á landi. Einnig má benda á það að varðskipin eru sérstaklega útbúin til að taka á móti mörgu fólki - um berð cr kojupláss fyrir milli 40 og 50 manns fyrir utan áhöfnina og öllum þessum hóp er hægt að gefa að borða í matsölum skipanna. Þeim er í rauninni auðvelt að breyta í fljótandi hótel eða sjúkrahús," sagði Guðmundur. „Yantar stjórnendur“ „Oft þegar stór slys, náttúruhamfarir eða eitthvað annað, eiga sér stað er nauðsynlegt að hafa góða og ákveðna stjórnendur á vettvangi. Þeir þurfa að vera menn sem vanir eru að taka ákvarð- anir og segja fólki fyrir verkum. Mér er sagt að vestur á Patreksfirði hafi alls ekki verið hörgull á þeim. Þar eru svo margir sjómenn, stýrimenn og skipstjórar sem daglega eru að stjórna hópi manna - að vísu við misjafnlega erfiðar aðstæður en hika ekki við að taka erfiðar ákvarðanir á augnabliki. Við höfum á undanförnum árum alltaf verið að búa skipin betur, með það fyrir augum að gera þau að fljótandi björgun- arstöðvum, scm koma að gagni sem víðast. Alltaf lærist okkur eitthvað nýtt í þeim efnum. Við komumst til dæmis að því um daginn að í skipin vantar nauð- synlega sérstakar skóflur, stúnguskóflur sem auðvelt er að moka með harðan snjó. Einnig vantaði í skipin löng prik, sem koma að mjög góðum notum við snj óflóðaleit. “ Fjarskiptabúnaður „Eitt enn get ég nefnt í sambandi við varðskipin; um borð í þeim er mjög fullkominn og góður fjarskiptabúnaður, sem getur komið á sambandi milli tal- stöðva í landi, flugvéla og skipa. Á Patreksfirði þurfti varðskipið að hafa milligöngu um talstöðvarsamband milli sýslumannsins og lögreglunnar vegna þess að þeir voru á sitt hvorri tíðninni." „Víðar þröngt í búi“ - Hefur ekki verksvlð varðskipanna breyst mikið? „Það er óhætt að segja það. Áður var stöðugt eitthvað um að vera, en nú koma rólegir tímar inn á milli sem gera okkur kleift að sinna alla vega þjónustu mun betur en við gerðum. Núna er það til dæmis ekki óalgengt að við hjálpum bændum við fjárOutninga þegar erfitt er um vik. Einnig má nefna að nú höfum við meiri tíma til að þjálfa okkar mann- skap og eigum auðveldara með að vera í viðbragðsstöðu; sinna kallinu þegar það kemur. En á móti þessu kemur að við fáum ekki fjárveitingar til að nýta okkar tækjakost nema að hluta. En við gerum okkur fyllilcga grein fyrir að það er víðar þröngt í búi en hjá okkur. Það sem mér finnst einna verst við þennan samdrátt er að það á sér ekki stað nokkur einasta endurnýjun á mann- skapnum. Það endar á því að skipstjór- arnir verða allir að verða karlskröggar, alveg óvígir ef til einhverrar baráttu kemur. Það hefur ekki verið ráðinn nýr skipstjóri hjá Gæslunni síðan Eiríkur Kristófersson hætti í byrjun sjöunda áratugarins, svo allir geta séð að það er ekki eftirsóknarvert fyrir unga stýrimenn að ráðast hingað langi þá til að verða skipstjórar. Nú tekur það nokkra ára- tugi, en ég þurfti aðeins að vera stýri- maður í 10 ár,“ sagði Guðmundur. -Sjó. ■ „Miöað við hvernig Landhelgis- gæslan er tækjum búin gæti hún sinnt sínuni skyldustörfum, scm henni eru ætluð í lögum, mun betur en nú er gert. Það hlýturað vcra markmiðiðað fá rekstrarfé til að nýta tækin, en til að ná því vantar enn talsvert, þrátt fyrir heldur auknar Ijárveitingar," sagði Gunnar Kergsteinsson, forsljöri Land- helgisgaslunnar, í samtali við Tfmann. „Á árinu 1983 gcrir fjárs'citingin ráð fyrir að skipin, sem samtalscru fjögur, verði gerð út í 34 mánuði. En það þýðir að okkur verður klcift að gera út þrjú skip yfir veturinn, meðan þörfin er mest, en tvö á sumrin. f fyrra var gert ráð fyrir 28 mánaða úthaldi,“ sagði Gunnar. Hann sagði ennfremur aö fjárveit- ingar til rekstrar flugfiotans, þ.e. Fokkervélarinnar og þyrlanna tveggja, heföu heldur veriö auknar frá því í fyrra. Nú væri gert ráð fyrir að flugflot- inn yrði samtals 12(K) tíma í loftinu á móti 8(K> í fyrra, sem náttúrlcga dygði alls ekki í nauðsynlegustu verkefni, að sögn forstjórans. Ný verkefni „Það er okkur alveg Ijöst að stjórn, völdum er mikitl vandi á höndum að skipta því sem þau hafa til ráðstöfunar. Því verö ég að segja að miðað við nokkur undanfarin ár er ég nokkuð ánægður mcð það scm við fáum. Eftir þorskastríðin var eðlilcgt að draga saman -cn í því sambandi má þaðekki gleymast aö Landhelgisgæslan hcfur fengið mörg ný vcrkefni og einnig fengið tíma til að sinna öðrum betur eftir aö hægðist um á miðunum. Það kom vcl í Ijós um daginn, þegar óveðrin gengu yfir landið, að hverju gagni varöskipin geta komið. En því miður sýndi það sig líka að þau þyrftu að vcra fleiri í notkun - þau sem voru á sjó voru algcrlega bundin við Vest- firðina - þar af leiðir að öðrum lands- hlutum var ekki hægt að sinna.“ - Nú er hagsýslustofnun að gera úttekt á starfsemi Gæslunnar? „Þessi úttckt fer fram að beiðni Landhelgisgæslunnar og er gerð í samráði við menn frá henni. Miðar hún að því að finna út hvernig best verður hægt að nýta tækjakostinn með tilliti til fjárveitinganna hverju sinni. En þessi úttekt mun náttúrlega ekki hafa neitt afgerandi að segja um fram- tíð stofnunarinnar - hún er í hendi stjórnvalda," sagði Gunnar. -Sjú. ■ Guðmundur Kjærnested, sem nú fer með stjórnina í stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar ásamt loftskeytamanninum Hjalta Sæmundssyni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.