Tíminn - 23.02.1983, Page 1
íslendingaþættir fyigja blaðinu í dag
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Miðvikudagur 23. febrúar 1983
44. tölublað - 67. árgangur
Hækkar verdbótavísitalan um 14-15% um mánaðamótin?
NDURGREIÐSLUR AIIKNAR UM 5%
11L AD HÆGM A VERU6ÓLGUNNI?
Tillaga framsóknarmanna þar um andmælt af Alþýðubandalaginu
■ Allar líkur benda til að verð-
bótavísitalan hækki um 14-15%
um nxstu mánaðamót. Fjármál-
aráðherra hefur sagt að hann
muni láta ríkið greiða sín-
um starfsmönnum samkvæmt
því. Þingflokkur framsóknar-
manna hefur farið þess á leit að
niðurgreiðslur landbúnaðarvara
verði auknar til að ná vísitölu-
hækkuninni niður í 10%. Alþýðu-
bandalagsmenn í ríkisstjórn hafa
lagst gegn auknum niður-
greiðslum, en sjálfstæðismenn í
stjórninni eru þeim hlynntir.
- Eftir að ljóst var að lagfæring
á viðmiðunarkerfinu nær ekki
fram að ganga finnst okkur fram-
sóknarmönnum að eitthvað
verði að gera til að hægja á þeirri
verðbólguöldu sem nú gengur
yfir, sagði Steingrímur Her-
mannsson í gær eftir að al þýðu-
bandalagsmenn neituðu að auka
niðurgreiðslur til að draga úr
verðbólguhraðanum.
- Það yrði allt annað að ráða
við vandann fyrir nýja ríkisstjórn
sem að sjálfsögðu tekur við eftir
kosningar sagði Steingrímur.
- Svo virðist þegar nú fer að
nálgast kosningar að Alþýðu-
bandalagið vilji hvorki hreyfa
legg né lið til að draga úr verð-
bólguöldunni. Því er borið við
að forysta launþega sé mjög
andsnúin auknum niður-
greiðslum. Satt að segja undrar
það mig þegar ég held að öllum
sé orðið ljóst að svona hækkun á
verðbólgu kemur fyrst og fremst
þeim sem hæstar hafa tekjurnar
til góða. Það er nánast verið að
vernda þá. Miklum verðbóta-
hækkunum fylgja náttúrlega
miklar hækkanir á öllu verðlagi
og engir bera neitt úr býtum
nema helst þeir sem fá flestar
krónur, sem sagt hátekju-
mennirnir.
Steingrímur sagði að tillagan
um niðurgreiðslurnar kæmi að
vísu seint fram en slíkar ráðstaf-
anir hefðu áður verið gerðar
með enn minni fyrirvara og það
væru léttvægar mótbárur að ekki
væri hægt að reikna út launin
síðar þótt þau yrðu greidd út um
mánaðamót. Sjá nánar viðtal
við Steingrím á bls. 3. - O.Ó.
„ÚTILOKAÐ
AÐ HÆKKA
ABURÐ UM
120%
— ríkissjóöur verður að
verulegu leyti að standa
undir skakkaföllunum/'
segir Steingrímur
Hermannsson
■ „Ég tel útilokað að láta
áburðinn hækka um 120% í vor.
Útilokað er að láta þannig hátt
gengi dollarans stjóma því á
hvaða verði við seljum áburðinn
hér innaniands. Að mínu mati er
ekki um annað að gera en að
ríkissjóður - sem á Aburðar-
verksmiðjuna - verði að yeru-
legu leyti að standa undir þeim
skakkaföllum sem orðið hafa,
þ.e. að taka á sig verulegan hluta
af þeim halla sem þama hefur
myndast. Hvort sem hann gerir
það í einu lagi eða smám saman
skiptir ekki meginmáli“, sagði
Steingrímur Hermannsson, en
hann var í ráðherranefnd þeirri
sem kannaði málefni Áburðar-
verksmiðjunnar, sem nú stendur
frammi fyrir því að þurfa að
hækka áburðarverð uin 120% í
vor, verði ekki gripið til ein-
hverra ráðstafana.
Steingrimur sagði ljóst að sér-
staklega undanfarin 3 ár hafi
hallað mjög á ógæfuhliðina hjá
Áburðarverksmiðjunni, fyrst og
fremst vegna þess að hún hafi
frá upphafi þurft að taka rekstr-
arlán í dollurum. Er hann var
landbúnaðarráðherra kvaðst
hann hafa viljað breyta þessu,
þannig að verksmiðjan fengi
rekstrarlán hér innanlands, en
ekki hafi reynst mögulegt að
koma þeirri breytingu á.
„Þegar dollarinn hækkar
svona gífurlega umfram verðlag
hér innanlands hcfur það ekki
verið tekið inn í verðlagningu
áburðarins. Raunar var hækkun
áburðarverðsins síðast byggð á
niðurstöðu Þjóðhagsstofnunar
og Seðlabanka, sem þá alls ekki
gerðu ráð fyrir slíkri hækkun
dollarans. Þetta sýnir því auðvit-
að að við getum alls ekki rekið
svona undirstöðu framleiðslufyr-
irtæki á erlendum rekstrarlánum
og verið þannig háðir missigi
gengisins," sagði Steingrímur.
- HEI.
» .V
■ Nú er fátt um manninn í Aðalvík, en þar var áður mikið athafnalíf og blómleg útgerð. Þessa sérstæðu vetrarmynd tók Ijósmyndari Tímans
þar vestra, er hann var á ferð um þessar afskekktu slóðir. (Tímamynd: Árni) *
„HP-KÖNNUNIN MUN
VERRIEN HJA DV”
segir Þórólfur Þóriindsson
■ í viðtali sem Tíntinn á í dag
við Þórólf Þórlindsson, pró-
fessor, kemur fram hörð gagn-
rýni á skoðanakönnun Helg-
arpóstsins, sem Þórólfur gagn-
rýnir fyrir ýinsar aðferðarvill-
úr. Telur hann úrtakið skakkt
og svörin af mikið flokkuð.
Segir hann þetta því verra, þar
sem Helgarpóstsmenn gefa til
kynna að könnunin sc mun
bctur gerð og marktækari en
raun bcr vitni.
Hlýtur könnun DV betri
einkunn hjá Þórólfi, þrátt fyrir
það að úrtak þeirra sé minna,
m.a. vegna þess að hún er ckki
jafn mikið flokkuð niður.
- Sjá nánar á bls. 2.
DEILT UM
LODNUNA
■ Eggert Þorfinnsson, skip-
stjóri á Hilmi SU hefur borið
brigður á loðnumælingar haf-
rannsóknastofnunar á þeim for-
sendum að hann rakst nýlega á
verulegt magn af loðnu verulega
miklu austar en sú loðna átti að
vera sem fiskifræðingar hafa ver-
ið að mæla, en fiskifræðingar
hafa áætlað magn hrygningar-
loðnunnar þarna 45 þúsund
tonn. Loðnan sem Eggert rakst
á var á Berufjarðarsvæðinu og
telur Eggert að rétt sé að skipin
fái að veiða þessa loðnu, en það
verði að gerast strax, ef af á að
verða.
Hjálmar Vilhjálmsson ber
brigður á mat Eggerts á málun-
um, en Tíminn ræðirvið þábáða
á bls. 3 í blaðinu í dag.