Tíminn - 15.04.1983, Blaðsíða 1
Vinnustaðafundir Framsóknarflokksins Sjá bls. 2
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Föstudagur 15. apríl 1983
85. tölublað - 67. árgangur
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra um árásir Geirs Hallgrímssonar:
„MUN ÖSKA EFTIR GRDNAR-
GERB FRA SEMABANKANUM”
Steingrímur
Hermanns’
son:
„EKKI ÆTIAÐ
ADDRAGA
F
■ „Ég hef ekki gert ráð fyrir að
gefa út neina yfirlýsingu til
minna stuðningsmanna út af
þeirri ræðu, eða frásögn Morg-
unblaðsins af henni. Ég mun
aðeins óska eftir greinargerð
Seðlabankans, hvað hæft sé í
þeim alvarlega áburði að láns-
traust íslendinga sé að veikjast
og bila á erlendum markaði,"
svaraði dr. GunnarThoroddsen,
forsætisráðherra fyrirspurn á
fundi sem Sjálfstæðisfélag Hóla-
og Fellahverfis gekkst fyrir í
gærkveldi, og var fundurinn sótt-
ur af liðlega 100 manns. Fyrir-
spurnin var upp borin, vegna
fréttar Morgunblaðsins í gær, af
fundi sem formaður Sjálfstæðis-
flokksins Geir Hallgrímsson hélt
á ísafirði í fyrrakvöld, en þar
sagði hann m.a. að enn stæðu
sjálfstæðismenn frammi fyrir
þrotabúi vinstri stjórnar, og að
þessu sinni horfðust þeir í augu
við versta viðskilnað nokkurrar
ríkisstjórnar í sögu lýðveldisins.
Forsætisráðherra var spurður
nokkuð um hvern hann vildi
styðja í komandi kosningum, en
hann gaf ekki út neinar beinar
yfirlýsingar, sagði aðeins að með
hliðsjón af viðbrögðum flokks-
forustunnar vegna stuðnings
yfirlýsinga hans við SjáJf-
stæðisflokkinn í sveitar-
stiórnarkosningunum í fyrra, sæi
hann ekki ástæður til þess að
vera með opinberar yfirlýsingar.
Forsætisráðherra fiutti á fund-
inum framsöguerindi undir yfir-
skriftinni „Hvað erframundan",
og kom glöggt fram í máli hans
að hann teldi að það sem fram-
undan væri þýðingarmest væri
að koma í veg fyrir áframhald á
sjálfvirkni vísitölukerfisins, því
nú væri enn ein holskeflan fram-
undan 1. júní nk., þegar búast
mætti við 20% hækkun á kaup-
lagi og verðlagi. Það yrði helsta
viðfangsefni næstu ríkisstjórnar
og menn mættu því ekki einblína
á aðrar kosningar í sumar eða
haust, og neita þar með að axla
ábyrgðina. Þar sem að nýtt
stjórnarskrárfrumvarp hefði nú
verið lagt fram, eftir hartnær 40
ára endurskoðun, þá þyldi það
smábið að það kæmist að fullu í
framkvæmd, því efnahagsvandi
sá sem skapaðist með núverandi
vísitölukerfi færi stöðugt vax-
andi, og við svo búið mætti ekki
standa öllu lengur.
FERÐAMANNA”
■ „Þessari reglugerð er alls
ekki ætlað að draga úr komu
erlendra ferðamanna hingaö,"
sagði Steingrímur Hermanns-
son samgönguráðherra erhann
var spurður um reglugerð sem
hann hefur sett um ferðir er-
lendra ferðamanna um hálendi
lslands.
-Sjá bls. 5
Ólafur Jó-
hannesson:
„F0RSET1NN
OKKARHL
MIKILS SÓMA”
■ „Þessi för var ágæt og
ánægjuleg og forsetinn okkar
var til mikils sóma,“ sagði Ólafur
Jóhannesson, utanríkisráðherra
í samtali við Tímann í gær, er
hann var nýkominn heim frá
París, þar sem hann var í fylgd
með Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta íslands, í opinberu heim-
sókninni sem lýkur í dag.
„Það var talsvert um að vera,
bæði í fyrradag og gær,“ sagði
Ólafur, „og í dag átti'að halda
áfram. Meðal annars ætlaði for-
setinn til Versala, og síðan að
fara í kvöld í Óperuna í boði
menntamálaráðherra
Frakklands.“
Ólafur sagði að menningar- og
vísindasamningurinn sem hann
og utanríkisráðherra Frakklands
undirrituðu, væri rammasamn-
ingur, sem framkvæmdin yrði
síðan að fylla út í. Þetta væri
stefnumótandi samningur fyrir
samskipti landanna á þessum
sviðum, hvað framtíðina snertir.
„Við áttum stuttan fund í
hefðbundnum stíl, ég og utanrík-
isráðherra Frakklands," sagði
Ólafur, „þar sem við fórum ör-
stutt yfir heimsmálin, og þá
sérstaklega Evrópumál, bæði
samskipti austurs og vesturs, og
afvopnun og öryggismál í Evr-
ópu, auk þess sem við báðir
minntumst náttúrlega á sam-
skipti landanna, og töldum þau
vera ágæt. Ég lét í Ijós þá skoðun
að æskilegt væri að viðskipti
landanna væru aukin.“
Ólafur sagði að hann og utan-
ríkisráðherra Frakklands hefðu
haft nokkuð svipaðar skoðanir á
heimsmálunum, þó svo að
Frakkarnir væru kannski nokkuð
sér á báti í sumum atriðum, en
■þó þyrftu þeirra hugmyndir ekki
að liggja svo fjarri okkar hug-
myndum. -AB
■ Frá undirritun samkomulags um menningar og vísindasamvinnu milli ríkisstjórnar íslands og ríkisstjórnar Frakklands. Það eru utanríkisráðherrarnir Claude Cheysson
og Ólafur Jóhannesson, sem hér takast í hendur að samkomulagi gerðu.
Sendinefnd íslands og Elkem til Japan ídag:
REYNA AÐ SEUA SUMI T0M0
15 MÍS. TONN JARNBLENDIS
og ræða auk þess hugsanlega eignaraðild
SumiTomoíverksmiðjunni á Grundartanga
■ Sendinefnd iðnaðarráðu-
neytisins ásamt sendinefnd Elk-
em Spiegerverket heldur í dag til
Tokyo í Japan, til þess að hitta
þar að máli fulltrúa japanska
fyrirtækisins Sumi Tomo og ræða
um hugsanleg kaup fyrirtæklsins á
járnblendi frá Grundartanga og
jafnvel kaup á um 20% af 45%
eignarhluta Elkent í Grundar-
tanga og eru þessar viðræður
framhald viðræðna milli sömu
aðila frá því í janúar sl. eins og
Tíminn greindi frá á sínum tíma.
Islenska sendinefndin verður
skipuð þeim Páli Flygenring,
Ragnari Árnasyni og Hirti
Torfasyni, en Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Grundar-
tanga verður einnig með í för-
inni.
„Þetta er svona upphaf á
viðræðum um það hvort þetta
japanska fyrirtæki muni vilja
kaupa meira af efni héðan,“
sagði Páll Flygenring ráðuneytis-
stjóri, er Tíminn ræddi við hann
í gær um þessa för. „Það kom til
umræðu í janúar sl. hvort Japan-
irnir mundu vilja kaupa þann
hluta í verksmiðjunni sem El-
kem vill selja, en það er ekkert
komið á hreint í því sambandi,“
sagði Páll jafnframt.
Páll var spurður hvort það
væri skilyrði af íslands og
Norðmanna hálfu að ef Sumi
Tomo fengi að kaupa hlut í
verksmiðjunni á Grundartanga,
þá myndi það jafnframt stórauka
kaup sín á efni héðan: „Já, það
má kannski segja það, en þó
held ég að ekki sé rétt að kalla
það skilyrði, því Japanirnir
myndu gjarnan vilja auka kaupin
jafnhliða því sem þeir yrðu með-
eigendur. Það sem við stefnum
að að reyna að selja Japönunum
á ársgrundvelli, er um 15 þúsund
tonn af járnblendi, sem myndi
hafa það í för með sér að hagur
fyrirtækisins myndi vænkast
verulega, en það lítur annars
betur út núna með afkomu verk-
smiðjunnar, en gert hefur, vegna
þess að járnblendið hefur hækk-
aðíverði." -AB