Tíminn - 15.04.1983, Blaðsíða 5
FOSTUDAGUR 15. APRIL 19X3
fréttir
■ Á kosningaskrifstofunni að Rauðarárstíg 18: Baldur Hóimgeirsson, Ólafur A.
Jónsson og Gestur Kristinsson.
Kosningaundirbúningurinn
í Reykjavík:
„Allir Framsóknar-
menn þurfa að leggja
hönd á plóginn”
— segir Gestur Kristinsson,
kosningastjóri B-listans í Rvik.
■ - Framsóknarflokkurinn stendur við höfum opið hús á hverju kvöldi hér
vel í þessari kosningabaráttu, en hitt er í kjallara Framsóknarhússins. Þar verð-
ljóst, að enginn framsóknarmaður má ur kaffi á boðstólum og auðvitað kökur,
liggja á liði sínu þessu fáu daga fram að við bjóðum upp á skemmtiatriði, og í
kjördegi, ef árangur á að nást, sagði kvöld kemur t.d. Bergþóra Árnadóttir
Gestur Kristinsson, kosningastjóri B- fram. En það verður líka vinna þarna í
listans í Reykjavík, þegar Tíminn leit kjallaranum, því má ekki gleyma, það
inn í aðalstöðvar kosningabaráttunnar verður að nota hverja stund til starfa. -
að Rauðarárstíg 18 í gær til að leita En svo við víkjum að fundahaldi, þá
frétta. verður kosningafundurinn sem jafn-
Þarna var mikið um að vera. Gestur framt er skemmtun, í Háskólabíói að
mátti varla vera að því að sinna viðtali þessu sinni, á sumardaginn fyrsta, eða
fyrir símhringingum hvaðanæva að, því fimmtudaginn 21. apríl, og verður þar
að undirbúningur að kaffiboði Ólafs fjölbreytt dagskrá, sem mjög er til
Jóhannessonar með eldri borgurum var vandað, og verður hún nánar auglýst
á lokastigi, og í mörg horn að líta þess síðar. - Loks langar mig til að minnast á
vegna. barmmerki, sem gerð hafa verið og við
Við inntum Gest eftir helstu atriðum væntum, að sem flestir beri að þessu
undirbúningsins, og urðu vinnustaða- sinni.
fundir fyrst fyrir okkur. - Að lokum langar mig til að undir-
- Vinnustaðafundirnir hafa tekist sér- strika áskorun til allra framsóknarmanna
staklega vel að þessu sinni, enda undir- að duga vel þessa fáu daga fram að
búningur þeirra með ágætum. Sveinn kjördegi. Það vantar alltaf fólk til starfa
Grétar Jónsson hefur annast þann þátt hér á kosningaskrifstofunni, og við verð-
málsins, og frambjóðendum flokksins um að hafa það hugfast, að árangur næst
hefur hvarvetna verið tekið með miklum ekki nema með sameiginlegu áfaki allra,
hlýhug og velvilja og stefnumálum sagði Gestur Kristinsson, kosninga-
flokksins jafnan verið sýndur mikill stjóri, að lokum.
áhugi. Það er enginn váfi á því, að___.-
málflutningur framsóknarmanna hér í Þá var aldeilis nóg um að vera á
höfuðborginni hefur fengið mjög góðan kosningaskrifstofunni í Breiðholti, þar
hljómgrunn. sem starfað hefur verið af miklum krafti
- í hverju hefur starfið hér á skrifstof- síðan um mánaðamót, en skrifstofan er
unni verið fólgið? til húsa að Hraunbergi 7. Það eru þau
- Hérna hefur geysimikil undirbún- Guðrún Flosadóttir og Pétur Sturluson,
ingsvinna farið fram, og ekki allt komið Sem hafa stjórn skrifstofunnar með
í Ijós enn. Nú er að hlaupa af stokkum höndum, og var Pétur léttur í máli,
kynning á frambjóðendum og stefnu þegar við báðum hann að segja .okkur,
flokksins í myndarlegum bæklingum, hvernig starfið gengi.
sem bornir verða í hvert hús. Þá er - Hérnavantarekkiáhugann. Hingað
undirbúningur kosninganna sjálfra. kemur fjöldi manns á hverjum degi til
Ólafur Aðalsteinn Jónsson hefur með þess að taka þátt í starfinu og vinna að
höndum stjórn starfsins í einstökum sem bestum framgangi mála fyrir fram-
hverfum, og það er allt á góðum vegi. sóknarmenn í kosningabaráttunni. Við
Undirbúningur frá hendi fulltrúaráðsins höfum líka haft samband við fjölmarga,
var með ágætum, en það var í umsjá 0g erum harla bjartsýn á velgengni
Baldurs Hólmgeirssonar. Er þá aðeins framsóknarmanna hér í höfuðborginni í
getið örfárra af öllum þeim, sem unnið þeSSari kosningahríð. Fari svo sem
hafa gott starf hér á skrifstofunni, og horfir, verður útkoman góð - en í
eiga þakkir skildar fyrir. sambandi við undirbúningsstarfið er rétt
- Framsóknarmenn hafa jafnan verið að undirstrika það rækilega, að margar
umsvifamiklir á sviði skemmtana og hendur vinna létt verk, og við viljum
fundahalda fyrir kosningar. Hvað er á gjarnan fá sem flesta - og auðvitað alla
döfinni í þeim efnum? framsóknarmenn - í heimsókn hingað til
- Nýjungar, sem við bryddum á að okkar.
þessu sinni, eru meðal annars þær, að _ÁK
■ Á kosningaskrifstofunni að Hraunbergi 7: Pétur Sturluson og Guðrún Flosadóttir.
Steingrímur Hermannsson, samgönguráðherra
um nýja reglugerd um komur erlendra
ferðamanna með safarlbílum til landsins:
JUllR VELKOMNK SEMI
GANGA VELIIM lANDHT
■ „Staðreyndin er sú, að Ferðamála-
ráð setti í gang fyrir u.þ.b. tveimur árum
athugun á þessum málum öllum í sam-
ráði við mig," sagði Steingrímur Her-
mannsson, samgönguráðherra er Tím-
inn spurði hann út í reglugerð sem
samgönguráðuneytið hefur sett um
ferðamáta um hálendi íslands.
„Niðurstaðan af þessari athugun var
sú að mjög góðri yfirlitsskýrslu var
skilað, þar sem m.a. var vakin athygli á
eftirlitsleysi, bæði með því t.d. hvað
ferðamenn koma með með sér inn til
landsins, s.s. þeir sem koma meðSmyrli,
en mikil brögð eru að því að menn komi
með matarvistir með sér til lengri tíma,
sem er bannað, og jafnvel með bensín-
tanka sem er bannað að hafa með á
Smyrli, og einnig var vakin athygli á því
að ekki er haft eftirlit með ferðum
þessara bifreiða,sem koma með Smyrliá
hálendinu," sagði Steingrímur.
Hann sagði að þeir í samgönguráðu-
neytinu hefðu haft samband við þau
ráðuneyti sem þessum málum tengjast á
einhvern hátt, en hann sagði að það yrði
að segjast eins og er, að viðbrögðin frá
ráðuneytunum hefðu veriðákaflega lítil.
Hann sagðist því hafa falið Ferðamála-
ráði að skoða málið frekar, í framhaldi
af þessari skýrslu, sem það hefði síðan
gert.
„Eg tók síðan þá ákvörðun," sagði
Steingrímur, „af því mér fannst þetta
dragast nokkuð, að notfæra mér heimild
sem er í lögum um Ferðamálaráð, sem
heimilar samgönguráðherra að setja
reglugerð um erlenda ferðamenn hér á
landi. Þessari reglugerð er alls ekki
ætlað að draga úr komunt erlendra
ferðamanna hingað. Að sumu leyti getur
hún orðið til þess að þeir njóti ferðarinn-
ar miklu betur, s.s. með leiðsögumann
með sér. Henni er náttúrlega ætlað að
koma í veg fyrir svona ósóma, sent
maður veit að hefur tíðkast, þegar t:d.
þessir safaribílar hafa verið að koma
hingað með Smyrli og þessum ferjum,
og fara síðan um hálendið vítt og breitt
án nokkurs eftirlits, og stórskemma
gróður. 1 þessari reglugerð, er boðið upp
á það, að ef slíkir leiðangrar eru undir-
búnir í samráði við íslenskar ferðaskrif-
stofur, þá verði þessar íslensku ferða-
skrifstofur jafnframt ábyrgar fyrir því að
svonalagað komi ekki fyrir. í reglugerð-
inni er jafnframt gert ráð fyrir að
Ferðamálaráð útbúi bæklinga sem allir
fái, sem hingað koma í svona erindum,
og fái þar með ítarlegar upplýsingar um
þær reglur og skyldur sem fylgja.
Ég vek athygli á því að heimild er til
þess að krefjast þess, að íslenskur leið-
sögumaður sé með í ferðinni, og heimild
til þess að settar séu tryggingar, þegar
farið er inn í óbyggðir, sem gætu þá
staðið undir hjálparstarfi eða leitarstarfi,
ef til kæmi. í þessu sambandi bendi ég á
þennan franska mann, sem virðist að
vísu vera ansi hress og mikil hetja, því
fáir aðrir hefðu að líkindum lifað af hans
hrakningar. En í raun og veru ættu slíkir
menn að leggja fram tryggingu, þannig
að hægt væri að kosta leit, ef til slt'ks
kæmi. Við höfum náttúrlega mörgtilfelli
þannig, að útlendingar, ókunnugir og
vanbúnir hafa farið illa klæddir upp á
hálendið, og það hefur komið fyrir oftar
en einu sinni að við höfum orðið að
senda út leiðangra til þess að bjarga
þessu fólki, en erlendu fcrðaskrifstof-
urnar sem hafa skipulagt ferðina, eru
náttúrlega víðsfjarri.
Hér er veriö að reyna að kippa því í
lag, sem illa hefur verið skipulagt í
þessum málum hingað til, án þcss að
verið sé að setja nokkurn þröskuld í veg
slíkra ferðamanna. Það eru allir vel-
komnir sem vilja ganga vel um landið."
Steingrímur sagði að jafnframt hefði
verið ákveðið að sctja upp samstarfs-
nefnd ráðuneytanna, þ.e. samgöngu-
fjármála- dómsmála- félagsmála- og
menntamálaráðuneyti, sem ætti að vera
til samráðs um þessa hluti, eins og
tollgæsluna, starfsheimildir fyrir erlenda
leiðsögumenn, og löggæslu o.fl.
-AB