Tíminn - 15.04.1983, Qupperneq 2

Tíminn - 15.04.1983, Qupperneq 2
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983 Leidrétting: Fengu 500 þúsund kr. ■ í upptalningu á þeim 28 fyrirtækjum í sjávarútvegi sem þegar hafa verið afgrcidd lán til úr Fiskveiðasjóði og getið er um í Tímanum í gær liefur prentvillupúkinn komist í tvær upphæð- ir, annarsvegar hjá Sjólahf. oghinsvegar hjá Haferninum. Bæði þessi fyrirtæki eru sögð fá 5 millj. kr. en hiö rétta er að þau fá 500.000 kr. Afli út- lendinga við Island 18.883 tonn ■ Afli útlendinga hér við land á síðasta ári var 18.883 tonn samkvæmt tölum frá Fiskifélagi íslands, þaraf þorskafli 5.889 tonn. Lang stærsta hluta þessa afla veiddu Færeyingar, eða 15.719 tonn. þar al' 5 þús. tonn af þorski. 3.684 tonn af ulsa, um 2.100 tonn af ýsu og hitt af ýmsum öðrum tegundum. Afli Norðmanha við Island í fyrra var 1.858 tonn, þar af 723 tonn af keilu, 650 tonn af þorski og annað skiptist á margar tegundir. Þriðja þjóðin sem stundaði veiðar við Island var Belgía, tills 1.306 tonn. Mestur varð ýsuafli Belgá, 379 tonn og síðan milli 200 og 300 tonn af þorski, ufsa og karfa. Auk þess sem aö framan er talið veiddu Færeyingar tæp 5 þús. tonn af kolmunna við Island, eða 4.940 tonn samkvæmt því sem tilkynnt hefur verið af miðurium, en 4.800 tonn samkvæmt fréttum i Dimmalætting. -HEI Vídeotæki stolid úr bíl ■ Vídeotæki var stolið úr híl sem lagt hafði verið við, norðanverðan Skothús- veg viö Laufásvcginn s.l. mánudag. Kona nokkur hafði haft tækið á lcigu og hugðist skila því þcnnan dag en vcgna þess að vídcólcigan var lokuð geyntdi hún tækið í hílnum. Þegar hún kom aftui hafði verið farið inn í hílinn og tækiö haft á hrott. Bíllinn var læstur en sennilega hefur verið farið inn í hann mcð öðrum passandi lykli. Atvikið átti sér stað milli klukkan 12 og 18.30. Ef cinhvcr hefur orðið var vic þetta atkvik er hann bcðinn aö haf; samband. viö rannsóknarlögregluna. Athugasemd frá Inga R. ■ Ingi R. Hclgason hefursent blaðinu eftirfarandi athugasemd: Hr. ritstjóri I blaði þínu í dag er sagt, að ég hafi staðið í endurskoðun samninganna við Alusuisse 1975 og er lagt út af því á ýmsan hátt. Þetta þarf að leiðrétta. Ég var í viðræðunefnd um orkufrekan iðnað meðan hún starfaði, en aðeins hluti nefndarinnar, þ.e. fulltrúar ríkisstjórn- arflokkanna, Framsóknar og Sjálfstæðis- flokksins, þeir Steingrímur Hcrmanns- son og Ingólfur Jónsson stóðu í viðræð- unum við Alusuisse ásamt Jóhannesi Nordal. í von um að þú viljir heldur hafa það í blaði þínu, sem réttara er, sendi ég þér þessa leiðréttingu." -Sjá einnig Starkað á bls. 8 Jípfw f f|i| . Iflljljf. mmm fSSj iriin v _ ■ „Efnahags- og verðlagsmálin eru allsstaðar efst á baugi á öllum fundum sem við komum á“, sagði Jóhann Einvarðsson sem hér er á fundi í Álverksmiðjunni í gær, en það er Helgi H. Jónsson scm hafði orðið þegar þessari mynd var smellt af. Vinnustadafundir frambjóðenda Framsóknar: „HðFUM MIÖG VlBA NAD UPP AGÆIRI STEMMNINGU” — segir Jóhann Einvarðsson um vinnustadafundina að undanförnu ■ „Okkur hefur víðast verið tekið ákaflcga vel á fundum þeim sem við höt'um haldið mjög víða í kjördæminu, og tnjög víða náð upp ágætri stemmn- ingu í fyrirspurnum, athugasemdum og skömmum á vinnustöðum. Ég held að þessir fundir hjá okkur hafi almennt verið taldir fjörugir hjá okkur. Hver árangurinn verður þori ég auðvitað ekki að segja um“, sagði Jóhann Einvarðs- son. alþingismaður cr við náðum ör- stuttu spjalli við hann milli funda í gær og spurðum hann m.a. uin vinnustaða- fundi þá er frambjóðendur Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi hafa nú haldið á fjölmörgum stöðum. Þeir voru t.d. á fjölmennum og fjörugum fundi í Alverksmiðjunni í hádeginu í gær og áttu að vera komnir þangað á annan fund korteri eftir að við náðum tali af Jóhanni, þ.e. kl. 18.30 með kvöldvakt- inni. Þaðan lá leiðin á fund upp í Kjós kl. níu í gærkvöldi. „Já, þetta var mjög fjörugur fundur í Álverksmiðjunni. Við fengum ntikið af spurningum og athugasemdum, menn höfðu greinilega ákveðnar skoðanir. Óneitanlega höfðu menn verulegar áhyggjur af þeim umræðum sem farið hafa fram um verksmiðjuna. Þar vinna um 700 manns með allstóran hóp á „Gott ástand á skelfisk- miðunum” — segir Hrafnkell Eiríksson, fiskifræðingur, um bord í rs. Dröfn ekki á því fyrr en unt næstu mánaða- tnót, en stofnstærð humarsins virðist t hámarki núna cftir lægð á árunum 1973-74. Við höfunt lagt til að leyfilegt verði að veiða sama niagn núna og í fyrra eða 2700 tonn. Það er dálítil óvissa um endurnýjun á yngri ár- göngum, ég er svolítið uggandi unt að veiðin kunni að fara niður á við næstu árin," sagði Hrafnkell. Ef gefur mun Dröfnin halda til rannsókna á rækju- miðunum við Eldey cftir athuganirnar í Hvalfirði. auk þess sent leitað vcrðúr að nýjum rækjuntiðum. -JGK ■ „AÍmennt er ástandið á skelfisk- miðunum heldur gott, ef við tökum svæðið í Breiðafirði og við Vestfirði. Nú erum við að rannsaka hörpudiskinn í Hvalfirði og það virðist heldur tregara nú en í fyrra en það er of sncmmt að fullyrða nokkuð um það ennþá,” sagði Hrafnkell Eiríksson fiskifræðingur í samtali við Tímann i gær en hann er leiðangursstjóri í leiðangri sem nú stendur yfir á ranrisóknaskipinu Dröfn. „Við erum ekkert farnir jjð kanna humarinn ennþá á þessu vori, byrjtim framfæri. Þeim þykir auðvitað að þessi umræða skapi tilefni til að halda að framtíð þeirra geti verið ótrygg og ég held að þeir vilji fara að fá botn í þessi mál - að þau vcrði tekin föstum tökum og reynt að ná samningum við yfirvöld verksmiðjunnar, þannig að menn þurfi ekki að búa við þcssa óvissu Iengur", sagði Jóhann. En hver eru helstu málin sem fólk ræðir um almennt? - Það er allsstaðar spurt um verðbólg- una. Efnahags- og verðlagsmálin, svo og atvinnuöryggið eru efst á baugi á öllum stöðum sem viðTomum á. Á hverjum stað fyrir sig koma svo auðvitað spurn- ingar og athugasemdir um þau atvinnu- mál sem mönnum eru næst eftir því hvert fyrirtækið er. í fiskvinnslufyrir- tækjum eru það auðvitað útvegsmálin, vöruvöndunin, fiskþurrð og aflaleysi sem um er spurt. I skipasmíðastöðvum eru það skipaiðnaðurinn og innflutning- ur skipa erlendis frá og svo framvegis, sagði Jóhann. Aðspurður kvaðst hann óneitanlega verða var við nokkra pólitíska þreytu, eða að fólki þyki að menn hafi ekki staðið sig nægilega vel. „Maður horfir til kjördags með hófsamri bjartsýni", sagði Jóhann. -HEI ■ Arnþrúður Karlsdóttir og Inga Þyrí Kjartansdóttir höfðu einnig ýmislegt að ræða við strákana í Álverinu. ■ Hér eru Helgi H. og Jóhann Einvarðsson á fundi með starfsmönnum í ísfugl h.f. í Mosfellssveitinni. Tímamvndir G.E. ■ Guðmundur G. Þórarinsson brá sér í Álverksmiðjuna á framboðsfund, þótt ekki sé hann í framboði við næstu kosningar a.m.k.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.